Morgunblaðið - 10.12.1983, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 1983
23
„Við ætlum
að drepa
þig væni“
Lundúnum, 8. desember. AP.
UNGIIR þjónn Önnu Bretaprins-
es.su, hinn 23 ára gamli Andrew
Lightwood, hefur séð þann kost
vænstan að hætta starfi sínu í
Gatcombe Park og hverfa á vit fjöl-
skyldu sinnar í suðurhluta Wales
eftir að hafa ekki átt sjö dagana
sæla fyrir morðhótunum sem kom-
ið var símleiðis til skila. Lögreglan
í Lundúnum telur alls ekki fráleitt
að IRA kunni að standa á bak við
hinn ljóta leik, en írski lýðveldis-
herinn hefur jafnan haft gaman af
því að hrella breska kóngafólkið og
þjónustufólk þess.
Hótanirnar gengu þannig fyrir
sig, að sfmi með óskráðu númeri
á heimili prinsessunnar hringdi
daglega, stundum meira að segja
tvisvar á dag. Jafnan var spurt
um Lightwood hinn unga. Er
hann kom i símann mælti síðan
rödd með sterkum írskum hreim:
„Við ætlum að drepa þig góur-
inn.“ Lightwood sagði iögregl-
unni frá reynslu sinni og einnig
komst breska blaðið Daily Ex-
press í málið og sló fréttinni upp.
Þar með þótti Lightwood hafa
rofið heit sem starfsfólk kon-
ungsfjölskyldunnar verður að
strengja er það hefur þar störf,
um að segja ekki blöðunum frá
því sem gerist innan veggja hjá
kóngafólkinu.
Lögreglan telur líklegt að IRA
standi á bak við hreilingarnar, en
kemur ekki heim og saman
hvernig á því standi að Light-
wood verði fyrir barðinu. Hann
hefur engin írsk sambönd sem
vitað er um og er reyndar velsk-
ur. Fékk pilturinn lögregluvernd
uns hann fluttist til foreldra
sinna í Wales, en þá höfðu sím-
hringingarnar staðið yfir í 3 vik-
ur.
Vax teppasugan
Bylting í
teppahreinsun.
/
,,sí
Vax þrjár vélar í einni
Ryksuga — V atnssuga—D júphreinsivél
VAX-teppasugan sameinar notagildi þríggja
véla í einni.
VAX er öflug ryksuga til venjulegra heimilis-
nota.
VAX sýgur upp vökva sem hellast niður, áður
en þeir þorna og ná að mynda bletti, nær stíflu
úr vaski og þurrkar gólfið ef flóð verður af
einhverjum orsökum.
VAX er teppahreinsari, sem á engan sinn hka:
Hún djúphreinsar teppin með hreinsivökva,
sýgur óhreinindin og bleytuna jafnóðum uppog
skilar teppinu þurru og sem nýju.
Söluadilar:
Kf. Skaftfellinga, Vík
K.A.Sk. Höfn Homaftrdi
Kf. Berufjaröar
Kf. F'askruösf)ardar, Faskruðsfirði
Versl. F.lísar Gudnasonar, Fskifirði
Kf. Fram, Neskaupstað
Kf. Vopnafjardar, Vopnafirdi
Kf. Heraösbua. FgUsstoðum
Stalbuðin, Seyðisfirði
Hagkaup
Kinco Siglufirdi.
I'eppaiand. Akurevri
Kf. SkagfirAinga, Sauöárkroki
Kf. Ilunvetninga. Blonduosi
Kf. V-ifúnvetninga, Hvammstanga
Litabúdin, Olafsvík
Malningarþjonustan. Vkranesi
Brimnes, Véstmannæyjum
Dropinn, Keflavík
Pensillinn, ísafirði
ión Fr. Finarvson, Bolungarvik
TÉPPfíLRND
Opid 1 dag til kl. 6.
Grensásvegi 13
Símar: 83577 - 83430
Gleðilegri jól...
Si ** með
Leikfélagi Reykjavfkur
Leiftrandi lög og text-
ar fyrir glaölynt fólk á
öllum aldri. Öll lögin
úr sjónvarpsþættin-
um ásamt mörgum
öörum, gömlum og
nýjum.
399.-
(Borgarleikhús innifalid)
FÆST I OLLUM
HLJÓMPLÖTUVERSLUNUM UM LAND ALLT
DREIFING — SKÍFAN
ALLUR ÁGÓÐI AF SÖLU ÞESSARAR PLÖTU
RENNUR í HÚSBYGGINGARSJÓÐ LEIKFÉLAGS REYKJAVÍKUR