Morgunblaðið - 03.01.1984, Blaðsíða 1
48 SIÐUR
STOFNAÐ 1913
1. tbl. 71. árg. _________________ ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 1984 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Allt með kyrrum kjörum eftir valdarán hersins í Nígeríu:
Buhari treystir sig
enn frekar í sessi
London, 2. ianúar. AP.
HINN NÝI leiðtogi Nígeríumanna,
Mohammed Buhari hershöfdingi,
kallaði æðstu menn opinberrar þjón-
ustu á sinn fund í morgun og skipaði
þeim að uppræta spillingu í stjórn-
kerfinu. Buhari virtist í dag hafa
fullkomna stjórn á landinu eftir bylt-
inguna, sem gerð var snemma á
laugardagsmorgun án þess kæmi til
blóðsúthellinga og aðgerðirnar í dag
miðuðu að því að treysta hann enn
frekar í sessi.
Buhari, sem eitt sinn var olíu-
málaráðherra landsins, hefur
skipað 14 manna herráð í stað
borgaralegrar stjórnar Shehu
Shagari, forseta.
f kjölfar valdaránsins var
landamærum ríkisins lokað fyrir
allri umferð og símasamband rof-
ið. Af útsendingum útvarpsins í
Lagos má ráða, að allt sé með
kyrrum kjörum í landinu. Lög-
regla tilkynnti þó, að fámennur
hópur hefði verið með andóf í
a.m.k. einu fylkinu. Buhari hefur
bannað alla stjórnmálflokka í
landinu og fyrirskipað útgöngu-
bann eftir rökkur.
Hinn 41 árs gamli Buhari sagði
í útvarpsávarpi til þjóðarinnar í
gær, að ógerningur hefði verið að
una við vinnubrögð stjórnar Shag-
ari, sem sýnt hefði vanhæfni og
'nánast leitt þjóðina til efnahags-
legrar glötunar. Því hefði verið
nauðsynlegt að ræna völdum.
Jafnframt sagði Buhari, að
opinberir starfsmenn, sem gerst
hefðu sekir um spillingu í starfi,
yrðu sóttir til saka.
Ekkert hefur frést um afdrif
Shagari, en talið er að honum hafi
ekki verið gert mein. Að sögn
sendiráðsstarfsmanna i Lagos,
voru Shagari og nánustu aðstoð-
armenn hans handteknir skömmu
fyrir valdaránið. Þeir hermdu
ennfremur, að flest stærstu blöð
landsins hefðu fagnað aðgerðum
hersins, en bættu því jafnframt
við, að ekki yrði létt verk að
bjarga þjóðinni úr efnahagsógöng-
unum.
Talið er, að Buhari, sem getið
hefur sér orð fyrir áreiðanleika,
hefji skjótt viðræður við Alþjóð-
agjaldeyrissjóðinn um greiðslu af-
borgana af lánum. Nígería er
skuldum vafið land eftir að olíu-
framleiðsla ríkisins dróst stórlega
saman.
Sjá nánar um valdaránið í
Nígeríu á bls. 20—21.
Slagorð krata fyrir
kosningarnar:
Stöðvið
íhaldið
Kaupmannahöfn, 2. janúar. Frú Ib
Björnbak, fréttaritara Morffunblaönina.
Kosningabaráttan er nú að
komast á fullt skrið. Sósíaldemó-
kratar leggja allt kapp á að beina
spjótum sínum að flokkunum fjór-
um, sem stóðu að síðustu ríkis-
stjórn undir forystu Paul Schliiter.
Slagorð þeirra er: Stöðvið íhaldið.
Hinir flokkarnir þrfr, sem í
stjórninni sátu (Venstre, flokk-
ur miðdemókrata og kristilegi
þjóðarflokkurinn) berjast allir
fyrir því einu að halda óbreyttu
fylgi sínu því fyrirsjáanlegt er
talið að íhaldsflokkur Schlúters
stórauki fylgi sitt. 1 nýlegri
skoðanakönnun Gallup-stofnun-
arinnar er talið að flokkur
Schlúters fái 28% atkvæða í
stað 14,5% nú.
I ljósi þessarar spár er talið,
að einn fyrrverandi stjórnar-
flokka kunni jafnvel að falla út
af þinginu — nái ekki tilskildum
2% atkvæða til þingsetu.
Þetta kann að reynast flokk-
unum fjórum, sem sátu síðast í
stjórn, erfiðasta hindrunin.
Vinni íhaldsflokkurinn of stór-
an sigur raskast styrkleika-
hlutfallið á milli þeirra og þar
með kann að vera úti um hið
góða samstarf, sem einkenndi
lengstum stjórn þeirra. Næstu
dagar skera væntanlega úr um
það á hvern hátt atkvæðin deil-
ast á flokkana fjóra.
Níu flokkar áttu sæti á síð-
asta þingi, en að þessu sinni
bjóða 13 flokkar fram. Á meðal
þeirra, sem reyna nú að komast
á þing, er réttarsambandið, sósí-
aliski verkalýðsflokkurinn,
kommúnistaflokkurinn og enn
einn vinstriflokkurinn, sem
nefnir sig Marx/Lenínista.
Samkeppnin á vinstri vængnum
er hörð og ekki talin likleg til að
styrkja stöðu vinstriflokkanna á
þinginu.
Pólitískt
fats talið
Manama, Hahrain, Beirút, l'arís, London og WashinKton 2. janúar. AP.
DAGAR YASSER ArafaLs í leiðtogasæti PLO eru senn á
i dag í dagblaðinu Al-Khaleej í Bahrain.
f frétt, sem blaðið birti um fund
11 manna miðstjórnar stærstu
fylkingar samtakanna, sagði að
Árafat berðist fyrir pólitískri
framtíð sinni með kjafti og klóm.
Sagði Al-Khaleej ennfremur, að
malflutningur hans nyti ekki
stuðnings neins hinna 10 í mið-
stjórninni og því hlyti það aðeins
að vera tímaspursmál hvenær
dagar hans í embætti leiðtoga
PLO væru taldir. Fundur hans og
Hosni Mubaraks, Egyptalands-
forseta, hefði fyllt mælinn.
Sprengju var í dag varpað að
fall Ara-
blasa við
Beirút til suðurhluta Líbanons til
móts við lið Sameinuðu þjóðanna.
Enn urðu umræður um breska
gæsluliðið í neðri málstofu breska
þingsins í dag. Skoraði talsmaður
stjórnarandstöðunnar á stjórn-
völd að huga alvarlega að því að
kalla lið sitt heim frá Líbanon.
Áskorunin var lögð fram eftir að
Walter Mondale, forsetaefni
demókrata í Bandaríkjunum,
hafði viðrað svipaðar hugmyndir
vestanhafs. Sagðist Mondale jafn-
framt ekki sjá, að PLO gæti gegnt
neinu hlutverki í samningavið-
ræðum um frið fyrir botni Mið-
jarðarhafs.
enda, að því er sagði
búðum frönsku gæsluliðanna í
Beirút, en ekkert manntjón varð.
Skömmu síðar var tilkynnt um
handtöku enn eins trúarleiðtoga
múhameðstrúarmanna í borginni
Sídon. Helstu trúarleiðtogar í suð-
urhluta Líbanon efndu þó til fund-
ar í dag, þar sem þeir hvöttu til
þess að fsraelum yrði veitt meiri
mótspyrna, jafnvel þótt það kost-
aði fleiri mannslíf.
Franska ríkisstjórnin skýrði frá
því í dag, að hún hefði ákveðið að
færa um 500 gæsluliða sína frá
Mohammed Buhari, hinn nýi leið-
togi Nígeríumanna.
„Þekki ekki
ferðaþreytu“
London, 2. janúar. AP.
MUNROE E. Spaght, 74 ára
gamall ellilífeyrisþegi, hlýtur að
vera á góðri leið með að setja
met af einhverju tagi. Hann lagði
í dag upp frá Heathrow-flugvelli í
sumarleyfi og á miðri leiðinni
náöi hann því marki að hafa ferð-
ast með flugvélum 4 milljóna
mflna vegalengd.
Spaght er ekki beint ókunn-
ugur flugvélum. Hann á að
baki 583 ferðir yfir Atlantshaf-
ið og hefur komið til 87 landa.
Fyrsta flugferð hans var árið
1944 og hann er ekkert á þeim
buxunum að hætta að ferðast,
a.m.k. ekki á meðan peningarn-
ir endast.
„Ferðaþreyta er nokkuð, sem
ég þekki ekki,“ sagði Spaght.
George Orwell um 1984:
Mig rekur
í vörðurnar
Sydney, 2. janúar. AP.
„ÉG VILDI bara að ég gæti útskýrt
þetta betur fyrir fólki, en mér er það
gersamlega ómögulegt," sagði
George Orwell í spjalli við frétta-
mann AP-fréttastofunnar í dag.
„Það flykkjast allir hingað til Sy-
dney til þess að spyrja mig hvernig
ég túlki hitt og þetta í bókinni 1984,
en mig rekur í vörðurnar."
Einhverjum kann að þykja
þetta kyndugt, en málið skýrist þó
þegar hið rétta kemur í ljós. Um-
ræddur George Orwell er nefni-
lega ekki höfundur tímamóta-
skáldsögunnar 1984, heldur aðeins
alnafni rithöfundarins, sem aflaði
sér heimsfrægðar fyrir verk sitt.
Hinn eini „rétti" George Orwell
lést árið 1950.
Orwell hinn ástralski er 68 ára
gamall og starfaði áður við borg-
arjárnbrautirnar í Sydney. Margir
kunningjar hans gantast við hann
út af nafninu, en þeir eru enn
fleiri, sem leita ráða hjá honum
vegna atriða, sem þeim finnast
torskilin í bókinni. „Ég reyni allt-
af að útskýra fyrir fólki að ég sé
ekki höfundurinn en margir neita
að trúa því. Verða svo æfir þegar
ég get ekki svarað spurningum
þeirra."