Morgunblaðið - 10.01.1984, Síða 42
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. JANÚAR 1984
• Bournemouth-framherjinn Milton Graham skorar hér fyrra mark liðs síns gegn Manchester United í 3. umferð bikarkeppninnar á laugardag. Markiö kom é 60.
mín. eftir hræðileg mistök Gary Bailey, markvarðar Manchester-liðsins. Hann missti boltann yfir sig eftir hornspyrnu og Graham þrumaði honum í netið. Lou
Macari (t.v.) sem kom inn á sem varamaöur í stöðu bakvaröar kemur út á móti Graham en fékk ekki vörnum við komið. Morgunblaöiö/ Símamynd AP
„Frammistaða okkar nafni Man-
chester United til skammar“
— sagði Ron Atkinson, framkvæmdastjóri liðsins, efftir tapið á suðurströndinni
Frá Bob Honnmty, fréttamanni Morgunblaðsina í Englandi og AP.
„FRAMMISTADA okkar í dag var nafni Manchester United til háborinnar skammar. Eftir
þetta — aö vera slegnir út úr báðum bikarkeppnunum af þriðjudeildarliðum — skuldum
við áhangendum okkar sigur í fyrstu deildinni," sagði Ron Atkinson, framkvæmdastjóri
Manchester United, á laugardag eftir aö liöiö haföi verið slegiö út úr ensku bikarkeppninní
af þriðjudeildarliði Bournemouth á suöurströndinni. Bournemouth sigraöi 2:0 og komu
þessi úrslit sennilega mest á óvart á laugardag. Atkinson var æfur af reiöi eftir leikinn; hélt
hann leikmönnum sínum inni í búningsklefa liðsins í 45 mínútur eftir að leiknum lauk. Eins
og mönnum er í fersku minni, var United slegið út úr mjólkurbikarkeppninni af Oxford —
og var það sanngjarn sigur iitla liðsins frá háskólabænum. Á laugardag var sigur Bourne-
mouth einnig sanngjarn — liðiö var mun betra aðilinn á vellinum — og yfirspilaði United á
köflum. Reiöi Atkinson er því skiljanleg.
Framkvæmdastjóri Bourne-
mouth var aö vonum öllu ánægöari
en Atkinson eftir leikinn. Harry
Redknapp — útherji hjá West
Ham á gullaldarárum félagsins er
Martin Peters og Bobby Moore
voru þar — er nú viö stjórnvölinn
hjá Böurnemouth. „Þetta er stór-
kostlegasti dagur á mínum knatt-
spyrnuferli. Þaö sannaöist
áþreifanlega í dag aö þaö sem
mestu máli skiptir í knattspyrnunni
er mikil vinna og baráttuvilji. Ekki
fræg nöfn og oröstír," sagöi hann.
„Hvers vegna skildi ég vorkenna
Ron Atkinson. Hann er í eftirsótt-
ustu stööunni í „bransanum".
Hann veröur aö taka gagnrýni eins
og heiöri," sagöi Harry ennfremur.
„Ættu að hugsa sig
tvisvar um ... “
Bournemouth hefur gengiö illa í
þriöju deildinni í vetur og berst þar
fyrir lífi sínu. Því koma þessi úrslit
enn frekar á óvart. Leikmenn Unit-
ed voru vægast sagt eitthvaö ann-
ars hugar í leiknum og voru langt
frá sínu besta.
Kæruleysiö var mikið í leik
þeirra og þaö var ekki fyrr en eftir
aö Bournemouth haföi skoraö sitt
annað mark aö bikarmeistararnir
fóru aö reyna að spila eins og
menn. En þá var þaö orðið of seint
— leikurinn var tapaöur. Alla bar-
áttu vantaöi í leik United og
George Best, fyrrum leikmaður
Manchester-liösins, sem var meö
þulum BBC á leiknum, sagöi:
„Sumir leikmanna United-liðsins
ættu aö hugsa sig tvisvar um áður
en þeir taka viö launum sínum fyrir
þessa viku.“ Best nefndi engin
nöfn; en ekki er ósennilegt aö tvo
hafi hann haft í huga — þó vissu-
lega heföu þaö getað veriö allir
þeir tólf sem komu viö sögu. Gary
Bailey geröi sig sekan um mikil
mistök er fyrra mark Bournemouth
var gert og Bryan Robson, fyrir-
liöiö United og enska landsliösins,
var allt of seinn aö hreinsa frá
marki er hann haföi tækifæri til
þess skömmu síðar og lan
Thompson skoraöi þá seinna
markið.
Fyrra markið kom á 60. mín. eft-
ir hornspyrnu. Milton Graham fékk
• Ray Wilkins og félagar voru
slakir gegn Bournemouth.
þá boltann eftir aö Bailey haföi
misst hann og skoraöi örugglega
af stuttu færi (sjá stmamynd hér að
ofan). Aðeins mín. síöar skoraöi
Bournemouth svo aftur. Thomp-
son var þar aö verki meö skoti yst
úr vítateignum. Thompson þessi
lék meö utandeildarliöi þar til í
byrjun þessa keppnistímabils.
Skalli í þverslá
Eins og áöur sagöi var Bourne-
mouth betra liðið í leiknum og í
fyrri hálfleik, er liöiö sótti af krafti,
fékk þaö nokkur ágæt marktæki-
færi. Þaö besta kom er Milton Gra-
ham skallaöi í þverslá.
í leikhléi skipti United um leik-
mann, Lou Macari kom inn á í staö
Arthur Albiston sem meiddist.
Macari fór í stööu hægri bakvaröar
í staö Remi Moses sem lék sem
vinstri bakvöröur í staö Albiston í
seinni hálfleiknum. Þess má geta
aö á miöju varnarinnar léku Mike
Duxbury og ungur nýliöi, Graham
Hawk, sem United keypti frá Ab-
erdeen. Hann er 19 ára. Báöir mið-
veröir United, Moran og McQueen,
voru meiddir eins og áður hefur
komiö fram.
Áhorfendur á Dean Court
Ground, leikvangi Bournemouth,
voru 15.000 — þar af nokkur hluti
stuöningsmenn United. Þeir voru
langt í frá ánægöir meö frammi-
stööuna og nokkrum mín. fyrir
leikslok brutust út ólæti meöal
þeirra — þeir þustu niöur á svæö-
iö aftan viö annað markiö en fóru
ekki inn á völlinn. Hlé var gert á
leiknum í fjórar mínútur meöan
lýönum var komiö á sinn staö á ný.
— SH
Laun erfiðisins:
Viku Irí
á Spáni
Frá Bob Henneasy, fréttamanni Morg-
unblaösins í Englandi.
Kaupsýslumaöur einn í
Bournemouth-borg þarf held-
ur betur að punga út einhvern
tíma á næstunni. Líklega veró-
ur þaö þó ekki fyrr en aö
þessu keppnistímabili loknu í
ensku knattspyrnunni.
Kappinn er mikill aðdáandi
knattspyrnuliös borgarinnar og
fyrir leikinn viö Manchester
United-stórveldiö í bikarkeppn-
inni á laugardaginn hét hann
leikmönnum Bournemouth viku
fríi á sólarströndu Spánar ef
þeir sigruðu í leiknum. Kannski
bjóst hann ekki viö aö þurfa aö
greiöa kostnaöinn sem þessu
fylgir — hver veit — en mörg-
um á óvart, og honum væntan-
lega þar á meöal, sigraöi 3.
deildarliöiö bikarmeistarana og
sló þá út í bikarkeppninni eins
og fram kemur hér á síðunni.
En þó minnki í veskinu hjá
kaupsýslumanninum er eflaust
enginn ánægöari en hann sjálf-
ur!
— SH