Morgunblaðið - 10.12.1983, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 1983
Miðstjórn Sjálfstæðisflokksms:
Birgir Isl. Gunnarsson for-
maður framkvæmdastjórnar
Á FUNDI miðstjórnar Sjálfstæðis- fræðsluráðs, Esther Guðmunds-
(lokksins í gær var kosin fimm dóttir, formaður þingflokks,
manna nefnd til að vinna að endur- Ólafur G. Einarsson og formaður
skoðun á skipulagsreglum flokks- útbreiðslunefndar, en á fundin-
ins og prófkjörsreglum, að því er um gær var kosningu í það emb-
Kjartan Gunnarsson, fram- ætti frestað.
kvæmdastjóri flokksins, sagði í
samtali við blm. Morgunblaðisins í
gær. Formaður nefndarinnar er
Vilhjálmur l>. Vilhjálmsson borg-
arfulltrúi. Miðað er við að nefndin
skili tillögum sínum fyrir næsta
landsfund að tveimur árum liðnum.
Á fundinum í gær var Birgir
ísl. Gunnarsson alþingismaður
einnig endurkjörinn formaður
framkvæmdastjórnar flokksins,
en auk hans eru sjálfkjörin:
formenn fjármálaráðs, Ingi-
mundur Sigfússon, formaður
Birgir ísleifur Gunnarsson
A miðstjórnarfundinum í gær,
sem er hinn fyrsti eftir nýlega
afstaðinn landsfund Sjálfstæðis-
flokksins, var alls kosið í 17 mál-
efnanefndir flokksins, sem vinna
margvísleg störf að stefnumörk-
un og flokksmálum milli lands-
funda, að sögn Kjartans Gunn-
arssonar.
Línulögn RARIK
til Kópaskers:
Kostnaður 2
millj. kr. á km
KOSTTNAÐUR við lagningu stofn-
línu til Kópaskers, sem Mbl. skýrði
frá í gær, er 2 millj. kr. á kflómetra,
en ekki 1 millj. kr., eins og Ingólfur
Árnason, rafveitustjóri RARIK á
Akureyri, skýrði frá í Mbl. í gær.
Hafði Ingólfur samband við
Mbl. í gær og óskaði leiðréttingar
á þessu. Sagði hann töluna 1 millj.
kr. hafa gilt fyrir nokkru síðan, en
við nánari athugun hefði komið í
Ijós að kostnaðurinn væri kominn
í 2 millj. kr.
í frétt Mbl. um línulögn þessa í
gær er ranglega sagt, að lína þessi
sé 135 kílówött, þar átti að standa
135 kílóvolt.
Þórhallur Ásgeirsson ráðuneytisstjóri viðskiptaráðunneytisins og V.I. Polyakov einn framkvæmdastjóra sovéska
ríkisolíuiélagsins og V.P. Andriiachine hjá skrifstofu sovéska verslunarfulltrúans í Reykjavík, undirrita samninginn
í gær. Viðstaddir eru meðal annarra fulltrúar olíufélaganna íslensku.
ísland og Sovétríkin:
Samningar um kaup á 370
þúsund tonnum af bens-
íni, gasolíu og svartolíu
Formannaskipti í
Menntamálaráði
SAMNINGUR um kaup á olíum og
bensíni frá Sovétríkjunum á árinu
1984 var undirritaður í Reykjavík í
gær. Samningur þessi er gerður í
framhaldi samningaviðræðna sem
fram.fóru milli fulltrúa „V/O Soj-
uznefteexport“ annars vegar og full-
trúa viðskiptaráðuneytisins og for-
stjóra olíufélaganna hins vegar í
Moskvu í septembermánuði.
Viðskiptaráðuneytið er formleg-
ur samningsaðili og undirritaði
Þórhallur Asgeirsson, ráðuneytis-
stjóri, samninginn fyrir hönd
kaupanda, en V.I. Polyakov og
V.P. Andriiachine, hjá skrifstofu
sovéska verslunarfulltrúans í
Reykjavík, fyrir „V/O Sojuznefte-
export".
Samningur þessi verður síðan
framseldur íslensku olíufélögun-
um sem annast framkvæmd hans,
segir í tilkynningu sem viðskipta-
ráðuneytið gaf út í gær.
FYRSTI fundur Menntamálaráós,
sem kjöriö var á Alþingi 10. nóv-
ember sl., var haldinn í gær.
Samkvæmt lögum ber Mennta-
málaráði að skipta með sér verk-
um og var Matthías Johannes-
sen, ritstjóri, kjörinn formaður
ráðsins. Áslaug Brynjólfsdóttir,
fræðslustjóri, var kjörin varafor-
maður og Sólrún B. Jensdóttir,
sagnfræðingur, ritari. Aðrir í
ráðinu eru Einar Laxness,
sagnfræðingur, og Gunnar Eyj-
ólfsson, leikari.
Fráfarandi formaður Mennta-
málaráðs er Einar Laxness, frá-
farandi varaformaður Matthías
Johannessen og fráfarandi ritari
Áslaug Brynjólfsdóttir.
Lýst eftir
rauðri
Lada Sport
AÐFARANÓTT fimmtudagsins var
rauðri l,ada Sport-bifreið stolið frá
Keldulandi í Reykjavík. Bifreiðin
ber einkennisstafina R-34085.
Þeir sem geta gefið upplýsingar
um ferðir bifreiðarinnar eða hvar
hún sé niðurkomin eru vinsamiega
beðnir að snúa sér til lögreglunnar
í Reykjavík.
INNLENT
Karlsefnismálið:
Krafizt framlengingar
á gæzluvarðhaldsvist
Matthías Johannessen
Samkvæmt samningunum selja
Sovétmenn Islendingum á næsta
ári unnar olíuvörur sem hér segir:
Bensín um 70 þúsund tonn, gasolíu
um 100 þúsund tonn, svartolíu um
140 þúsund tonn.
Hér er um svipað magn af olíu-
vörum að ræða og um var samið
vegna ársins 1983. Samningur sá
sem undirritaður var í dag er efn-
islega samhljóða fyrri samning-
um. Svo sem undanfarin ár miðast
verð á olíuvörum frá Sovétríkjun-
um við Rotterdamverð.
Hingað til lands kom í sam-
bandi við hina endanlegu samn-
ingsgerð einn af framkvæmda-
stjórum sovéska ríkisolíufélagsins
„V/O Soj uznefteexport", V.I. Poly-
akov.
Fíkniefnadeild lögreglunnar í
Reykjavík hefur krafist framleng-
ingar á gæzluvarðhaldi yfir 31 árs
gömlum manni. Hann var úrskurð-
aður í 45 daga gæzluvarðhald vegna
rannsóknar á fíkniefnasmygli, sem
upp kom þegar skipverji á togaran-
um Karlsefni var tekinn á hafnar-
bakkanum í Reykjavík með 11,3 kfló
af hassi. Gæzluvarðhald yfir mann-
inum rennur út á sunnudag. Skip-
verjinn hefur verið látinn laus.
Því var haldið fram í einu
dagblaðanna í gær, að þeir „fjár-
sterku“ í fíkniefnamálum væru
ekki fundnir og var þetta haft eft-
ir Ásgeiri Friðjónssyni, dómara í
ávana- og fíkniefnamálum. Mbl.
bar þetta undir Ásgeir Friðjóns-
son: „Fyrirsögnin var bæði vill-
andi og röng eins og hún kemur
fyrir. Blaðamaður hringdi í mig og
spurði mig um þróun fíkniefna-
mála almennt en alls ekki tvö ný-
leg mál sem nú eru til rannsóknar.
Það hefur margoft komið fram
hjá þeim sem brotlegir hafa gerst,
að helstu fjármögnunarleiðir til
kaupa á fíkniefnum eru, að menn
skjóti saman, græði á sölu og fá
þannig fjármagn til kaupa á fíkni-
efnum erlendis. Þá virðist algengt
að menn fái gjaldfrest; það er í
„kaupstaðarferðum" erlendis fái
þeir gjaldfrest og þá gegn því að
greiða meira fyrir fíkniefnin síð-
ar, allt að tvöfalt.
I þau 12 ár sem ég hef verið
dómari í ávana- og fíkniefna-
málum, þá hafa margar sögur
gengið um að fjársterkir menn
standi á bak við kaup á fíkniefn-
um, en það hefur aldrei sannast.
Margvíslegar sögur hafa verið á
kreiki í sambandi við fíkniefnamál
sem nýlega komu upp. Mér þykir
rétt að taka það fram, að svokall-
aðir umsvifa- og fjármálamenn,
hvorki eru né hafa verið í gæzlu-
varðhaldi í þessum málum," sagði
Ásgeir Friðjónsson.
Bensín- og olíuverðslækkunin:
Staðfestir árangur í bar-
áttunni við verðbólguna
— segir Matthías Á. Mathiesen viðskiptaráðherra
„ÞKSSl lækkun á bensíni og
olíum er staðfesting þess að stefna
ríkisstjórnarinnar í efnahags- og
gengismálum er tekin að skila
raunverulegum árangri, en þessi
verðlækkun kemur til á sama tíma
og verðlag á Rotterdammarkaði er
stöðugt,** sagði Matthías Á.
Mathiesen viðskiptaráðherra i gær
er Morgunblaðið ræddi við hann
um ástæður bensín- og olíulækk-
unarinr.ar.
Matthías sagði verðbólgu-
þróunina nú síðustu fjóra mán-
uði vera 26% miðað við tólf
mánaða tímabil, og hefði því rík-
isstjórninni tekist það ætlunar-
verk sitt að ná henni niður fyrir
30% um áramót. Ljóst væri að
enginn endanlegur sigur hefði
unnist í baráttunni við verðbólg-
una og áfram þyrfti að vinna að
því að koma henni í sama horf
og er í helstu viðskiptalöndum
Islendinga. Matthías Mathiesen
sagði á hinn bóginn augljóst að
nú horfði mun betur í þessum
efnum en oft áður, og mun hag-
stæðara væri að byrja nýtt ár,
árið 1984, með um 30% verð-
bólgu heldur en að byrja árið
með meira en 100% verðbólgu,
eins og gert var í ársbyrjun 1983.
— Nú skyggðu þó ískyggilegar
horfur í sjávarútvegi á þann
árangur sem náðst hefði, en við
þeim vanda yrði að bregðast með
viðeigandi hætti, sagði ráðherr-
ann að lokum.