Morgunblaðið - 03.01.1984, Blaðsíða 48
Þ
etta lestu í dag m.a.:
Geta íslendingar lært öll
tungumál nema íslenzku ?
Sjá bls. 24
E
EUROCARD
TIL DAGLEGRA NOTA
ÞRIÐJUDAGUR 3. JANUAR 1984
VERÐ í LAUSASÖLU 20 KR.
Metframleiðsla
hjá ÍSAL 1983
Aldrei meira flutt út á einu ári fyrr
Heildarframleiðsla íslenzka álfé-
lagsins á síðasta ári var um 87.000
tonn, sem er mesta framleiðsla í
Rockall-viðræður:
Hans G. Ander-
sen fer utan síðar
í mánuðinum
HANS G. Andersen sendiherra mun
halda til London og Dublin í seinni
hluta þessa mánaðar til viðræðna við
Breta og íra um réttindi íslendinga á
Rockall-svæðinu, samkvæmt upplýs-
ingum sem Mbl. fékk hjá Geir Hall-
grímssyni, utanríkisráðherra.
Sagði Geir að kannski væri of
mikið sagt að ganga ætti til við-
ræðna við íra, þar sem þeir vildu
helst ekkert við okkur tala, en að-
eins hlusta á það sem íslendingar
hefðu að segja. Sagði Geir að áður
en Hans G. Andersen héldi til
Bretlandseyja, myndi hann ræða
við utanríkismálanefnd varðandi
þetta mál.
sögu fyrirtækisins, en til samanburð-
ar var framleiðslan mest um 85.000
tonn áður, að sögn Kagnars S. Hall-
dórssonar, forstjóra ISAL.
Ragnar S. Halldórsson sagði að
heildarútflutningur fyrirtækisins
á síðasta ári hefði verið um
105.000 tonn, sem væri ennfremur
met í sögu fyrirtækisins, en mesti
útflutningur áður var tæplega
80.000 tonn. „f sambandi við út-
flutninginn verður þó að hafa í
huga, að birgðir voru óvenjulega
miklar í ársbyrjun, eða um 30.000
tonn, auk þess sem markaðs-
ástand batnaði verulega."
Mánuðirnir október og nóvem-
ber sl. voru metmánuðir í ker-
rekstri fyrirtækisins. f október-
mánuði voru framleidd um 7.226
tonn, sem er metframleiðsla.
Straumnýting var þá um 89,3%,
en í nóvember varð hún enn betri,
eða 89,9%. Ragnar S. Halldórsson
sagði aðspurður, að straumnýting
fyrirtækisins hefði yfirleitt verið
á bilinu 85—87%.
Ljósm. Mbl./Heimir Stígason.
Fyrsti íslendingurinn 1984 fœddist i Keflavík
ÞESSI mynd var tekin á sjúkra-
húsinu í Keflavík í gær af fyrsta
íslendingnum sem fæddist á nýja
árinu, 15 marka dóttur þeirra
Ragnheiðar Ragnarsdóttur og Ól-
afs Bjarnasonar. Nýársbarnið ligg-
ur á milli tveggja barna sem komu
í heiminn á milli jóla og nýárs.
Eins og sjá má eru jólabörnin
klædd í jólasokka, en Sóley Sigur-
jónsdóttir í Keflavík hefur undan-
farin tvö ár saumað slíka sokka og
gefið á fæðingardeildina. Þannig
fara allir nýburar sem fæðast á
tímabilinu 20. des til 7. jan. heim í
jóiasokkum, enda sannkölluð jóla-
börn.
Sjá bls. 26.
Ilans G. Andersen
Líklegast verður skreiðar-
innflutningurinn ekki minni
— segir Ólafur Björnsson um hugsanleg áhrif byltingarinnar í Nígeríu
„MÉR virðist líklegast að það verði
ekki síður um skreiðarinnflutning í
Nígeríu að ræða eftir þessa byltingu,
þó erfitt sé um það að segja vegna
takmarkaðra upplýsinga þaðan. Fyrir-
hugaður niðurskurður á fjárveitingum
til innflutnings, sem var verulegur og
kynntur af Shagari 29. desember,
kann meðal annars að vera kveikjan
að byltingunni. Við erum í sambandi
Morgunblaðið:
Ágúst Ingi Jónsson
ráðinn fréttastjóri
ÁGÚST Ingi Jónsson blaðamaður
hefur verið ráðinn fréttastjóri við
Morgunblaðið frá og með I. janú-
ar.
Ágúst Ingi er 32 ára að aldri.
Hann lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum við Hamrahlíð
vorið 1972. Hann hóf störf við
Morgunblaðið 1. júlí sama ár og
hefur starfað við blaðið síðan.
Ágúst stundaði nám við Blaða-
mannaskólann í Osló 1974—’75.
Sem blaðamaður við Morgun-
blaðið hefur Ágúst skrifað
íþróttafréttir og innlendar frétt-
ir, einkum um sjávarútvegs- og
verkalýðsmál. Hann hefur gegnt
störfum fréttastjóra í afleysing-
um undanfarin misseri.
Ágúst mun starfa við frétta-
stjórn ásamt þeim þremur frétt-
astjórum, sem fyrir eru við blað-
ið, þeim Freysteini Jóhannssyni,
Magnúsi Finnssyni og Sigtryggi
Sigtryggssyni.
Ágúst Ingi Jónsson
Morgunblaðið býður Ágúst
Inga Jónsson velkominn til
nýrra og ábyrgðarmikilla starfa.
við Nígeríumenn í London og þeir
virðast ósköp rólegir yfir þessu,“
sagði Ólafur Björnsson, stjórnarfor-
maður í Skreiðarsamlaginu, í samtali
við blm. Mbl.
Morgunblaðið náði í gær tali af
nígerskum skreiðarkaupenda, Kóiki
að nafni, sem þá var nýkominn til
landsins. Sagði hann nígersku þjóð-
ina hafa þráð byltinguna vegna
versnandi ástands í landinu og mik-
illar spillingar. Taldi hann meðal
annars ólíklegt að skreiðarútflytj-
endur hér fengju ekki greiddar úti-
standandi skuldir í Nígeríu. Hann
sagði byltinguna nauðsynlega og
myndi hún verða til þess bæta
ástandið í landinu í framtíðinni.
Ólafur Björnsson sagði ennfrem-
ur, að nýja stjórnin myndi kannski
reyna að koma meiri reglu á hlutina
og gæti dregið úr spillingunni í
skreiðarkaupum og sölu þar, en
spillingin væri víst víðar en þar.
Ekki virtist vera ástæða til að ör-
vænta um útistandandi greiðslu frá
Nígeríumönnum, þar sem her-
stjórnin hefði lýst því yfir að hún
stæði við allar fyrri skuldbindingar
þjóðarinnar. Það væri ekki vafi á
því að hinn mikli niðurskurður á
innflutningi, sem Shagari hafði
kynnt, hefði haft úrslitaáhrif á
þetta, en það hefði verið mál
margra, að það hefði nánast þýtt
hungursneyð ef af honum hefði orð-
ið. Þá sagði Ólafur að nú væri skip
með skreið frá Skreiðarsamlaginu á
leið til Hamborgar, þar sem ætti að
umskipa skreiðinni og senda hana
til Nígeríu. Þær upplýsingar hefðu
fengizt, að ekki væri ástæða til að
óttast neitt í því sambandi.
Víða ófært og þungfært
MJÓG þungfært hefur verið víða
um land yfir áramótin. Töluverður
snjór er á vestanverðu landinu,
Vestfjörðum og Norðurlandi
vestra, fjallvegir voru víða ófærir
eftir helgina og þungfært á þjóð-
vegum í þessum landshlutum, skv.
upplýsingum Vegaeftirlitsins í gær.
Færð hefur verið skást á SV-horn-
inu og Austfjörðum.
Utanríkisráðuneytið fyrir hönd sovéska sendiráðsins:
Sækir um leyfi fyrir
sjónvarpsskerminum
SOVÉSKA sendiráðið hefur óskað eftir því við utanríkisráðuneytið að það sæki
fyrir hönd sendiráðsins um leyfi fyrir skermi þeim sem komið hefur verið fyrir
á einni byggingu sendiráðsins. Utanrfkisráðuneytið hefur síðan ritað borgar-
stjóra bréf, þar sem sótt er um umrætt leyfi.
Davíð Oddsson, borgarstjóri,
sagði í samtali við blm. Mbl. að
umsókn þessi hefði borist borgar-
yfirvöldum á gamlársdag. Næsta
skref málsins væri það að umsókn-
in yrði send til meðferðar bygg-
ingarnefndar Reykjavíkurborgar
til umfjöllunar.
Skömmu fyrir jól voru mótmæli
umhverfismálaráðs Reykjavíkur-
borgar vegna uppsetningar sjón-
varpsskermsins send til utanríkis-
ráðuneytisins, en í mótmælum um-
hverfismálaráðs segir að mótmælt
sé þeirri breytingu á húsinu nr. 9
við Túngötu, þar sem settur hefði
verið upp stór skermur til móttöku
á sjónvarpssendingum. Segir að
skermurinn raski heildarmynd
Hólavallagötu stórlega. Þá er og
minnt á það, að tilskilinna leyfa
hafi ekki verið aflað áður en hafist
var handa við að setja skerminn
upp.
Geir Hallgrímsson, utanríkisráð-
herra, sagði í gær að vegna sam-
þykktar umhverfismálaráðs hefði
athygli sendiráðsins verið vakin á
því að sækja þyrfti um leyfi fyrir
skerminum til byggingarnefndar
borgarinnar og hefði sendiráðið
óskað eftir því að ráðuneytið kæmi
slíkri umsókn á framfæri og hefði
það verið gert.