Morgunblaðið - 10.12.1983, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 10.12.1983, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 1983 27 Félag fasteignasala stofnað NÝVERIÐ var stofnað í Reykjavík „Félag fasteignasala“, en stofnun þess hefur staðið fyrir dyrum um all- langan tíma og kemur þar margt til. Kaup og sala fasteigna hefur á síðari árum orðið æ flóknari. Lán sem kaupendur nýta í fjármögnunartil- gangi eru margbreytileg og verðlag fasteigna breytilegt og háð ýmsum sveiflum í efnahags- og atvinnulífi okkar. Skortur hefur veriö á sam- vinnu milli þeirra er fasteignasölu stunda og þess vegna hefur þróun viðskiptavenja verið háð tilviljunum, þótt meginlínur hafi verið útfærðar með svipuðum hætti meðal fast- eignasala. Þá þarf fasteignasalinn í dag að geta veitt viðskiptavinum sínum meiri og betri þjónustu og upplýs- ingar en áður. Af þessu leiðir að það er mikilvægt að þeir sem þessi viðskipti stunda hafi tilskilda menntun og réttindi, jafnframt því að koma á betra samstarfi sín á milli. Hallgrímskirkja: Sýningu Leifs Breiðfjörð lýk- ur um helgina SÝNINGU Leifs Breiðfjörð í for- kirkju Hallgrímskirkju lýkur nú um helgina. Á sýningunni hafa eingöngu verið sýnd frumdrög, vinnuteikn- ingar og ljósmyndir af steindum gluggum og hefur henni verið mjög vel tekið og aðsókn verið góð. Sýningin er í boði Listvinafélags Hallgrímskirkju og hefur staðið frá 15. október. Sýningin verður opin nú um helgina frá kl. 14—17 og lýkur eins og fyrr segir sunnu- daginn 11. desember. (FrétUtilkynning.) Árita „Komiði sæla SIGURÐUR Sigurðsson frétta- maður og Vilhelm G. Kristinsson árita bókina „Komiði sæl“ í Penn- anum, Hafnarstræti, milli klukk- an 15 og 17 í dag, laugardag. (Fréttatilkynning.) Hafnarfjörður: Jólasveina- rall JC JC-Hafnarfjörður hefur frá árinu 1981 gengist fyrir svokölluðu „jóla- sveinaralli" og svo verður einnig í ár. Jólasveinar aka um bæinn á vörubílspöllum, syngja og tralla ásamt hljóðfæraleikurum og auglýsa verslanir bæjarins í leiðinni. Þá taka þeir lagið með bæjarbúum og að- stoða við jólainnkaupin. I ár verður „jólasveinarallið" í dag, laugardag, og 17. desember. Jólasveinarnir koma fyrst í verslunina Hringval, Hringbraut 4, um kl. 13.15, þá fara þeir að versluninni Hvammseli, Smára- hvammi 2, þar eiga þeir að vera um kl. 13.40, á Strandgötuna koma þeir svo um kl. 13.55, þá verða þeir við Reykjavíkurveg 50 um kl. 14.30, síðan verður haldið að Mið- vangi 41, og er áætlað að þeir verði þar um kl. 15.00, að því búnu halda þeir að Reykjavíkurvegi 60, þar ættu þeir að vera kl. 15.30, en síð- asti viðkomustaðurinn er Skalli við Reykjavíkurveg 72. (Úr fréltatilkynningu) Höföar til .fólksí öllum starfsgreinum! Jllovjjunfclntofc Megintilgangur með stofnun fé- lagsins er að vinna að auknum samskiptum félagsmanna, standa vörð um hagsmuni þeirra og rétt- indi, svo og að koma þarflegum upplýsingum til fjölmiðla, kaup- endum og seljendum fasteigna til leiðbeiningar. Að félagsstofnuninni stóð hópur lögfræðinga, viðskiptafræðinga og löggiltra fasteignasala, sem allir hafa fasteignasölu að aðalstarfi. I stjórn félagsins voru kosnir: Dan Valgarð S. Wiium, lögfræð- ingur, Atli Vagnsson, lögfræðing- ur, Daníel Árnason, lögg. fast- eignasali, Friðrik Stefánsson, viðskiptafræðingur, og Viðar Böðvarsson, viðskiptafræðingur. Aðalfundur félagsins verður haldinn í janúar ’84 og er þá frek- ari frétta að vænta af félaginu. Úr rréttatilkynningu.) Tölvuspil Vorum aö fá öll nýjustu tölvuspilin. Aldrei hagstæöara verö. Sérverslun Rafsýn hf., töivuspii Síöumúla 8, sími 32148 FURUMARKAÐUR Ótrúlega hagstætt verö STÓLAR 4 GERDIR VERÐ FRÁ KR. 1.331.- MATBORÐ 10 GERDIR OG STÆRÐIR VERÐ FRÁ KR. 2.516.00.- KOJUR M/RUMFATASKÚFFU STÆRÐ 90x190. ÁN DÝNA KR. 6.380.- MEÐ DÝNUM KR. 10.340.- KOJUR M/HILLUM ÁN DÝNA KR. 5.971.- MED DÝNUM KR. 9.931. RUM 90x190 VERÐ KR. 4.154.- FÁANLEGT 140x190 CM. ÁN DÝNA. NÁTTBORÐ KR. 1.527.- VEGGSKÁPAR LAMPAR - K0MMÓÐUR — FURUHILLUR MJÖG HAGSTÆTT VERÐ. — FURUSKENKIR -SPEGLASETT SÓFAR — STÓLAR Opið til kl. 6. Sendum um land allt. ÁRMÚLA 1a Sími: 86112

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.