Morgunblaðið - 28.02.1984, Side 16

Morgunblaðið - 28.02.1984, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 1984 Jonathan Motzfeldt, formaður grænlenzku landstjómariimar: íslendingar full fljótir að taka afstöðu til samn- ings okkar við EBE Stokkhólmi, 27. febrúar. Frá fréttaritara Morgunblaósins, Magnúsi Sigurðssyni. „ÉG TEL, að íslendingar hafi ver- ingarmesta atvinnugrein Græn- lendinga og svo yrði vafalaust lengi enn. „Úrsögn okkar úr Efnahags- bandalagi Evrópu er engin til- viljun heldur afleiðing langrar þróunar," sagði Motzfeldt enn- fremur. „Land okkar liggur um 3000 km frá Evrópu og menning okkar er allt önnur og frábrugð- in menningu þeirra þjóða, sem þar búa. Við verðum hins vegar áfram aðilar að NATO og úrsögn okkar úr EBE mun engin áhrif hafa á áframhaldandi aðild okkar þar.“ ið fullfljótir til þess að taka af- stöðu til samnings okkar Græn- lendinga við Efnahagsbandalag Evrópu. Það er margt, sem þarf að skýra betur varðandi einstök atriði þessa samnings og það mun ég gera á fyrirhuguðum fundi mínum og Steingríms Hermannssonar, forsætisráðherra íslands, á mið- vikudag," sagði Jonathan Mot- zfeldt, formaður grænlenzku Undstjórnarinnar, á fundi með frétUmönnum á þingi Norður- landaráðs hér í Stokkhólmi í morg- un. Hann kvaðst ekki hafa haft tækifæri til þess að kynna sér til hlítar þingsályktunartillögu þá, sem samþykkt hefur verið á Al- þingi íslendinga varðandi samstarf við Grænlendinga á sviði fisk- verndar í framtíðinni, en græn- lenzka landstjórnin myndi fljót- lega kynna sér hana og Uka af- stöðu til hennar. Motzfeldt lagði áherzlu á, að fiskveiðar væru nú mikilvægasta atvinnugrein Grænlendinga og fiskvernd og skynsamleg hag- nýting fiskistofnanna við Græn- land væri því lífsspursmál fyrir þá. Það yki enn mikilvægi fisk- veiðanna, að verð á selskinni hefði lækkað mjög undanfarin ár og væri nú ekki nema brot af því, sem það var áður. Fjöldi Grænlendinga hefði haft fram- færi sitt af selveiðum áður fyrr, en þar sem ekki væri lengur unnt að lifa af þeim, hefði þetta fólk orðið að snúa sér að öðru og þá fyrst og fremst fiskveiðum. Grænland byggi að vísu yfir miklum auðlindum sem eftir væri að nýta og það yrði auðvit- að gert í framtíðinni, en eins og er þá væru fiskveiðar þýð- Motzfeldt vék síðan að sam- bandi Grænlendinga við eskimóa annars staðar og sagði, að Grænlendingar ættu frændur bæði í Kanada og Alaska og í framtíðinni bæri að leggja aukna áherzlu á samskipti og tengsl við þessar frændþjóðir. „Við höfum hins vegar engin tengsl við eskimóa í Síberíu. Við höfum boðið eskimóum þaðan að heimsækja okkur, en engar und- irtektir fengið," sagði Motzfeldt. Motzfeldt lét í ljós mikla ánægju með þá samvinnu, sem tekizt hefði við Islendinga um að koma upp sauðfjárrækt á Suð- * Morgunblaðið/Pressens Bild. Svipmynd frá Norðurlandaráðsþinginu í Stokkhólmi. í forgrunn sér á vangann á Alexander Stefánssyni félagsmálaráðherra en að baki honum þiggur Kire Willoch forsætisráðherra Noregs ráð hjá einum norsku þingfulltrúanna. Jonathan Motzfeldt er fulltrúi Grænlendinga á þingi Norðurlandaráðs og var myndin tekin þegar hann ávarpaði þingheim í gær. ur-Grænlandi og sagði Græn- lendinga vera mjög vongóða um, að þessi atvinnugrein ætti enn eftir að eflast og verða með tím- anum ein öflugasta atvinnugrein landsins. Nokkrir aðrir úr grænlenzku sendinefndinni tóku einnig til máls á fréttamannafundinum í morgun. Þeirra á meðal var Otto Steenholdt, sem á bæði sæti á grænlenzka landsþinginu og danska þjóðþinginu. Sagði hann, að samningurinn við Efnahags- bandalag Evrópu hefði verið mjög góður, en væri því miður til allt of skamms tíma, eða aðeins fimm ára. Kvaðst Steenholdt vilja taka það skýrt fram af gefnu tilefni, að mikil samstaða væri á meðal Grænlendinga um samninginn og visaði á bug öll- um orðrómi sem komizt hefði á kreik um, að klofningur væri kominn upp í röðum Grænlend- inga sjálfra í afstöðunni til samningsins. Sagðist Steenholdt ekki vera í neinum vafa um, að hann yrði samþykktur á græn- lenzka landsþinginu, þegar þar að kæmi. Vogun hf. með meirihlutaaðild að Trésmiðjunni Vfði: Hyggjast koma á fjárhagslegri og stjórnunarlegri endurskipulagningu Haukur Björnsson ráöinn fram- kvæmdastjóri MIÐVIKUDAGINN 15. febrúar 1984 var stofnað hlutafélagið Vogun hf. að frumkvæði Fjárfestingarfélags íslands hf., sem jafnframt er stærsti hluthafinn, segir í fréttatilkynningu frá Vogun hf., en segir ennfremur, að stofnun fyrirtækisins grundvallist á samkomulagi, sem Fjárfestingarfé- lag íslands hafi gert áður við eigend- ur Trésmiðjunnar Víðis hf. um meiri- hluta aðild Vogunar að Víði. „Tilgangurinn með stofnun hins nýja hlutafélags er að auðvelda kynslóðaskipti stjórnenda og koma á fjárhagslegri og stjórnun- arlegri endurskipulagningu Trésmiðjunnar Víðis hf., þannig að nýta megi þá afkomumögu- leika, sem taldir eru felast í út- flutningssamböndum fyrirtækis- ins, sérstaklega í Bandaríkjunum. Er vonast til að árangur á þessu sviði skili ekki einungis hluthöfum góðum arði heldur verði einnig upphafið að umfangsmiklum út- flutningi íslenzkra húsgagna, þar sem öðru fremur verður lögð áherzla á sérstæða og smekklega hönnun og framleiðslugæði," segir orðrétt í frétt Vogunar. Á stofnfundi Vogunar hf. sam- þykktu eftirfarandi fyrirtæki auk Úr vélasal Trésmiðjunnar Víðis hf. Fjárfestingarfélags íslands hf., að gerast hluthafar: B.M. Vallá, Hilda, Álafoss, Smjörliki, J.L. bygg'ngarvörur, Kassagerðin, Vöi- undur, Frjáls fjölmiðlun, Hafskip, norsk-bandaríska húsgagnasölu- fyrirtækið Westnofa og fleiri. Áætlað er að innsafnað hlutafé verði um það bil 21 milljón króna og hafa nú þegar safnast hluta- fjárloforð fyrir rúmlega % hlut- um þess. Gert er ráð fyrir að hlutafjársöfnun ljúki fyrir april- lok nk. Stjórn Vogunar skipa Gunnar Helgi Hálfdánarson, formaður, Pétur Eiríksson, vara- formaður og Gunnar S. Björnsson, Þráinn Þorvaldsson og Þórarinn Jónsson. I sameiginlegri fréttatilkynn- ingu frá Vogun hf. og Guðmundi , Guðmundssyni segir, að nú hafi náðst að mati Vogunar hf. viðun- andi samningar við helztu hags- munaaðila Trésmiðjunnar Víðis og sé fjárhagslegri endurskipu- lagningu fyrirtækisins því sem næst lokið. „Samkvæmt samkomulagi því, sem gert hefur verið við Guðmund Guðmundsson og fjölskyldu hans, sem verið hafa aðaleigendur Trésmiðjunnar Víðis frá stofnun, mun Vogun hf. fara með meiri- hlutavald í málefnum trésmiðj- unnar á næstu 5—8 árum. Á þeim tíma verður unnið að því að treysta afkomugrundvöll tré- smiðjunnar Víðis með gjörnýtingu markaðs- og framleiðslumögu- leika fyrirtækisins. Eignarhluti Vogunar hf. verður um það bil 51% og Guðmundar Guðmunds- sonar og fjölskyldu hans um það bil 49%,“ segir orðrétt. Að 5—8 árum liðnum verða hlutabréf þau, sem Vogun hf. á í Trésmiðjunni Víði boðin til sölu á frjálsum markaði, en fyrri eigend- um er þó gefinn forkaupsréttur að þeim á sömu kjörum og fengjust á hinum frjálsa markaði. Á aðal- fundi Trésmiðjunnar Víðis, sem haldinn var strax að loknum hluthafafundi þeim, sem scm- þykkti hlutafjáraukningu Tré- smiðjunnar Víðis og umrædda sölu til Vogunar hf. var kjörin ný stjórn. Hana skipa Gunnar Helgi Hálfdánarson, formaður, Pétur Eiríksson, varaformaður, Guð- mundur Guðmundsson, Gunnar S. Björnsson, og Paul Johnson frá Westnofa. Þá var Haukur Björnsson, viðskiptafræðingur, ráðinn framkvæmdastjóri frá 1. marz nk., en hann hefur áður gegnt starfi framkvæmdastjóra Félags íslenzkra iðnrekenda og Karnabæjar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.