Morgunblaðið - 03.01.1984, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 03.01.1984, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 1984 Svo segir Drottinn, frelsari yðar: Sjá, nú hefí ég nýtt fyrir stafhi Nýársprédikun biskups íslands, Péturs Sigurgeirssonar, í Dómkirkjunni Texti: „Svo segir Drottinn, frelsari yðar: Sjá, nú hefi ég nýtt fyrir stafni, það tekur þegar að votta fyrir því — sjáið þér það ekki?“ Jesaja 43:14,19. Nýársdagur er upp runninn! Nýtt ár er hafið, árið 1984. Það er sent til okkar að náðargjöf úr hendi alföður lífsins og skapara allra tíma. Komi árið sem önnur Guði helgað og blessað af forsjón hans og föðurelsku. Komi það góðu heiili yfir heimsbyggðina með frið og farsæld, færi það ís- lensku þjóðinni árgæsku og hag- sæld. Við biðjum af öllu hjarta fyrir hrjáðum heimi og fyrir þjóð okkar á viðsjálum og vand- rötuðum tímum. Á miðnætti í nótt urðu hin leifturhröðu skil áranna. Það var fagurt að líta yfir borgina þrátt fyrir hríðarmuggu og myrkur, þegar flugeldar þeyttust upp í loftið með litbrigðaljóma. Þá bar fyrir sjónir sem ákall jarðar- barna til alföður á himnum. Að baki er enn eitt tímaskeið ævigöngunnar, þeirri einu miklu ferð, sem leiðir okkur til skapa- dægurs og hinstu örlaga. Við teljum árin, sem okkur eru gefin, eitt af öðru. Tímatal okkar segir sína sögu, sem vert er að veita athygli. Við leitum áttanna til að rata fram á veg. Viðmiðun tíma- talsins er okkur öruggur leiðar- vísir. Um árið 500 hafði kristin trú náð þeirri útbreiðslu í Róma- veldi, að heimsrásin fékk nýtt tímatal. í stað þess að miða tím- ann við grundvöllun Rómaborg- ar, eins og gert hafði verið, var fæðing Jesú frá Nasaret valin í staðinn. Út frá þeim atburði reiknast tíminn, hvenær þetta eða hitt gerðist fyrir og eftir Krist. Þess ber jafnframt að geta að hinn tölvísi munkur Dionysius að nafni, sem fékk hið vandasama hlutverk að tímas- etja fæðingu Krists, vanreiknaði tímann frá þeim atburði um 4—6 ár, svo að Kristur er fæddur um það bil þetta mörgum árum fyrr en ártalið segir til um. Eigi breytir það þó neinu er máli skiptir, enda ekki hægt að finna hið nákvæma ár, „því dag og ártal enginn reit“. Tíminn hefur fært okkur áttavitann, lausnarorðið, sem er Jesús Kristur, og hann hefur hið ókomna í hendi sér. „Að gefa framtíð er fegurst af öllu“ — yrkir séra Björn Halldórsson. Það er guðspjall friðarins. Jesús er með það kominn um leið og nafn hans er nefnt. Á áttunda degi var hann umskorinn og lát- inn heita Jesús. Því er nýársdag- ur og nefndur átti-dagur. Þegar horft er fram til nýja ársins, sjáum við merk tímamót verða í sögu lands og þjóðar. 1 sumar verða 40 ár frá stofnun hins íslenska lýðveldis. Á þessu ári verða 400 ár frá prentun fyrstu íslensku Biblíunnar, Guð- brandsbiblíu, á Hólum í Hjalta- dal, en því verki lauk 6. júní 1584. Guðbrandsbiblía er talin eitt mesta bókmenntaafrek ís- lendina fyrr og síðar. í tilefni þessa afmælis er upp runnið ár Biblíunnar, þar sem Hið íslenska biblíufélag mun leggja sérstaka áherslu á þýðingu Biblíunnar fyrir landsmenn og lestur þeirr- ar helgu bókar. ísland á Guði að þakka and- legar náðargjafir, sem hafa bor- ið uppi menningu okkar og trú, sem við metum mikils og viljum varðveita. Nú er ekki nema hálf- ur annar áratugur til þeirra stóru tímamóta, að 1000 ár verða liðin frá kristnitökunni á Þing- velli. Það minnir okkur á arfinn, er við bestan fengum. Áramótin vekja okkur til um- hugsunar. Nú er réttur tími til að endurnýja forsjón Guðs og miskunn í hugskoti okkar, treysta öllu því, sem best er og „Guð vors lands" hefur okkur í té látið. Gjafarinn, sem gefur nýtt ár, gefur einnig að nýju sín hjáiparráð. Á þeirri forsendu getum við leyft okkur að taka mark á spádómi, sem spáir vel fyrir komandi tíð, en það gerir Jesaja, þegar hann segir: Svo segir Drottinn, frelsari yðar: Sjá, nú hefi eg nýtt fyrir stafni. Það tekur þegar að votta fyrir því, sjáið þér það ekki? Jesaja hafði ærna ástæðu til þess að hughreysta þjóð sína, sem hafði gefið upp von og horfði uggandi fram á veg. Spá.naðurinn fullvissaði fólkið, að Gað hefði ekki yfirgefið það, heldur væri hann að starfi mitt á meðal þess. Við það vaknaði öryggiskennd og ný von. Um þessar mundir sjáum við syrta í álinn og þurfum einnig á von að halda um nýja og betri framtíð. Marteinn Lúther sá af sinni spámannlegu andagift, að tæki- færin eru fyrir hendi. Þegar við notum þau, höfum við nýtt fyrir stafni, nýja von, nýja framtíð. Hann sagði: „Guð er við dyr okkar. Það er skyldugt og réttmætt af okkur að opna fyrir honum, biðja hann velkominn. Hann heilsar okkur, og það varðar gæfu okkar að taka kveðju hans. Ef við glötum tækifærinu, fer hann framhjá og hver kallar þá á hann til baka. Kæra þjóð! Kauptu meðan markaðurinn er við dyr þínar. Uppsker þú meðan sólin skín og góða veðrið helst. Gríptu tæki- færið meðan kostur er og þú hef- ur náð Guðs og orð hans hið næsta þér. Með vanþökk og for- smán útilokast vitundin um Guð og gæsku hans. Orð hans og náð fer framhjá okkur líkt og gróðrarskúr, sem fer úr einum stað í annan.“ Guð leggur framtíðina í skaut okkar og hann sér fyrir því, að ekki brestur hjálpina, ef við vilj- um þiggja hana. Við þurfum ekki að missa áttanna, ef við höldum fast í Drottin og sleppum honum eigi. „Set á hann von þína, hann mun veg þinn greiða (Síraks- bók). Það er líka hægt að spá illa fyrir árinu og framtíðinni, því að vægast sagt eru horfurnar ískyggilegar, ef við einblínum á erfiðleikana, ekki síst ófriðar- blikuna. En Guð á sína sólskins- bletti, sem skína í gegnum öll ský, þegar minnst varir. Tæki- færin eru þar, og þau ljúka upp hinum eilífu sannindum, að „heiður er Guðs himinn". Höfum það ríkt í huga, að aðalvandinn eru ekki erfiðleikarnir, heldur hvernig þeim er tekið, hvernig við þeim er brugðist. Reynslan hefur kennt okkur að torfærur og vandkvæði, sem í raun og veru eru smámunir, geta orðið okkur að fótakefli, ef við förum skakkt að, eins og þegar við herðum hnútana, sem annars er Pétur Sigurgeirsson auðvelt að leysa. A hinn bóginn fáum við svo hin erfiðustu úr- lausnarefni, sem þó verða yfir- stíganleg. Það eru ekki erfiðleik- arnir, sem skipta sköpum, held- ur hvernig að þeim er staðið. Kristur talaði um, að trúin flytti fjöll. Þar á hann við aflið, sem gefur sigurmáttinn. Sannleiks- gildi þess reyndi þjóð okkar oftar en nokkur veit á erfiðum tímum. „Fyrir afturhvarf og ró- semi skuluð þér frelsaðir verða, í þolinmæði og trausti skal styrk- ur yðar vera.“ (Jes. 30:15). Sannlega er það betra að gefa ljósinu gaum og tendra það en bölva myrkrinu. Á umliðnum jólum munu fleiri ljós hafa verið tendruð á íslandi en nokkru sinni áður, — ljós vonar, trúar og kærleika. Von mannsins um frið byggist á því að hægt verði að upplýsa og endurnýja hjartað til þjónustu við friðarins Guð. í hjarta mannsins eiga styrjaldir upptök sín, en líka friðurinn. Það sem því gildir er að vinna hjartað til friðar, eignast sátt- argjörðina milli Guðs og manna. Sá, sem er ekki sáttur við sjálfan sig, sættist ekki við aðra. í tvíþætta kærleiksboðorðinu vitnaði Kristur til Biblíu sinnar: „Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig“ (3. Móseb. 19:18). Eitt sinn hlýddi ég á rabbúní — gyðinglegan lærimeistara — út- skýra boðorð þetta. Hann áleit, að gera ætti úr boðorðinu tvær setningar: „Elska skaltu náunga þinn. (Hann er) eins og þú.“ Þannig taldi hann, að taka mætti á boðorðinu. Náunginn er eins og hver annar maður, þótt hann sé víðs fjarri, svartur og sveltandi suður í Afríku, þá er hann samt maður eins og þú, náungi þinn með sínar þarfir til lífs og friðar, eins og við hvert og eitt. í hebreska textanum er reynd- ar ekki um slíka tvískiptingu að ræða eftir orðanna hljóðan. Samt býr hér að baki athyglis- verð hugmynd, sem auðveldar skilning á því sem við er átt. Sagnameistarar áður fyrr gáfu sumt í skyn með hreyfingum sín- um og látbragði eins og þegar lesa má milli línanna. Inn við beinið eru mennirnir allir eins hvað sem útliti líður, eins að því er snertir brýnustu þarfir til daglegs viðurværis og væntum- þykju. Þannig séð erum við öll systur og bræður, sem eigum að sýna hvert öðru kærleika svo sem við þurfum sjálf á honum að halda. íslendingar hafa nýverið látið þennan kærleikshug í ljós á framúrskarandi hátt, en þar á ég við landssöfnun Hjálparstofnun- ar kirkjunnar á aðventu og jól- um. Vart munum við áður hafa reynt meiri samhug og skilning en þar kemur fram í garð hins nauðstadda náunga. Á sama tíma var það áberandi hve kirkjusókn var meiri og almenn- ari en oft áður. Þá vekur það verðskuldaða athygli hve hin virka þátttaka leikmanna fer ört vaxandi í helgihaldi kirkjunnar. Þannig er það á mörgum fleiri sviðum, að kristni þjóðar sýnir í vilja og verki sjónarmið Fjall- ræðunnar: Þannig lýsi ljós yðar mönnunum. Vakning! — Orðið kemur ósjálfrátt í hugann, og segir þó kannski of mikið. Það mætti þó leiða hugann að nýárstextanum: Svo segir Drottinn, frelsari yðar: Sjá, nú hefi ég nýtt fyrir stafni, það tekur þegar að votta fyrir því — sjáið þér það ekki? Hið nýja fyrir stafni er ný og sam- stilltari þjónusta við náungann, þjónusta við Guð, þjónusta við land og þjóð. Fordæmið lýsir í guðspjalli friðarins, fyrsta nafn- inu sem hljómar frá altari kirkj- unnar á nýársdegi, nafnið Jesús, nafn hans sem sagði: Eg er á meðal yðar eins og sá sem þjón- ar. (Lúk. 22:27). Enginn sýndi betur en hann hvernig við eigum að þjóna hver öðrum. Og sú þjónusta er hið nýja fyrir stafni, sem á okkur kallar. Þegar Sveinn Björnsson tók við embætti ríkisstjóra árið 1941, sagði hann í ræðu sinni orð um þetta atriði, sem mér verða ætíð minnisstæð og hljóða svo: „En framar öllu lít ég á starf mitt sem þjónustu, þjónustu við heill og hag íslensku þjóðarinn- ar, þjónustu við málstað íslend- inga hvað sem framundan kann að vera. En mér er ljóst að ásetningurinn einn nægir ekki. Því bið ég höfund tilverunnar, hann sem á bæði ríkið, máttinn og dýrðina, að gefa mér og okkur öllum — þann styrk, það þol og þann kjark, sem okkur er öllum nauðsynlegur." Við göngum nú inn til hins nýja árs. Gerum það í þessum þjónustuhug. Þá er hægt þrátt fyrir erfiðleika og tvísýni að spá vel fyrir því sem koma skal. Vor sól og dagur herra hár sé heilög ásján þín í ár. ó, Drottinn, heyr vort hjartans mál í hendi þér er líf og sál. I Jesú nafni. Amen. Bændur á Vesturlandi í erfíðleikum með kjarnfóðurkaup SAMEIGINLEGUR fundur for- ráóamanna búnaðarsambandanna á Vesturlandi, sem haldinn var ný- lega í Borgarnesi, samþykkti áskorun til landbúnaðarráðherra að hann beitti sér fyrir því að Bjargráðasjóði verði gert kleift að veita fé til fóðurkaupa þeirra bænda sem nú eiga í erfiðleikum vegna óvenjulegs árferðis. I ályktuninni segir að bændur á Vesturlandi eigi nú í miklum erfiðleikum vegna uppskeru- brests og óþurrka síðastliðið sumar. Segir að fóðurforðinn sé í mörgum hreppum kjördæmis- ins 20—30% minni að vöxtum en í eðlilegu árferði, auk þess sem hey séu allt að V4 hluta lé- legri að fóðurgildi en venjulegt er. Því sé ljóst að margir bænd- ur þurfi að kaupa mikið kjarn- fóður í vetur, þrátt fyrir veru- lega fækkun búfjár, en það sé hinsvegar ljóst að margir þeirra bænda sem i hluta eiga hafi ekki handbært fé né möguleika til lántöku í almennu lánakerfi til að standa undir fóðurkaupun- um. Fundinn sátu formenn búnað- arsambandanna þriggja á svæð- inu: Búnaðarsambands Borg- arfjarðar, Búnaðarsambands Snæfellinga og Búnaðarsam- bands Dalamanna; ráðunautar sambandanna og framkvæmda- stjórar; auk framkvæmdastjóra Samtaka sveitarfélaga í Vestur- landskjördæmi. HBj. Opið til kl.19 mánudaga þriðjudaga miðvikudaga fimmtudaga . . . TJ A fy Tf A Ttp Skeifunni 15 IlAuIlAU I Reykjavík

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.