Morgunblaðið - 28.02.1984, Blaðsíða 46
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 1984
Æfing eftir
drykkju gagnslaus
Fræðslunefnd Frjálsíþrótta-
sambands íslands hefur nú sent
frá sér annað hefti af ritinu
Tæknimál. Ritstjóri er Ágúst
Ásgeirsson. í ritinu, sem nýkomið
er út, er grein sem þýdd er af
Ágúst um hversu gagnslausar
æfingar séu hjá íþróttamönnum
eftir drykkju. Meö leyfi Ágústs
bírtum við hér grein þessa í heild
sinni.
Áfengir drykkir
hafa neikvæð áhrif:
Finnskir íþróttalæknar hafa
komizt aö þeirri niöurstöðu aö
neyzla áfengra drykkja, sterkra
vína eöa léttra, eöa bjórs, hafi
tvímælalaust neikvæö áhrif á
keppnisgetu og æfingaþrek
íþróttamannsins.
Þjálfun daginn eftir áfengis-
neyzlu sé til einskis, þjálfunaráhrif-
in veröi neikvæð og því sé betra aö
sleppa æfingu alveg daginn eftir
drykkju. Aö þjálfa í þynnku eða
meö timburmönnum brjóti frekar
niöur, á sama hátt og t.d. kvef eöa
sjúkdómur.
Læknarnir segja þynnkuáhrifa
gæta í a.m.k. 20 stundir eftir síö-
asta glas jafnvel þótt íþróttamað-
urinn finni sig stálsleginn. Er þá
miöaö viö „einn tvöfaldan" eöa
2ja—3ja bjóra drykkju.
Dælan daprast
Áfengi eykur blóöstreymi til
húöarinnar og hluti blóömagnsins,
sem ella stuölaöi aö efnaskiptum/-
orkuskiptum í vöövum, því bundiö
þar.
Einnig dregur úr dælistyrk hjart-
ans viö áfengisneyzlu því til aö
skila nægu blóðmagni þyrfti þaö
að dæla 20 slögum fleiri á mínútu
viö erfiöi, jafnvel eftir aðeins einn
bjór.
Aukin mjólkursýra
Viö þjálfun myndast mjólkursýra
í vöövum. Þegar áfengi er í blóöi,
einbeitir lifrin sér aö þvi aö brjóta
þaö niöur og eyöa og „gleymir" því
mjólkursýrunni.
Þess vegna veröur þreytu miklu
fyrr vart þegar áfengi er í blóöinu,
vöövarnir útkeyrast fyrr. Hlutfalls-
lega meiri mjólkursýra myndast í
þynnku og hlutfallsmyndunin nær
hámarki 12—15 tímum eftir áfeng-
isneyzlu.
Áfengi gengur einnig á glýkóg-
enforöa lifrarinnar og veröa vööv-
arnir því af mikilvægum orkuforöa.
Jafnar lifrin sig ekki fyrr en í fyrsta
lagi 2—3 dögum eftir áfengis-
neyzlu.
Og ekki nóg meö það. Áfengiö
getur einnig valdið því aö blóösyk-
urmagniö minnki niöur fyrir eölileg
mörk. Og þar sem einnig gengur á
blóösykurinn viö líkamlegt erfiöi er
Ijóst aö æfing eöa keppni skömmu
eftir áfengisneyzlu er aöeins til aö
draga úr getu.
Hreyfitruflun
Þessu til viöbótar hefur í Ijós
komiö aö jafnvel svo lítill skammt-
ur sem V* prómill áfengis í blóði
veldur truflun á vöövatauga-
kerfinu, en við þaö riölast allt
hreyfisamhæfi (koordination). Lítill
áfengisskammtur veldur spennu-
falli í taugakerfinu sem kemur fram
sem sljóleiki og truflar hreyfi-
brögöin.
Dregur úr árangri
En hversu minnkar afreksgetan
viö neyzlu áfengra drykkja? Þaö er
ugglaust háö neyzlumagni og öðr-
um einstaklingsbundnum þáttum,
en Finnarnir halda því þó fram að
neyzla áfengra drykkja dragi úr af-
reksgetu og æfingaþreki allra
íþróttamanna, þ.e. þeir skaðist all-
ir.
Finnarnir halda því t.d. fram að
tveggja metra hástökkvari geti
ekki stokkiö nema 1,88 metra sé
0,3 prómill áfengis í blóöi, en þaö
er tiltölulega lítiö áfengismagn.
Geta stökkvarans minnkar því um
6% eftir 1 —2 bjóra, segja þeir.
Ágúst Ásgeirsson þýddi
Maradonna
meiddist
REAL Madrid sigraði Barcelona í
deildarkeppninni ?—1 um síö-
ustu heigi. í hálfleik var staöan
1—0. Juanito skoraði fyrsta
markíð á 16. mínútu og Santillana
annað markið á 79. mínútu. Mara-
donna skoraöi eina mark Barce-
lona á 55. mínútu. 90 þúsund
áhorfendur fylgdust með leikn-
um, sem jafnframt var sjónvarp-
að um gjörvallan Spán. Mara-
donna fékk gult spjald í leiknum
þegar hann lét sig falla og reyndi
að leika sig meiddan. En svo kom
að því síðar í leiknum að hann
tognaði í læri og veröur hann frá
æfíngum og keppni í 15 til 20
daga.
Real Madrid hefur forystu í 1.
deildi meö 37 stig, Bilbao er með
33 stig, Barcelona er svo í þriðja
sæti með 31 stig. Real Madrid
þykir vera sigurstranglegasta lið-
ið í deildinni af þessum þremur.
Úrslit leikja á Spáni uröu þessi:
Esp. Barcelona — R. Sociedad 2—2
Valencia — Cadiz 1—1
Malaga — Zaragoza 0—1
Betis — Salamanca 1—0
R. Madrid — Barcelona 2—1
Valladolid — Athl. Madrid 1—2
Gijon — Sevilla 1—0
Murcia — Osasuna 4—0
Athl. Bilbao — Mallorca 4—0
Staða efstu liða:
Real Madrid 25 17 3 5 44 2« 37
Athl. Bilbao 25 14 7 4 42 23 35
Athl. Madrid 25 13 6 6 38 33 32
Barcelona 25 12 7 6 43 23 31
• Maradonna skoraöi eina mark Barcelona um helgina gegn Real
Madrid. Maradonna fékk gult spjald í leiknum fyrir aö reyna aö leika
meiösl eftir að hann lenti í óverulegu samstuði viö mótherja. En síöar
í leiknum tognaði hann á fæti og verður frá æfingum og keppni 115 til
20 daga. Þessi snjalli knattspyrnumaður hefur átt við þrálát meiösl að
stríða á ferli sínum.
• Kristinn Sveinbjörnsson, formaöur UMSK, afhendir Kristínu Gísla-
dóttur, fimleikakonu úr Gerplu, afreksmannabikar UMSK 1983.
Kristín Gísladóttir valin
afreksmaður Kópavogs
Sunnudaginn 12. febrúar var
haldið ársþing Ungmennasam-
bands Kjalarnesþings í Félags-
heimili Kópavogs.
Aöildarfélagar í UMSK eru vel á
sjötta þúsund, sem starfa í 16 að-
ildarfélögum, í sjö sveitarfélögum
nálægt Reykjavík. (Kjósarhrepp-
ur, Kjalarnes, Mosfellshreppur,
Kópavogur, Garðabær, Bessa-
staðahreppur og Seltjarnarnes.)
62 þingfulltrúar áttu sæti á
þínginu og var mæting góð.
Margt bar á góma á þinginu
þar sem fyrst var litið yfir farinn
veg og síöar mörkuð stefna fyrir
komandi ár.
Þingið fjallaöi um fjármál sam-
bandsins, íþróttamót liðins árs,
ásamt félagsmálum, fræöslustarf-
semi, útbreiöslu og skipulagsmál
og starfsemi skrifstofu þess.
Þingiö lýsti yfir ánægju meö
störf sambandsins á liönu ári, sem
var eitt annasamasta starfsár í
sögu þess. Auk íþróttamótanna
bar hæst sumarhátíö þá er UMSK
og HSK höföu samvinnu um. Fór
sumarhátíðin fram um síöustu
verslunarmannahelgi og bar nafnið
„Gaukurinn". Lýsti þingiö ánægju
sinni meö þetta framtak.
Af framtíöarverkefnum bar fyrir-
hugaö landsmót UMFÍ hæst. Voru
menn ákveönir í að gera þátttöku
UMSK sem glæsilegasta.
Þingið samþykkti ályktun um
stórátak í skógræktarmálum á
sambandssvæðinu, þar sem stefnt
er aö því að plantaö veröi a.m.k.
jafnmörgum trjám og ungmenna-
félagar eru margir.
Þingfulltrúar voru ánægöir meö
bókina um sögu UMFÍ, „Ræktun
lýös og lands“, en bókin kom út í
lok síöasta árs.
Ár æskunnar kom til umfjöllunar
þingsins og samþykkt ályktun þess
efnis aö aöildarfélög sambandsins
vinni aö og veki athygli á mark-
miöum Alþjóöaárs æskunnar, eins
og frekast er unnt.
Félagsmálafraeöslu á sam-
bandssvæöinu töldu þingfulltrúar
aö þyrfti aö efla og gera eftirsókn-
arveröari.
Þingiö fór í alla staöi vel fram en
þaö var í umsjón íþróttafélagsins
Gerplu sem einnig sá um góögerö-
ir meö kaffinu.
I hádeginu sátu þinggestir mat-
arboð í boöi bæjarstjórnar Kópa-
vogs. Kristján Guömundsson bæj-
arstjóri afhenti Kristjáni Svein-
björnssyni formanni UMSK sögu
Kópavogs frá 1933—1955.
Einnig voru veittar viöurkenn-
ingar fyrir félags- og íþróttastörf.
Félagsmálaskjöldur UMSK sem
gefinn er af Axeli Jónssyni, var aö
þessu sinni afhentur til varöveislu í
eitt ár Alberti H.N. Valdimarssyni,
fyrir ómæld og óeigingjörn störf í
þágu blakdeildar HK bæöi sem
þjálfari og stjórnarmaöur.
Afreksmaöur Kópavogs var val-
inn Kristín Gísladóttir fimleikakona
úr íþróttafélaginu Gerplu, Kópa-
vogi.
Pálmi Gíslason formaöur UMFÍ
heiöraöi tvo stjórnarmenn UMSK
þá Kristján Sveinbjörnsson form.
og Pál Aöalsteinsson sem í mörg
ár hefur starfaö í stjórn UMSK
bæöi sem formaöur og meöstjórn-
andi, hann var sæmdur gullmerki
UMFÍ.
Auk fundargesta voru eftirtaldir
gestir á þinginu: Pálmi Gíslason,
formaöur UMFÍ, sem ræddi aöal-
lega um landsmót í fortíö og nútíö,
einnig kom frá UMFj Siguröur
Geirdal, framkvæmdastjóri UMFÍ.
Sveinn Björnsson forseti ÍSÍ ræddi
m.a. um fjármál íþróttahreyfingar-
innar og upplýsti þingheim um nýja
fjáröflunarleiö sem Getraunir eru
hugsanlega aö fara útí, svokallaö
„Lotto“.
Hermann Guömundsson fram-
kvæmdastjóri (Sí.
Reynir Karlsson íþróttafulltrúi
ríkisins fjallaöi um íþróttamann-
virki. Níels Árni Lund æskulýös-
fulltrúi ríkisins fjallaöi um ár æsk-
unnar. Axel Jónsson fyrrv. formaö-
ur UMSK og afreksmaöur fjallaöi
um störf UMSK á árunum áöur og
hvatti sambandið til dáöa á kom-
andi landsmóti.
Stjórnarkjör
Kristján Sveinbjörnsson var
endurkjörinn formaöur, aörir í
stjórn voru kjörnir: Sveinn Jó-
hannsson UBK, Jóhannes Svein-
björnsson Umf. Stjarnan, Vilhjálm-
ur Einarsson UBK, Katrín Gunn-
arsdóttir Umf. Stjarnan.
í varastjórn voru kjörnir: Páll
Aöalsteinsson Umf. Afturelding,
Eiríkur Davíösson Umf. Drengur,
Kristinn G. Jónsson Umf. Kjalnes-
ingur.
Fréttatilkynning.
íslandsmót fatlaðra
ÍSLANDSMÓTIN í boccia, borð-
tennis, sundi, lyftingum og bog-
fimi 1984 fara fram í Reykjavík
dagana 6.—8. apríl nk. Keppt
verður í eftirtöldum skaðahópum:
hreyfihamlaðir, blindir og sjón-
skertir, þroskaheftir og heyrnar-
lausir. Þátttökutilkynningum ber
að skila til íþróttasambands fatl-
aðra í síöasta lagi 6. mars nk. Þar
er eínnig unnt að fá allar nánari
upplýsingar um mótið.