Morgunblaðið - 10.12.1983, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 1983
45
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 11—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
(ViítMineYUM'pu
í öllum bjórlöndum er
drukkið í vinnutíma
H.Kr. skrifar:
„Heili og sæll, Velvakandi.
Mér er ljúft að birta Jóni Óttari
og öðrum nokkur rök fyrir afstöðu
minni í sambandi við áfengt öl.
Ég tel ekki að það sé verra að
menn drekki léttari áfengisteg-
undir en sterkar ef jafnmikið er
drukkið. En ég veit ekki til þess að
nokkurs staðar hafi tekist að eyða
áfengisböli með því að halda
áfengum bjór að fólki.
Ég hygg að Dönum hafi tekist á
öðrum tug þessarar aldar að beina
neyslu frá brennivíni að áfengum
bjór með því að margfalda verð á
sterkum drykkjum allt í einu en
hafa bjórinn ódýran. Það varð þó
ekki til að skapa neitt fyrirmynd-
arástand.
Víða um heim hefur fólki ofboð-
ið brennivínsdrykkja og þá hafa
menn stundum ímyndað sér að
mjög væri til bóta að beina mætti
neyslunni að léttari tegundum.
Ýmsar tilraunir hafa verið
gerðar í þá átt og má þar vitna til
Svíþjóðar, Finnlands og Rússlands
m.a. og hafa þær allar endað illa.
Hætta sú sem fylgir léttum vín-
um fremur en sterkum, er sú að
neytendur þeirra verði sídrykkju-
menn af frjálsum vilja í trausti
þess að mjöðurinn sé svo meinlaus
að hann geti tæpast talist áfengi
og alls ekki vimugjafi. Slíkum
drykkjuvenjum fylgja m.a. stór-
kostlegar lifrarskemmdir svo að
það er með algengustu banamein-
um í Danmörku, Þýskalandi,
Frakklandi og víðar þar sem létt
áfengi er teygað daglega.
Mér hefur skilist að tillögur
Jóns óttars, Ásgeir hvítaskálds og
þeirra kumpána séu ekki að leyfa
léttan bjór í staðinn fyrir brenni-
vín, heldur til viðbótar.
Ljósti bletturinn í áfengismál-
um íslendinga er sá, að almenn-
ingsálitið er á móti áfengisneyslu
á vinnustað og í vinnutíma. í öll-
um bjórlöndum er drukkið í vinn-
unni.
Ég tel víst að yrði bjórsala leyfð
hér myndu fljótt rísa upp bjórkrár
í grennd við vinnustaði eins og
skólasjoppur."
Grámyglunni rutt út
R.R. skrifar:
„Velvakandi.
Hvílík sæla að geta með einu
handtaki snúið apparati því er út-
varp nefnist í gang, og opnað þar
með sólargeislum rásar tvö leið
inn í hugskotið og rutt út grá-
myglunni sem svo oft vill hreiðra
þar um sig. Og sjá, slyddan og
slepjan er ósjáanleg orðin, létt-
leiki og lipurð einkennir allar
gjörðir manna.
Móðir mín sem löngum hefur
Pétur Hannesson skrifar 5. des.:
„Velvakandi.
Vegna rabb-greinar Leifs
Sveinssonar í Lesbók Mbl. 3. des.
langar mig að fram komi eftir-
farandi: Það er ekki nýtt að
heyra að Reykjavík sé perla
sköpunarverksins. Þess vegna
leiðist mér þær missagnir sem
fram koma í grein hans um
hreinsun og umgengni okkar við
borgina. Markmið okkar allra er
hrein borg. Við viljum efla
hreinsun lóða og gatna og fjar-
lægja númerslausa bílgarma sem
eru til óprýði og óþrifnaðar.
Hreinsunardeild borgarinnar
auglýsir lóðahreinsun á hverju
vori með fresti til 14. maí. Flestir
húseigendur bregðast vel við og
hreinsa hjá sér en stundum verð-
ur hreinsunardeildin að grípa til
annarra ráða. Nú er komin heim-
verið talin hinn mesti anti-popp-
isti dillar sér óstjórnlega í takt við
Bowie, Bubba, Megas, Mezzoforte
og hvað þetta nú allt saman heitir
um leið og hún smeygir ljúffengu
smákökunum lipurlega inní
ofninn. Já, sjaldan hefur hún af-
kastað öðru eins í jólabakstrinum.
Amma mín, hin virðulegasta kona,
hefur nú þegar fleygt frá sér stult-
unum og dansar heil ósköp um allt
hús en þrátt fyrir viðvaranir
hvítsloppunga lætur hún ekki
ild í lögreglusamþykkt um að
borgin megi fjarlægja númers-
lausa bílgarma af götunum og er
þegar mikið gert af því. Það er
rétt að koma þarf því fyrirkomu-
lagi á að vissa daga megi ekki
leggja bílum við götukant, því þá
fari götuhreinsun fram. Ábend-
ing um flöskubrot er mjög þörf
því þetta er einatt okkar versta
hreinsunarverk.
Sameinumst öll um að halda
borginni okkar hreinni."
segjast. Frændi minn, traustur
starfsmaður hjá borginni, mokar
sandinum grimmt og galið í takt
við rás tvö, svo að menn hafa aldr-
ei orðið vitni að öðrum eins af-
köstum.
Já, víða má greina jákvæðar
bylgjur þessa langþráða óska-
barns þjóðarinnar. Því hefur tek-
ist að lyfta andlegri vitund lands-
manna upp á öllu hærra og Iéttara
stig. Skatta- og víxlaáhyggjur
hafa umbreyst í hið skemmtileg-
asta krossgátuspil við undirleik
léttrar tónlistar.
Mikil er sælan og dillum okkur
því í takt við tónlistina, „smælurn"
framan í heiminn , því eins og
skráð er í Bókinni um veginn:
„Fólki veitist auðvelt að deyja, vegna
þess að það erfiðar of mikið fyrir gæð-
um lífsins. Þess vegna lætur það sér
dauðann i léttu rúmi liggja.
Þess vegna er betra að láta sér lífið í
léttu rúmi liggja en að gera of mikið úr
því.“
(Lao-Tse, Bókin um veginn, bls. 79.)
Þökk sé rás tvö, fyrir að þessi
hugsunargangur er að ryðja sér til
rúms á þessari „basaltbungu" sem
stödd er á mörkum hins byggilega
heims.
Með fyrirfram þökk fyrir birt-
inguna."
GÆTUM TUNGUNNAR
Sagt var: Hafin er vinna vegna jarðgangna.
Rétt væri: ... vegna jarðganga.
(Eignarfall af göng er ganga; en gangna er
eignarfall af göngur.
Markmið okkar
er hrein borg
Utgerðarmenn — Skip-
stjórar á Austurlandi
Tökum aö okkur uppsetningu á björgunarbátagálgum
frá Óla Ólsen Ytri-Njarðvíkum. Uppl. í síma: 9-6166,
heimasími: 9-6480.
Vélaverkstædi Eskifjaröar.
I dag, 10. desember veröur annar jólamarkaöur
Félags einstæöra foreldra í Skeljahelli, Skeljanesi
6, og hefst kl. 2.
Mjög mikil aösókn var aö markaðnum um síöustu
helgi, en mikið hefur bætzt viö af varningi.
Fjölbreytt jólagjafaúrval, skreytingar af öllu tagi,
búta-púöar, ullarflíkur, kökur o.fl., o.fl. .
Munið að leiö 5 hefur endastöö viö húsiö. |
^^Sjáumst. Jólamarkaðsnefndin.lt^^B
SKYRTUR
MELKA TWIN
er mest selda
skyrtan í Svíþjóö. B'f ^
Fyrsta flokks efni ogíl
fragangur.
Auöveld í þvotti, þarfg*^
ekki aö strauja.JHH
Veröiö sérlega hagstætt.l
FÆST í ÖLLUM HELSTUl
HERRAFATAVERSLUNUM
LANDSINS.HHBHHÉ
JOIASVEINARNIR
frá ísf ugl
Kertaljós, alveg nauö-
synlegt meö kjúkling-
um og rúllettum frá
ÍSFUGL.
Reyndu þaö.
ísfugl
Fuglasláturhusið að Varmá
Reykjavegi 36 Mosfetlssveit
Símar 91-66103 og 66766