Morgunblaðið - 10.12.1983, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 1983
5
Akureyri:
Sigrún Jóns-
dóttir sýnir
í Sjallanum
Akurejri, 8. desember.
SIGRUN Jónsdóttir, myndlistar-
kona, heldur sýningu þessa viku í
Sjallanum á Akureyri. Trúarleg list
skipar öndvegi á sýningu hennar,
enda er sú list henni hjartfólgnust
að eigin sögn.
Undirritaður er ekki listfróður
og hefur lítið vit á listum, en mik-
ið óskaplega fannst honum sýn-
ingin falleg og gott andrúmsloft í
Mánasalnum þessa dagana. Með-
fylgjandi mynd er af listakonunni
fyrir framan hið stóra verk henn-
ar „Ævi og starf Snorra Sturlu-
sonar" og er hún íklædd nýrri gerð
prestshökuls, sem sérstaklega er
Ljósm. Mbl. — GBerg.
ætluð kvenprestum og Sigrún hef- vinsæl og þegar í notkun allvíða
ur hannað og reynst hefur afar hér á landi og erlendis.
Jólatrjáamark-
aðir Ingólfs
BJÖRGUNARSVEIT Ingólfs opnar
þrjá jólatrjáamarkaói í Reykjavík í
dag; á tjaldstæðinu í Laugardal, í
Mjóddinni í Breiðholti og í Gróubúð,
björgunarstöð sveitarinnar á
Grandagarði. Kreditkortaþjónusta
verður á öllum stöðunum, segir í
fréttatilkynningu frá sveitinni.
I frétt frá sveitinni segir; að hún
sjái um rekstur björgunarskipsins
Gísla J. Johnsen, ásamt slöngu-
bátum. Þá á sveitin og rekur þrjá
snjóbíla, ásamt vélsleðum, og fjór-
ar sjúkra- og torfærubifreiðir.
Innan sveitarinnar starfa á annað
hundrað sjálfboðaliðar.
AB með bók-
menntakynningu
ALMENNA bókafélagið gengst fyrir
bókmenntakynningu í Bókaverslun
Sigfúsar Eymundssonar í dag kl. 14.
Verða kynntar þar 6 nýjar bækur og
lesið úr þeim:
Þessi verk verða kynnt: Ljóð
Vilmundar eftir Vilmund Gylfason.
Ævar Kjartansson les. Kallaður
heim, skáldsaga eftir Agnar Þórð-
arson. Helgi Skúlason les. New
York, ljóð eftir Kristján Karlsson.
Helga Bachmann les. Vængjaslátt-
ur í þakrennum eftir Einar Má
Guðmundsson. Höfundur les.
Mannheimar, ljóð eftir Heiðrek
Guðmundsson. Hjörtur Pálsson
les. Ferðarispur eftir Matthías Jo-
hannessen. Höfundur les.
Kynnir á bókmenntakynning-
unni verður Eiríkur Hreinn
Finnbogason.
Norræna húsið:
Bandarískur píanóleik-
ari heldur tónleika
ANTONY de Bedts, ungur banda-
rískur píanóleikari, heldur tónleika í
Norræna húsinu á sunnudaginn.
Antony de Bedts er fæddur 1955
í Atlanta í Bandaríkjunum. Ungur
fór hann að læra á píanó og hlaut
sín fyrstu verðlaun fyrir leik sinn
á það hljóðfæri í California Young
Musicians Competition er hann
var 8 ára.
De Bedts hefur undanfarin ár
lagt stund á nám í píanóleik við
Tónlistarháskólann í Vín. Kennar-
ar hans hafa verið Eduard Mraz-
ek, Hans Kann, Georg Ebert og
síðan 1978 hefur hann svotil ein-
göngu verið undir handleiðslu
Noel Flores.
Tónleikarnir verða sem fyrr
segir í Norræna húsinu sunnudag-
inn 11. desember og hefjast kl.
17.00 stundvíslega.
Á efnisskrá verða verk eftir L.V.
Beethoven, A. Scriabin og R.
Shumann.
auto
motor
AÐ GEFNU TILEFNI VILJUM VIÐ BENDA BILAKAUPENDUM
Á AÐ LESA ÞESSAR NIÐURSTÖÐUR í BÍLAPRÓFUN HJÁ
HINUM GAGNRÝNU ÞJÓÐVERJUM.
AUÐVITAÐ ER
UNO FREMSTUR
I samanburði á sex smábilum hjá
hinu virta þýska bílablaði AUTO
MOTOR UND SPORT var FIAT
UNO i fyrsta sæti. Meðaleinkunn bíl-
anna úr þeim 25 atriðum sem prófuð
voru varð þessi:
FIA T UNO 8.62
VW POLO 8.50
PEUGOT 205 8.02
OPEL CORSA 7.72
FORD FIESTA 7.18
NISSAN MICRA 6.64
UMSÖGN UM EFSTA OG NEÐSTA BÍLINN
- þetta eru dómar hinna gagnrýnu þjóðverja.
FIA T UNO:
,,Sterkustu hliöar UNO eru hiö pláss-
mikla farþega- og farangursrými og
frábærir aksturseiginleikar. Auk þess
getur maöur veriö mjög ánægöur meö
þægindi bilsins og vélargæöi. ”
NISSAN MICRA:
,,Eiginleikar MICRA valda vonbrigöum.
Þó þetta sé glænýr bill eru þaö
einungis eyöslan, veröiö og auka-
búnaöurinn sem maöur getur fellt sig
viö."
UNO sparakstur; meðaltal 3.9 lítrar sá besti 3.7
FIAT ER ENDURSÖLUBÍLL NÚMER EITT
EGILL
VILHJÁLMSSON HF.
Smiðjuvegi 4, Kópavogi. Símar 77200 - 77202
Ford Fiesta 1.1 L
359 Punkte
Ein kraftvollcr Motor,
Temperament und gutc
Verarbeitung - das sind die
vresentlichen Voreöge des
Fiesta, dem man ansonstcn
dentlich anmerkt, dafi er in
die Jahre gekommcn ist.
Peugeot 205 GR
401 Punktc
Im Komfort schlágt
dcr Franzose dic
Konkorrenten, auch
seine vicrtnrige Ka-
rosserie bietet hand-
feste Vorzúge. Mit
den Eahrieistungen
ist es jedoch nicht
weit her.
Nissan Micra GL
332 Punkte
Die Kigenschaften des
Micra sind enttánschend
Obgieích er ein brandnen-
es Aoto ist, kann er nur in
Verbraucb, Preis und
Ausstattung gefallen.
Opel Corsa 1.2 S
386 Punkte
Gnte Fahrleistungen
nnd Motoreigen-
schaften steicfanen
den Corsa ans. Ka-
rosserie und Fahr-
werk können höhe-
ren Ansprnchen
nicht gentigen.
VW Polo C
425 Punkte
Die magere Serienausstattnng nnd der
relalh bohe Verbranch haben den Polo
wertvoile Punkte gekostet. Er ist gut
verarbeitel, temperamentvoll ond agil.
Fiat llno 55 Super
431 Punkte
Das gúnstige Raumangebot und ausgezeichnete Fahreigenschaften
sind heransragcnde Pluspnnkte des l 'no. Mit dem Komfort und
seinen Motorqualitaten kann man ebenfalls sehr zufrieden sein.