Morgunblaðið - 02.03.1984, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 02.03.1984, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. MARS 1984 13 hnignunin heldur innreið sína. t þessari mynd birtist okkur and- stæðan við stefnu Verzlunarráðs- ins. í þessu sambandi hlýtur það að vera okkur ánænjuefni, að samn- ingar skuli nú hafa tekist á al- mennum vinnumarkaði og það án átaka og án milligöngu sáttasemj- ara. Vissulega er gengið nokkru lengra í þessum samningum en æskilegt hefði verið. Ef þessir samningar tryggja hins vegar vinnufrið og eru upphaf þess, að við stefnum framvegis að því aða auka framleiðni og bæta árangur okkar í atvinnulífinu, eru þeir ekki of dýru verði keyptir. Lokaorð ísland er lítið land í stórum heimi. Við íslendingar erum þó vel í sveit settir, miðju vegar milli meginlands Evrópu og Norður- Ameríku. Á báðar hendur eru stórir markaðir og ótal tækifæri. Nýjungar í fjarskiptum og sífellt betri samgöngur gera okkur æ auðveldara fyrir að fylgjast með og vera þátttakendur í umheimin- um. Tæknibreytingar eru örar. Við verðum að fylgjast með og við megum ekki einangrast. Ef við setjum okkur að skila árangri, gera betur í dag en við gerðum í gær og erum sannfærð um, að við náum enn betri árangri á morgun, höfum við tileinkað okkur það hugarfar, sem mun skila okkur aukinni efnalegri velferð. Þótt auðsöfnun sé ekki takmark í sjálfu sér og sé engin trygging fyrir hamingju, er hún þó leið að öðrum markmiðum. Framleiðslan er undanfari neyslunnar. Full- komin heilsugæsla, almanna- tryggingar, fjölbreytt mennta- og menningarstarfsemi og lengri frí- stundir byggjast á þeim afrakstri, sem atvinnulífið skapar. Þannig njótum við á endanum öll hagræð- is af velgengni atvinnulífsins og mættum því oftar muna, að þetta er undirstaðan. Frá fundi safnvarðanna. Mori;unblaðið/Kw Skólasafnverðir mótmæla lágum fjárveitingum til safnanna: Fjárveitingar til skólabóka- safna teknar til endurskoðunar segir Markús Örn Antonsson, formaður fræðsluráðs „FRÆÐSLURÁÐ hefur tekið undir það sjónarmið að taka skuli til endurskoðunar fjárveitingar til skólabókasafna, en þetta mál hefur verið rætt í ráðinu,“ sagði Markús Örn Antonsson, formaður fræðsluráðs Reykjavíkurborgar, í samtali við blm. Morgunblaðsins, en hann var spurður álits á mótmælum skólasafnsvarða og lágum fjárveitingum til safnanna að þeirra mati. Síðastlinn fimmtudag var haldinn fundur í Langholtsskóla en tilefni fundarins var litlar fjárveitingar Reykjavíkurborgar til bókakaupa í skólasöfn, eins og segir í fundarboði. Að sögn Markúsar Arnar Ant- onssonar, var á fundinum rætt um uppbyggingu safnanna og hefðu menn þar kvartað vegna naumra fjárveitinga, en nú væri til athugunar hjá borgaryfir- völdum að breyta núverandi fyrirkomulagi í þessum málum. Sagði Markús Örn að það þyrfti að taka ýmsa hluti til athugunar varðandi þetta mál, en endur- skoðun þess með hvaða hætti skuli endurskoða fjárveitingar til skólasafna er nú til athugun- ar í borgarráði. Markús gat þess að á fundinum hefði komið fram að menn væru sammála um að Reykjavíkurborg hefði haft for- ystu um uppbyggingu skólabóka- safna, en heildarfjárveiting á fjárhagsáætlun þessa árs til safna grunnskóla og fjölbrauta- skóla nemur tæpum tveimur milljónum króna. Hins vegar hafa fjárveitingar til safnanna verið mjög mismunandi, en í ár nemur mesta fjárveiting til skólabókasafns 144 þúsundum króna, en sú lægasta 12 þúsund- um króna, en það væri ekki mis- munur á upphæð fjárveitinga, sem til athugunar væri að breyta. Mótmæli skólasafnvarða í Reykjavík, sem send voru fræðsluráði Reykjavíkurborgar, eru svohljóðandi: „Fjárveiting til skólasafrja í Reykjavík hefur nú enn einu sinni verið stórlega skorin niður. Allar tillögur skólasafnafulltrúa um leiðrétt- ingu hafa verið virtar að vettugi, einnig óskir um fjárveitingu til miðsafns. Ljóst er að verði ekkert að- hafst til að bæta hag safnanna geta þau ekki sinnt þeirri þjón- ustu sem þeim ber. Samkvæmt lögum um grunnskóla, þ.e. að vera eitt af megin hjálpartækj- um í skólastarfinu. Skólasafnsverðir í Reykjavík mótmæla harðlega þessari fjár- veitingu til skólasafnanna."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.