Morgunblaðið - 10.12.1983, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 1983
3
Lagafrumvarp um veiðar í fiskveiðilandhelginni lagt fram á Alþingi:
Ráðherra getur ákveðið skiptingu
hámarksafla á milli fiskiskipa
Skylt að hafa samráð við sjávarútvegsnefndir Alþingis
FRUMVARP um breytingu á lögum
um veiðar í fiskveidilandhelgi ís-
lands var lagt fram á Alþingi í gær. í
frumvarpinu er m.a. ákvæði um það
að sjávarútvegsráðherra geti að
fengnum tillögum Hafrannsóknar-
stofnunar ákveðið hámark þess afla
sem veiða má úr einstökum fiski-
stofnum á ákveðnu tímabili og einn-
ig getur ráðherra skipt hámarksafl-
anum á milli veiðarfærategunda og
gerða fiskiskipa og einstakra skipa.
Þá getur ráðherra ákveðið
skiptingu hámarksafla á milli
skipa, m.a. með hliðsjón af fyrri
veiðum og einnig heimilað flutn-
ing á úthlutuðum aflakvóta á milli
skipa. Þá er og ráðherra heimilt
að setja reglur um leyfilega sókn
tiltekinna gerða fiskiskipa og með
tilteknum veiðarfærum í ákveðna
fiskistofna. Áður en ákvarðanir
um áðurgreind atriði eru teknar,
skal hafa samráð við sjávarút-
vegsnefndir Alþingis, og einnig
skal gera nefndunum grein fyrir
árangri aðgerða hverju sinni.
Þá eru í frumvarpinu ákvæði
um að dragnótaveiðar séu heimil-
ar samkvæmt sérstökum leyfum
ráðherra, sem hann geti bundið
skilyrðum. Þá getur ráðherra og
ákveðið að veiðar ákveðinna fiski-
stofna skuli háðar sérstökum leyf-
um og einnig að veiðar í tiltekin
veiðarfæri og veiðar ákveðinna
gerða skipa skuli háðar leyfum.
Ráðherra getur bundið leyfin skil-
yrðum og m.a. takmarkað þau við
fiölda skina. stærð eða gerð.
BÆKUR
1983
Med Morgunblaðinu í dag fylgir Bóka-
skrá Félags bókaútgefenda. Bóka-
skráin skiptist í tvennt, annars vegar
er kvnning á meginhluta útgáfubóka
ársins 1983 og hins vegar heildarskrá
yfir útgefnar bækur 1983.
borðstofuborð og stólar
Stök borð — stakir stólar eða samstætt -
Spurningin er bara hvað þú vilt?
Þetta er sýnishorn af úrvalinu. Sumt er til — sumt er
á leiðinni, svo getur líka þurft að panta eitthvað.
ÞÚ GENGUR AÐ GÆÐUNUM VÍSUM.
- OG GÓÐUM GREIÐSLUSKILMÁLUM.
Sérverslun með listræna húsmuni
Borgartúni 29 Sími 20640
G.S.A.
905
INGRAM HIGH
c
assina
LABARCA
ILCOLONNATO
CAB413
CAB412
LAROTONDA
LC/6
LA BASILICA
PICCOLA TENTAZIONE