Morgunblaðið - 10.01.1984, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. JANÚAR 1984
45
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 11—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
„Nú eru um tíu ár liðin síðan íslendingar sögðust mundu reisa flugstöðvarhús á sinn kostnað. Bandaríki
Norður-Ameríku skyldu greiða kostnað og hagnað verktaka af hinum umfangsmeiri framkvæmdum við akbrautir,
stæði flugvéla, eldsneytiskerfi o.fl. Enda þótt Bandaríkjaþing væri strax í viðbragðsstöðu með fjárveitingu til þess
að verða við óskum íslands, er hörmulegt að vita af öllu makkinu af hálfu íslendinga til þess að losna við að borga
sinn hlut. Þar á meðal var talað um sölu gamals húss, sem menn höfðu víst einu sinni fengið ókeypis frá
Bandaríkjamönnum samkvæmt samningi um varnir íslands."
Hættum að hlaupa undir
væng bandaríska arnarins
í öðru hverju smámáli sem upp kemur
Sv. G. skrifar:
„Kæri Velvakandi.
Þú býður okkur að skrifa þér,
minnist þess, að lesendur séu vel-
komnir á málþing þitt.
Mörg bréfin hefi ég ritað um ár-
in, í hita og þunga dagsins; síðan
rifið þau, áður en send yrðu. Þetta
bréf læt ég þó flakka, enda er ég
ekkert æstur núna.
Sjávarútvegsráðherra fréttir
víst manna fyrst og best að þröngt
er í búi þessa daga. Landhelgis-
gæslan þarf að fá tvær þyrlur til
þess að annast löggæslu, eftirlit
og aðstoð við sjómenn í sjávar-
háska. Ríkissjóður hefur varla fé
til þess að kaupa svo mikið sem
eina slíka. Hinn slyngi stjórn-
málamaður drepur málinu á dreif.
Hann snýr vörn í sókn og segir:
Við skulum yfirtaka þyrlu- og
björgunarsveit Varnarliðsins. Þar
eð við eigum ekki fyrir einni skul-
um við hefja útgerð með fimm
þyrlum, flugskýli og búnað til
viðhalds.
Undanfarið hafa víst verið um
þrjár þyrlur hjá Varnarliðinu og
segjum tvær minni hjá íslending-
um sjálfum. Ef eigi skal draga úr
öryggisgæslu, þarf því u.þ.b. fimm
þyrlur og önnur flugför, m.a. til
eldsneytisflutninga á flugi. Auð-
vitað er ráðherrann bara að segja,
að við Islendingar höfum verið að
kaupa togara undanfarið og því sé
eðlilegt, að Bandaríkjamenn borgi
að hluta til kostnað vegna fisk-
í ráði er að gefa út hljómplötu
með íslenskum þýðingum á ljóðum
eftir sænska skáldið C.M. Bell-
man, en þær eru m.a. til eftir
Kristján Fjallaskáld, Hannes
Hafstein, Jón Helgason og Sigurð
Þórarinsson. Ein þessara þýðinga
er hin alkunna gleðivísa „Fyrst ég
annars hjarta hræri“ undir lag-
inu, sem enn fleiri munu þó kunna
við „Söguna af Gutta“ eftir Stefán
Jónsson. Hinsvegar hefur enn ekki
tekist að hafa upp á höfundi
Bellmansþýðingarinnar þrátt
fyrir talsverða eftirgrennslan. Ef
veiða, eins undirstöðuatvinnuvegs
þjóðarinnar. Þetta líst forsætis-
ráðherra svo vel á, að hann veður
beint í sendiherra Bandaríkja
Norður-Ameríku á íslandi vegna
málsins. Reyndar hélt ég, að það
væri dónaskapur að fara á þennan
hátt inn á svið utanríkisráðherra,
sem er að auki úr samstarfsflokki
hinna tveggja fyrrnefndu í ríkis-
stjórn. En mikið liggur við og
þeim framsóknarmönnunum þykir
það eðlilegt og sjálfsagt að vera
aumir. Utanríkisráðherra hefur
þó ávallt viljað halda uppi virð-
ingu og stolti íslendinga sem og
forveri hans í sama starfi, sjálf-
stæðismaðurinn Bjarni Benedikts-
son. Ekki hafa þessir menn viljað
heyra, að öryggis- og sjálfstæð-
ismál landsins væru gerð beinlínis
að féþúfu.
Ég særist í hvert sinn, sem
stjórnmálamenn þjóðarinnar
leggjast lágt fyrir vinaþjóð okkar í
vestri. Það má hæglega halda uppi
málstað íslendinga gagnvart
Bandaríkjamönnum með fullri
virðingu og stolti, jafnvel láta þá
borga. Um það verði þó gerðir
samningar, ekki hlaupið til og
masað á ofangreindan hátt.
Hreinlegra væri að leita sam-
komulags um að Bandaríkin borg-
uðu tolla, söluskatt og önnur gjöld
vegna starfsemi Varnarliðsins á
íslandi, og þeirra forréttinda, sem
þau veita liði sínu og fjölskyldum
einhver lesandi kynni að vita eða
hafa grun um höfundinn, er hann
beðinn að hafa samband við und-
irritaðan í síma 14654 eða 18050.
Árni Björnsson.“
þess. Slíkt yrði reyndar lítill en þó
ekki óverulegur geiri þjóðarkök-
unnar. Þetta væru viðskipti, sem
ætla mætti, að Bandaríkjamenn
gætu sætt sig við og metið sann-
gjörn.
fslendingar verða þá líka að
standa við sitt. Ekki líst mér á, að
við tökum á okkur skuldbindingar
vegna eftirlits- og björgunarflugs.
Minnugir megum við vera þess, að
ekki stóðum við okkur vel í
áhlaupinu vegna flugstöðvarbygg-
ingarinnar. Nú eru um tíu ár liðin
síðan fslendingar sögðust mundu
reisa flugstöðvarhús á sinn kostn-
að. Bandaríki Norður-Ameríku
skyldu greiða kostnað og hagnað
verktaka af hinum umfangsmeiri
framkvæmdum við akbrautir,
stæði flugvéla, eldsneytiskerfi o.fl.
Enda þótt Bandaríkjaþing væri
strax í viðbragðsstöðu með fjár-
veitingu til þess að verða við
óskum íslands, er hörmulegt að
vita af öllu makkinu af hálfu ís-
lendinga til þess að losna við að
borga sinn hlut. Þar á meðal var
talað um sölu gamals húss, sem
menn höfðu víst einu sinni fengið
ókeypis frá Bandaríkjamönnum
samkvæmt samningi um varnir
íslands. Loksins núna eru fram-
kvæmdir að hefjast.
Vonandi þegja okkar menn í
þyrluflugsmálinu þangað til þeir
hafa kynnt sér það, þar á meðal
fjárveitingahliðina.
Kæri Velvakandi.
Ég er ekki blaðamaður og
nokkrir dagar liðnir, síðan ég
stakk niður penna við upphaf
bréfs þessa. Nú í dag, 4. janúar,
rétt þegar ég er að koma þessu frá,
sé ég ritstjórnargrein í Morgun-
blaðinu og les á milli línanna, að
við erum á svipuðu máli, held ég.
Gott er það.
Hættum, fslendingar, að hlaupa
undir væng bandaríska arnarins í
öðru hverju smámáli, sem upp
kemur, og tengja má, með ríku
hugmyndaflugi, starfsemi Varn-
arliðsins á Keflavíkurflugvelli.“
GÆTUM TUNGUNNAR
Sagt var: Hann kom hér fyrir nokkrum árum síðan.
Betra þykir: Hann kom hér fyrir nokkrum árum.
Eða: Það eru nokkur ár síðan hann kom.
(„Síðan“ á eftir „fyrir“ þykir óþarflega dönskulegt).
Fyrst ég annars
hjarta hræri
Ein af mörgum gerðum sem
við eigum fyrirliggjandi
Portúgölsku
barna-kulda-
skórnir frá
PILAR
Teg: 5096
Stærð: Frá 23 til 33
Verð: Fró kr. 699,-
til 788,-
Litur: Brúnt, vín-
rautt, blátt.
Lýsing: Eru úr
feitu, mjúku skinni,
með spennu og
riffluðum stömum
og sterkum sóla.
Póstsendum
samdægurs.
^w^®^SK0RINN
VELTUSUNDI 1
21212
Domus Medica,
Sími 18519.
URyALS
SNJODEKK
FYRIR
VANDLÁTA
STÆRDIR VERD FRÁ:
155-13 ...... 1.890 kr.
165-13 ...... 2.174 kr.
185/70-13 ... 2.553 kr.
175-14 ...... 2.574 kr.
185-14 ...... 3.514 kr.
HRINGIÐ í HILMAR í SÍMA 28411
OG FÁID NÁNARI UPPLÝSINGAR.
/u\ Aisturtoakki hf.
_—I BORGARTUNI20