Morgunblaðið - 03.01.1984, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 1984
Tanzanía og Kenýa:
Efasemdir um
stjórnarbylting-
una í Nígeríu
I)ar Es Salaam, 2. janúar. AP.
VIÐBRÖGÐ í Afríku við stjórnarbyltingunni í Nígeríu hafa verið varfærin.
Aðalstjórnarblaðið í Tanzaníu hefur að vísu fordæmt valdaránið og haldið
því fram að það ógni lýðræði í álfunni. Salim Ahmed Salin, utanríkisráð-
herra, og aðrir talsmenn stjórnvalda hafa hins vegar ekki viljað taka undir
þessi ummæli og lýst því yfir að þei
málum Mígeríu.
í leiðara stjórnarblaðsins
Uhuru sagði að enda þótt hinir
nýju valdhafar í Nígeríu réttlætu
aðgerðir sínir með því að vísa til
spiliingar, óreiðu og ranglætis,
sýndi reynslan að valdarán af
þessu tagi leysti ekki vandann. „I
sumum tilvikum eykst vandinn
hins vegar," sagði í leiðaranum.
Ríkisstjórn Daniel Arap Moi í
Kenýa hefur enn ekki fordæmt
valdaránið í Nígeríu, en óháð
dagblað í Nairobi hefur látið í
vilji ekki hafa afskipti af innanríkis-
ljósi efasemdir um að hinir nýju
valdaherrar í Lagos hafi lausn á
vanda ríkja Vestur-Afríku á reið-
um höndum. í forystugrein blaðs-
ins sagði, að hvort sem um væri að
ræða efnahagsmál eða spillingu
þá væru hershöfðingjarnir ekki
sannfærandi. „Eru þeir að reyna
að halda því fram að þeir hafi nú
betri hugmyndir um það hvernig
leysa á efnahagsvandann og upp-
ræta spillinguna en þeir höfðu á
13 ára valdaferli hersins?" var
spurt í leiðaranum.
Yfir 90% útflutn-
ingstekna af olíu
NÍGERÍA ER dæmigert þróunarríki sem græðir vel á einu auðlind sinni í
góðæri en kynnist síöan rækilega í erfiðu ári hættunum sem fylgja því að
vera jafnháðir einni afurð. Fengu þeir yfir 90% útflutningstekna sinna frá
olíuútflutningi og voru 85% tekna ríl
Án olíunnar hefðu Nígeríumenn
ekki getað byggt nýja vegi, flug-
velli, hafnir og stíflur. En með
henni hafa einstaklingar og stofn-
anir séð glæsileika ýmiss konar í
hillingum og fallið í freistni
græðgi, spillingar og þjófnaðar.
Landbúnaður hefur verið van-
ræktur og landið orðið háð inn-
flutningi.
Árið 1980 voru útflutningstekj-
ur Nígeríumanna af olíu 22,4
milljarðar dollara, en innan við 10
milljarðar dollara 1982 og 1983.
Og vonir um aukinn útflutning á
næstunni fara minnkandi þar sem
iðnríkin virðast ætla að eiga erfið-
ara með að rétta úr kútnum í
kjölfar efnahagskreppu en talið
var.
Með skyndilegum olíuauði á síð-
asta áratug var ráðist í ýmsar
stórar framkvæmdir, m.a. í bygg-
ingu nýrrar höfuðborgar, Abuja.
Vegna samdráttar í olíuútflutn-
ingi hefur hins vegar orðið að
draga saman seglin og því mikið
um hálfkláruð verk í Lagos og víð-
ar. Gífurlegar erlendar skuldir
hafa safnast upp.
Vegna samdráttar í olíufram-
leiðslu hafa Nígeríumenn ekki átt
um annað að velja en taka erlend
lán til opinberra framkvæmda
ýmiss konar, þrátt fyrir verulegan
samdrátt á ýmsum sviðum. Og
brýn nauðsyn verður fyrir nýjar
lántökur til matvælainnflutnings
þegar áhrifa þurrka og sjúkdóma
á matvælaframleiðslusvæðum í
norðurhluta landsins fer að gæta
af þunga í sumar. Hins vegar er
þolinmæði Alþjóðabankans, Al-
þjóðagjaldeyrisvarasjóðsins og
annarra banka á þrotum, svo vera
kann að Nígería sé á leið inn í
hættulegan vítahring ef ekki ræt-
ist úr með olíuútflutning.
Suður-Afríka:
Hjón dæmd fyrir njósnir
á vegum Sovétríkjanna
llöfðaborg og Jóhannesarb. 2. janúar. AP.
Sunnudagsblöðin Sunday Times
og Sunday Express I Jóhannesar-
borg töldu í gær bæði líkur fyrir
því að Dieter Gerhardt, yfirmaður í
flota Suður-Afríku, og kona hans
Ruth, sem bæði voru dæmd fyrir
njósnir í þágu Sovétríkjanna á
gamlársdag, yrðu látin laus í skipt-
um fyrir vestræna njósnara, sem
eru í haldi í Moskvu.
Dieter Gerhardt var handtek-
inn í New York í janúar í fyrra
eftir að sovézkur flóttamaður
hafði komið upp um hann. Var
Gerhardt fyrst fluttur til Wash-
ington, þar sem bandaríska
leyniþjónustan, CIA, hafði hann
í yfirheyrzlum í 11 daga, en síð-
an var hann sendur heim til
Suður-Afríku.
Rannsókn í máli þeirra hjóna
tók langan tíma. Gerhardt við-
urkenndi fljótlega að hafa veitt
sovézkum yfirvöldum upplýs-
ingar, en hélt því jafnframt
fram að þær upplýsingar hafi
verið rangar, og hann hafi í raun
verið gagnnjósnari fyrir vinveitt
vestrænt ríki. Þessa starfsemi
játaði hann að hafa stundað í
rúma tvo áratugi. Kona hans,
Ruth, viðurkenndi að hafa að-
stoðað mann sinn frá árinu 1970,
en sagðist hafa trúað sögunni
um að hann starfaði á vegum
vestræns ríkis.
Dómstóllinn tók ekki þessar
afsakanir til greina, og hlaut
Dieter Gerhardt lífstíðarfang-
elsi, en Ruth Gerhardt var
dæmd til tíu ára fangelsisvistar.
Lögfræðingur þeirra hjóna lýsti
því strax yfir að dómnum yrði
áfrýjað.
Dieter Gerhardt var yfirmaður
birgða- og viðgerðarstöðvar flot-
ans í Simsontown við Höfðaborg
þegar hann var handtekinn, en
staddur í New York til að taka
þátt í sex mánaða námskeiði í
stærðfræði við Syracuse-há-
skóla.
HEBA
• ■5,«
námskeið að hefjast
heldur við
heilsunni
Dag- og Tvisvar eöa Megrunarkúrar
f kvöld Fjórum sinnum Nuddkúrar
timar í viku Létt leikfimi
• Leikfimi * Sauna sa o.fl. 'V ‘C
• Ljós • Nudd • Megrun • Hvild • Kaffi o.fl. eba Hárgreiðslu- stofan ^ HRUND Innan veggja Hebu hár- greíðslustofa með alla almenna Þjónustu. Sími 44088. Snyrtistofan ERLA Andlitssnyrting handsnyrting o.fl. Opið allan daginn og fram eftir kvöldi. Sími 44088.
Heilsurækt Auðbrekku 53 Kópavogi Simi 42360
Þrjár.
spummgar
'um erlendan kostnað
Til viðskiptavina okkar og þeirra sem hlut eiga að máli
Hafskip hf. hefur sett sér sem eitt meginmarkmið að gæta hagsmuna
farmflytjenda varðandi kostnaðarmyndun við vörusendingar á erlendri grund.
Enn betra tækifæri gefst okkur til þessa starfs eftir stofnun eigin
umboðsskrifstofa erlendis og eftir því sem íslendingum starfandi þar vex
þekking á aðstæðum.
Sem einn lið í þessum ásetningi félagsins höfum við beint eftirfarandi
spurningum til viðskiptamanna í von um, að svör gefi betri forsendurtil að ráðast
til atlögu á réttum stöðum með viðeigandi vopnum.
Við viljum hér með minna viðskiptavini okkar á að senda okkur svörin sem fyrst.
Við viljum einnig biðja aðra farmflytjendur og þá sem hlut eiga að
máli að gera slíkt hið sama.
Svör við spurningum má klippa hér úr blaðinu og senda Hafskip hf., eða koma
þeim á framfæri til starfsmanna okkar á annan hátt, munnlega eða skriflega.
Góð þátttaka í þessari skoðanakönnun verðurokkurvopn í baráttunni
gegn óþarfa milliliðakostnaði erlendis.
1
2
3,
Fylgja eftirkröfur, þegar vara er keypt FOB?
□ oft □ sjaldan □ aldrei
Frá hvaða höfnum er mestum eftirkröfur?
a) .................................................
b) .................................................
c) .................................................
Eru eftirkröfur óeðlilega háar, þegar vara er keypt ex-factory?
Ef svo er, frá hvaða höfnum helst?
a) .................................................
b) .................................................
c) .................................................
Með þökk fyrir hjalpsemina.
HAFSKIP HF.
Pósthólf 524-121 Reykjavík
HAFSKIP