Morgunblaðið - 28.02.1984, Blaðsíða 40
HLEKKUR í HEIMSKEÐJU
ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 1984
VERÐ í LAUSASÖLU 20 KR.
Tveir menn hafa játað
ránið á peningum ATVR
Byssan fannst í gærmorgun í sjó í Kópavogi - 950 þúsund krónur af ráns-
fénu fundnar — 19 ára piltur úrskurðaður í gæzluvarðhald í gærkvöldi
Geirfinnsmálið:
Fjórmenningarnir fá 6—800
þúsund krónur í miskabætur
TVEIR MENN hafa játoð að hafa
rænt 1.840 þúsund krónum af tveim-
ur storfsmönnum ÁTVR fyrir fram-
an útibú Landsbanka íslands fóstu-
daginn 17. febrúar síðastliðinn.
William James Scobie, 22 ára gam-
all Reykvíkingur, hefur játoð að hafa
framið ránið og 19 ára gamall piltur
játoði að hafa verið að verki með
honum. Ekki liggur enn Ijóst fyrir
með hvaða hætti hann kom við sögu,
en Ijóst er að William framdi sjálft
ránið á Laugavegi og er sterklega
grunaður um að hafa verið að verki í
Iðnaðarbankanum.
Pilturinn var handtekinn á Óðali
og færður til yfirheyrslu í fangelsið
við Síðumúla. Mennirnir tveir ját-
uðu svo verknaðinn og að hafa kast-
að byssunni í sjó þar sem kallað er
Kópavör í Kópavogi. Hún fannst í
gærmorgun eftir ábendingu ræn-
ingjanna. Þá fundust 950 þúsund
krónur af ránsfénu við húsleit og
unnið er því að endurheimta af-
ganginn.
„Unnið er að rannsókn málsins af
fullum krafti. Ég er mjög ánægður
með framgang hennar og stoltur af
mínum mönnum," sagði Hallvarður
Einvarðsson í samtali við blm. Mbl.
seint í gærkvöldi eftir að pilturinn
sem handtekinn var í Óðali hafði
verið úrskurðaður í gæsluvarðhald
til 14. mars. Á laugardag var Willi-
am Scobie úrskurðaður í gæslu-
varðhald til 14. mars. Faðir hans og
eldri bróðir voru úrskurðaðir til 1.
mars, en RLR hafði gert kröfu um
gæsluvarðhald yfir þeim til 7. mars.
Samkvæmt heimildum Mbl.
komst RLR á slóð ræningjanna eftir
að ábending barst frá fyrrum
starfsmanni ÁTVR. Hann kvaðst
hafa skýrt William frá því hvernig
fé ÁTVR við Lindargötu væri flutt í
banka. William hefði færst mjög í
aukana við þessi tíðindi og lýsti
áhuga á að ræna peningunum.
Rannsóknarlögreglumenn fylgdu
síðan William hvert fótmál, án þess
að honum væri það Ijóst. Feðgarnir
voru stöðvaðir á Keflavíkurflugvelli
á fimmtudaginn þegar þeir hugðust
fara til Bandaríkjanna.
Húsleit var framkvæmd í íbúð í
Breiðholti og grunur RLR styrktist
þegar þar fundust meðal annars
lambhúshettur, griplur, úlpa og
skófatnaður sem komu saman við
lýsingu sjónarvotta á báðum ránun-
um. Mbl. hefur heimildir fyrir því
að vitni hafi borið að ræninginn
hafi talað með erlendum hreimi, þó
ekki hafi verið frá því skýrt opin-
berlega, en þess má geta að William
hefur verið langdvölum í Bandaríkj-
unum. En það var ekki fyrr en í gær,
að haglabyssan, sem William sagaði
hlaupið af, fannst, svo og ránsféð.
William hefur enn ekki viður-
kennt þjófnaðinn úr útibúi Iðnað-
arbankans við Drafnarfell en hann
er sterklega grunaður um að hafa
einnig þar verið að verki. Þykir
fatnaðurinn sem fannst í Breiðholti
renna stoðum undir þær grunsemd-
ir.
Margt er enn óljóst um mál þetta.
Feðgarnir eru enn í gæsluvarðhaldi,
og hlutur þeirra óljós. Samkvæmt
heimildum Mb' munu faðir William
og bróðir ekki hafa vitað fyrirfram
um ránið. William hafi komið með
féð f föðurhús og þá hafi feðgarnir
reynt að hylma yfir með honum.
Fjármálaráðherra hefur í samráði
við þingflokksformenn og fjárveit-
inganefnd Alþingis gengið frá
greiðslu miskabóto til fjórmenn-
inganna, sem snemma árs 1976 sátu
í gæsluvarðhaldi að ósekju í 90—105
daga í tengslum við rannsókn Geir-
flnnsmálsins.
„Við teljum okkur hafa unnið
ágætan sigur í þessu máli. Því er
nú lokið af okkar hálfu og við telj-
um það úr sögunni," sagði einn
fjórmenninganna, Valdimar
Olsen, í samtali við Mbl. í gær-
kvöld.
Hæstaréttardómur um miska-
bæturnar féll fyrir ári. Síðan hef-
ur verið deilt um útreikning vaxta.
Fjórmenningarnir hafa gert kröfu
til að þeim væru greiddir vextir
eins og bótaupphæðin hefði legið á
banka en af hálfu ríkisvaldsins
hafa vextir verið reiknaðir af
óbreyttum höfuðstól. Á endanum
viðurkenndi fjármálaráðuneytið
rétt þeirra til vaxtavaxta frá
miðjum júní 1979, þegar sett voru
lög um dómvexti. Fá þeir nú bæt-
ur, sem eru á bilinu 600 til 800
JÓHANN Hjartarson, Helgi Ólafs-
son og Samuel Reshevsky sigruðu á
XI. Reykjavíkurskákmótinu, sem
lauk á sunnudag, hlutu 8 vinninga.
Jóhann og Helgi náðu áfanga að
stórmeistoratitli með árangri sínum.
Hver um sig hlaut liðlega 100 þús-
und krónur í verðlaun fyrir sigurinn.
þúsund fyrir hvern þeirra. „Þrátt
fyrir alla misgóða vaxta-
útreikninga margra lögfræðinga
hefur þetta tekist," sagði Valdi-
mar Olsen. „Við teljum okkur því
geta ágætlega við unað.“
Þegar stig voru reiknuð kom í
ljós, að Jóhann Hjartarson telst sig-
urvegari mótsins þar sem andstæð-
ingar hans hlutu fleiri vinninga, en
andstæðingar Helga og Reshevsky.
Jóhann hlaut 61,5 stig, Helgi Ólafs-
son hafnaði í öðru sæti með 61 stig
og Samuel Reshevsky hlaut 59,5
stig. Jóhann Hjartarson hefur nú
náð tveimur áföngum af þremur að
stórmeistaratitli, en Helgi einum.
Til að ná stórmeistaratitli þarf
skákmaður að ná tilteknum árangri
í 24 skákum. Þar sem Jóhann tefldi
á tveimur ellefu umferða mótum,
þarf hann þriðja mótið. Hefði hann
náð sambærilegum árangri í 11 og
13 umferða mótum, þá væri hann nú
stórmeistari.
Sjá frétt af Reykjavíkurskákmótinu,
viðtöl og skákskýringar á bls. 46—47.
Fimm nýir í efri flokki
Listamannalaunum var úthlutoð Þá var í gær úthlutað starfs-
í gær og hljóto 128 launin í ár. launum úr Launasjóði rithöf-
Fimm nýir eru í efri flokki: Helgi unda. Að þessu sinni hljóta 90
Sæmundsson, Herdís Þorvalds- rithöfundar starfslaun, í tvo til
dóttir, Kristinn Hallsson, Ragnar sex mánuði hver.
Kjartonsson og Svava Jakobsdótt- Sjá listo yfír úthlutanir á bls. 34.
ir.
Reykjavíkurskákmótið:
Jóhann Hjartarson
sigurvegari á stigum