Morgunblaðið - 10.12.1983, Síða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 1983
-------------------------------------------------‘ Pr'“ s»"a'cll‘
„KJú, ao9'ir\n ^etur sagb, cúS þú Kafi'r ekkj reynt."
ást er...
... að segja honum að
hann hafi breytt lífi þínu.
TM Reo. U.S. Pat. Off.—all rights reserved
01983 Los Angeles Tlmes Syndlcate
Er ekki presturinn að fara inn á
annarra verksvið?
Ég get ekki bannað manninum
mínum að stunda helsta tóm-
stundagaman sitt hér heima.
HÖGNI HREKKVÍSI
Vakna
þú sem
sefur
Tómas Björnsson skrifar:
„Velvakandi.
„Hlutverk móður æðsta hlut-
yerk í heimi mannkyns", skrifar
Árelíus Níelsson í Velvakanda þ.
16. nóv. sl. og ég er honum 100%
sammála. En þetta eru aðeins
falleg orð, því að veruleikinn lít-
ur því miður allt öðruvísi út.
Milljónir kvenna um allan heim,
mæður, eiginkonur, systur og
dætur, og þar eru íslenskar kon-
ur engin undantekning, verða
enn þann dag í dag að þola
niðurlægingu, kúgun, nauðganir
(einnig af eiginmönnum sínum)
og misþyrmingar af karl-
mönnum. Kynslóð eftir kynslóð
hefur börnum þeirra verið fórn-
að á alatari stríðsgoðsins. Og
kynslóð okkar er vitni að því, að
börn eru svelt í hel í milljónatali
í örmum mæðra sinna. Þær
verða að horfa upp á þjáningar
barna sinna án þess að fá nokk-
uð að gert.
Allt af því að mannkynið, eða
réttara sagt karlaveldið, er ótt í
að framleiða gjöreyðingarvopn í
stað matvæla („Ein milljón doll-
ara á mínútu í vígbúnað", Guð-
rún Agnarsdóttir, Morgunbl.
15.11. ’83, bls. 30 og „Hernaðar-
útgjöld 30 sinnum hærri en
þróunaraðstoðin", DV 21/5).
Jörðin getur enn fætt 10—12
milljarða manna, segja mat-
vælafræðingarnir, og við erum
aðeins 4 milljarðar núna, jarðar-
búar. Já, það er til nóg af mat
handa hungruðum heimi. Guð
hefur skaffað nóg handa öllum,
en mennirnir vilja ekki deila
hver með öðrum, vilja frekar
tortíma hver öðrum.
Vakna þú, sem sefur, og þá mun
Kristur lýsa þér! „Miskunnsemi
þrái ég,“ segir Drottinn. Já, mis-
kunnsemi með þeim sem eru í
þessum heimi; sem líða skort,
bæði andlega og líkamlega; sem
verða að þola ofríki.
Hinir ófæddu eru ekki einu
sinni til, þ.e.a.s. eru ekki komnir
í þennan miskunnarlausa heim.
Guð er að tala um miskunnsemi
með þeim sem eru hér á meóal
okkar og verða að þjást vegna
ofbeldis, kúgunar eða allsleysis.
Þó að ég hafi ekki nefnt
offjölgunarvandamál mann-
kynsins, þá hefur það alls ekki
farið fram hjá mér, síður en svo,
Árelíus. Ekki heldur hef ég
gleymt þessum „milljónum
barna sem deyja nú þegar árlega
ægilegum hungurdauða og þar
með fylgjandi þjáningum og
neyð“. Þess vegna er fjölskylda
mín með börn frá CCF) Christi-
an Children’s Fund eða Borne-
fonden) á framfæri. Þar borgum
við mánaðarlega vissa upphæð
(andvirði ekki meira en 10—12
pakka af sígarettum) og fyrir
hana fær barnið mat, læknis-
aðstoð og skólagöngu. Við höfum
samband við barnið með því að
skiptast á bréfum og ljósmynd-
um.
Að því er varðar fóstureyð-
ingar í þessu landi er það engin
spurning, að ákvörðunarvald þar
um á að vera í höndum kvenna
en ekki einhverra karlrembu-
svína. Og eins lengi og kvenfólk
býr hér við jafn ömurlegar að-
stæður og raun ber vitni um (sjá
„Hef ekki alltaf átt fyrir mat“,
Mbl. 4. nóv. ’83 og „Einstæð móð-
ir með 2 börn“, Þjóðviljinn
22.-23. okt. ’83 o.s.frv.), þá
mundum við aðeins auka þján-
ingar þeirra og erfiðleika, ef við
færum að setja frekari skorður
en nú eru í gildi við fóstureyð-
ingum af félaagslegum orsökum.
En fyrst: Gætir þú fundið svo
sem „handfylli" af kristnu fólki
sem myndi veita þér aðstoð til að
bæta þetta ástand? Þá væri e.t.v.
hægt að fara að ræða fóstureyð-
ingarlög á nýjan leik.
Og síðast en ekki síst: „Sjálfur
Jesús hefði líklega aldrei fæðst,
ef þau lög hefðu gilt í landi hans,
sem hér er til umræðu.“?!
Heldur þú virkilega, Árelíus,
að nokkuð sem mennirnir finna
upp á geti komið í veg fyrir ráðs-
ályktun Guðs almáttugs? T.d.
með því að granda hans eingetna
syni, sem hann sendi í þennan
heim til að frelsa okkur frá hinu
illa afli? Það tókst ekki einu
sinni Heródesi með voðaverki
sínu, eins og þú bentir sjálfur á.
Hvað megnum við mennirnir á
móti Guðs vilja?
Getur nokkur maður komið í
veg fyrir það að barnið sem á að
fæðast fæðist?
Með þökk fyrir birtingu."