Morgunblaðið - 03.01.1984, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 1984
3
Til vinstri á myndinni er eldhúsglugginn og þvottahúshurðin sem sprakk upp. Til hægri er bílskúrinn og stendur Kristján Friðbjarnarson í dyrunum,
sem hann ætlaði að ganga út um í sama mund og snjóflóðið féll. Morgunbla&ið/Oifar.
Snjóflóð í Hnífsdal:
Mildi að ekki
varð slys
ísafirði, 31. desember.
SNJÓFLÓÐ féll á tvö hús í Hnífsdal að kvöldi 30. desember. Engin slys
urðu á mönnum, en litlu munaði að illa færi. Það var um klukkan níu
að húsfreyjan að Dalbraut 9, Árný Oddsdóttir, heyrði að bakdyrahurðin
á húsinu skall opin. Þegar hún ætlaði að fara að loka hurðinni kom í
Ijós að snjóflóð hafi brotið hurðina upp og fyllt þvottahúsið og búr inn
af því af snjó. Henni brá í brún og þar sem hún vissi að eiginmaðurinn,
Kristján Friðbjörnsson, var að vinna úti í bflskúr sem stendur utan og
ofanvert við húsið sendi hún strax son sinn út til að gæta að föður
sínum.
*
Þegar hann kom að, var faðir
hans að brjótast út úr bílskúrn-
um en dyrnar fóru í kaf í flóðinu.
Hafði Kristján verið búinn að
taka í hurðarhúninn til að fara
út þegar hann heyrði snarpan
smell. Hann dokaði við, þar sem
honum datt í hug snjóflóð, en
þegar ekkert meira heyrðist
opnaði hann hurðina, en hún var
þá komin í kaf í snjóflóðinu, sem
hafði fallið svo hljóðlega að
næstu nágrannar hans höfðu
ekki hugmynd um. Kristjáni
tókst fljótlega að grafa sig út úr
bílskúrnum. Við athugun kom i
ljós að snjór hafði losnað úr
kafla af hlíðinni upp af húsi
hans í námunda við svonefndan
Hádegisstein. Hafði ytri endi
flóðsins lent á gömlu hænsna-
húsi, sem stendur ofar í hlíðinni,
og brotið þar þrjá glugga á neðri
hæð. Mikið var farið að draga úr
flóðinu þegar það kom á hús
Kristjáns og varð það húsfreyj-
unni til happs, því hún var að
vinna við eldhúsglugga við hlið
hurðarinnar sem féll inn. Snjór
frussaðist upp á gluggann en
hann brast ekki.
Að sögn Kristjáns Friðbjarn-
arsonar hefur aldrei fallið þarna
snjóflóð áður og kom þetta
mönnum mjög á óvart.
Úlfar
Innan brotalínunnar á myndinni losnaði snjórinn, sem féll á húsin tvö
sem merkt er við með X. Engin hengjumyndun var sjáanleg heldur féll
þarna nýfallinn snjór sem ekki tolldi við sleipan frerann sem undir var.
MorgunblaÖiÖ/Olfar.
Jóhann
Hjartar-
son í efsta
sæti
JÓHANN Hjartarson var efstur
ásamt tveimur finnskum skák-
mönnum eftir fjórar umferðir á
alþjóðlegu skákmóti í Noregi.
Hann hafði hlotið 3 vinninga
ásamt Salmi og Yrjola. Margeir
Pétursson teflir einnig á mótinu
og hann hafði hlotið 2 vinninga
og átti betri biðskák.
Fjórir stórmeistarar taka þátt
í mótinu. Jóhann tefldi í 1. um-
ferð við Knezevic frá Júgóslavíu
og gerði jafntefli, og Margeir við
Rajkovic, skákmeistara Júgó-
slavíu, og gerði einnig jafntefli.
Þröstur Þórhallsson hafnaði í
5. sæti á alþjóðlegu skákmóti í
Noregi fyrir skákmenn 20 ára og
yngri. Hann hlaut 6 vinninga og
hlaut sérstök verðlaun fyrir að
hafa orðið efstur skákmanna 17
ára og yngri á mótinu, en Þröstur
er aðeins 14 ára gamall. Bent
Schneider frá V-Þýzkalandi sigr-
aði, hlaut 7 vinninga, næstir
komu Gustavsson, Svíþjóð, Salo,
Finnlandi, og Merke, Noregi, með
6'A vinning. Gunnar Björnsson
tók einnig þátt í mótinu og hafn-
aði í 14. sæti með 5 vinninga.
Björgvin Jónsson tekur þátt í
Evrópumóti unglinga í Groning-
en i Hollandi. Að loknum 12 um-
ferðum hefur Björgvin hlotið 6
vinninga. í gær tefldi hann við
Jeffrey Smith frá Wales og bar
sigur úr býtum. Sovétmaðurinn
Salov er efstur þegar aðeins ein
umferð er eftir. Hefur hlotið 9 xh
vinning. Næstur er Simen Agde-
stein frá Noregi með 9 vinninga.
Úr gæzlu-
varðhaldi
PILTUNUM, sem úrskurðaðir
voru í gæzluvarðhald á Þorláks-
messu eftir að tvítugur piltur beið
bana eftir átök við þá, var sleppt
úr gæzluvarðhaldi í gærkvöldi.
Þeir voru úrskurðaðir í gæzlu-
varðhald til 25. janúar.
Dorriét Kavannah
sópransöngkona látin
DORRIÉT Kavannah, sópransöng-
kona, lést í sjúkrahúsi í Boitn í
V-Þýskalandi á gamlársdag eftir all-
langt og erfltt sjúkdómsstríð, hálf-
fertug að aldri.
Dorriét Kavannah fæddist í
Barcelona á Spáni af spánskri
móður og bandarískum föður. Hún
ólst upp í Barcelona en fluttist
með móður sinni til Bandaríkj-
anna og síðar til Ítalíu. Hún
stundaði leiklistarnám í báðum
löndunum og gat sér gott orð sem
kvikmyndaleikkona áður en hún
helgaði líf sitt söngnámi og söng,
sem hún lagði stund á í mörgum
löndum og gat sér gott orð fyrir.
Hún kom fyrst hingað til lands
1980 en kom oft síðan og söng á
mörgum tónleikum með eigin-
manni sínum, Kristjáni Jóhanns-
syni, óperusöngvara. Þau sungu
saman á síðustu tónleikum henn-
ar, í Austurbæjarbíói fyrir rúm-
um mánuði.
Dorriét Kavannah verður jarð-
sungin á Akureyri.
Dorriét Kavannah
Borgarráð:
120 milljónir til skíðakennslu
BORGARRÁÐ Reykjavíkur hefur
samþykkt að verja 120 þúsund
krónum á þessu ári til skíðakennslu
og segir í samþykktinni að íþrótta-
ráði sé falið að setja frekari skilyrði
varðandi styrkveitingar til fþrótta-
félaga í þvi sambandi.
Davíð Oddsson borgarstjóri
sagði í samtali við Mbl. af þessu
tilefni, að styrkurinn væri veittur
til Skíðaráðs borgarinnar og nota
ætti féð til skíðakennsiu. Áður
hafi ráðið verið styrkt með 10%
framlagi af lyftugjöldum, en nú
væru lyfturnar orðnar tvær,
þannig að rétt hefði þótt að
ákveða fast framlag til þessa
verkefnis.
Þá sagði Davíð að menn teldu
að ekki hefði verið staðið að
skíðakennslunni með nægjanlega
góðum hætti, þannig að settar
hefðu verið reglur til þess að
fylgja því eftir. Sagði Davíð að
íþróttaráði borgarinnar hefði
verið falið að fylgja því eftir að
fyrrgreindir fjármunir yrðu not-
aðir til þess sem til væri ætlast,
en misbrestur hefði orðið á því.
Skipasmíðanefnd:
150 millj. króna
til útgerðarinnar
„VIÐ SKILUÐUM áfangaskýrslu til iðnaöarráðherra nokkru fyrir jólin þar sem
við fjöllum eingöngu um þennan bráða vanda stöðvanna, það er að segja
verkefnaleysi þeirra á næstunni.
Við lýstum stöðunni hjá hverri
einstakri stöð og okkar tillögugerð
miðaðist við að opna leiðir fyrir
viðhaldsvinnu og viðgerðir bæði
fyrir togara og bátaflotann. Við
leggjum til, að þannig verði unnið
að málum að þessi verkefni fari
ekki út úr iandi, án þess að það
þurfi þó að banna mönnum að fara
út. Við leggjum sem sagt til fjár-
magnsútvegun til útgerðar og meg-
intillaga okkar er að útvegaðar
verði 150 milljónir króna til þess að
létta útgerðinni að skipta við stöðv-
arnar hér heima," sagði Ólafur G.
Einarsson, formaður skipasmíða-
nefndar, sem iðnaðarráðherra skip-
aði í ágústmánuði sl. til að gera út-
tekt á stöðu skipasmíðastöðva.
Ólafur var spurður hvernig þeir
hugsuðu sér að afla 150 milljón-
anna. Hann svaraði: „Við reiknum
með að það þurfi að taka erlent lán,
en kveðum ekkert upp úr um það.
Niðurstaða okkar var eingöngu sú,
að 150 miiij. kr. þurfi til útgerðar-
innar, í gegnum hvaða sjóð sem það
færi svo.“
Ólafur sagði aðspurður, að við-
gerðir hér heima væru ekki dýrari
en erlendis, en stöðvarnar erlendis
gætu boðið upp á ýmsa lánafyrir-
greiðslu. Hann sagði ennfremur að
samanburður á tiltölulega nýgerð-.
um útboðum sýndi að stöðvarnar
hérna heima væru fyllilega sam-
keppnisfærar. Aftur á móti hefði
útgerðum ekki verið leyft að taka
erlend lán til þess að gera upp skip
hér heima, en það gerðist sjálfkrafa
þegar verkið væri unnið erlendis.
Innlend lánafyrirgreiðsla væri ekki
heldur fyrir hendi, Fiskveiðasjóður
tómur og annað eftir því.
Ólafur sagði í lokin, að það væri
gífurlega mikið atriði að þessi
starfsemi þessara stöðvar lognaðist
ekki út af. Hann sagði að u.þ.b. eitt
þúsund manns hefðu beina vinnu af
starfsemi þeirra bæði í stöðvunum
sjálfum og i þjónustugreinum, sem
byggst hefðu upp við hlið stöðv-
anna.