Morgunblaðið - 10.01.1984, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. JANÚAR 1984
Núverandi framkvæmdanefnd Stórstúku íslands. Fremri röð frá vinstri: Sigurgeir Þorgrímsson, Bryndís Þórarins-
dóttir, Hilmar Jónsson, Guðbjörg Sigvaldadóttir og sr. Björn Jónsson. Aftari röð: Kristinn Vilhjálmsson, Björn G.
Eiríksson, Árni Valur Viggósson, Arnfinnur Arnfinnsson, Olafur Jónsson og Guðlaugur Fr. Sigmundsson. Á myndina
vantar Svein Kristjánsson.
Góðtemplarareglan
á íslandi 100 ára
Eiríkur Sigurðsson rithöfundur og skólastjóri á Akureyri í hópi embætt-
ismanna í sinni barnastúku.
Fulltrúar á Stórstúkuþingi á Akureyri fyrir utan hús Friðbjarnar Steinssonar.
— eftir Hilmar
Jónsson
10. janúar 1884 var stofnuð
fyrsta stúkan á íslandi. Hlaut hún
nafnið Isafold nr. 1. Stofnfélagar
voru 12 og forgönguna hafði
norskur maður, Ole Lied. Hins
vegar varð Friðbjörn Steinsson
bóksali á Akureyri, forystumaður
í stúkunni, og það var í hans húsi
sem athöfnin fór fram. Þetta hús
Friðbjarnar er nú varðveitt sem
sögulegar minjar. Frá Akureyri
barst reglan með skjótum hætti
um landið. Fyrsta stúkan á Suður-
landi var stúkan Verðandi nr. 9,
stofnuð 1885 af Birni Pálssyni. Ári
síðar var Björn kosinn stórtempl-
ar þegar Stórstúkan var stofnuð í
Alþingishúsinu í Reykjavík. Þá
voru stúkurnar orðnar 14. 10. maí
1886 var fyrsta barnastúkan
stofnuð, einnig af Birni Pálssyni.
Hlaut hún nafnið Æskan nr. 1 og
starfar enn eins og margir vita.
Höfuðtilgangur Góðtemplararegl-
unnar var og er tvíþættur. Að
vinna að bindindi og bræðralagi.
Fljótt kom í ljós árangur af
stofnun Stórstúkunnar. Árið eftir
að hún var stofnuð, eða 1887, legg-
ur Jón ólafsson alþingismaður,
þáverandi stórtempiar, fram til-
lögu um bann við staupasölu í
verslunum. En verslanir höfðu
lengi verið veitingakrár og staupa-
salan þungur baggi á mörgum
heimilum en kaupmönnum drjúg
tekjulind. Þessi lagasetning segir
Ólafur Haukur Árnason, áfengis-
varnarráðunautur, að hafi verið
upphafið að langri og harðri sókn
bindindismanna á löggjafarþing-
inu. Hámarki náði sú sókn þegar
Alþingi samþykkti lög um að-
flutningsbann á áfengi árið 1909,
með 26 atkvæðum gegn 11, að und-
angenginni þjóðaratkvæða-
greiðslu. Raunverulegt bann stóð í
tæp þrjú ár, frá 1. janúar 1915
fram í nóvember 1917. Og hver
voru áhrifin? Jón Sigtryggsson yf-
irfangavörður í Reykjavík, sem
manna best þekkti til afbrotamála
á þessum tíma, segir: „Vínbrugg
þekktist ekki á þeim árum. Árin
1916 og 1917 var enginn íslenskur
maður settur í fangelsi fyrir glæp
eða gróf afbrot." Haustið 1916, eft-
ir að fullkominn bannlög höfðu
verið í gildi tæp tvö ár, sagði Jón
Magnússon bæjarfógeti í Reykja-
vík í ræðu er hann hélt, að sam-
kvæmt því er borgarstjórinn hefði
nýlega skýrt sér frá „væri ekkert
þurfamannaheimili á sveitar-
framfæri hér vegna áfengisnautn-
ar framfærslumanns, en áður var
hundraðstala á þurfamannaheim-
ilum vegna áfengisnautnar allhá.
Áður var það svo að einatt var
erfitt að lögskrá á fiskiskipin
vegna þess að svo mikill hluti
skipverja var drukkinn. Nú kemur
það varla fyrir að ölvaður maður
sjáist hér við lögskráning. Þessi
tvö dæmi virðist mér sýna ljós-
lega, hve feikimikill munurinn er.
Það er því ljóst, að ekki getur
komið til mála að aftaka eða lina á
aðflutningsbanninu. En það þarf
að fá hjá þinginu fé til þess að
geta haft sérstakar varnir gegn
aðflutningi áfengis."
í nóvember 1917 komu svokölluð
læknabrennivín til sögunnar og
1922 beittu Spánverjar Islendinga
viðskiptaþvingunum af grófustu
gerð. Þess var krafist að lýðræð-
islega sett lög yrðu numin úr gildi
af því að þau brutu í bága við
hagsmuni spænskra fisksala.
Bann við innflutningi sterkra
drykkja var numið úr gildi 1934.
Áfengissala stórjókst. Einkum og
sér í lagi tók hún stökk eftir 1954,
þegar starfræksla vínveitingahúsa
var leyfð.
f stuttri grein er ekki hægt að
geta margra, sem starfað hafa
undir merkjum reglunnar. Sá
maður, sem stofnað hefur flestar
stúkur, er Sigurður Eiríksson, sem
kallaður var regluboði. Snemma
var ákveðið að Stórstúkan stæði
að blaðaútgáfu. Má, því sambandi
geta blaðanna Templars og Good-
templars, sem náðu geysimikilli
útbreiðslu. I þessi blöð og önnur,
sem bindindismenn studdu, skrif-
uðu margir af ritfærustu blaða-
mönnum og rithöfundum þjóðar-
innar: Björn Jónsson, ráðherra,
Jón Áinason, prentari, og skáldin
og rithöfundarnir, Guðmundur
Guðmundsson, Einar H. Kvaran,
Indriði Einarsson og Guðmundur
Magnússon, öðru nafni Jón
Trausti. Af blöðum bindind-
ismanna á síðari áratugum þykir
mér rétt að geta Einingarinnar
sem Pétur Sigurðsson ritstýrði.
Núna gefur Stórstúkan út Regin í
samvinnu við siglfirska templara,
En langmerkust og lífseigust er
útgáfa Stórstúkunnar á barna-
blaðinu Æskunni, sem hófst 1897
og hefur staðið að mestu óslitið
síðan. Fyrsti ritstjóri Æskunnar
var eins og margir vita skáldið
Sigurður Júl. Jóhannesson. Þar
hafa margir lagt hönd á plóginn,
en auk Sigurðar verður hér ein-
ungis tveggja getið: Margrétar
Jónsdóttur skáldkonu og Gríms
Engilberts núverandi ritstjóra,
sem gegnt hefur því starfi af fá-
dæma samviskusemi í nærri þrjá
áratugi.
Áhrif Góðtemplarareglunnar á
þjóðlífið hafa verið mikil og marg-
vísleg. Á mörgum stöðum stóðu
templarar fyrir byggingu sam-
komuhúsa, sem sum standa enn
eins og Góðtemplarahúsið í Hafn-
arfirði. Þeir stofnuðu fyrstu
verkalýðsfélögin, bárufélögin og
Leikfélag Reykjavíkur var stofnað
af þeim. Af starfi síðari ára er
vert að benda á sumarstarf templ-
ara á Jaðri í áraraðir og bindind-
ismótin í Húsafelli, þjálfun ung-
menna í fundastjórn, framsögn og
dansi.
Eins og áður hefur komið fram
var Góðtemplarareglan stofnuð á
Akureyri og þar hefur ætíð verið
hennar sterkasta vígi. Einu sinni
var framkvæmdanefnd Stórstúk-
unnar eingöngu skipuð norðlend-
ingum. Þetta var í stjórnartíð
Brynleífs Tobíassonar mennta-
skólakennara og síðar áfeng-
isvarnaráðunauts. Félögum í regl-
unni fjölgaði þá um 2800. Nú eru
starfandi á Akureyri þrjár undir-
stúkurog þrjár barnastúkur. Nú-
verandi æðstutemplarar i móð-
urstúkunni Isafold eru Sveinn
Kristjánsson og Guðmundur
Magnússon.
Að undanförnu hefur Góðtempl-
arareglan átt við erfiðleika að
stríða. Félögum hefur fækkað og
íslenskir valdamenn hafa látið
áskorarnir Alþjóða heilbrigðis-
stofnunarinnar um að draga úr
heiidarneyslu áfengra drykkja
sem vind um eyrum þjóta, enda
hefur drykkjuskapur fullorðinna
og unglinga færst í aukana hér á
landi. Ekkert væri því kærkomn-
ara bindindismönnum en að þetta
afmæli yrði til að efla samtökin. I
tilefni af afmælinu verður hér
haldið stórt mót fyrir fullorðna og
unglinga með þátttöku erlendra
þjóða. Verður það í Reykjavík og á
Varmá í Mosfellssveit í lok júlí-
mánaðar.
Ég óska Góðtemplarareglunni
gæfu og gengis á þessum tímamót-
um.
Hilmar Jónsson er núrerandi stór-
tempiar.
Frá síðasta Stórstúkuþinginu sem Ólafur Þ. Kristjánsson stýrði 1976.
Barnastúkan l'nnur í Reykjavík var mjög fjölmenn stúka. Hér sjást nokkrir félagar í skrúð-
göngu.