Morgunblaðið - 10.01.1984, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. JANÚAR 1984
47
Árni Óli Friðriksson ók Escort-inum sínum fagmannlega í ískrossum
helgarinnar. Morgunblaðið/ Cunnlaugur
íslandsmeistarakeppni í íscrossi:
Árni Óli náði
góðum árangri
ÁRNI ÓLI Friöriksson ók Escort
2000 afburðavel í tveim ískrossum,
sem fram fóru á laugardag og
sunnudag. Náði hann öðru sæti í
fyrri keppninni og vann síöan þá
seinni eftir spennandi keppni. Árni
hefur því forystu í íslandsmeist-
arakeppninni í ískrossi, en Þórður
Valdimarsson kemur honum næst-
ur að stigum, en hann sigraði fyrri
keppnina á VW.
I keppninni á laugardag átti
Þórður ekki í vandræðum með að
sigra á VW sínum, sem hentar
sérlega vel fyrir akstur á ís. Árni
náði að hanga í skottinu á hon-
um og varð á undan Ríkharði
Kristinssyni á Lada og Þórhalli
Kristjánssyni á Fiat, sem byrj-
aður er að keppa að nýju en
hann náði góðum árangri í rall-
akstri fyrir fáum árum.
Á sunnudaginn virtist stefna í
öruggan sigur Þórðar, en áður en
að úrslitum kom bilaði VW hans.
Hann hafði hinsvegar unnið sér
rétt til þátttöku í úrslitum og
náði því sjálfkrafa fjórða sæti,
en hinir þrír bílarnir öttu kappi
um sigurinn. Árni náði strax
forystu í startinu og tókst Birgi
Vagnssyni á Cortina ekki að
krækja í hann þrátt fyrir góð til-
þrif, en aðeins rúm sekúnda
skildi þá að eftir að þeir höfðu
ekið hringina fimm um brautina.
Logi Einarsson náði þriðja sæti
eftir að hafa sýnt skemmtilegan
akstursmáta, en hann heimsótti
skafla í kringum brautina full
oft. I samtali við Morgunblaðið
kvaðst Árni Óli Friðriksson
mjög ánægður með árangurinn,
en hann hafði nýverið fest kaup
á keppnisbíl sínum er hann ók
ásamt Óskari Ólafssyni í rall-
akstri fyrir ári með góðum
árangri.
Staðan í íslandsmeistara-
keppninni er sú að Árni hefur 35
stig, Þórður Valdimarssor. 30,
Birgir Vagnsson 23, Ríkharður
Kristjánsson 20, Þórhallur
Kristjánsson 16 og Logi Einars-
son 12 stig.
G.R.
Jóhanna Sigríður Einarsdóttir á Hveravöllum:
Hryssingslegt veð-
ur síðan um jólin
„SVONA veðrátta kcmur minna
við okkur, sem búum í svona ein-
angrun. Hér eru engir strætisvagn-
ar, né Breiðholt. sem maður þarf
að koraast í. Við forum út til að
lesa af mælunum á þriggja tíma
fresti og flýtum okkur svo bara inn
í hlýtt húsið og höldum okkur inn-
andyra, þegar illa viðrar,“ sagði
Jóhanna Sigríður Einarsdóttir í
spjalli við Mbl. í gær. Jóhanna býr
ásamt eiginmanni sínum og hundi
á Hveravöllum, en þau hjónin
vinna á veðurathugunarstöðinni
þar.
„Hér er vestanátt eins og er og
fimm stiga frost. Það hefur lægt
mikið frá því í gær og veður-
hraðinn er svona 7—8 vindstig. í
gær var hann hinsvegar 12 vind-
stig. Hér er mikill skafrenningur
og búið að vera hryssingslegt frá
jólum. Þetta er þriðja árið sem
við erum á Hveravöllum og veðr-
ið er svosem ekkert sérstaklega
skemmtilegt. Það er mjög um-
hleypingasamt, eins og við er að
búast hér uppi á fjöllum."
Björn Sverrisson vélstjóri á Hrauneyjafossi:
Snarvitlaust veður
„VEÐRIÐ er nú þrælfúlt hérna,
eins og er, alveg snarvitlaust,"
sagði Björn Sverrisson, vélstjóri á
Hrauneyjafossi, er blm. Mbl.
ræddi við hann í gær.
„Ég vann á Sigöldu frá upp-
hafi, en kom hingað að Hraun-
eyjafossi haustið 1981. Ég bý í
Búrfelli, sem er í um 40 kíló-
metra fjarlægð héðan og hef
alltaf keyrt á milli. I gærkvöldi
var hinsvegar ófært og ég þurfti
að vera hér í nótt. Reyndar er
ófært ennþá, en ég býst þó við að
komast heim, því við höfum góð-
an tækjakost, snjóbíl, veghefil
og sleða."
Björn sagði að í fyrra hefði
veðrið á þessum árstíma einnig
verið slæmt, en nú væri mikill
skafrenningur og starfsmenn á
Hrauneyjafossi, sem nú eru tólf
talsins, hefðu ekki komist í mat,
en mötuneytið væri í um 500
metra fjarlægð frá vinnusvæð-
inu.
Sýning um Frans Kafka
á þýska bókasafninu
Á ÞÝSKA bókasafninu opnaði sl.
mánudag sýning um Frans Kafka.
Hér er um að ræða yfirlitssýningu
um ævi og störf þessa austurríska
rithöfundar, sem átti aldarafmæli
1983, en 1984 eru sextíu ár liðin frá
því að hann dó.
Sýningin kemur hingað fyrir til-
stilli austurríska sendiherrans í
Kaupmannahöfn, Dr. Georg Rud-
ofsky, en að henni standa hér-
lendis austurríska aðalræðis-
skrifstofan og Goethe-Institut.
Sýningin verður opin alla virka
daga frá kl. 14—18 í þýska bóka-
safninu, Tryggvagötu 26.
Fyrr á þessu ári kynnti bankinn tölvuþjónustu fyrir húsfélög, sem hefur
mælst mjög vel fyrir.
Nú bjóðum við, enn með fulltingi tölvunnar okkar, nýja GIRO inn-
heimtuþjónustu.
Hún er sérstaklega sniðin fyrir þá sem þurfa að innheimta húsaleigu, félags-
gjöld, áskriftargjöld og önnur afnotagjöld með reglulegu millibili.
H^ðgé^
tölvan
fyrir Þi9?
1. Hún skrifar út A-GIRO seðil sem sendur er til greiðenda. Giro-
seðilinn má síðan greiða í öllum bönkum, sparisjóðum og pósthúsum. Einn
hluti seðilsins er kvittun til greiðanda og ber með sér skýringu á greiðslu.
2. Hún getur breytt upphæðum í samræmi við vísitölur og reiknað
dráttarvexti, sé þess óskað.
3. Eigandi innheimtu getur fengið stöðulista skrifaðan úr tölvunni.
Hann upplýsir m.a. hverjir eru búnir að greiða og hvenær síðast var greitt.
GIRO innheimtuþjónustan er enn ein þjónustunýjungin frá Verzlunar-
bankanum, kynntu þér hana. Upplýsingar eru fúslega veittar á öllum
afgreiðslustöðum bankans.
VÉRZlUNflRBflNKINN
Bankastræti 5 Grensásvegi 13 Umteröarmiðstöðinni Vatnsnesvegi 13, Keflavík Húsi verslunarinnar,
Arnarbakka 2 Laugavegi 172 v/Hringbraut Þverholti, Mosfellssveit nýja miöbænum
AUK hf. Auglysmgastofa Kristinar 43.52