Morgunblaðið - 10.01.1984, Page 46
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. JANÚAR 1984
12 bestu sundmenn allra tíma
• Hverjir skyldu vera 12
bestu sundmenn heims-
ins frá upphafi? Þeirri
spurningu er án efa erf-
itt að svara. En í nýút-
komnu þýsku íþrótta-
blaöi, Sport lllustrierte,
velur Klaus Steinbach,
þekktur sérfræðingur í
sundíþróttinni, 12 bestu
sundmenn allra tíma að
sínum dómi. Við höfum
áður birt val á 12 bestu
frjálsíþróttamönnunum,
skákmönnunum, hand-
knattleiksmönnunum
og knattspyrnumönnun-
um.
Shane Gould
(Fiadd 1956) *ló f gegn á Ólympíu-
leikunum i MUnchen og vakti nœr því
eina mikla athygli og ajálfur kóngur
sundains, Mark Spitz. Hún vann til
þriggja gullverðlauna á leikunum i
MUnchen og setti heimsmet f hvert
skipti og auk þess vann hún til silfur-
og bronsverðlauna á leikunum.
Keppnisferill hennar var stuttur; að-
eins tvö og hálft ár. Tæplega 17 ára
dró hún sig í hló frá keppni. A þessum
stutta tíma setti hún þó 11 heimsmet
og um 8 mánaða skeið átti hún bestu
tíma á öllum skriösundsvegalengdum
(100, 200, 400, 800, 1500 m). Hún er
jafnframt fyrsta konan sem synti 1500
metrana undir 17 mínútum (16:56,9); f
dag vinnur hin ástralska Shane Gould
við f járbúskap.
Wladimir Salnikow
(Fæddur 1960) er undramaður
lengri vegalengdanna í sundi. f 400,
800 og 1500 metra sundi tókst hinum
unga Sovátmanni að rjúfa svokallaöan
„draumamúr" — hann var fljótari 3:50,
8:00 og 15:00 mín. Þaö sem Johnny
Weissmueller er þekktur fyrir enn
þann dag í dag: aö synda 100 m skriö-
sund undir einni min. afrekaöi Salnik-
ow fimmtán sinnum í röð á samtals
14.58,27. 1500 m sund er einmitt hans
besta grein: „Það er stórkostleg til-
finning þegar maður á 300 metra eftir
að marki, að finna fyrir því að maður
er næstum þvf að gefast upp, en nær
að yfirvinna þreytuna og sigra.“ Wlad-
imir Salnikow syndir 35 kílómetra
daglega.
Mark Spitz
(Fæddur 1950) vann á tveimur
Ólympíuleikum til níu gullverðlauna
og einna bronsverðlauna. Aðeins landi
hans, Ray Ewry, hefur unnið oftar til
gullverðlauna, 10 í langstökki án at-
rennu á þremur Ólympfuleikum, þeim
fyrstu árið 1900. Eftir að hafa sigrað 7
sinnum á Ólympíuleikunum í MUnch-
en og sett jafnmörg heimsmet ákvað
Spitz að draga sig í hlá frá sundi og
sneri sár þess í stað að skemmtiiðnaði
og hagnaöist á að leika í fjölda auglýs-
inga. (Hann var talinn kyssa eins og
Clark Gable.) f dag starfar Mark Spitz
f fasteignabransanum og eyðir frí-
stundum sínum við siglingar.
Roland Matthes
(Fæddur 1950) var gjarnan nefndur
„Rolls-Royce sundsins" af Bandarfkja-
mönnum en Vestur-Þjóðverjar kusu
að nefna hann „Mozart sundaina11. Um
7 ára skeiö, nánar tiltekið frá sept-
ember 1967 til ágúst 1974 tapaöi þessi
geðugi íþróttakennari frá Erfurt ekki
keppni í 100 og 200 metra baksundi.
Hann bætti heimsmetið í 100 úr 58,4 í
56,3 og í 200 úr 2:07,9 f 2:01,87 mínútur.
Matthes var sú sundstjarna sem mest-
um vinsældum átti að fagna f Austur-
Þýskalandi og hann gat leyft sár ým-
islegt sem landar hans myndu aldrei
voga sár að gera. Hann safnaði sfðu
hári og lát eitt sinn eftir sár hafa: „Ef
ág væri fæddur í Bandarikjunum, væri
ág ekki kommúnisti.“
Ragnhild Hveger
(Fædd 1920) frá Danmörku er
sennilega sú sundkona sem bestum
árangri hefur náð án þess þó að vinna
nokkrum sinnum til gullverðlauna á
Ólympiuleikum. Á Ólympíuleikunum
1936 í Berlín, þá aðeins 16 ára gömul,
vann hún til silfurverðlauna í 400
metra skriösundi. Hún sannaði að
lengi lifir í gömul glæðum þegar hún
16 árum seinna á Ólympíuleikunum
1952 í Helsinki náði 5. sæti í 400 metra
skriðsundi. Heimsmet hennar i 400
metra skriðsundi 5:00,1 sett 1940 átti
hún f 16 ár. Á árunum 1936 til 1942
setti hún 42 heimsmet í 15 mismun-
andi greinum allt frá 100 jördum (59,7
sek.) til einnar mílu (23:11,5).
Johnny Weissmueller
(Fæddur 1904) er sem kunnugt er
þjóðsaga í tvennum skilningi: sem
fyrsti maðurinn sem lák Tarzan í sam-
nefndri mynd og fyrsti maöurinn sem
synti 100 m sund á skemmri tíma en
einni mínútu (9. júlí 1922 á 58,6).
Weissmueller sem kom frá Chicago,
sonur innflytjenda frá Vín vann til 5
gullverölauna á sundferli sínum
(1924/28). Hann kunni lítið annað fyrir
sár en að synda. Atvinnumaður í sundi
náði hann þeim góða árangri, þá 36
ára að aldri, að synda 100 jarda á 48,5
sekúndum. Hann lák síðar í nokkrum
kvikmyndum og vann við Cesar Pal-
ace-íþróttahöllina í Las Vegas.
Murray Rose
(Fæddur 1939) er yngsti sundmaöur
sem unnið hefur til þriggja gullverð-
launa á Ólympíuleikunum öll i sömu
vikunni. Þetta gerðist árið 1956 f 400
og 1500 metra skriðsundi og hann var
jafnframt í áströlsku sundsveitinni
sem vann til gullverðlauna i 4x200
metra sundi. Hann er einnig fyrsti
sundmaðurinn sem endurtók sigur
sinn á Ólympíuleikum í sömu keppn-
isgreininni. Hann vann 400 metra
skriðsund á Ólympíuleikum 1956 og
1960. Hann flutti sem barn með skosk-
um foreldrum sinum til Ástralíu og
foreldrar hans sáu fyrir þvi að hann
borðaði eftir ströngum matarkúr; kjöt,
fiskur og kjúklingar voru fæðutegund-
ir sem hann setti ekki inn fyrir sínar
varir í þá daga. Aftur á móti fákk hann
nóg af hunangi og söli og fræum.
Flestir bandarískir þjálfarar telja hann
fremri en Weissmueller.
Don Schollander
(Fæddur 1946) er fyrsti sundmaður-
inn sem vann til fernra gullverðlauna á
Ólympíuleikunum innan einnar viku
(1960) í 100 metra skriðsundi. „Þó að
ág sá enginn spretthlaupari", í 4x100
og 4x200 metra skriðsundi, þar sem
hann var 2 sekúndum fljótari en næsti
sundmaður í boðsveitinni. Hann var
fyrsti sundmaðurinn sem synti 200
metra undir tveimur mínútum (1:58,8
árið 1963). Á næstu fimm árum marg-
bætti hann þennan tima en besti
árangur hans var 1:54,3. Don Scholl-
ander var einu sinni líkt við draum:
„Hann er og syndir eins og draumur
sem þó er raunveruleiki". f dag starfar
Don Schollander sem lögfræðingur.
Kornelia Ender
(Fædd 1958) hafði ótrúlega hæfi-
leika eins og eiginmaður hennar, Rol-
and Matthes. Aðeins 14 ára að aldri
vann hún sín fyrstu gullverðlaun á
Ólympíuleikunum. 1976 hætti hún
skyndilega allri keppni, þá aðeins 18
ára gömul. Á þeim fjórum árum sem
hún tók þátt í keppni setti hún 29
heimsmet, varð átta sinnum heims-
meistari, vann til fjögurra gullverð-
launa á Ól 1976. Fjölhæfni var hennar
sterkasta hlið. Hún setti heimsmet í
nær öllum keppnisgreinum sundsins:
baksundi, flugsundi og skriðsundi, en
átti í smáerfiðleikum með bringu-
sundið. Kornelía Ender er dóttir hers-
höfðingja frá Halle og leggur i dag
stund á læknisfræði og stefnir að því
að verða barnalæknir.
Dawn Fraser
(Fædd 1937) var um 10 ára skeið
drottning sundíþróttarinnar. Hún er
fyrsta konan sem synti 100 metra
skriðsund undir einni minútu og sú
eina sem vann til þriggja gullverð-
launa þrenna Ólympíuleika í röð
(1950/56/60). 1964 setti ástralska
sundsambandið Dawn Fraser i keppn-
isbann og fákk hún ekki að taka þátt í
Óiympíuleikunum 1964. Hún ásamt
tveimur fálögum hennar í Ólympíuliði
Ástrala brugðu á leik og settu upp jap-
anska fánann f ólympíuþorpi Mexi-
kana. Ástralska sundsambandið kunni
greinilega ekki að meta kímnigáfu og
leikaraskap síns keppnisfólks. Sam-
tals setti Dawn Fraser 27 heimsmet á
keppnisferli sfnum.
Arne Borg
(Fæddur 1901) var þrátt fyrir Johnny
Weissmueller, sem var besti vinur
hans og andstæðingur — sundhetja á
sínum tíma. Ekki einungis vegna þeas
að hann setti 32 heimsmet á sínum
keppnisferli 1921 til 1929 (til að mynda
stóð met hans i 1500 metra sundi,
19Æ7.2 í heil ellefu ár). Svíinn Arne
Borg var heimsmaður hinn mesti og
gerði það sem honum datt (' hug
hverju sinni og var þekktur fyrir aö
hafa góðan smekk fyrir góðum vínum
og fallegum konum. 1930 geröist hann
opinberlega atvinnumaður og auglýati
upp baðfatnaö. Á fimmtugsafmæli
sínu vann Arne Borg veðmál við kunn-
ingja sfna; 1000 sænskar krónur, þar
sem hann synti 100 m skriðsund undir
1:05 eða á þeim ágæta tíma 1:04,8.
Ute Geweniger
(Fædd 1964) og John Naber (fædd-
ur 1956). Tveir frábærir sundmenn
hver á sfnu sviði. Bandaríkjamaðurinn
Naber var sá fyrsti sem náði aö sigra
Roland Matthews f baksundi. John,
Naber sem vann til fjögurra gullverö-
launa á Ól-leikunum 1976, er afar trú-
hneigður maöur. Hann á enn heims-
met í 100 metra bringusundi (55,46) og
200 m baksundi, (1:59,19). Ute Gewen-
iger, nemi frá Karl Marz-Stadt í
Austur-Þýskalandi, fimmtaldur Evr-
ópumeistari í sundi frá 1981. Með
heimsmeti sinu f 100 metra bringu-
sundi kvenna (1.-09,52) náði Gewenig-
er því marki sem áður var haldið að
aðeins karlmenn gætu náð.