Morgunblaðið - 10.12.1983, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 1983
Félag skókaupmanna auglýsir
opnunartíma skóverslana
á laugardögum
Laugardaginn 10. desember til kl. 18.00,
laugardaginn 17. desember til kl. 22.00 og
föstudaginn 23. desember til kl. 23.00.
Skókaupmannafélagið.
BIFREIDADEILD SAMBANDSINS
BILASALA HOFÐABAKKA9 SIMI 39810
GÆÐAEFTIRLIT MEÐ GÆÐAVORU
Eigum til fáeina Opel Rekord luxus diesel á mjög
hagstæðu verði.
Hagstæðir greiðsluskilmálar
OPEL REK0RD=j
LUXUS DIESEL
‘(Olh Clinrnt’
Ekki bara borðstofu- og svefnher-
bergishúsgögn, húsgögn í hol —
og reyndar í öll herbergi hússins.
Bæklingur fyrirliggjandi, inniheldur
yfir 100 gerðir af húsgögnum, öllum
í Tudorstíl. Eikin er sérstaklega val-
in, handútskorin djúpt og hand-
vaxborinn, endurspeglar hið frá-
bæra handverk tímabilsins.
Fáanlegt í Ijósu, dökku eöa antik.
DUNA
SíðumiíJa 23 - Sími 84200
Málverkasýning Þor-
láks R. Halldórssonar
Þorlákur R. Halldórsson, list-
málari, opnar í dag, laugardag,
málverkasýningu í vinnustofu
sinni á Uróarstíg 3. Á sýningunni
eru olíu- og pastelmyndir, auk
kolkrítarteikninga, alls um 30
verk.
Sýningin verður opnuð kl. 14 í
dag og verður hún opin frá kl.
14—18 alla daga fram að jólum.
Sean Connery í hlutverki njósnarans 007, ásamt Kim Basinger.
Bíóhöllin:
Segðu aldrei aftur aldrei
Nýjasta James Bond-myndin,
Never Say Never Again, hefur verid
frumsýnd í Bíóhöllinni. Myndin var
frumsýnd í Bandaríkjunum í októ-
ber og eru íslendingar þriðja þjóðin
í röðinni sem fær að sjá þessa frægu
mynd, en í henni snýr Sean Connery
aftur; hinn eini og sanni James
Bond, segja margir.
í samtali við Morgunblaðið,
sagði Árni Samúelsson, fram-
kvæmdastjóri Bíóhallarinnar, að
til hefði staðið að hafa Evrópu-
frumsýningu á myndinni hér á
landi, þ.e.a.s. tveimur dögum á
undan Bretum sem frumsýna
hana 15. desember, en einhverra
hluta vegna hafi Frakkar orðið á
undan.
Never Say Never Again, eða
Segðu aldrei aftur aldrei, eins og
hún nefnist í íslenskri þýðingu, er
fyrsta James Bond-myndin sem
Sean Connery leikur í, síðan 1971
er hann lék í Demantar eyðast
aldrei. Myndin kostaði um 30
milljónir dollara í framleiðslu, en
um 10 milljónir dollara komu í
kassann fyrstu þrjá dagana sem
hún var sýnd. Never er því stærsta
haust-opnun kvikmyndar frá upp-
hafi.
Framleiðandi myndarinnar er
Jack Schwartsman, en leikstjóri
er Irvin Kershner, sem er frægast-
ur fyrir að hafa leikstýrt The
Empire Strikes Back (Stjörnustríð
2). Aðrir leikarar í myndinni eru
Barbara Carrera, Kim Basinger,
Klaus Maria Brandauer og
Edward Fox, sem leikur M.
Fyrirlestur um einstakl-
inginn, samfélag og siðfræði
SUNNUDAGINN 11. desember flyt-
ur Vilhjálmur Arnason Ph.D. fyrir-
lestur á vegum Félags áhugamanna
um heimspeki. Fyrirlesturinn nefn-
ist, Einstaklingur, samfélag og sið-
fræði.
í fyrirlestrinum mun Vilhjálm-
ur fjalla um þá gagnrýni sem sið-
fræði hefur sætt af hálfu Marx-
isma annars vegar, en existential-
isma hins vegar. Færð verða rök
að því að báðar þessar stefnur
bendi réttilega á ýmsa vankanta á
síðari tíma siðfræði. Jafnframt
eru færð rök að því að í þessum
stefnum báðum gæti tilhneiginga
Þú svalar lestrarþörf dagsins
sem standi skynsamlegri siðfræði
fyrir þrifum.
Að lokum mun Vilhjálmur reifa
hugmynd um það hvernig móta
megi siðfræði sem tekur mið af
marxisma og existentialisma, en
forðast villur þeirra.
(FrétUtilkynning).
Týndi skólatösku
með afmælisgjöfum
TÍU ára ncmandi Breiðagerðisskóla
í Reykjavík týndi í fyrradag skóla-
töskunni sinni.
í töskunni voru auk skólabók-
anna m.a. tveir bílar, annar fjar-
stýrður, sem drengurinn hafði
fengið í afmælisgjöf. Finnandi
töskunnar er vinsamlegast beðinn
að hafa samband við Oddrúnu í
athvarfi Breiðagerðisskóla, en
síminn þar er 36199.