Morgunblaðið - 02.03.1984, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 02.03.1984, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIP, FÖSTUDAGUR ?. MARS 1984 reglulega af öllum fjöldanum! JIlov^unliInMb ERMETO háþrýstirör og tengi Atlas hf Ármúii 7 — Sími 26755. Pósthólf 493, Reykjavík 25. leikvika — leikir 25. febrúar 1984 Vinningsröð: 1 1 1—21 1 — XX2 — XXX 1. vinningur: 12 réttir — kr. 94.600.- 37669(4/1 1>f 39576(4/11)+ 61262(4/11) 85672(6/11) 2. vínningur: 11 réttir — kr. 2.495.- 383 37845+ 40253 57622 87577 92329+ 85199+* 7106 37957+ 40857 57624 88866+ 162272+ 92403+* 7147 39246+ 47465 57844 88951+ 162273+ 21. vika: 19654+ 39376+ 47654 85232+ 89473 180880 46348* 35893 39413+ 48368+ 85264 90808 162267+* 48799+ 37670+ 39591+ 53298 87540 92249+ 44213* 24. vika: 60366+* * = 2/11 Kærufrestur er til 19. marz. kl. 12 á hádegi. Kærur skulu vera skriflegar. Kærueyðublöö fást hjá umboösmönnum og á skrif- stofunni í Reykjavík. Vinningsupphæðir geta lækkaö, ef kærur veröa teknar til greina. Handhafar nafnlausra seöla (+) veröa að framvísa stofni eöa senda stofninn og fullar upplýsingar um nafn og heimilisfang til Getrauna fyrir lok kærufrests. GETRAUNIR — íþróttamiöstööinni — REYKJAVÍK r © ruM&ic L JUICK r Y PONTIAC 1 E ■©- OPEL n L 1 Tegund Ch Chevette Ch Monte Carlo Ch Citation 4 cyl sjálfsk. Ch Malibu Classic 4 d. Ch Malibu Classic Station Ch Malibu Classic Station Ch Malibu 2 d. Landau Ch Malibu Classic 4 d. Olds M. Cutlass diesel Olds M. Delta 88 diesel árg. km. Verð 1976 71.000 110 þús. 1979 58.000 315 þús. 1981 10.000 350 þús. 1981 37.000 430 þús. 1981 34.000 600 þús. 1979 83.000 295 þús. 1979 66.000 310 þús. 1979 50.000 265 þús. 1979 40.000 270 þús. 1980 Nývél 390 þús. BIFREIDADEILD SAMBANDSINS n ISUZU 0 HOFÐABAKKA 9 SIMI 687300 GÆÐAEFTIRLIT MEÐ GÆÐAVÓRU Afmæli í gær: Björgvin Jóhannes- son Nesi — Sjötugur Bændur eru fáir orðnir í Reykjavík og bújarðir nær engar lengur í þeirri byggð. Stöku Reykvíkingur hefur þó ennþá ein- hvers konar landbúskap sem tóm- stunda- eða íhlaupavinnu, sjálf- sagt aðallega til að geta haldið hross eða sauðfé til yndis sér. Einn hinna atkvæðameiri í þeim hópi er Björgvin Jóhannesson, sem fyllir nú sjöunda áratuginn. Hann hefur um alllangt árabil haft á leigu hálflendu hins gamla höfuðbóls í Nesi við Seltjörn, þar sem eru nokkuð víðlend tún enn, og þar heyjar hann handa hross- um sínum og nokkurra fleiri manna og hefur þar hesthús sín. Til skamms tíma hafði hann einn- ig nokkrar kindur á fóðrum. Þessi búskapur er þó allur í hjáverkum, því að Björgvin er starfsmaður hjá Heildverzluninni H. Ólafsson & Bernhöft og hefur verið allt frá stofnun hennar fyrir 55 árum. Hann réðist þangað sem sé tæpra 15 ára og hefur ekki skipt um vinnustað síðan. Segir það nokk- urn veginn það sem segja þarf um samband húsbænda og hjúa á þeim bæ. Annar stofnandinn, Gu- ido Bernhöft, heldur þar enn um stjórnvöl og veit ég að milli hans og Björgvins ríkir góð og traust vinátta. Aðalsvið Björgvins innan fyrirtækisins hefur verið verk- stjórn í vörugeymslu og fer því kaup og sala um hans hendur. Margt vandað vörumerkið hefur verið þar til afgreiðslu áratugum saman, matvörur, nýlenduvörur, lyfjavörur o.fl., o.fl. og má þá hvað sízt gleyma skjalaskápunum al- kunnu, sem runnið hafa gengum hendur Björgvins í þúsundatali eins og á færibandi, og tilheyrandi skjalamöppur sjálfsagt milljónum saman. Björgvin Jóhannesson er vestur- bæingur í húð og hár, hefur lengi verið búsettur á Ægissíðu (þeim hlutanum sem áður heyrði til Nesvegi), en á yngri árum var hann í foreldrahúsum á Jófríð- arstöðum, nýbýli litlu vestar og norðar í bæjarlandinu, sem ekki sér víst mikil merki um lengur. Þar bjuggu hjónin Jóhannes Kristjánsson og Málfríður ólafs- dóttir, og áttu þau stóran barna- hóp. Eru þau systkinin flest á lífi ennþá, þótt komin séu á efri ár, sem marka má af því að Björgvin er þeirra yngstur. Jóhannes var Borgfirðingur og að sögn mikill dugnaðar- og eljumaður og ekki mun kona hans hafa látið sinn hlut eftir liggja. Þrek þeirra og dugur hefur með vissu gengið í arf til margra afkomenda. Björgvin og þeir bræður fleiri voru löngum að sumarstörfum í Borgarfirði á æskuárum og vöndust þá búskap og húsdýrum, ekki sízt hrossum, sem jafnan síðan hafa verið þeim „fylgifiskar". Björgvin er þeirra atkvæðamestur hestamaður, hef- ur átt fjölda góðhesta og marga þeirra stæðilega. Og hvorki fatast honum ásetan né taumhaldið. Nú standa hjá honum fimm fákar við stall, svo að hann hefur vel til skiptanna. Á sumrum hefur hann oft farið langar ferðir á hestum, meira að segja milli landsfjórð- unga, fyrir utan hinar skemmri. Þrisvar er ég búinn að ríða með honum og sonum hans á Þingvöll, Kirkjur á landsbyggöinni Messur á Æskulýðs degi þjóðkirkjunnar EGILSSTADAKIRKJA: I dag, á föstudegi 2. mars, „Alþjóölegum bænadegi kvenna“, almenn sam- koma kl. 21. Á sunnudaginn æskulýösmessa kl. 14. Sunnu- dagaskólinn fellur niöur sunnu- dag. Sóknarprestur. KIRKJUHVOLSPRESTAKALL: Guösþjónusta í Árbæjarkirkju á sunnudaginn kl. 14. Bibliulestur á prestsetrinu kl. 21 á mánu- dagskvöldiö kemur. Æskulýös- fundur Guöfinnu í dag, föstudag, kl. 17 í skólanum. Auöur Eir Vil- hjálmsdóttir sóknarprestur. SEYÐISFJARÐARKIRKJA: Í dag, föstudag, á „Alþjóölegum bænadegi kvenna“, helgistund í kirkjunni kl. 20. Á morgun, laug- ardag, kirkjuskóli kl. 11. Æsku- lýösmessa á sunnudaginn kl. 14: Leikrit, samtalsprédikun. Börn og unglingar yngri og eldri deild- ar Æskulýösfélagsins sjá um söng og annað efni. Kirkjukaffi eftir messu. Sóknarprestur. SIGLUFJARÐARKIRKJA: i dag, föstudag, á „Alþjóölegum bæna- degi kvenna”, annast kvenfélögin í bænum um guösþjónustu. Þórhalla Hjálmarsdóttir prédikar. Guðspjall dagsins: Matt. 3.: Skírn Krists. Á sunnudaginn æskulýösguös- þjónusta kl. 11. Æskulýösfélagar aöstoöa: Flautuleikur og helgi- leikur sem tengjast verkefni dagsins: Lifiö í trú. Sóknarprest- ur. STÓRÓLFSHVOLSKIRKJA: Æskulýösguösþjónusta á sunnu- daginn kl. 14. Sr. Stefán Lárus- son. VÍKURPRESTAKALL: Kirkjuskóli í Vík á morgun, laugardag, og samvera fyrir aldraöa í Laufskál- um kl. 12 á hádegi. Æskulýös- guösþjónusta í Víkurkirkju kl. 14. Börn og unglingar úr kirkjuskói- anum, tónlistarskólanum og unglingastarfi aöstoöa. Tekiö viö gjöfum til æskulýösstarfs safnaö- arins. Sóknarprestur. Sarnafi! - varanleg lausn VIÐHALDSFRÍTT ÞAKEFNI Á ÞÖK - Á ÞAKSVALIR ÁBYRGÐ Á EFNI OG VINNU UNNIÐ ALLT ÁRIÐ - SUMAR SEM VETUR FAGTÚN HF LÁGMÚLA 7, 105 REYKJAVÍK, SÍMI 28230 og hafa það verið hinar skemmti- legustu ferðir, þar sem gist var tvær nætur í Skógarhólum hverju sinni. Björgvin nýtur sín vel í slík- um ferðalögum, kann ráð við hverjum vanda, sem upp kann að koma, og lætur sér fátt fyrir brjósti brenna. Einig má nefna ferðirnar vor og haust, þegar við flytjum hross okkar í og úr sumar- högum á Kjalarnesi. Þangað er drjúgur spölur utan af Nesi. En Björgvin hefur farið langt- um lengri ferðir en hér voru nefndar með söngbræðrum sínum í Karlakór Reykjavíkur, bæði til Bandaríkjanna og Suðurlanda. Hann var um fjölda ára virkur fé- lagi í þeim góða kór, enda hafði hann hina ágætustu söngrödd og hefur raunar enn, og fyrir kemur að gamlir félagar eru kvaddir á vettvang til að taka lagið með hin- um yngri, þegar mikið liggur við. Kona Björgvins er Kristín Hjartardóttir, ættuð vestan úr Dölum. Hún er mikil búkona, jafnt við matargerð og sauma, svo að þannig er hún á sína vísu jafn- oki bónda síns. Þau hjónin eiga fjögur fulltíða börn, dóttur og þrjá syni, og er öll fjölskyldan afar samhent í hverju einu — og góður andi ríkjandi allra í milli. Og oft leggja barnabörnin leið sína til ömmu og afa á Ægissíðu. Þau finna glöggt hvað að þeim snýr í þeim ranni. Ég hef verið með hross mín und- ir handarjaðri Björgvins Nes- bónda í meira en áratug, og er reyndar annað þeirra fætt þar í hesthúsinu. Einn morguninn var móskjótt merfolald bröltandi í stí- unni. Úti var glaðbjartur vordag- ur og lét þá Björgvin sig ekki muna um að halda á þeirri litlu út á tún, en ég clti með móðurina í taumi. Þarna hefur verið gott samneyti manna og hrossa. Auk Björgvins hefur Haraldur bróðir hans haft þar hross sín svo og tveir synir Björgvins, Haraldur og Ólafur, en þeir hafa dregið dám af föður sínum og eru hinir ágætustu hestamenn með góða reiðskjóta. Þótt segja megi að reiðleiðir séu fremur einhæfar á Seltjarnarnesi er þar vítt og fagurt svið fyrir augað, og ekki spillir sjávarloftið góða. Á vorin er gott að láta klár- ana fara í fótabað í fjörunni og á vetrum er oft gaman að spretta úr spori á Bakkatjörn ísi lagðri. Þá liggur vel á Björgvin og okkur hin- um — og raular hann þá gjarnan lag fyrir munni sér í hnakknum eða kveður hestavísu. Ég vona að honum endist lengi aldur til að eiga margar yndis- stundir á hestbaki og við búsýslu í sambandi við heimili sitt og hest- hús. Loks árnum við hjónin Björgvin Jóhannessyni allra heilla og nánasta fjölskyldufólki hans, Kristínu, Nínu, Ólafi, Haraldi og Loga, og undir þær óskir tekur áreiðanlega mikill fjöldi góðra vina víðsvegar. „Táp og fjör og frískir menn finnast hér á landi enn, þéttir á velli og þéttir í lund þrautgóðir á raunar stund.“ (G.Th.) Baldur Pálmason

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.