Morgunblaðið - 28.02.1984, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 1984
39
Guðlaug Narfa-
dóttir - Minning
Kædd 8. október 1897
Dáin 14. rebrúar 1984
Guðlaug er farin yfir móðuna
miklu eftir mikið og fórnfúst starf
og langan starfsaldur því hún var
fædd 1897 í Hafnarfirði og ólst
þar upp.
Guðlaug var tvígift, fyrri eigin-
maður hennar var Halldór
Backmann Jónsson járnsmiður og
eignuðust þau tvo syni, ólaf
Backmann sem er raffræðingur og
býr ásamt konu sinni, Huldu Haf-
liðadóttur ættaðri úr Biskups-
tungum, í Kaliforníu. Hinn sonur-
inn er Halldór Backmann vél-
meistari á Akureyri kvæntur
Önnu Guðmundsdóttur ættaðri
frá Reyðarfirði. Mann sinn missti
Guðlaug 1921 en giftist öðru sinni
1926 síðari eiginmanni sínum,
Hirti Níelssyni frá Bjarneyjum á
Breiðafirði.
Þau Guðlaug og Hjörtur eignuð-
ust fimm börn: Guðjón verk-
smiðjustjóra á Álafossi, Magnús
bifreiðastióra, Narfa kaupmann,
Ingveldi Astu húsmóður og Sigur-
þór rafvirkja. Síðari mann sinn
missti Guðlaug 1970.
Þetta er mikil upptalning og því
mikið starf húsmóðurinnar og
margri konunni væri nóg að ann-
ast það sem öllu þessu fylgdi sem
nú hefur verið skráð, en Guðlaug
var sterk dugnaðarkona og ein af
þeim sem alltaf áttu nægan tíma
til alls, sem hún tók sér fyrir
hendur en það var margvíslegt.
Hún starfaði mikið að bindind-
ismálum og fleiri voru félagsmálin
sem hún tók þátt í og svo mörg að
ég kann ekki upp að telja, en hún
var þessi sérstaki persónuleiki
sem gekk að hvaða starfi óskipt og
virtist aldrei skorta tíma, sem við
nútímamenn skiljum hæpið með
allt okkar stress og tímaleysi.
Ég átti því láni að fagna að
kynnast Guðlaugu því ég trúlofað-
ist hennar ágætu dóttur, Ingveldi
Aðalfundur Kvenstúdenta-
félags Islands og Félags
íslenskra háskólakvenna
AÐALFUNDUR Kvenstúdentafé-
lags fslands og Félags íslenskra há-
skólakvenna var haldinn 18. febrúar
sl. í veitingahúsinu Torfunni. Frá-
farandi formaður, Arndís Björns-
dóttir, flutti skýrslu um starfsemi fé-
lagsins á síðasta ári og fráfarandi
gjaldkeri, Inga Dóra Gústafsdóttir,
gerði grein fyrir reikningum félags-
ins, sem samþykktir voru athuga-
semdalaust.
Stykkishólmur:
Samgöngur
fóru úr skorðum
StjkkUbólnii, 24. rebrúar.
SAMGÖNGUR hafa færst hér mjög
úr skorðum undanfariö. Tíðarfarið
hefir verið misvindasamt, skifst á
skini og skúrum, jeljum og blindbyl. í
gær varð að fella niður áætlunarferö-
ir frá Reykjavík og vestur á Snæ-
fellsnes og í fyrrakvöld komst billinn
sem átti að fara suöur um kvöldið
ekki nema frá Hellissandi og til
Ólafsvíkur og varð þar innlyksa í snjó
og snjóbyl, enda þá versta veður og
tjón af skriðufóllum í Ólafsvík.
Áætlunarbíllinn komst því ekki
til suðurferðar úr Hólminum fyrr
en kl. 6 í gærkvöldi.
Kerlingarskarð er enn ófært og
hefir ekki verið mokað. Símalínur
hafa slitnað þar og orðið að fara á
vélsleða til viðgerða. Vörubíll lát-
inn fara með sleðann upp undir
fjall til að stytta leiðina. I gær var
farin ein slík viðgerðarferð og var
töluvert að gera við á þeirri leið.
Nú líður að því að símalínan sem
liggur um Kerlingarskarð verði
tekin úr notkun og víki fyrir nýju
fjölsímakerfi. Er vonast til að
þetta geti orðið að veruleika hvern
dag. Mun það verða til mikilla þæg-
inda auk þess að þá þarf ekki að
óttast bilanir sem erfitt er að leita
að og gera við í hvernig veðri sem
er.
Símalínan um Kerlingarskarð
hefir þjónað þessu byggðarlagi
dyggilega í yfir 70 ár en víkur nú
fyrir tækninni eins og fleira í
okkar nútímaþjóðfélagi. Staurarn-
ir verða svo fjarlægðir og mun
sjálfsagt mörgum íbúum bregða og
þeir einnig sem sakna þess að sjá
ekki þessa gömlu vegvísa á förnum
vegi, enda er það staðreynd að þeir
urðu til að hjálpa mörgum í
dimmviðri til að komast yfir fjall-
ið.
Fréttaritari.
Fyrir lá að kjósa þrjár konur i
stjórn Félags isl. háskólakvenna
og eina til vara, sem jafnframt
yrðu þá stjórnarkonur í Kvenstúd-
entafélaginu.
Formaður var kosinn Þórey
Guðmundsdóttir, varaformaður
Arndís Björnsdóttir, meðstjórn-
andi Geirlaug Þorvaldsdóttir og
til vara Erla Þórðardóttir.
í stjórn Kvenstúdentafélags fs-
lands voru kosnar, auk þeirra er
áður er getið, Guðlaug Konráðs-
dóttir, Hildur Bjarnadóttir, Sig-
ríður Guðmundsdóttir, Ragnheið-
ur Ágústsdóttir og til vara Erla
Þórðardóttir og Bergþóra Krist-
insdóttir.
í kvenréttindanefnd voru kosn-
ar: Inga Dóra Gústafsdóttir,
Ragnheiður Ágústsdóttir og
Bergljót Ingólfsdóttir.
Endurskoðendur voru kosnir
Inga Dóra Gústafsdóttir og Erna
Erlendsdóttir.
Hildur Eyþórsdóttir var kjörin
til að sjá um spjaldskrá félagsins
og fulltrúi félagsins hjá Unicef er
áfram Erla Elín Hansdóttir og til
vara Brynhildur Kjartansdóttir.
Ákveðið er að halda hádegis-
verðarfund í marsmánuði og verð-
ur hann auglýstur síðar, svo og
efni það sem tekið verður til með-
ferðar á fundinum.
(Frétutilkynning)
Ástu og eignuðumst við einn
dreng, Richard Heimir, hver
drukknaði á barnsaldri og var það
okkur Ingveidi mikil sorg, en þar
hefur tregi Guðlaugar ekki verið
minni því að hún var tilfinninga-
kona. Ég sagði það hér fyrr að ég
hefði haft þeirri hamingju að
fagna, að kynnast Guðlaugu, en þá
var það svo eins og er oft um mæt-
ar konur og karla, að maður er of
unggæðislegur og þykist vita allt
betur heldur en eldra og reyndara
fólk. Ég skildi ekki þá, að hún vissi
meira um ofdrykkju, sem aldrei
hafði sjálf drukkið áfengi, en ég
sem þá var orðinn ofdrykkjumað-
ur, þó ég gerði mér varla fulla
grein fyrir því, en þetta vildi verða
leiðinlegur ágreiningur hjá okkur.
En svo er Guði fyrir að þakka þó
að seinna yrði, að við áttum eftir
að sættast að fullu á þessum mis-
skilningi og var það fyrir tilefni
sem Guðlaug átti frumkvæði að og
mér entist líf til að kunna að meta
hana að verðleikum.
Verkalýðsmál lét hún líka til sín
taka og hún var bóndakona í sveit
í mörg ár, já alltaf nógan tíma,
meira að segja til að létta geðið
með því að setja saman vísur því
að mínu mati var hún hagyrðingur
góður og kjarkurinn hefur
snemma sagt til sín því það hefur
þurft kjark fyrir unga stúlku að
ráðast í riti á móti Sigurði Nordal
og var hún þá að verja íslenskar
sveitakonur og fór hún af hólmi
með meiri glæsibrag en hann.
Eitt var það í fari Guðlaugar, að
hún var mjög dulræn kona en ég
ætla mér ekki að fara nánar út í
það.
Hér ætla ég að enda þessi fá-
tæklegu orð mín þó svo að mikið
væri meira hægt að segja um Guð-
laugu, en ég mun alltaf bera
þakklæti í brjósti fyrir að hafa
fengið að kynnast henni. Það eru
verðmæti sem ekki er hægt að
mæla í peningum og ég bið Guð að
blessa ættingja hennar og sendi
þeim mínar samúðarkveðjur.
Guð blessi okkur öllum minn-
ingu hennar og hvíli hún í friði.
Ásgeir H.P. Hraundal
t
Eiginkona mín, móöir okkar, tengdamóöir og dóttir,
VIKTORÍA KOLBEINSDÓTTIR,
verður jarösungin frá Fossvogskirkju miövikudaginn 29. febrúar kl.
10.30
Jóhannea Markússon,
Kolbeinn Jóhannesson, Kristín Árnadóttir,
Helga Jóhannesdóttir, Ingileif Gísladóttir,
Ingileif Jóhannesdóttir,
Edda Jóhannesdóttir.
t
Jaröarför móöur okkar, tengdamóöur, ömmu og langömmu,
INGUNNAR ÞORLEIFSDÓTTUR
frá Eskifiröi,
Tómasarhaga 41,
fer fram frá Neskirkju miövikudaginn 29. febrúar kl. 15.00.
Lovísa Eiríksdóttir,
Sveinbjörg Eiríksdóttir,
Sigrlöur Eirlksdóttir,
Höröur Eiríksson,
Þorleifur Eiríksson,
Jón Þorsteinsson,
Lárus Þorvaldsson,
Arnþór Þórólfsson,
Sigrún Guömundsdóttir,
Móeiöur Siguröardóttir,
barnabörn, barnabarnabörn.
t
Maöurinn minn,
KJARTAN HJÁLMARSSON,
Eyvindarstööum, Álftanesi,
veröur jarösunginn í Kristskirkju Landakoti miövikudaginn 29.
febrúar kl. 13.30.
Blóm afþökkuö en þeim er vildu minnast hans er bent á
Hjartavernd.
Fyrir hönd aöstandenda,
Vilhelmína Einarsdóttir.
t
Þökkum af alhug öllum þeim sem veittu okkur samúö og styrk á
þessum erfiöu dögum, vegna fráfalls sonar okkar og bróöur,
DANÍELS VALGEIRS STEFÁNSSONAR.
Eimskipafélagi islands og séra Önundi Björnssyni þökkum viö
alveg sérstaklega.
Hulda Jakobsdóttir,
Marteinn Stefánsson,
Stefán Stefánsson,
Linda Björk Stefánsdóttir
Arnar Stefánsson,
Hulda Bergrós Stefánsdóttír,
Hjalti Þór Stefánsson.
Stefán Valdimarsson,
Ásgeróur Helgadóttir,
Inga Ólafsdóttir,
og synir,
Kristín Þorsteinsdóttir,
t
Þökkum af alhug auösýnda samúö og vináttu viö fráfall eigin-
manns míns og fööur okkar,
MAGNÚSAR PÉTURSSONAR,
fyrrverandi lögreglumanns.
Vilborg Eiríksdóttir,
Andrés, Björn og
Pátur Magnússynir,
tengdadœtur og barnabörn.
t
Þökkum innilega auösýnda samúö og hlýju viö andlát og útför
hjartkærs eiginmanns míns,
KRISTJÁNS SCHRAM,
fyrrverandi skipstjóra,
Vesturgötu 36B,
Lára Schram
og fjölskylda.
t
Ástkær eiginmaöur minn og faðir,
HAFSTEINN HEIÐAR HAUKSSON,
Þrastanesi 7,
veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni miövikudaginn 29. febrúar kl.
15.00.
Fyrir hönd foreldra, tengdaforeldra og annarra ástvina,
Hallveig Sveinsdóttir,
Þorbjörg Ragna Hafsteinsdóttir.
t
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og
útför konu minnar, móöur okkar, tengdamóöur og ömmu,
GUORÚNAR GUÐMUNDSDÓTTUR,
Fögrukinn 25.
Fyrir hönd vandamanna,
Jón Arnórsson.
t
Þökkum innilega samúö og vinarhug viö andlát og útför
SVEINS INGIMUNDARSONAR,
Stöövarfiröi.
Guölaug Sigurbergsdóttir,
Jón Sveinsson, Helga Haraldsdóttir,
Anna María Sveinsdóttir, Hrafn Baldursson,
Antonía Sveinsdóttir, Valur Kristjánsson.
t
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vináttu viö andlát og
útför eiginmanns mins, fööur okkar, tengdafööur, bróöur og afa,
SIGURDAR JÚLÍUSSONAR.
Sigríóur Gísladóttir,
Júlíus Sigurósson, Lilja Jónsdóttir,
Brynhildur Siguröardóttir,
Gísli Sigurösson,
systkini og barnabörn.