Morgunblaðið - 10.12.1983, Síða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 1983
Demantar
Pitt er valið
ÍÍÍP
'k
Kjartan Ásmundsson,
frullsmíðav.
Aðalstræti 8.
Kl. 2 kemur Magnús Þór Sigmundsson í
heimsókn og syngur lög af plötunum
Pósturinn Páll, og Draumur Aldamóta-
barnsins.
Kl. 16 - 17 fáum viö stórkostlega
jólasveinaheimsókn.
Opiðtilkl.6
HAGKAUP
Skeifunni15 Reykjavík
LANDSLIDID í handknattleik heldur til Austur-Þýskalande é morgun þar sem það tekur þátt í sterku sex
liða móti. Fyrsti leikurinn er á þriðjudagskvðld þegar leikiö er gegn Alsír. Síðan verður leikið gegn A-liði
heimamanna, þá gegn Tékkum, Pólverjum og loks næsta laugardag gegn B-liði Austur-Þjóðverja. Kristján
Einarsson tók þessa mynd á æfingu liösins í Laugardalshöll í fyrrakvöld en eftir þá æfingu var hópurinn
sem fer utan kynntur.
Öruggur FH-sigur
FH-ingar héldu áfram sigur-
göngu sinni í 1. deildinni í hand-
bolta í gærkvöldi er j»eir mættu
Stjörnunni í Digranesi í Kópa-
vogi. FH sigraöi, 30:22, eftir aö
staðan haföi verið 16:8 þeim í vil í
hálfleik.
FH-ingar komust í 8:0 í byrjun
leiksins og eftir þaö þurfti ekki aö
spyrja aö leikslokum. Þeir höföu
tögl og hagldir allan tímann eins
og tölurnar bera meö sér. Kristján
Arason, Hans Guömundsson og
Þorgils Óttar voru atkvæöamestir
hjá FH en af Stjörnunum skein
Bjarni Bessason. Hann lék sinn
besta leik meö liöinu til þessa og
skoraöi átta mörk.
Mörkin skiptust þannig:
FH: Kristján Arason 9, Óttar
Mathiesen 7, Hans Guömundsson
6, Atli Hilmarsson 4, Pálmi Jóns-
son 2, Sveinn Bragason 1 og Guö-
mundur Magnússon 1.
Stjarnan: Bjarni Bessason 8,
Hannes Leifsson 7, Gunnlaugur
Jónsson 3, Hermundur 2, Guö-
mundur Þóröarson 1, Sigurjón
Guömundsson 1.
Slakt í Njarðvík
Oskabók
íþróttamannsins!
( bókinni Ólympíuleikar að
fornu og nýju rekur Dr. Ingim-
ar Jónsson sögu Ólympíu-
leikanna. Stórfenglegum
íþróttaviðburðum og minnis-
stæðum atvikum er lýst. Þátt-
töku (slendinga í Ólympíu-
leikunum eru gerð ítarleg skil.
Ólympíuleikar að fornu og
nýju er á þriðja hundrað bls.
Hana prýða um hálft annað
hundrað mynda, þar af marg-
ar litmyndir.
Ólympíuleikar að fornu og
nýju er ómissandi öllum
íþróttaunnendum.
Æskan Laugavegi 56
sími 17336
Njarðvíkingar sigruðu ÍR 82:77 í
slökum leik í úrvalsdeildinni í
körfuknattleik í Njarövík í gær-
kvöldi. Staöan í hálfleik var 44:37
fyrir heimamenn.
Njarövíkingar voru yfir mestall-
an tímann, (R-ingar komust aö vísu
tvisvar yfir í leiknum en þaö stóö
mjög stutt í bæöi skiptin. UMFN
skoraöi fyrstu sex stigin en ÍR-
ingar sköxuöu á forskotiö og í eina
skiptið sem þeir voru yfir í hálf-
leiknum komust þeir í 16:14. Síöan
komst Njarövík aftur yfir og forysta
þeirra var örugg til leikhlés.
ÍR-ingar jöfnuöu 48:48 fljótlega í
seinni hálfleik og komust síöan yfir
52:48 eftir sex og hálfa mín. Einni
mín. seinna voru Njarövíkingar
komnir yfir aftur. Er sjö mín. voru
eftir fór Hreinn Þorkelsson útaf
meö fimm villur og stuttu áöur
haföi Gylfi bróöir hans farið út af
velli af sömu sökum. Viö þaö döl-
uöu ÍR-ingar og UMFN náöi góö-
um spretti. Er fjórar mín. voru eftir
var 75:64 og sigurinn í höfn og
Njarövíkingar léku mjög kæru-
leysislega þaö sem eftir var. ÍR-
ingar minnkuðu muninn en ógnuöu
þó ekki sigrinum.
Stigin: Valur Ingimundarson 31,
Kristinn Einarsson 22, Gunnar
Þorvarðarson 14, Ingimar Jónsson
8, Sturla Örlygsson 4, fsak Jóns-
son 2 og Ástþór Ingason 1. ÍR:
Gylfi Þorkelsson 18, Agnar Torfa-
son 15, Kolbeinn Kristinsson 12,
Hjörtur Oddsson 10, Hreinn Þor-
kelsson 8, Jón Jörundsson 5,
Benedikt Ingólfsson 5, Stefán
Kristjánsson 2 og Bragi Reynisson
2.
ÓT/SH.
Æsispennandi
— er KA og Þróttur gerðu jafntefli
KA OG ÞRÓTTUR gerðu jafntefli í
fyrir norðan í æsispennandi leík,
KA.
Þróttarar byrjuöu af krafti —
komust í 4:0 og KA skoraöi ekki
sitt fyrsta mark fyrr en á níundu
mín. Þeir náöu aö jafna 6:6 og
komust yfir 8:7.
í seinni hálfleiknum náöi KA
mest þriggja marka forystu, 12:9,
og var síöan einu til tveimur mörk-
um yfir þar til um miöjan hálfleik-
inn er Þróttarar jöfnuöu 15:15.
Síöan var jafnt á öllum tölum.
Þegar fimm mín. voru eftir haföi
KA yfir 18:17 en Páll Björgvinsson
jafnaöi eftir gegnumbrot, Þróttur
fékk svo fljótlega víti, en Magnús
Gauti geröi sér lítiö fyrir og varöi
frá Páli Ólafssyni.
KA-menn voru í sókn er tvær og
hálf mín. voru eftir en misstu bolt-
ann. Páll Björgvinsson skoraöi svo
nítjánda mark Þróttar er ein og
hálf mín. var eftir og þá var allt á
suöupunkti í íþróttahöllinni.
Stemmningin góö og baráttan í al-
gleymingi. Er 40 sek. voru til leiks-
loka var brotiö gróflega á Sæm-
undi Sigfússyni er hann var kom-
inn einn í gegn og Pétur Bjarnason
skoraði af öryggi úr vítakastinu og
1. deildinní í handbolta í gærkvöldi
19:19. Staðan í hálfleik var 9:8 fyrir
jafnaöi. Þróttur var meö boltann
síöustu hálfu mínútuna en tókst
ekki aö skora.
Einhver misskilingur varö milli
dómara og tímavarða á síöustu
sekúndunum og eftir nokkurt hlé
var ákveöiö aö fimm sekúndur
væru eftir af leiknum. Þær sekúnd-
ur nægöu Þrótturum til aö taka
aukakast og fór Páll Ólafsson inn
úr horninu er tvær sek. voru eftir
og skaut í þverslá. í sama mund
var leikurinn flautaöur af og sluppu
KA-menn þar meö skrekkinn.
Leikurinn var hnífjafn og úrslitin
sanngjörn.
Mörk KA: Jón Kristjánsson 4, Pét-
ur Bjarnason 4, Magnús Birgisson
2, Jóhannes Bjarnason 2, Jóhann
Einarsson 2, Siguröur Sigurösson
2, Erlingur Kristjánsson 2 og Þor-
leifur Ananíasson 1.
Mörk Þróttar: Páll Ólafsson 6, Páll
Björgvinsson 4, Konráö Jónsson 3,
Birgir Sigurösson 3, Gísli Óskars-
son 3. Jón Kristjánsson var bestur
KA-manna ásamt Gauta en hjá
Þrótti voru Páll Ólafsson og Kon-
ráö bestir. SH/AS