Morgunblaðið - 10.01.1984, Qupperneq 26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. JANÚAR 1984
„Hundabaimsmálið“
— eftir Þöri H.
óskarsson
Hundabannið í Reykjavík hefur
nú smátt og smátt tekið á sig þá
mynd, að nú er það orðið eitt af
mestu misréttismálum á íslandi.
Mikið hefur verið rætt og ritað um
þessi mál en tel ég þó ekki að verið
sé að bera í bakkafullan lækinn,
þegar ég tek mér penna í hönd og
bæti nokkuð við þessar umræður.
Skiptar skoðanir eru um þessi
mál, svo sem og í fieiri tilfellum.
Slíkt er eðlilegt og á fullan rétt á
sér og virði ég skoðanir margra,
sem ekki eru mér sammála í þess-
um efnum.
Hinsvegar hafa sumir geyst
fram af slíku ofstæki, að oft hefur
mér ofboðið og oft hefur hundur-
inn fengið slíka umsögn, að hann
væri eitraðasta kvikindi veraldar,
uppfullur af hættulegustu sjúk-
dómum og tilbúinn að ráðast á
hvern þann, sem nálægt honum
kemur svo ekki sé nú talað um
það, sem frá honum kemur hafi
hann matast eins og öll önnur dýr
jarðarinnar.
Sumt af þessu hefur verið sett
fram af slíkri fávizku, að ég hef
fyrst og fremst vorkennt þeim,
sem skrifað hafa.
Það, sem þó fyllir mælinn nú
hjá mér, er það misrétti, sem fólki
er ætlað að búa við í okkar annars
ágæta landi.
Fólk má að sjálfsögðu hafa ýmis
dýr að vinum sínum svo sem ketti,
hesta o.fl., en hundinn, tryggastan
manninum af öllum dýrum fyrr og
síðar, nei það er algjör ósvinna.
Ég hef aiitaf borið virðinga
fyrir réttlætiskennd þorra íslend-
inga. Nú aftur á móti hefur sú
virðing mín orðið fyrir alvarlegu
áfalli. Á sama tima sem ung
stúlka situr inni í fangelsi í Hegn-
ingarhúsinu við Skólavörðustíg,
fyrir það að eiga kjölturakka, sitja
inni á heimilum sínum í ró og
næði hinir og þessir háttsettir
stjórnmála- og embættismenn
með hunda sína af hinum og þess-
um gerðum og stærðum. Ég tel
það sjálfsagt, að þeir, þessir sömu
háu herrar, njóti þess að fá að
gæla við hundinn sinn.
Jafn sjálfsagt þykir mér, að þeir
komi nú allir sem einn fram á
sjónarsviðið og sjái til þess, að at-
burður sem þessi endurtaki sig
aldrei, ég segi aldrei, á íslandi.
Þegar þessi grein mín birtist
verður væntanlega of seint. að
leysa stúlkuna úr haldi, því að hún
verður þá búin að sitja inni í 8
daga og ekki er ég viss um að
„pressan" taki svo fljótt við sér.
Stúlka þessi lauk stúdentsprófi í
vor og stendur á tvítugu, býr í for-
eldrahúsum og telst eignalaus,
þetta veit ég eftir að hafa hringt í
móður hennar.
Þar kom m.a. fram, að foreldrar
hennar voru mjög mótfallin því,
að hún færi að sæta fangelsisvist
vegna hvutta.
Hún aftur á móti stendur og
fellur með sínum málstað og á
heiður skilinn. Ef hún aftur á móti
væri skráð fyrir eign, hefði verið
Þórir H. Óskarsson
Fólk tná að sjálfsögðu hafa
ýmis dýr að vinum sínum svo
sem ketti, hesta o.fl., en
hundinn, tryggastan mannin-
um af öllum dýrum fyrr og
síðar, nei þaö er algjör
ósvinna.
gert lögtak hjá henni, þannig að
hún er kannski svo lánsöm eftir
allt að geta staðið fyrir máli sínu
með því að sitja inni fyrir hundinn
sinn kæra. En hvaða lausn er það
í rauninni?
Nú hefur það nýlega gerst, að
nokkrir aðilar eru dæmdir í annað
sinn fyrir hundahald og er það að
sjálfsögðu eðlilegt, ef fara á að
slíkum ólögum, sem hér um ræðir.
Ekki fær neinn einu sinni stöðu-
mælasekt og er þá laus allra mála
eða geta menn tíðkað sama af-
brotið svo lengi, að hefð skapist.
Nei, því hlýtur stúlkan, sem inni
situr að verða sett inn aftur og
aftur þar til hún brotnar og þá
verður vinurinn hennar „svæfður"
og menn halda að þar sé málið
leyst.
Það, sem málið snýst um fyrst
og fremst er þetta:
Sett var á bann í höfuðborginni
okkar, sem reyndar flestir útlend-
ingar geta engan veginn skilið.
Þetta gerist í landi, sem hefur
státað af því að með lögum skuli
land byggja en ólögum eyða.
Nú virðist hinsvegar líta svo út
sem kjörorðið sé að lifa með boð-
um og bönnum.
Boðin og bönnin virðast þó bara
eiga við suma, aðrir eru frjálsir.
Bönnin ganga svo langt, að þekkt-
ur lögfræðingur ritar grein í blað
allra landsmanna og sá hinn sami
er einn af stjórnarmönnum þessa
blaðs og hann segir, að þeir sem
endilega vilj brjóta þetta hunda-
bann geti bara komið sér í burtu.
Semsagt, ef einhver vill endilega
eiga hund, þá á hann að flýja höf-
uðborgina og koma sér fyrir í
Garðabæ eða á Seltjarnarnesinu
eða þá að gerast bóndi.
Þá eru hundar ekki lengur
hættulegir, það er bara í Reykja-
vík, sem þeir gerast óðir.
Ég vil spyrja þennan ágæta
mann, hvort hann meini það, að ef
einhver brýtur lög, þá sé hann
brottrækur úr Reykjavík og hon-
um sé sæmst að hypja sig til ná-
grannasveitarfélaganna.
Ef þetta skyldi vera skoðun
lögmannsins leyfi ég mér að efast
um að við aðhyllumst sömu
stjórnmálaskoðanir, þó svo að við
séum taldir til sams flokks.
Eitt af kjörorðum þessa flokks
er frelsi einstaklingsins.
Hefur eitthvað breyst á undan-
förnum árum hvað þetta varðar?
Einstaklingsfrelsið er ekkert gam-
anorð, í það minnsta ekki í mínum
huga og ég skora á alla góðviljaða
menn, hvar í flokki sem þeir
kunna að standa, að beita sér fyrir
því að leysa þetta mál á þann veg,
að þeim sem þykir vænt um hund-
ana sína verði vært í Reykjavík
eða hvar sem er á landinu.
Að þeir þurfi ekki að ganga um
með þá tilfinningu, að þeir séu
lögbrjótar.
Að hægt verði að setja reglur
„ekki bönn“ um hvernig umgang-
ast skuli dýr.
Hundaeigendur eru reiðubúnir
til að hlíta reglum og fara eftir
þeim en þeir sætta sig ekki við að
ungt fólk taki út refsingu fyrir það
eitt að eiga hund að vini.
Hundaeigandi greiðir nú kr.
6.500 í hvert sinn en hljómsveit
sem vakti á sér athygli fyrir það
að slátra hænsnum á sýningu með
pappírshníf fær í sekt kr. 2.000.
Stúlkan, sem áður var nefnd í
grein minni, situr nú inni fyrir
hundinn sinn litla og er eflaust
reiðubúin til að gera það aftur og
aftur, þangað til hún fær réttlæt-
inu fullnægt.
Ég veit að allir hundavinir
standa með henni í baráttunni.
Þórír H. Óskarsson er Ijósmyndari
í Reykjavík.
raöauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar
nauöungaruppboö
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 64., 65. og 67. tölublaði
Lögbirtingablaðsins 1983 á eigninni Silfur-
götu 12, ísafirði, þinglesinni eign Hafsteins
Björnssonar, fer fram eftir kröfu Lífeyrissjóðs
Vestfjarða á eigninni sjálfri, fimmtudaginn
12. janúar 1984 kl. 10.00.
9. janúar 1984.
Bæjarfógetinn á ísafiröi.
Sýslumaðurinn í ísafjaröarsýslu,
Pétur Kr. Hafstein.
Týr FUS Kópavogi
Viðverutími stjórnarmanna er á sunnudagskvöldum frá kl.
20.30—22.00 í Sjálfstæöishúsinu aö Hamraborg 1, 3. hæö.
Þeir sem ætla aö ganga i félagiö eöa vilja fræöast um þaö. eru beönir
aö hringja í sima 40708 á þessum tima eöa koma til viötals.
Stjórnin.
Kópavogur — Kópavogur
Spilakvöld
Okkar vinsælu spilakvöld hefjast aftur þriöjudaginn 10. janúar í
Sjálfstæöisgúsinu, Hamraborg 1, kl. 21 stundvíslega. Ný fjögurra
kvölda keppni.
Góö kvöld- og heildarverölaun.
Kaffiveitingar.
Mætum öll. Stjórn Sjálfstæðisfélags Kópavogs
Garðabær —
Bessastðahreppur
Þar sem blaðið Garðar var ekki borið út í
eina götu vegna mistaka framlengist skila-
frestur í jólakrossgátu blaðsins til 15. janúar
1984.
Fyrir hönd sjálfstæðisfélags
Garöabæjar og Bessastaða-
hrepps, blaðstjórn.
Kópavogur — Kópavogur
Eldri bæjarbúar
— Skemmtikvöld
Sjálfstæöisfélögin i Kópavogi efna til skemmtunar með eldri bæjar-
búum fimmtudagskvöldiö 12. janúar kl. 20.00 í Sjálfstæölshúsinu aö
Hamraborg 1, 3. hæö.
Skemmtunin hefst meö þvi aö spilaöar veröa nokkrar umferöir í
bingó. Síöan veröa þegnar Ijúfar veitingar og loks sprett úr spori í
fjörugum dansi viö harmonikuleik fram undir miönætti. Bílar veröa til
taks fyrir þá sem vilja. Nú mæta allir og lyfta aér upp í akammdeginu.
Stjórnir Sjálfstæölsfélaganna
i Kópavogi.
Hóto- og Fellahverfi og Árbæjar- og Seláahverfi
Árshátíð
Sameiginleg árshátíö Sjálfstæöisfélaganna i Hóla- og Fellahverfi og
Árbæjar- og Seláshverfi veröur haldin 14. jan. '84 og hefst meö
kokteilboði í félagsheimili SjálfstaBöisflokksins í Árbæ, Hraunbæ
102B kl. 18.00. Matur og dans veröur i golfskálanum Grafarholti kl.
20.00. Rútuferö veröur frá félagsheimllinu Hraunbæ 102B. Fjölmenn-
iö og takiö meö ykkur gesti.
Upplýsingar og miöapantanlr: Selás- og Árbæjarhverfi: Steinar, s.
72688 eftir kl. 20.00, Arngeir, s. 82207 eftir kl. 20.00.
Hóla- og Fellahverfi: Helgi, s. 72345 eftlr kl. 20.00, Sigrún, s. 71519
eftir kl. 20.00.
Fulltrúaráð sjálfstæðis-
félaganna í Reykjavík
Aðalfundur
Aöalfundur fulltrúaráös sjálfstæöisfélaganna í Reykjavík veröur hald-
inn þriöjudaginn 17. janúar i Valhöll, Háaleitisbraut 1.
Fundurinn hefst kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Skýrsla stjórnar um siöastliöiö starfsár.
2. Kjör formanns og 6 annarra fulltrúa í stjórn ráöslns.
3. Kjör fulltrúa í flokksráö Sjálfstæöisflokksins.
4. Önnur mál.
Fulltrúar fjölmenniö og mætiö stundvíslega.
Stjórnln.
tilboö — útboö
Austur-Skaftfellingar
Aöalfundur Sjálfstæöisfélags A-Skaftfellinga
veröur haldinn föstudaginn 13. þ.m. á Hótel
Höfn kl. 20.30. Auk venjulegra aöalfundar-
starfa mun Sverrir Hermannsson, iönaöar-
ráöherra, ræöa um viöhorf i stjórnmálum og
svara fyrirspurnum.
Allt sjálfstæöisfólk velkomiö.
Stjórnin
Kópavogur — Kópavogur
Eldri bæjarbúar
— Skemmtikvöld
Sjálfstæöisfélögin í Kópavogi efna til skemmtunar meö eldri bæjar-
búum fimmtudagskvöldiö 12. janúar kl. 20.00 í Sjálfstæðishúsinu aö
Hamraborg 1, 3. hæö.
Skemmtunin hefst meö þvi aö spilaöar veröa nokkrar umferöir í
bingó. Siöan veröa þegnar Ijúfar veitingar og toks Sþrett úr spori í
íjörugum dansi viö harmonikuleik fram undir mlönætti. Bílar veröa til
taks fyrir þá sem vilja Nú mæta allir og lyfta sér upp í akammdeginu.
Stjórnir Sjáifstæóisféiaganna
i Kópavogi.
(f| ÚTBOÐ
Tilboð óskast í 6 dreifistöðvarskýli úr státi og
timbri fyrir Rafmagnsveiutu Reykjavikur. Út-
boðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frí-
kirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn 1.500 kr. skila-
tryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað
þriðjudaginn 7. febrúar 1984 kl. 11 f.h.
INNKAUPASTOFNUN , REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800