Morgunblaðið - 15.01.1984, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. JANÚAR 1984
3
Krefjast
læknis til
Grundarfjarðar
(•nindarfirði. 13. janúar, frá Helga
Bjarnasyni, blaðamanni Mbl.
ÞINGMÖNNUM Vesturlandskjör-
dæmís, sem hér eru á atvinnumála-
fundi, voru í dag afhentir listar með
undirskriftum 388 Grundfirðinga.
Þar er skorað á þingmennina að
stuðla að því, að læknir verði ráðinn
til Grundarfjarðar hið fyrsta.
Undirskriftunum var safnað á
tveimur klukkustundum í dag í til-
efni af komu þingmannanna
hingað á atvinnumálafundinn.
íbúar hér eru tæplega 800. Heim-
ild er í lögum til að ráða einn
lækni til Grundarfjarðar en fjár-
veiting hefur ekki fengist til ráðn-
ingarinnar þrátt fyrir eindregnar
óskir heimamanna.
íslensk hárgreiðslu-
sýning vekur
athygli í Florida
ÍSLANDSDEILD alþjoðlegu hár-
greiðslusamtakanna, ICD, var boðið
með sérstaka sýningu á alþjóðlegt
mót í Orlando í Florida. Mbl. hefur
borist eftirfarandi skeyti frá David
Weiss, sýningarstjóra í Redgen Lab-
oratories:
„Sýning íslendinganna á stíl í
hárgreiðslu og fatnaði, sem opnaði
alþjóðamót ICD í Orlando í Flor-
ida, var bæði dramatísk og spenn-
andi. Mótið var haldið dagana 8.
til 11. janúar undir heitinu „Ferð
um lönd ímyndunaraflsins" og ís-
lenski þátttökuhópurinn markaði
stórkostlega upphaf þeirrar ferð-
ar.“
íslendingunum var sérstaklega
boðið að koma með sömu sýningu
sem þeir voru upphaflega með í
Argentínu og síðar í Sviss, þar
sem sýningarstúlkur eru í búning-
um úr gærum. En einnig var nú
útbúinn nýr þáttur, þar sem
notaður var sérhannaður leður-
fatnaður, eins og á sýningu hér í
Broadway fyrr í vetur.
Þelamerkurskóli:
Telur sig settan
kennara og
krefst árslauna
MÁL Ormars Snæbjörnssonar,
fyrrum kennara við Þelamerkur-
skóla, sem Kennarasamband ís-
lands hefur höfðað á hendur
menntamálaráðherra, var þing-
fest í vikunni. Þess er krafist að
Ormari verði greidd árslaun kenn-
ara, það er laun frá 1. september
1983 til 1. september 1984 og að
viðurkennt verði að ólöglega hafi
verið staðið að málum.
Ormar heldur því fram að hann
hafi verið endurráðinn sem kenn-
ari við Þelamerkurskóla af fyrr-
verandi menntamálaráðherra og
því beri honum laun fyrir tímabil-
ið. Annar var settur í kennara-
starfið af hálfu núverandi
menntamálaráðherra.
Þorlákshöfn:
Ráðstefna um
fiskveiðimál
ALMENN ráðstefna um stöðu og
stefnu í fiskveiðimálum verður
haldin í grunnskóla Þorlákshafn-
ar í dag, sunnudaginn 15. janúar,
klukkan 15.30. Þar flytja 10 menn
framsöguerindi, útgerðarmenn,
sjómenn, fiskifræðingar, verka-
lýðsleiðtogar og alþingismenn.
Stofnfundur FRÍ-klúbbslns veröur á
áramótafagnaði Útsýnar
föstudaginn
20. janúar ^
Kl. 20.00. Húsiö opnar meö pompi og pragt. Ungfrú og
herra Útsýn ásamt skrautklæddu þjónustuliði Útsýnar
og Broadway taka á móti gestum meö kurt og pí. Viö
komuna kynntur í fyrsta sinn hér á landi nýr lystauki.
Afhending happdrættismiöa og sala binógspjalda.
Kl. 20.30. Áramótaveizla: Glæsilegur kvöldveröur á
gjafaveröi.
Rjómasúpa a la Bussola.
Fylltur grísahryggur Lupa meö tilheyrandi góögæti. I.
Ljúffengur ostaréttur.
Verö aöeins kr. 450.-
ifek Heiðar Jónsson snyrtir sýnir kvikmynd: Vetrar-
tízkusýninquna RÍVGQGUChö frá Dixie-band
' plJJIp ^E^INÍI^URÍENÍT Svansins kemur öllum í gott skap
Beauté meö sveiflu!
Æ*. og kynnir sumartízkulitina 1984 í snyrtinqu frá
isdiHÍH franska tizkukonginum.
LBREYTT SKEMMTIDAGSKRA
Kvikmyndasýning:
Heimsreisa 4 og 5 — Ingólfur
sýnlr og kynnir.
Broadway-
ballettinn:
Jazznótan — hressileg danssýn-
ing undir stjórn Sóleyjar.
Brandarar
ársins:
Hinn sífjörugi og
vinsæli Ómar
Ragnarsson.
Feguröar-
samkeppni:
Ungfrú og herra Útsýn. Glæsileg
módel valin úr hópi gesta.
Bingó:
Spilaö um 3 glæsilegar Útsýnar-
feröir '84.
Happdrætti:
Allir matargestir taka þátt í
ókeypis happdrætti. Vinningur:
Útsýnarferö.
Glæsileg
tízkusýning:
Módelsamtökin sýna módelkjóla
frá Maríunum, Klapparstig og
loöfeldi frá Eggert feldskera,
Laugavegi 66.
Kynnir kvöldsins veröur hinn bráðfríski og
fjörugi Hermann Gunnarsson.
Þátttakendur í
þessum glæsilega
fagnaöi veröa stofn-
félagar FRÍ-klúbbs-
ins — (og hvaö er
nú þaö?). Þetta er
nýi ferðaklúbburinn,
sem tryggir þér betri
feröir á lægra veröi
og margvísleg
hlunnindi og
skemmtun í ferö
þinni, en kostar þig
ekki neitt. Allir góöir
viðskiptavinir og
feröafélagar geta
gerzt þátttakendur
frá 18 ára aldri, án
nokkurra skuld-
bindinga.
Hljómsveit Gunnars
Þórðarsonar og Gísli
Sveinn í diskótekinu
halda uppi fjörinu
og stemmningunni
til kl. 03.00.
Þetta er jafnan ein fjörugasta og glæsilegasta
skemmtun órsins, sem setst upp í hvelli. Tryggðu
þér mióa í tíma.
Boröapantanir og mióasala í Broadway kl. 10—17 daglega.
Heimsborgin
Nú er rétti tíminn til
aö gera beztu inn-
kaup ársins á janúar-
útsölunum í öllum
helztu stórverzlunum
Lundúnaborgar.
London er háborg tónlistar- og
leikhúslífs. Þar má heyra og sjá
frægustu og beztu listamenn
heimsins koma fram.
Næturlífið í London er fjölbreytt-
ara en víöast annarsstaöar, meö
úrval matsölu- og skemmtistaöa.
ÚTSÝN
Lykillinn að vei-
heppnaðri ferðl
— miðstöð viðskipta
Cumberiand Hotel
í KAUPBÆTI:
og listalífs Evrópu
n
Eyrún
Farþegar ÚTSÝNAR feróast á
lægstu fargjöldum og búa á
völdum hótelum fyrir stór-
lækkað veró.
Ferðaskrifstofan
LÚTSÝNi
Tekiö á móti þér um leið og þú kemur úr flugvélinni á Lundún-
arflugvelli. Flutningur frá og til flugvallar, innritun á hótel, dag-
leg aöstoö þaulkunnugs fararstjóra meöan á dvölinni stendur.
Allt svo auðvelt og öruggt með Eyrúnu fararstjóra.
LUNDÚNAFERÐIN SEM BORGAR SIG
SKEMMTILEGT — ÓDÝRT — ÖRUGGT
Reykjavík
Austurstræti 17, sími 26611.
Akureyri
Hafnarstræti 98, sími 22911.
Umboðsmenn um ailt land.