Morgunblaðið - 02.03.1984, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. MARS 1984
11
lagsins og kjarnorkuáætlunar-
nefndarinnar.
Samhliða þessu þarf að huga
gaumgæfilega að því hvort og með
hvaða hætti íslendingar taki að
sér rekstur nýju ratsjárstöðvanna
sem nauðsynlegt er að reisa á
norðvestur og norðaustur horni
landsins. Áður hef ég vakið máls á
því að eðlilegt sé að huga að ör-
yggisgæslu við nýjan flugvöll fyrir
millilandavélar sem gerður verður
á Norðurlandi hvort heldur það er
við Sauðárkrók eða Húsavík.
Gætu íslendingar tekið að sér þá
gæslu og hvernig? Hvað með sam-
vinnu landhelgisgæslunnar og
varnarliðsins? Hefur verið staðið
nægilega skipulega að fram-
kvæmd hennar? Hvarvetna við
Norður-Atlantshaf hafa áhyggjur
sjófarenda af hættunni vegna sov-
éskra tundurdufla vaxið. Er ekki
eðlilegt að íslendingar taki að sér
tundurduflaslæðingu á leiðum
skipa til og frá stærstu höfnum
landsins? Hefur verið hugað nægi-
lega vel að því hvernig sjóflutn-
ingum til og frá landinu yrði hátt-
að á hættutímum?
Þannig mætti lengi spyrja um
viðfangsefni sem rétt er að sinna
áður en gengið er jafn langt og
Halldór Jónsson vill. Hann vitnar
í grein sinni til kafla úr ævisögu
Agnars Kofoed-Hansen þar sem
varað er við því að Islendingar feli
Bandaríkjamönnum alfarið að
gæta öryggis síns. Þeir sem hafa
kynnt sér aðdraganda þess að Is-
lendingar gerðust aðilar að Atl-
antshafsbandalaginu vita að með
henni var alls ekki ætlað að ís-
lendingar yrðu hlutlausir áhorf-
endur í öryggismálum, til dæmis
sögðu samningamenn íslands af-
dráttarlaust að islensk stjórnvöld
myndu sinna innri öryggisgæslu.
Hernaðarlegt mikilvægi íslands
hefur vegna ytri aðstæðna aukist í
stað þess að minnka á þeim 35 ár-
um sem síðan eru liðin. Ábyrgð
íslendinga i öryggismálum hefur
vaxið í réttu hlutfalli við það og
hana hafa þeir axlað með því að
gera tvíhliða varnarsamning við
Bandaríkin. Nú þarf meira til. Ég
minnist þess hve áhrifamikið það
var á fundi hjá Samtökum um
vestræna samvinnu og Varðbergs
þegar einmitt þessi hlið íslenskra
öryggismála var þar til umræðu
að hlusta á Agnar Kofoed-Hansen,
sem þá var orðinn alvarlega veik-
ur, fagna því að félögin hefðu
frumkvæði að umræðum um það
sem hann kallaði í ævisögunni
„hið mikla tabú íslenskra stjórn-
rnála", hlut okkar sjálfra í vörnum
íslands. Þessum umræðum þarf að
halda áfram og á Halldór Jónsson
þakkir skilið fyrir að byrja þær nú
að nýju.
Björn Bjarnason er bladamaður við
Xlorgunblaðið.
Blóma- og gjafavöruverzlun
Michelsen opnar í Breiðholti
BLÓMA- og gjafavöruverzlun Mich-
elsen opnaði nokkru fyrir jól í Hóla-
garði, Lóuhólum 2 í Breiðholti.
Verzlunin hefur á boðstólum gott úr-
val af pottablómum og afskornum
blómum, auk gjafavara frá þekktum
fyrirtækjum.
Ragnar Michelsen er eigandi
verzlunarinnar, en hann er lærður
skreytingameistari. Blómaverzlun
Michelsen starfaði áður í Hvera-
gerði í 25 ár. Ragnar er sonur hins
þekkta garðyrkjumanns Paul V.
Michelsen. Þeir feðgar hafa tekið
þátt í mörgum blómasýningum
heima og erlendis, m.a. í sýningu í
tilefni af 75 ára afmæli Garð-
yrkjufélags Danmerkur og unnu
þeir þar til verðlauna.
„Líf í trú“ yfirskrift
æskulýðsdags kirkjunnar
Á SUNNUDAGINN er hinn árlegi
æskulýðsdagur þjóðkirkjunnar og
ber hann að þessu sinni yfirskriftina
„Líf í trú“.
Söfnuðir landsins hafa allir
fengið sendan bækling með ýmis-
konar efni til að nota í guðsþjón-
ustum þennan dag, eða næstu
sunnudaga ef guðsþjónustum
verður ekki við komið þennan dag.
f bæklingi þessum eru Biblíu-
lestrar, smásögur, Biblíutextar,
ábendingar um sálma og söngva,
helgileikir o.fl.
Ennfremur munu margir söfn-
uðir afhenda kirkjugestum plak-
atbækling, en í honum er ávarp
biskups, hugleiðing um yfirskrift
dagsins og á bakhliðinni er plakat
sem hægt er að skrifa á og festa á
vegg fyrir þá sem vilja.
I hljóðvarpinu verður messa kl.
11 f.h. á vegum æskulýðsfélags
Akureyrarkirkju og safnaðarins-
þar og í Stundinni okkar í sjón-
varpinu er heimsókn í sunnudaga-
skóla kirkjunnar. Helgistund
sjónvarpsins verður að þessu sinni
í umsjá æskulýðsleiðtoga. Að öðru
leyti verða æskulýðsguðsþjónust-
ur kl. 14 í flestum kirkjum lands-
ins og síðast en ekki síst verður
æskulýðshátíð í Bústaðakirkju í
Reykjavík fyrir alla, hvaða sókn
sem þeir tilheyra. Verður þar
helgileikur, söngur, dans, hugleið-
ing, o.fl. Unglingar höfuðborg-
arsvæðisins eru sérstaklega hvatt-
ir til að fjölmenna þar.
Foreldrar eru einnig hvattir til
að mæta í guðsþjónustu með börn-
um sínum þennan dag, sem og
aðra daga og minnast þannig
ábyrgðar sinnar sem kristinna
uppalenda.
Egilsstaðir
Menntskælingar efna
til menningarviku
Kgilsstöóum, 22. febrúar.
SÚ VENJA hefur skapast í
Menntaskólanum á Egilsstöðum
að leggja hefðbundið skólastarf
fyrir róða um vikuskeið ár hvert —
en taka þess í stað upp fjölþættari
og frjálsari starfsháttu, efna til
menningarviðburða hvers konar
ungum og öldnum hér um slóðir til
andlegrar upplyftingar í skamm-
deginu.
Áð þessu sinni mun menning-
arvika menntskælinga hefjast
með för þeirra á Snæfell um
næstu helgi — en síðan mun
hver stórviðburðurinn reka ann-
an hér á Egilsstöðum allt til 3.
mars næstkomandi. Sérstök
nefnd átta nemenda hefur nær
lagt nótt við dag undanfarinn
mánuð við undirbúning menn-
ingarvikunnar og er dagskrá
hennar nú fullmótuð eftir því
sem fram kom á frétta-
mannafundi með nefndar-
mönnum í gær.
Hinn 1. mars verður mynd
Hrafns Gunnlaugssonar „Hrafn-
inn flýgur" sýnd í Valaskjálf að
viðstöddum höfundinum. Daginn
eftir kl. 17.00 mun Hrafn síðan
halda fyrirlestur í ME um
kvikmyndir sínar og sýna atriði
úr þeim.
Áð kvöldi þess 2. mars munu
Vísnavinir halda tónleika í ME,
en rokktónleikar verða í Vala-
skjálf daginn eftir og munu
hljómsveitirnar Aþena, Dúkku-
lísurnar, Fásinna og Sú Ellen
koma þar fram. Kynnir á rokk-
tónleikunum verður Stuðmaður-
inn Valgeir Guðjónsson. Þennan
dag verður væntanlega teflt fjöl-
tefli í ME og áttu þeir nefndar-
menn von á því að fá Helga
Ólafsson, skákmeistara, til tafls.
Menningarvikunni mun síðan
Ijúka með stórdansleik í Vala-
skjálf á laugardeginum 3. mars
þar sem áðurnefndar hljóm-
sveitir munu leika.
Öllum, jafnt hinum almenna
borgara sem menntskælingum,
er frjálst að sækja og njóta
menningarviðburða þessara —
auk þess sem kaffisala verður
opin alla vikuna í ME kl. 15—17
og 20—23. Þar munu jafnframt
verða ýmsar uppákomur er
nefndarmenn vildu ekki tíunda
frekar.
Auk ferðar á Snæfell munu
menntskælingum standa til boða
skíðaferðir í Oddsskarð og báts-
ferð úr Norðfirði til Mjóafjarð-
ar, ennfremur námskeið í leir-
vinnslu, hannyrðum hvers konar
og matargerðarlist. Norskur
vísnasöngvari heldur söngnám-
skeið og alþjóðlegur skákmeist-
ari leiðbeinir í skáklistinni. Þá
munu hin ýmsu fyrirtæki á Eg-
ilsstöðum kynna menntskæling-
um starfsemi sína í þessari viku.
— Ólafur
Enn einn nýr á
leiðinni frá MITSUBISHI
Hvað heitir 'ann? — Það kemuríljós!
Hvernig er 'ann? - Frábær!
Hvenær kemur 'ann? — Bráðum!
Hvad kostar 'ann? - Lítið! A
Hver fær 'ann? - Þú! ▼
(Frétutilkjrnnini;)