Morgunblaðið - 28.02.1984, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 1984
17
U’BÍX90
Smávaxna eftirherman
Þó U-BIX 90 sé minnsta eftirherman í U-BIX fjölskyldunni hefur hún alls enga
minnimáttarkennd, enda óvenju hæfileikarík og stórhuga eftirherma.
Einstaklingar og fyrirtæki sem til hennar þekkja láta heldur ekki á sér standa
og pantamr streyma inn.
Farmanna- og fiskimannasamband Islands:
< : A .
> • \
V;
>
lUt %
Sarnafil
- á strengjasteypuþök
•Ný gerð þakeininga setur iðnaðarhús úr strengjasteinsteypu
ifremstu röð þegar byggingarkostnaður og framkvæmdatími
skipta meginmdli.
• Fagtún hf. leggur Sarnafil þakdúk og einangrun beint dsteypuna.
• Þessi samloka frá Fagtúni er allt að helmingi ódýrari en upp-
byggt þak. •Skammur framkvæmdartími. •Engar lektur, engin
timburklæðning.
• Einfaldur og öruggur frágangur við rennur, gafla og ofanljós.
• Góð lausn á hvaða árstima sem er - sumar og vetur.
Samafil - og þú hefur sett þak á byggingarkostnaðinn
FAGTÚN HF., LÁGMÚLA 7, 105 REYKJAVlK, SlMI 28230
Undanþágur til yfir-
mannastarfa veikja ör-
yggi skipa og áhafna
MORGUNBLAÐINU hefur borizt eft-
irfarandi frá FFSÍ.
„Formannaráðstefna Farmanna-
og fiskimannasambands íslands
haldin 10. og 11. febrúar 1984 vill
vekja athygli alþjóðar á þeim kjör-
um sem nú bjóðast íslenskum sjó-
mönnum i farmennsku og við fisk-
veiðar.
Stöðugt hefur fækkað í áhöfnum
skipa á liðnum árum og vinnuálag
aukist um borð.
Á meðan farskipaútgerðir sjá sér
fært að lækka flutningsgjöld á vör-
um til íslands mega áhafnir skip-
anna búa við stöðugt versnandi kjör.
Það sýnir e.t.v. best hvað kjör
manna til sjós hafa dregist aftur úr
kjörum annarra, að þar sem yfir-
mönnum skipanna bjóðast störf í
landi er hæfa menntun þeirra og
hæfni, þá sækja þeir frekar í þau
störf.
Þeim fer nú ört fækkandi sem
mennta sig til sjómannsstarfa og
undanþágur til yfirmannastarfa á
skipaflotanum eru hátt á annað
þúsund, sem jafngildir því að þriðji
hver maður við skipstjórn og vél-
stjórn hafi ekki tilskilda menntun.
Sú þróun er þegar farin að veikja
öryggi skips og áhafnar. Vinnu-
skyldan verður meiri, öryggisþjálf-
un áhafnar er ekki fyrir hendi hér á
landi, til samræmis við það sem ger-
ist með öðrum þjóðum, og frítími í
landi styttist hjá sjómönnum á með-
an aðrar stéttir öðlast aukinn or-
lofsrétt og frítíma.
Þessari þróun verður að snúa við
og bæta kjör, lífeyrisrétt og trygg-
ingar sjómanna, það mikið að ungir
menn vilji og þori að gera sjó-
mennsku að ævistarfi.
Aukin tækni og stöðugt fullkomn-
ari og dýrari búnaður í skipum
krefst endurmenntunar skipstjórn-
armanna og starfsþjálfunar sem
tryggir hæfni og öryggi í starfi.
Hin nýupptekna kvótaskipting við
fiskveiðar veikir atvinnuöryggi sjó-
manna stórlega.
Þar sem útgerð stendur höllum
fæti vegna lítils afla versnar afkom-
an enn frekar og það sem verra er,
vonin um betra gengi er einnig frá
mönnum tekin. Þetta getur leitt til
uppgjafar og færslu kvóta milli
landshluta fyrir tilstilli útgerðar-
manna einna, án íhlutunarréttar
skipshafna sem þó hafa öðlast kvót-
ann ekki síður en útgerðin.
Hlutaskiptum milli útgerðar-
manna og sjómanna hefur verið
raskað og nú stefnir i að yfir 40% af
fiskverði verði ráðstafað utan hluta-
skipta til útgerðar til að greiða
ranga fjárfestingu stjórnvalda og
útgerðarmanna á undanförnum ár-
um. Þeim vanda er nú velt yfir á
íslenska sjómenn, sem fá aðeins 4%
fiskverðshækkun þegar hækkun til
útgerðar er talsvert meiri.
Stórfelldar upphæðir er fyrirhug-
að að flytja úr Aflatryggingasjóði
til útgerðar þó svo að lögin um sjóð-
inn heimili ekki slfkt. Þetta gerist
þegar þorskafli minnkar með
ákvörðun stjórnvalda um 30% milli
ára.
Samdráttur í tekjum sjómanna
verður langt umfram það sem er hjá
öðrum stéttum. Þó bjóða fiskkaup-
endur útgerðarmönnum yfirborgan-
ir sem ekki koma til skipta og sjá
þeim fyrir veiðarfærum. Þrátt fyrir
þetta sjá fulltrúar fiskvinnslunnar
við fiskverðsákvörðun ástæðu til að
auka á auma afkomu sjómanna
þetta ár eins og oft áður.
Réttindamál sjómanna í lffeyris-
greiðslum eftir langa starfsævi eru
aðeins fjórðungur af því sem al-
mennt er hjá öðrum stéttum, þar
sem aðeins eru greidd iðgjöld af
hluta launa þeirra til lífeyrissjóð-
anna.
Dánarbætur er nú nema 275 þús-
und krónum og örorkubætur sem nú
eru 826 þúsund krónur þurfa að
hækka stórkostlega frá því sem nú
er og fylgja framvegis hækkun á
framfærsluvísitölu. Bætur fyrir
eignir sjómanna er tapast við sjó-
skaða hafa hvergi nærri fylgt þeim
raunverðmætum sem þeir hafa með
sér um borð.
Sjúkratryggingar þarf að endur-
skoða og auka rétt sjómanna í
sjúkratryggingum auk almennra
líftrygginga er sóttdauða ber að
höndum fyrirvaralaust.
Baráttumál sjómanna um stað-
greiðslukerfi skatta eru lögð til hlið-
ar ár eftir ár af stjórnvöldum. Það
hlýtur óhjákvæmilega að draga að
því, að sjómenn efni til ófriðar á
vinnumarkaði ef ekkert af þeim
réttindamálum sem þeir berjast
fyrir verða lögfest á Alþingi eða'
leyst við samningaborð á jafnréttis-
grundvelli.
Farmanna- og fiskimannasam-
band fslands mun berjast fyrir því
að efla svo samstöðu sjómanna um
sín mál, að lausn verði fundin í
kjara- og réttindamálum íslenskra
sjómanna."
ÁBYRGÐ Á EFNI OG VINNU
Fyrstu Opel-bílarnir voru
smíðaðir 1898. Síðan eru 86
ár og meira en 20 milljónir
Opel-bíla. Reynsla, sem
kemur þér til góða. Reynsla,
sem þú færð í kaupbæti,
þegar þú velur Opel.
HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300 GÆÐAEFTIRLIT MEÐ GÆÐAVÖRUM