Morgunblaðið - 28.02.1984, Blaðsíða 38
46
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 1984
Helgi og Jóhann náðu áföngum að stórmeistaraáfanga
JÓHANN Hjartarson og Helgi
Ólalsson ásamt gömlu kempunni
Samuel Reshevsky sigruðu á XI.
Reykjavíkurskákmótinu, sem lauk á
sunnudag. Og ekki nóg með það —
Helgi og Jóhann náðu áfanga að
stórmeistaratitli. Helgi sínum fyrsta,
Jóhann öðrum áfanganum á skömm-
um tíma. Það var glæsilegur endir á
glæsilegu móti; mótinu þar sem ís-
lenzkir skákmenn slógu eftirminni-
lega í gegn og undirstrikaði hina
miklu sókn, sem á sér stað í íslenzku
skáklífi. Margeir Pétursson og Jón
L. Árnason fylgdu sigurvegurunum
fast á eftir. Höfnuðu í 4.—6. sæti
ásamt Harry Schiissler með V/i vinn-
ing og Karl Þorsteins náði sínum
fyrsta áfanga að alþjóðlegum meist-
aratitli.
Fyrir sigur sinn fengu sigurveg-
arnir hver liðlega 100 þúsund
krónur í verðlaun, eða 3.600 doll-
ara hver. Og fyrir 4.-6. sætið
fengu Margeir, Jón L. og Schússler
liðlega 30 þúsund krónur hver.
Já, ungu mennirnir okkar stóðu
sig vel. Með sigri sínum skráðu
þeir Jóhann og Helgi nöfn sín við
hlið Friðriks Ólafssonar og Guð-
mundar Sigurjónssonar, sem sig-
urvegarar á Reykjavíkurskákmóti.
Og í fyrsta sinn í átta ár urðu
íslenzkir skákmenn hlutskarpastir
á Reykjavíkurskákmótinu. Friðrik
ólafsson hefur þrívegis sigrað, —
1966, 1972 og 1976, og Guðmundur
Sigurjónsson einu sinni, árið 1970.
Mikið fjölmenni var á Hótel
Loftleiðum um helgina, bæði á
laugardag og sunnudag. Bílafjöld-
inn fyrir framan hótelið eins og á
landsleik í knattspyrnu. Bekkur-
inn var því þröngt setinn. Áhorf-
endur beinlínis sprengdu utan af
sér hótelið og aðstæður því slæm-
ar, mikill hiti og kliður í skáksal.
Skákskýringar voru frammi á
gangi og í ráðstefnusal. Alls stað-
ar var yfirfullt og margir áttu í
erfiðleikum með að fylgjast með.
En menn létu sér þetta lynda —
fylgdust spenntir með frábærum
árangri íslenzku skákmannanna.
Fyrir síðustu umferðina áttu
fjórir skákmenn möguleika á að
bera sigur úr býtum. Jóhann
Hjartarson, Helgi Ólafsson og
Samuel Resevsky voru allir með
7% vinning og Margeir Pétursson
með 7 vinninga. Jóhann samdi
Mikið fjölmenni var í ráðstefnusalnum þar sem skákir voru skýrðar.
Morgunblaðið/Friðþjófur.
verð
„Eins og vín —
betri með árunum“
— sagði Reshevsky eftir að hafa borið sigur úr býtum á Reykja-
víkurskákmótinu ásamt Jóhanni Hjartarsyni og Helga Ólafssyni
fljótlega jafntefli við Geller hinn
sovéska og Helgi og Reshevsky
einnig. Margeir fékk þægilegri
stöðu gegn stórmeistaranum Ree,
en tókst ekki að knýja fram sigur
þrátt fyrir að skákin hefði farið í
bið. Varð að sætta sig við jafntefli.
Þeir urðu því þrír efstir og jafnir
— Jóhann, Helgi og Reshevsky.
„Allir geta teflt upp á
sigur — örfáir jafntefli“
Jóhann tefldi af öryggi gegn
Geller og þeir sömdu fljótlega
jafntefli. Á laugardag tefldi Jó-
hann æsispennandi skák við Helga
Ólafsson og var þá ekki í neinum
jafnteflishugleiðingum, en varð að
lúta í lægra haldi eftir að hafa
fórnað drottningu fyrir hrók og
léttan mann. „Hinn kunni skák-
maður Lasker sagði einhverju
sinni, að allir gætu teflt upp á sig-
ur, örfáir upp á jafntefli," sagði
Jóhann Hjartarson þegar blaða-
maður spurði hvers vegna hann
hefði ekki teflt rólegar gegn
Helga, teflt upp á jafntefli.
„Eg er ánægður með tafl-
mennsku mína í mótinu og þessi
árangur kom mér jafn mikið á
óvart og árangurinn í skákmóti
Búnaðarbankans. Ég tel að á
næstu 4 til 5 árum eigum við að
geta eignast fjóra til fimm stór-
meistara," sagði Jóhann Hjartar-
son.
„Skáksprenging“
„Ég held að ísland hafi alla
burði til að verða stórveldi i
skákheiminum. Raunar má segja
að skáksprenging hafi átt sér stað
— ungu skákmennirnir fimm hafa
náð að blómstra. Þá á ég við Jó-
Þrjár spennuskák-
ir úr lokabaráttunni
Skák
Margeir Pétursson
8. umferð:
Með sigri sínum yfir hollenska
stórmeistaranum Ree náði Jóhann
Hjartarson því ótrúlega háa hlut-
falli 7 v. af 8 mögulegum. Þó hann
hlyti aðeins einn vinning úr þrem-
ur síðustu skákunum dugði það
honum til efsta sætis og stór-
meistaraárangurs. Skákin við Ree
var sérlega glæsileg og hefði mjög
líklega hlotið fegurðarverðlaunin
á mótinu hefðu slík verðlaun verið
veitt:
Hvítt: Ree (Hollandi)
Svart: Jóhann Hjartarson
Drottningarbragð
1. d4 — Rf6, 2. c4 — e6, 3. Rf3 —
d5, 4. Bg5 — Be7, 5. Rc3 — h6, 6.
Bh4 — 0-0, 7. Dc2!?
Ree reynir að rugla Jóhann í
ríminu með óvenjulegri leikjaröð
7. e3 er algengara.
7. — b6, 8. Bxf6 — Bxf6, 9. e4 —
Rc6
Hartnær þvingað því 9. — dxe4,
10. Dxe4 — c6,11. Bd3 gefur svört-
um ekkert mótspil.
10. 0-0-0 — dxe4, 11. Dxe4 — Bb7,
12. h4 - Hb8I, 13. Bd3?
Eins og Ree viðurkennir með 15.
leik sínum er þetta röng áætlun
því sóknarfæri hvíts eftir skálín-
unni bl-h7 eru tálsýn. Mun
sterkara var 13. De3! og hvítur
stendur betur.
13. — g6, 14. Dg4 — Bg7, 15. Be2
Upprunaleg áætlun hvíts hlýtur
að hafa verið að leika 15. h5 — g5,
16. De4, en nú sér hann að eftir 16.
- He8, 17. Dh7+ - Kf8 kemst
hann ekki lengra áleiðis.
15. — Re7, 16. h5 — g5, 1. Re5 —
Rf5, 18. Bf3 — c5I!
Afar djúphugsaður leikur sem
við fyrstu sýn virðist bjóða hætt-
unni heim.
19. dxc5 — Dc7, 20. Rd7 — Bxc3,
21. bxc3 - dxc5, 22. Rxf8?
Meiri varnarmöguleika gaf 22.
Rxb8 því þá er sá hrókur a.m.k.
fjarlægður úr sókninni. Nú stend-
ur ekki steinn yfir steini í hvítu
stöðunni.
22. — Da5!, 23. Kd2 — Rd4!, 24.
Kel — Rxf3+, 25. Kfl
Örvænting, en 25. gxf3 mátti
svara með 25. — Dxc3+, 26. Ke2 —
Bxf3+!, 27. Dxf3 - Hb2+.
25. — Da4!, 26. Hd6 — f5! og hvítur
gafst upp.
Bandaríski alþjóðameistarinn
Nick deFirmian ríður ekki feitum
hesti af landi brott þó hann hafi
lengi verið I forystu á bæði Búnað-
arbankamótinu og Reykjavikur-
skákmótinu. Á hinu síðarnefnda
hafði hann hlotið 5% vinning úr
sex fyrstu skákunum og var einn
efstur en tapaði þá fyrir Jóhanni.
í næstu umferð á eftir hugðist
hann rétta hlut sinn, en yfirkeyrði
sig á því að tefla til vinnings:
Hvítt: deFirmian (Bandaríkjunum)
Svart: Margeir Pétursson
Sikileyjarvörn
1. e4 — c5, 2. Rf3 — Rc6, 3. d4 —
cxd4, 4. Rxd4 — g6, 5. Rc3 — Bg7,
6. Be.'i — Rf6, 7. Bc4 — 041, 8. Bb3
— d6, 9. f3 — Bd7, 10. h4 — h5, 11.
Dd2 — Hc8, 12. 0-0-0 — Re5,
Eftir óvenjulega leikjaröð er
komin upp vel þekkt staða úr
hinni hárbeittu júgóslavnesku
árás gegn drekaafbrigðinu í Sikil-
eyjarvörn. Nú er venjulega leikið
13. Bg5, en deFirmian á sér sinn
eigin uppáhaldsleik í stöðunni. Ég
vissi vel um þetta og hafði undir-
búið dálítinn glaðning:
13. Hdgl!? — Hc4!?
Hugmyndin er sú að eftir 14.
Bxc4 — Rxc4, 15. De2 — Rxe3,16.
Dxe3 — Db6 hefur svartur frábær
færi fyrir skiptamuninn, hótar t.d.
17. - e5.
14. De2 — Hxc3, 15. bxc3 — Da5,
16. Bd2 — d5, 17. g4!
Hvítur má engan tíma missa ef
hann ætlar ekki að verða undir.
Þetta er eitt af þeim afbrigðum
þar sem báðir sækja og spurningin
er hvor mátar á undan.
17. — hxg4, 18. h5 — gxf3, 19. Rxf3
— Bg4, 20. Hxg4 — Rexg4, 21. h6
Nú vonast hvítur eftir 21. —
Bh8?, 22. h7+ - Rxh7, 23. Hxh7 -
Kxh7, 24. Rg5+, en í staðinn á
svartur mannsfórn sem stöðvar
hvítu sóknina algjörlega.
21. - Rxh6!, 22. Bxh6 - Dxc3, 2(
Bxg7 - Dal +, 24. Kd2 - Dxhl, 2£
Bxf6 — dxe4, 26. Bd4?
hann Hjartarson, Karl Þorsteins,
Margeir Pétursson, Jón L. Árna-
son og mig. Okkur er öllum vel til
vina, myndum samstilltan hóp og
höfum stutt hver annan, þó engin
grið hafi verið gefin við skák-
borðið," sagði Helgi ólafsson, sem
ásamt Jóhanni hafnaði í efsta sæti
og náði áfanga að stórmeistara-
titli, eftir að Reshevsky hafði boð-
ið honum jafntefli.
„Ég er auðvitað mjög ánægður
með þennan árangur, en ég hef
teflt lítið undanfarin ár, mun
minna en félagar mínir, en nú hef
ég í hyggju að snúa taflinu við og
hef unnið markvisst alveg frá ára-
mótum. Skákmót Búnaðarbank-
ans var góð æfing og í Reykjavík-
urskákmótinu gekk dæmið upp,“
sagði Helgi ólafsson.
„Eins og gamalt vín —
verð betri með árunum“
nÉg er að sjálfsögðu ákaflega
ánægður með sigur minn í mótinu.
Þetta er stærsti skáksigur minn í
langan tíma. Ef til vill er það eins
með mig og gamalt vín, að ég verð
betri með árunum. Allt er þetta þó
ákveðið þarna uppi — ég lék mitt
hlutverk," sagði öldungurinn Sam-
uel Reshevsky og benti til himins
að loknu jafntefli sínu við Helga
Ólafsson. Fyrir öðru auganu hafði
Reshevsky umbúðir, hafði fengið
illt í augað, en hann gerði gaman
að öllu. „Ég var farinn að sjá of
marga góða leiki — það varð að
stöðva þetta," sagði hann og hló.
„Islenzkir skákmenn eru mjög
efnilegir og mun sterkari en ég
átti von á og geta orðið mjög öfl-
ugir. Hinn gífurlegi skákáhugi hér
á landi kom mér mjög á óvart og
áhorfendur voru mér hvatning —
þeir kölluðu fram allt það bezta
hjá mér,“ sagði Reshevsky.
vStórgóÖ frammistada
Islcndinganna“
„Þetta var stórgóð frammistaða
hjá íslendingunum. Ungu íslenzku
skákmennirnir komu mér mjög á
óvart. Ég hafði aldrei heyrt Karl
Þorsteins nefndan, en hann stóð
sig mjög vel — vann öruggan sig-
ur á mér og náði alþjóðlegum
áfanga. Þið hafið átt tvo stór-
meistara, Friðrik Ólafsson og
Guðmund Sigurjónsson, en ég er
sannfærður um, að Jóhann Hjart-
Það fara miklar sögur af styrk
biskupapars gegn hrók og deFirm-
ian lætur það rugla sig í ríminu.
Rétt var 26. Rxf3 — Dg2+, 27. Kcl
— exf6, 28. Dxb7 og staðan er enn-
þá afar tvísýn.
26. — Dxf3, 27. Dxf3 — exf3, 28.
Bxa7 — g5, 29. Ke3 — Ha8!
DeFirmian hafði yfirsézt þessi
öflugi leikur sem gerir svörtum
kleift að halda frípeðinu á f3. Ef
nú 30. Bd4 þá er 30. — e5! mjög
sterkt. T.d. 31. Bxe5 — He8, 32.
Kd4 - f2, 33. Bc4 - Hc8, 34. Bd3
— Hxc2!
30. Bb6 — Ha6, 31. Bd4 — g4, 32. a4
— Hh6, 33. a5 - Hh5!, 34. Bb6 —
Hf5, 35. Kf2 - Kg7, 36. Bc4 - Kh6,
37. Bd3 — He5, 38. c4 — f5, 39. Bc7
— Hc5, 40. Bb6 — He5, 41. Bc7 —
Hc5, 42. Bb6 — Hc8, 43. Be3+ —
Kg6, 44. c5 — e5, 45. Kg3 — e4??
í tímahraki greip ég það sem
hendi var næst, en þessi leikur
eyðileggur svörtu stöðuna, því nú
fær hvítur f4-reitinn til afnota. í
staðinn hefði 45. — Kf6! tryggt
svörtum léttunna stöðu. Ég nagaði
mig í handarbökin um nóttina því
nú hefði hvítur getað náð jafntefli
ef hann hefði leikið 46. Bfl eða 46.
Bc4 í biðleik. En deFirmian átti
samt enn erfiðari andvökunótt en
ég því biðleikur hans tapar strax.
46. a6?? — bxa6, 47. Bc4
Eða 47. Bxa6 - Ha8, 48. Bb5 -
Ha3! og vinnur auðveldlega. Svarti
peðatígullinn er orðinn óstöðv-
andi.
47. — Kf6, 48. Bd5 — Ke5, 49. Bb7
— Hh8, 50. Bf4+ — Kd4, 51. c6 —
e3, 52. Bd6 — e2, 53. Bb4 — Ke3,
54. Bc5+ — Kd2, 55. Bb4+ — Kdl,
56. c7 — el=D+, 5. Bxel — Kxel
og hvítur gafst upp.