Morgunblaðið - 28.02.1984, Qupperneq 48
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 1984
Forysta Liverpool jókst
liðið sigraði
sætið á ný.
Frá Bob Hennessy, fréttamanni
Morgunblaðsins í Englandi og AP.
LIVERPOOL er komíö meö fjög-
urra stiga forskot á toppi ensku 1.
deildarinnar eftir leiki helgarinn-
ar. Liðið sigraði QPR 2:0 á Anfield
og Nottingham Forest tapaöi
heima 0:1 fyrir Arsenal. Man-
chester United sigraði Sunder-
land og er nú komið í annað sæt-
ið á ný. Sigur Liverpool á QPR var
öruggur en bæöi lið léku mjög
vel. Lundúnaliðið var heppið aö
tapa ekki með meiri mun: Peter
Hucker varöi vítaspyrnu frá Phil
Neal undir lok leiksins.
„Leikmenn QPR léku frábæra
knattspyrnu í dag — ég var
lafhræddur í hvert skipti sem þeir
komust fram völlinn,” sagði Joe
Fagan framkvæmdastjóri Liver-
pool eftir leikinn. Þaö vakti hvaö
mesta athygli viö leikinn hve illa
landsliösbakveröinum Phil Neal
gekk aö stööva lan Stewart vinstri
útherja Rangers. „Phil átti enga
möguleika gegn honum. Stewart
var mun betri — þaö gerist ekki
oft aö Neal mæti ofjarli sínurn,"
sagöi Fagan.
lan Rush skoraöi fyrra mark Liv-
erpool á áttundu mín., 32. mark
hans á tímabilinu og það 21. í
deildinni. Hann stakk tvo varnar-
menn af á ógnarhraöa og skoraöi
meö föstu vinstri fótar skoti. Á 54.
mín. gerði Michael Robinson út um
leikinn er hann skoraði síöara
mark liösins.
Liverpooi-liöiö lék á miklum
hraða í seinni hálfleiknum og fékk
þá nokkur góö marktækifæri.
Undir lok leiksins var dæmt víti á
Gary Waddock fyrir brot á Robin-
son. Neal framkvæmdi vítaspyrn-
una en Hucker varöi eins og áöur
sagði. „Viö verðum að fara aö gera
eitthvaö í þessum vítaspyrnumál-
um. Enginn minna manna viröist
hafa kjark til aö taka víti. Og ég
gæti jafnvel þurft á fimm vítaskytt-
um aö halda í Evrópuleikjunum
gegn Benfica," sagöi Fagan. Liver-
pool mætir portúgalska liöinu
Benfica fljótlega í Evrópukeppni
meistaraliöa. Áhorfendur á Anfield
voru 32.206.
Moran með tvö
Lee Chapman náöi mjög óvænt
forystu fyrir Sunderland gegn
Manchester United á Old Trafford
strax á fyrstu mínútum leiksins og
eftir markiö lagöist Sunderland-
liöiö í vörn. Þeir héldu þó ekki út:
Kevin Moran skoraöi jöfnunarmark
United á 41. mín. og hann gerði
einnig stöara mark liösins. Þaö
kom á 47. mín. meö skalla. Moran
snéri sig á ökkla undir lok leiksins
og fór af velli er fjórar mínútur voru
eftir. Var honum klappaö lof í lófa
er hann gekk útaf. Moran hefur nú
gert sjö mörk í vetur, ekki svo
slæmt hjá miðveröi.
„Viö yfirspilum mótherja okkar
leik eftir leik en viö veröum aö fara
aö spila skipulegar,“ sagöi Bryan
Robson, fyrirliöi Manchester Un-
ited á eftir. „Viö veröum aö fara aö
leika meira eftir höföinu — ekki
eins mikið meö hjartanu og viö
gerum venjulega." Áhorfendur á
Old Trafford vilja sjá stööuga sókn
síns liðs — heimta aö leikiö sá á
fullri ferö allan tímann. Þaö sem
leikmenn United þurfa aö gera í
vissum tilfellum er aö hægja á og
láta boltann ganga manna á milli
úti á vellinum í rólegheitum —
þreifa fyrir sér. Þaö geta þeir yfir-
leitt ekki: áhorfendur heimta stöö-
uga atlögu aö marki andstæöings-
ins. Áhorfendur á Old Trafford
voru fleiri en á nokkrum öörum leik
aö venju: 40.615.
QPR örugglega. United komst í annað
Forest tapaði heima fyrir Arsenal
Morgunblaðíð/Símamynd AP.
• Alistair Dick, framherjinn ungi hjá Tottenham, skýtur hór að marki Birmingham á White Hart Lane á
laugardag. Hann hafði ekki erindi sem erfiði í leiknum frekar en samherjar hans.
1. deild
Aston Villa — Wolves 4—0
Leicester — Ipswich 2—0
Liverpool — QPR 2—0
Man. United — Sunderland 2—1
Norwich — Weet Ham 1—0
Nott. Forest — Arsenal 0—1
Southampton — Luton 2—1
Stoke — Notts County 1—0
Tottenham - - Birmingham 0—1
Wattord — Everton 4—4
WBA — Coventry 1—1
Staðan
Liverpoot 29 17 8 4 47 20 59
Man. United 29 15 10 4 54 31 55
Nott. Foreat 29 16 5 8 54 33 53
Waat Ham 29 15 5 9 46 31 50
Southampton 28 14 7 7 35 24 49
QPR 28 14 4 10 45 26 46
Norwich 29 11 9 9 34 32 42
Watford 29 12 5 12 56 54 41
Tottenham 29 11 8 10 46 45 41
Aaton Villa 28 11 8 9 43 42 41
Luton 28 12 4 12 42 43 40
Coventry 28 10 9 9 38 37 39
Arsenal 29 11 5 13 44 40 38
Everton 27 9 9 9 25 31 36
Birmingham 28 9 6 13 28 33 33
Sunderland 28 8 9 11 28 39 33
Ipawich 28 9 5 14 36 40 32
Leiceater 28 8 8 12 44 49 32
Wett Bromwich 28 9 5 14 31 46 32
Stoke 29 7 8 14 27 49 29
Notta County 28 s 6 17 36 58 21
Wotverhampton 28 4 7 17 22 58 19
Ekki avo slæmt ti
„Þetta er ekki svo slæmt hjá
okkur ef tillit er tekiö til þess hve
fámennur hópurinn er hjá okkur.
Ef tveir menn meiöast eru vand-
ræöi meö aö koma saman liöi,“
sagöi gamla kempan Mike Chan-
non eftir aö Norwich haföi sigraöi
West Ham meö einu marki gegn
engu á heimavelli sínum, Carrow
Road. Norwich hefur leikiö mjög
vel aö undanförnu og sennilega fá-
ir jafn vel og Channon. Þaö var
John Deehan sem skoraöi eina
mark leiksins þrettán mín. fyrir
leikslok eftir aö Steve Walford
haföi mistekist aö hreinsa frá
marki West Ham. Phil Parkes í
marki Lundúnaliösins varöi nokkr-
um sinnum mjög vel í leiknum og
geta leikmenn West Ham þakkaö
honum fyrir aö tapiö varö ekki
stærra. John Lyall sagöi aö flestir
þeirra leikmanna sem hafa veriö
meiddir aö undanförnu séu aö ná
sér. „Þeir veröa fljótlega tilbúnir aö
leika," sagöi hann. Áhorfendur
voru 16.294.
Fyrsta mark Mariner
Paul Mariner skoraði sitt fyrsta
mark fyrir Arsenal á laugardag í
Nottingham og þaö dugði til sigurs
gegn Forest. Markiö skrifast al-
gjörlega á reiknlng Hans Van
Breukelen, Hollendingslns í marki
Forest. David O'Leary sendi langa
sendingu inn á vítateig, Breukelen
hikaöi — beiö á marklínunni í staö
þess aö fara á móti og taka knött-
inn — og Mariner var ekki í vand-
ræöum meö aö skora. Haföi nógan
tíma til aó athafna sig, taka bolt-
ann niður og renna honum í mark-
iö. Hann skoraöi á síöustu sekúnd-
um leiksins.
Þaö kom mönnum mjög á óvart
aö Arsenal lék stífan sóknarleik aö
þessu sinni. Kenny Sansom tók
virkan þátt í sókninni vinstra meg-
in og hinir varnarmennirnir fóru
iöulega fram til aðstoðar. Nokkuö
sem ekki er allt of algengt á þess-
um bæ. Áhorfendur á City Ground
voru 20.045.
„Slátruðu okkur“
„Þeir slátruöu okkur algjörlega.
Nú er virkileg lífsbarátta framund-
an,“ sagði Graham Hawkins, fram-
kvæmdastjóri Úlfanna, eftir 0:4 tap
liösins gegn Aston Villa á Villa
Park. Þetta var fyrsti sigur Villa í
deildinni á þessu ári. Peter Withe
geröi fyrsta markiö á 22. mín. og
bætti svo ööru viö á 60. mín. Hann
hefur þá gert 18 mörk i vetur. Paul
Birch geröi þriöja markiö á 61.
mín. og Mark Walters, sem kom
inn á sem varamaður, skoraöi
fjóröa mark leiksins meö stór-
glæsilegu skoti á síöustu mínút-
unni. Áhorfendur: 18.257.
Mark Chamberlain skoraöi eina
mark leiksins er Stoke vann Notts
County. Áhorfendur voru 11.725.
Williams frábær
Bobby Robson, landsliösþjálfari
Englands, fylgdist meö leik South-
ampton og Luton. Steve Williams
gat ekki gert meira en hann geröi
til aö sannfæra Robson um aö
hann ætti skilið sæti í landsliöinu
gegn Frökkum í París annaö kvöld.
Williams átti frábæran leik á miöj-
unni hjá Southampton. Þaö var
eftir sendingu Williams sem Mark
Wright — annar „landsliöskandí-
dat“ — skoraöi fyrsta mark leiks-
ins meö fallegum skalla á 32. mín.
Skömmu fyrir leikhlé geröi David
Armstrong annaö mark heimaliðs-
ins. Southampton sótti mjög í
seinni hálfleik en vörn Luton gaf
ekkert eftir. Mal Donaghy geröi
eina mark gestanna meö skalla
einni mín. fyrir leikslok. Áhorfend-
ur voru 17.947. Mark Wright, miö-
vöröur Southampton, meiddist
undir lok leiksins og Ijóst er aö
hann veröur ekki í enska lands-
liöshópnum á morgun gegn Frökk-
um. Hann varö aö draga sig úr
hópnum vegna meiöslanna.
mm
„Lékum hræðilega..."
„Viö lékum hræðilega illa. Ég vil
líkja knattspyrnunni sem við sýnd-
um í dag viö gamlan bjór — hún
var hroöalega bragödauf!" sagöi
Keith Burkinshaw framkvæmda-
stjóri Tottenham eftir aö liðiö haföi
tapaö meö einu marki gegn engu
gegn Birmingham á heimavelli sín-
um, White Hart Lane í London.
„Þetta var versti leikur okkar í
langan tíma. Leikmenn mínir
reyndu ekkert til þess aö ná upp
stemmningu í liöinu og húrra hvern
annan upp,“ sagöi Keith. Leik-
menn Tottenham voru mun meira
meö knöttinn en þaö var Mick Har-
ford sem skoraöi eina mark leiks-
ins á 65. mín. og tryggöi Birming-
ham þar meö öll stigin. Leikurinn
var annars leiöinlegur. Áhorfendur
voru 23.564, þar á meðal „njósnar-
ar“ frá þremur ítölskum Félögum:
Inter Milano, Roma og Verona.
Þeir voru aö skoöa Steve Archi-
bald en sáu fátt markvert. Hann
átti lélegan.
Fyrsta stig Giles
WBA fékk sitt fyrsta stig síöan
Johnny Giles tók viö stjórninni á
The Hawthorns á ný. Nicky Cross
skoraöi fyrir Albion á 48. mín. og
næstu 20 mínúturnar var stórsókn
aö marki Coventry. Albion náöi þó
ekki aö skora og Terry Gibson
jafnaöi fyrir Coventry áöur en yfir
lauk. Áhorfendur: 10.900.
Ekkert lát er á vandamálunum
hjá Ipswicn — um helgina tapaöi
liðiö fyrir Leicester á útivelli. Alan
Smith skoraöi í þann mund er
blásið var til leikhlés og eftir aö
Mark Wallington haföi þrívegis
varið sérlega vel í Leicester-
markinu gulltryggöi John O’Neill
sigurinn fjórum mín. fyrir leikslok.
Áhorfendur voru 11.399.
Wednesday aftur
á toppinn
Sheffield Wednesday komst á
ný í efsta sæti 2. deildar eftir sigur
á Brighton 2:1. Bannister og Var-
adi geröu mörk Wednesday en
O'Reagan eina mark Brighton.
Chelsea missti dýrmætt stig til
Carlisle og Grimsby, sem komiö
hefur mest á óvart í deildinni í vet-
ur, sigraöi Crystal Palace í London
0:1 meö marki Ford. Chris Waddle
og Kevin Keegan 2 (1 víti) skoruðu
fyrir Newcastle. Keegan hefur gert
21 mark í vetur — Kerry Dixon hjá
Chelsea 23. Þess má geta aö
áhorfendur á St. James Park í
Newcastle voru 27.909 og 21.614
manns sáu leik Wednesday og
Brighton.
—SH.
Frásögn af leik
Watford og Everton
er á bls. 27
• Phil Neal (t.h.) skorar hér úr vítaspyrnu gegn QPR á Anfield fyrir nokkrum árum. Honum bráat bogalistir.
á sama stað gegn sama liöi um helgina. Peter Hucker varði spyrnu hans.