Morgunblaðið - 10.12.1983, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 10.12.1983, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 1983 11 rænu ráðherranefndarinnar á næsta ári og aftur árið 1985. Mun viðskiptaráðuneytið og Norræna embættismannanefndin um við- skiptamál fylgja málinu eftir á næstu mánuðum í samstarfi við ís- lenska útflytjendur. Til undirbúnings fundi viðskipta- ráðherranna efndi Matthías Á. Mathiesen til fundar i Stokkhólmi 1. desember með sendiherrum Is- lands á Norðurlöndunum, þeim Benedikt Gröndal í Svíþjóð, Einari Ágústssyni í Danmörku og Páli Ásgeiri Tryggvasyni í Noregi; fundinn sat einnig Hjálmar W. Hannesson, sendiráðunautur við sendiráð íslands i Stokkhólmi. Þá tóku þátt í báðum fundunum þeir Þórhallur Ásgeirsson, ráðuneytis- stjóri, og Jón Júliusson, deildar- stjóri. Umræðurnar með sendiherrun- um snerust um megindagskrár- atriði fundar viðskiptaráðherranna og hvað hægt væri að gera til að draga úr hinum mikla halla, sem er á viðskiptum íslands við hin Norð- urlöndin, og þá með að auka út- flutning á íslenskum framleiðslu- vörum þangað. Þessi atriði eru þó ýmsum erfið- leikum háð, einkum í ljósi þess að Danir og Norðmenn eru meðal stærstu fiskframleiðenda i Evrópu og því takmarkaðir möguleikar á að selja þeim sjávarafurðir, sem venjulega eru 75% af okkar út- flutningi. Yrði þar einkum að leggja áherslu á útflutning á iðnaðarvör- um, en til Svíþjóðar og Finnlands mætti leggja meiri áherslu á sölu á ýmsum fiskafurðum. Ennfremur er hagsmunamál að tryggja áfram- haldandi sölu á islensku lamba- kjöti til hinna Norðurlandanna. Voru sendiherrarnir reiðubúnir til samstarfs um að gera nýtt átak til að efla útflutning og komu á framfæri ýmsum góðum ábending- um. í sambandi við viðskiptahallann má benda á að árið 1982 seldu Is- lendingar til hinna Norðurland- anna fyrir 56,1 milljón dollara, en keyptu þaðan fyrir 222,8 milljónir dollara. óhagstæðastur var við- skiptajöfnuðurinn við Noreg, þar sem útflutningur var 8,8% af inn- flutningi, þar næst við Svíþjóð, þar sem útflutningur nam 14,1% af innflutningi, og loks Danmörku, þar sem útflutingur nam 15,3% af innflutningi. Viðskipti við Finnl- and voru nokkru minni en jöfnuður hagstæðari, útflutningur 54,2% af innflutningi. Hagstæður var aðeins viðskiptajöfnuður við Færeyjar, út- flutningur 19,4 milljónir dollara, en innflutningur 0,1 milljón doll- ara. Úr frétUtilkynningu. Ertu orðinn þreyttur a Leiðurá pappírsvinnunni og ergilegur á villum í ávísanaheftinu? Hér er lausnin til að létta skapið og spara vinnu. SHARP MZ-700 TÖLVAN er Þaö sem ^arft ef Þú ert meó lítió fyrirtæki eöa bara til heimilisnota. 64 Kb RAM BASIC fylgir — 4 MCH Z 80 A CPU Grafik 10 x 50 punktar (8 blandanlegir bitar) Inn- byggöur prentari og kass- ettutæki. Rom (Mónitor 4K — byte — Karakter genera- tor 2 k byte) 40 stafa og 25 línu fullkomiö segul- bandstaski 1200 bit/ sec. Innbyggð klukka m/tón- list. Standard lyklaboró. Veróið er ótrúlega hag- stætt og greiðsluskilmálar viðráðanlegir. Það kostar ekkert að spyrja og skoða ... HLJOMBÆR ■ -0pjð tij kj 6 f dag HLJOM*HEIMRIS*SKRlFSTOFUTÆKI HVERFISGÖTU 103 r SIMI 25999 VERALDARPLATA r r KRISTJANS JOHANNSSONAR OG LUNDÚNASINFÓNÍUNNAR íœst hjá okkur Á hljómplötu sinni syngur Kristján gullíalleg lög vió allra hœfi vió undirleik London Symphony Orchestra undir stjórn ítalska meistarans Maurizio Barbacini. Kristján syngur: O Sole Mio Muslca Proibita Toma a Surriento Core 'Ngrato Non ti scordar dl me Dicitencello vuie Mattinata Sjá dagar koma Mamma Rondine al Nido 1 ijarlœgð Maria Marll Ideale Hamraborgln eins og honum einum er lagið. TAKMARKAÐ UPPLAG FYRIR JÓL ■.auaavegi 33. Símar 29575 — 29544.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.