Morgunblaðið - 02.03.1984, Síða 2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. MARS 1984
Þýsk sendinefnd hér:
Bjóða ívilnanir fyr-
ir veiðiheimildir
Akurcyri, I. mars.
SENDINEFND frá Bremerhaven í V-l»ýskalandi skipuA fulltrúum útgerðaraðila
þar kom til landsins sl. mánudag og átti viðræður við Islendinga um veiðiheimildir
fyrir þýska togara í íslenskri lögsögu.
Þetta kom fram hjá Kristjáni
Ragnarss.vni, formanni LÍÚ, á fundi
hjá Útvegsmannafélagi Norðurlands
hér í dag.
Sagði Kristján, að Þjóðverjar
hefðu m.a. boðið hækkað verð á
karfa, sem landað yrði í Þýskalandi
og að lækka tolla á ýmsum fiskaf-
urðum þar gegn þessum veiðiheim-
ildum. Þá gat hann þess, að Þjóð-
verjar hefðu verið lítt hrifnir af
þeim samningum, sem Efnahags-
bandalag Evrópu hefði gert við
Grænlendinga, teldu þá ná alltof
skammt, bæði varðandi aflamagn og
lengd samningstíma. — G.Berg.
Föðurnum sleppt
úr gæzluvarðhaldi
FOÐI'R Williams James Scobie var
sleppt úr gæzluvarðhaldi síðdegis í
Lárus Guðmundsson:
Tókum
allir við
peningum
— ALLIR í liði Waterschei fengu
greiðslu sem nam 15 þúsund
krónum íslenskum frá Standard
eftir að við töpuðum leiknum.
Ég var nýbyrjaður að leika
hér í Belgíu þegar þetta skeði
og ekki búinn að leika nema 6
leiki með liðinu; ég gerði mér
alls ekki grein fyrir því hvers
konar greiðsla þetta var. Þegar
Ronald Jansen, leikmaður
Waterschei, kom til okkar og
bauð okkur peninga fyrir tapið,
þá tóku allir leikmenn liðsins á
móti peningunum.
Þetta er mikið leiðinda-
mál og ég veit ekki hvaða
stefnu það tekur, sagði Lárus
Guðmundsson, leikmaður hjá
Waterschei, þegar við inntum
hann eftir mútumálinu í Belgíu
í gær.
Sjá nánar á íþróttasíðu.
gær. Tveir menn sitja nú í gæzluvarð-
haldi vegna ránsins á Laugavegi að
kvöldi 17. febrúar síðastiiðins, William
Scobie og 19 ára gamall piltur sem var
■ vitorði með honum. Faðir Williams og
bróðir hafa verið látnir lausir. Ljóst
þykir að þeim hafi ekki verið kunnugt
um ránið fyrr en eftir að það átti sér
stað, en William kom með ránsféð í
föðurhús og mun þá hafa verið reynt að
hylma yfir með honum.
Þjófnaðurinn úr Iðnaðarbankan-
um er enn óupplýstur, en sem kunn-
ugt er var um 384 þúsund krónum
stolið úr hirslum gjaldkera. Rann-
sóknarlögregla byggði á sínum tíma
kröfu sína um gæzluvarðhald yfir
William á ráninu við Landsbankann
og þjófnaðinum úr Iðnaðarbankan-
um. Samkvæmt heimildum Mbl.
hallast menn nú að því, að William
hafi ekki verið að verki í Iðnaðar-
bankanum. I frétt Mbl. um handtöku
vitorðsmanns Williams i ráninu við
Landsbankann var sagt að hann hafi
verið handtekinn í veitingahúsinu
Óðali. Það er ekki rétt. Hann var
handtekinn aðfaranótt mánudagsins
skammt fra heimili sínu í Hafnar-
firði.
Skákmótið í Grindavík:
Jón L. vann
Borgarstjórn
staðfestir
ísfilm
Á FUNDI borgarstjórnar Reykjavíkur í
gærkvöldi staðfesti borgarstjórn
Keykjavíkur með atkvæðum meirihluta
borgarstjórnar samninginn um stofnun
hlutafélagsins Isfilm og fól borgar-
stjóra að fara með hlutafé borgarinnar
á fundum félagsins. Jafnframt sam-
þykkti borgarstjörn að þátttaka borg-
arinnar í fyrirtækinu verði tekin til
endurmats eigi siðar en fyrir árslok
1985.
Borgarfulltrúar minnihlutans
greiddu atkvæði gegn staðfestingu
samningsins nema Kristján Bene-
diktsson (F), sem sat hjá við at-
kvæðagreiðsluna.
Jóhann
JÓN L. Árnason vann Jóhann Hjart-
arson í 2. umferð alþjóðlega skák-
mótsins í Grindavík í gærkvöldi. Jó-
hann gafst upp eftir aðeins 20 leiki.
Önnur úrslit urðu; Lombardy og Helgi
Olafsson gerðu jafntefli, McCam-
bridge vann Björgvin Jónsson, Haukur
Angantýsson og Ingvar Ásmundsson
gerðu jafntefli, svo og Christiansen og
Elvar Guðmundsson og Knezevic og
Gutman.
Biðskákir voru tefldar í gær. Þá
vann Lombardy Björgvin Jónsson,
Gutman vann Helga Ólafsson og
McCambridge vann Jón L. Árnason.
Einni skák er ólokið úr 1. umferð,
skák Elvars og Knezevic.
McCambridge hefur forustu og
hefur hlotið 2 vinninga. I kjölfarið
fylgja Ingvar Ásmundsson, Lom-
bardy og Larry Christiansen með
l'k vinning.
Mikil hrifning
Ljósm. RAX.
Óperan Lucia di Lammermoor, eftir Donzetti, var flutt í gærkvöldi vid fádæma hrifningu áheyrenda aö sögn
Jóns Ásgeirssonar, tóniistargagnrýnanda Morgunblaðsins. ítalska sópransöngkonan Denia Mazzola og mexí-
kanski tenórsöngvarinn Yordy Ramiro voru gestir Sinfóníuhljómsveitarinnar undir stjórn Jean-Pierra Jaquillat
og var fógnuður áheyrenda mikill. Þá stóðu heimamenn sig ekki siður að sögn Jóns, en þar var fremstur í flokki
Kristinn Sigmundsson. Á myndinni eru erlendu söngvararnir ásamt hljómsveitarstjóranum, sem er í miðið.
200 tonn af dilkakjöti til USA:
Vilja allt kjöt sem
hægt er að afgreiða
ALLAR líkur eru á að á þessu ári
takist að selja 200 tonn af íslensku
dilkakjöti til Bandaríkjanna, en á
síðastliðnu ári fóru 30 tonn á þann
markað til reynslu. Sá maður, sem
hefur haft milligöngu um sölu kjöts-
ins í Bandaríkjunum, var hér á landi
fyrir nokkru en ekki hefur verið
gengið frá samningum.
Jóhann Steinsson, deildarstjóri
í Búvörudeild SÍS, sagði í samtali
við blm. Morgunblaðsins að 200
tonn væri hámark þess sem mögu-
leiki væri á að afgreiða á þennan
markað en Bandaríkjamönnum
fyndist það frekar of lítið en of
mikið. Sagði hann að aðeins féllu
til um 1.000 tonn í þeim þremur
sláturhúsum sem leyfi hefðu til
slátrunar til útflutnings á Efna-
hagsbandalags- og Bandaríkja-
markað. 600 tonn væru bundin
með samningum við EBE og þá
væru 400 tonn eftir. Úr þessum
400 tonnum kæmu um 200 tonn af
stykkjuðu kjöti og væri það há-
mark þess sem við núverandi að-
stæður væri hægt að senda til
Bandaríkjanna.
Kjötið fær sérstaka meðhöndl-
un. Það er stykkjað og það snyrt
sérstaklega vel og síðan pakkað í
lofttæmdar neytendaumbúðir.
Kjötið fer til að minnsta kosti
tveggja fyrirtækja: verslanakeðju
og veitingahúsakeðju. Sagði Jó-
hann að verð væri ekki ákveðið né
hvernig þessi sala kæmi endan-
lega út, en gæti orðið hærra en
fæst á öðrum mörkuðum þrátt
fyrir nokkuð mikinn aukakostnað,
sem leggja þyrfti í við þessa sölu.
Jóhann sagði að kjötið yrði unnið í
Kjötiðnaðarstöð Kaupfélags
Borgfirðinga í Borgarnesi þegar
búið væri að ganga frá öllum
formsatriðum og þegar lægju fyrir
pantanir sem næmu nokkrum
gámum.
Alþýðublaðið
helmingi minna
ALÞÝÐUBLAÐIÐ mun á næstunni taka nokkrum útlitsbreytingum um leið og
brot þess verður minnkað um helming. Gert er ráð fyrir að þessar breytingar komi
til framkvæmda á næstu 10—15 dögum. Jafnframt tekur við rekstri biaðsins
hlutafélagið Blað, sem annaðist reksturinn um skeið, 1973—1974. Stjórn þess
hlutafélags hefur ekki verið kosin enn, en gert er ráð fyrir að Eyjólfur Kr.
Sigurjónsson, endurskoðandi og stjórnarformaður Framkvæmdanefndar verka-
mannabústaða, verði formaður hennar eins og var fyrrum.
Alþýðuflokkurinn mun eftir sem tveir menn annist rekstrarhliðina og
áður eiga Alþýðublaðið — hlutafé
Blaðs hf. er 99% í eigu flokksins.
Heildarhlutafé félagsins er ein
milljón og eitt þúsund krónur, skv.
upplýsingum, sem Mbl. hefur aflað
sér. Mannahald á blaðinu breytist
nokkuð jafnframt þessu, m.a. hefur
Jóhannes Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri blaðsins, látið af
störfum. Árni Gunnarsson, fyrrum
þingmaður Alþýðuflokksins, tekur
við framkvæmdastjórn a.m.k. um
tíma, jafnframt því sem hann mun
að einhverju leyti starfa á ritstjórn
blaðsins. Að öðru leyti er ætlunin, að
Vopnahlé í „bókastríðinu“?
FÉLAG bókaútgefenda hefur sent bóksölum og bókaforlögum Vöku,
Fjölva, Iðunni og Setbergi tillögur, sem miða að þvi að leysa deiluna sem
staðið hefur um sölu á bókum frá bókaklúbbnum Veröld.
Að sögn Olivers Steins Jó-
hannessonar, formanns Félags
bókaútgefenda, miða tillögurnar
að því að hinar stríðandi fylk-
ingar slíðri sverðin og taki upp
eðlileg samskipti, meðan nefndir
vinni að nýjum samskiptaregl-
um milli bóksala og bókaútgef-
enda. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins eru tillögurnar
þær, að Veraldarmenn dragi til
baka innköllun á umboðssölu-
bókum sínum, en bóksalar taki
aftur í sölu bókatitlana tuttugu
sem deilan upphaflega spratt af.
í gærkvöldi voru haldnir fundir
um málið í herbúðum beggja að-
ila. Niðurstöður voru sendar Fé-
lagi bókaútgefenda og verða
væntanlega ljósar í dag.
í samtali við blaðamenn kom
fram samkomulagsvilji hjá
bóksölum en Veraldarmenn létu
ekkert uppskátt um hug sinn.
Oliver Steinn sagði horfur
slæmar i þessu máli ef ekki
semdist í þessari atrennu. Náist
ekki samkomulag hefðu bóksalar
sjö vikur til að senda bækur for-
laganna fjögurra til föðurhús-
anna. Fyrir lægi að eftir það
yrðu forlögin fjögur að verða sér
úti um nýtt sölukerfi og nýja
umboðsmenn. Þegar blaðamaður
spurði hvort þetta þýddi að
starfandi yrðu í landinu tvö fé-
lög bókaútgefenda sagði Oliver
að ekki væri annað að sjá en svo
yrði og engan myndi það skaða
meira en „bókina" sem slíka.
Fyrsta júlí falla úr gildi sam-
skiptareglur þær, sem svo mjög
hefur verið togast á um að und-
anförnu. Nefndir eru starfandi
bæði á vegum bóksala og bóka-
útgefenda til að endurskoða
þessar reglur. Kvaðst Oliver vita
til þess að þar bæri margt ný-
stárlegt á góma og væri fyrir-
sjáanlegt að margt myndi innan
tíðar breytast í bóksölumálum í
landinu. Stefnt er að því, ef tekst
að leysa bókastríðið, sem nú
geisar, að þessar reglur líti dags-
ins ljós eigi síðar en fyrsta júlí.
að áfram verði tveir starfsmenn á
ritstjórn, þeir Guðmundur Árni
Stefánsson, ritstjóri, og Friðrik Guð-
mundsson, blaðamaður. Ætlunin er
að stækka blaðið og bæta síðar meir,
ef brotbreytingarnar og meðfylgj-
andi útlitsbreytingar gefast vel.
Samkvæmt upplýsingum Mbl. hef-
ur að undanförnu gengið allvel að
greiða niður níu milljóna króna
skuldir blaðsins. „Skuldunum hefur
verið bjargað fyrir horn,“ sagði einn
heimildarmanna blaðsins.
„Flokksmenn hafa tekið á sig
stærstan hluta þeirra. Þeir hafa tek-
ið ákalli forystunnar um aðstoð
mjög vel. Engu að síður verður nauð-
synlegt að gæta mikils aðhalds og
sparnaðar í rekstrinum eftir sem áð-
ur.“
Fjalakötturinn:
Um tvö þúsund
undirskriftir
Á FUNDI borgarstjórnar í gær-
kvöldi voru afhentar rúmlega tvö
þúsund undirskriftir áhugamanna
um varðveizlu Fjalakattarins. Þar
var skorað á borgarstjórn að hún
geri allt sem í hennar valdi stend-
ur til að Fjalakötturinn í Aðal-
stræti verði varðveittur.
Ákvörðun um frestun afgreiðslu
málsins í borgarstjórn var sam-
hljóða.