Morgunblaðið - 04.02.1984, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 1984
47
68 þúsund áhorfendur voru á Rheinstadion í gærkvöldí:
Stórleikur Fortuna
— Diisseldorf tók Bayern Miinchen, efsta lið deildarinnar, í kennslustund
Frá Jóhanni Inga Gunnaresyni, fréttaritara Mbl. í V-Þýekalandi.
FORTUNA DUSSELDORF tók hiö frœga liö Bayern MUnchen í kennslu-
stund í knattspyrnu í gærkvöldi á heimavelli sínum vann stórsigur
4—1 og brást ekki hinum 68 þúsund áhorfendum sem á leikinn komu.
Lið DUsseldorf lók afburöagóöa knattspyrnu allan leikinn og var sigur
liðsins aldrei í neinni hættu. DUsseldorf hóf leikinn af miklum krafti og
leikmenn Bayern máttu hafa sig alla viö í vörninni því aö hinir mjög
svo sókndjörfu leikmenn DUsseldorf geröu mikinn usla í vörn þeirra.
Til marks um yfirburöi DUsseldorf þá átti Bayern-liðiö aöeins eitt
hættulegt marktækifæri í fyrri hálfleiknum. Gífurlegur fögnuöur var í
leikslok yfir þessum glæsilega sigri og var leikmönnum DUsseldorf
ákaft fagnað þegar þeir gengu af leikvelli.
Leikmenn Dusseldorf áttu fjöld-
ann allan af góöum marktækifær-
um framan af leiknum en fyrsta
dauðafærið kom á 25. mínútu þeg-
ar Atli fékk sendingu frá vinstri
kantinum skaut viöstööulausu
skoti. En Atli varö aö teygja sig
fram til aö ná boltanum og virtist
ekki hitta hann alveg nógu vel og
skot hans sem var fast sleikti
þverslána og fór yfir. Sóknarþungi
Dusseldorf var þaö mikill aö mark
lá í loftinu.
Liöið fékk fjöldann allan af
hornspyrnum og óö í tækifærum.
Fyrsta markiö kom síöan á 30.
mínútu eftir hornspyrnu frá hægri.
Þá stökk Atli hærra en allir aörir
og skallaði boltann glæsilega fyrir
fætur Ralf Dusend sem þakkaöi
fyrir sig og skoraöi meö þrumu-
skoti, óverjandi fyrir Pfaff mark-
vörö Bayern.
Annaö markiö kom þremur mín-
útum síöar. Eftir fríspark skoraöi
Gunter Thiele. En Atli haföi þá aft-
ur skallaö boltann inn i vítateiginn
til Thiele. Þriöja markiö kom svo á
36. mínútu og var þaö sjálfsmark
hjá Nachtweih. Hann haföi ætlað
aö gefa boltann á markvörö sinn
en tókst ekki betur upp en svo aö
hann skaut í markið. Staöan var
því 3—0 í hálfleik og gaf þaö mjög
svo rétta mynd af gangi leiksins.
Bayern-liðið sótti aðeins í sig
veöriö í síöari hálfleiknum og þá
áttu þeir bræöur Karl-Heinz og
Micahel Rummenigge góö skot aö
marki Dússeldorf en Wolfang Kleff
í markinu varöi mjög vel. Dússel-
dorf-liðið haföi góö tök á leiknum
og geröi sér far um aö verjast vel
en byggöi svo upp hættulegar
skyndisóknir. Dusend átti þrumu-
skot í slána á 67. mínútu og þar
slapp Bayern fyrir horn og var
heppið aö fá ekki á sig mark. Á 73.
mínútu klóraði Bayern í bakkann
er Dúrnberger skoraöi meö
ofsaskoti í bláhorniö uppi. Gjör-
samlega óverjandi, glæsilegt
mark. Stuttu síðar átti Bayern gott
tækifæri en Kleff var vel á veröi og
varði. Kom nú nokkur spenna í
lelkinn.
En Atli Eövaldsson fékk áhorf-
endur til aö anda léttar er hann
skoraöi fjórða mark Dússeldorf og
innsiglaöi sigurinn á 89. mínútu
leiksins. Bommer átti hörku skot
Pfaff varöi vel en Atli fygldi vel á
eftir og skaut föstu hnitmiöuöu
skoti í annaö horn marksins gjör-
samlega óverjandi fyrir hinn snjalla
markvörö Pfaff. Atli lét sig ekki
muna um aö taka léttan stríösdans
á vellinum eftir þetta mark þar sem
stórsigur var í höfn. Viö þennan
sigur skaust liö Fortuna Dússeldorf
upp í fjóröa sæti í „Bundesligunni"
en liöiö á þó eftir aö leika frestaö-
an leik viö Köln sem fer fram á
þriöjudaginn. Þaö er athyglisvert
aö Dússeldorf hefur skoraö átta
mörk í síðustu tveimur leikjum sín-
um og auk þess hafa þeir skoraö
flest mörkin í deildinni. Bestu
menn Dússeldorf voru Bommer,
Dusend, Atli og Kleff í markinu. En
Fortuna — Bayern
— sagði Atli Eðvaldsson eftir stórsigur Fortuna á Bayern í gærkvöidi
— ÞAÐ var allt vitlaust af gleöi
hjá okkur inn í búningsherberg-
inu eftir leikinn. Þessi sigur gegn
hinu fræga og sterka Bayern-liöi
var sko meiriháttar get ég sagt
þér. Og þaö sem gladdi okkur
líka var aö viö skildum ekki
bregöast öllum þeim áhorfendum
sem komu á völlinn og studdu
svo vel viö bakiö á okkur, sagöi
Atli Eövaldsson eftir sigurleík
DUsseldorf á móti Bayern í
gærkvöldi er Mbl. sló á þráöinn til
hans.
Þaö er gaman þegar vel gengur
en viö erum varla farnir aö trúa
þessari miklu velgengni. Viö erum
núna í fjóröa sæti og eigum leik
inni. Þaö er talaö um okkur sem
knattspyrnuundur, slík er vel-
gengni liösins. Viö stjórnuöum al-
gjörlega leiknum gegn Bayern og
ég held aö innst inni hafi þaö kom-
iö okkur á óvart hvaö viö höfðum
þá í vasanum. í síöustu leikjum
höfum viö átt fjöldann allan af
dauöafærum og viö höfum ekki
komist hjá því aö nýta einhver
þeirra. Átta mörk skoruö í síöustu
tveimur leikjum okkar segja meira
en mörg orö, og þaö á móti sterk-
um liðum. En viö veröum aö gæta
okkar aö ofmetnast ekki. Þaö eru
þrir erfiðir útileikir framundan. Sá
fyrsti á þriðjudaginn gegn Köln.
Þaö er víst eins gott aö fara aö
koma sér í háttinn þaö er æfing í
fyrramálið sagöi Atli aö lokum.
— ÞR.
• Atli Eövaldsson og félagar hans í Fortuna DUsseldorf burstuöu Bayern MUnchen í gærkvöldi 4—1. í
hálfleik var staöan 3—0. Atli skoraöi síöasta mark DUsseldorf á 89. mínútu. Hér sækir Atli aö marki Bayern
í leiknum í gærkvöldi, en Norbert Nachtweih er til varnar. Uppselt var á leikinn í gærkvöldi, en leikvöllurinn
tekur 68 þúsund áhorfendur. Mbl./Símamynd AP/Karl-Hmnz Kreifalt*.
þaö var fyrst og fremst geysilega
sterk liösheild sem vann þennan
glæsilega sigur. Hjá Bayern voru
Rummenigge-bræðurnir bestir.
Þeir gáfust aldrei upp sýndu mikla
baráttu þrátt fyrir mótlætiö. Þá átti
Pfaff góöan leik í markinu. Þaö er
ekki hægt aö saka hann um mörk-
in. Vallarskilyröi voru afargóö þrátt
fyrir aö rignt haföi um daginn.
Margir merkir menn voru meöal
áhorfenda, þar á meðal landsliös-
þjálfarinn Derwall, allir leikmenn
Hamborg SV og Happel. Voru allir
sammála um þaö aö leikur Dúss-
eldorf heföi veriö einstaklega góö-
ur.
— ÞR.
Staóan
Staðan í Bundesligunni eftir stór-
sigur DUsseldorf á Bayern
Munchen er þannig:
Bayern 20 12 4 4 39:21 28
Stuttgart 19 11 5 3 41:17 27
Hamburg 19 11 4 4 39:21 26
Diisseldorf 19 10 5 4 47:24 25
Bremen 19 10 5 4 42:20 25
Gladbach 19 10 5 4 40:27 25
Leverkusen 19 9 4 6 35:29 22
Uerdingen 19 7 6 6 34:35 20
Köln 18 8 3 7 35:26 19
Bielefeld 19 6 5 8 25:31 17
Mannheim 19 5 7 7 24:35 17
Bochum 19 5 6 8 35:43 16
Braunschw. 19 7 2 10 31:42 16
Kaisersl. 19 6 3 10 35:43 15
Dortmund 19 5 4 10 25:42 14
Offenbach 19 4 3 12 28:58 11
Frankfurt 19 1 8 10 20:40 10
NUrnberg 19 4 1 14 25:46 9
„Veróum að gæta okkar
að ofmetnast ekki“