Morgunblaðið - 02.03.1984, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 02.03.1984, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. MARS 1984 29 Sjötugur: Ólafur Bjarna- son prófessor Kæri nafni. Sé mér þörf einhverrar andlegr- ar uppörvunar til að senda þér af- mæliskveðju nú, þegar við fögnum og rifjum upp ýmsar minningar í tilefni af 70 ára afmæli þínu, er mér það notadrjúgt að minnast ferðar okkar til Brasilíu í mái 1968. Þetta ferðalag áttum við mikið vel skilið að mínu áliti, því að í farangri okkar til Rio de Jan- eiro á 3. alþjóðaþingið um frumu- rannsóknir voru greinagerðir okkar og samstarfsmanna um ár- angur af 10 ára samfelldri rann- sóknastarfsemi við krabbameins- leit á íslandi með frumu- og vefjarannsóknum. Þetta leiðir hugann að þeim stóra þætti ævi- starfs þíns, sem lýtur að barátt- unni gegn krabbameini. Sú saga gerðist bæði á Rannsóknastofu háskólans við Barónsstíg, í bæki- stöðvum krabbameinsfélaganna, í ýmsum þekktum lærdómsstofnun- um erlendis og á ótal læknaþing- um. Þessi saga nær yfir 40 ár. Eg minnist þess með ánægju, þegar þú gerðir mig að liðsmanni í bar- áttunni gegn krabbameininu. Það var vorið 1957, þegar þú komst til London og lagðir til, að ég kynnti mér frumurannsóknir til grein- ingar á legkrabbameini, og gafst mér ritgerð sem þú hafðir samið Póstur & sími tekur upp síma- telexþjónustu FRÁ OG með 1. mars nk. mun Póst- og símamálastofnunin bjóða við- skiptavinum sínum upp á nýja þjón- ustu við sendingu og móttöku telex- ritanna, svokallaða símatelexþjón- ustu. Með þessari nýju þjónustu opnast öllum símnotendum leið til að taka á móti og senda telexritun til sérhvers telexnotenda innanlands og utan. Eigin telexbúnaður er ekki nauðsynlegur. Til þess að senda telex þarf að hringja í símatelex- þjónustu stofnunarinnar, sími 07, en til að taka á móti simatelexi er nauðsynlegt að vera áskrifandi að símatelexþjónustu stofnunarinn- ar. Gjöld fyrir hina nýju þjónustu hafa verið ákveðin og eru sem hér segir: Fyrir sendingu greiðist grunngjald fyrir hvert telex kr. 80,-, afgreiðslugjald fyrir hverja mínútu kr. 40,- og telexgjald inn- anlands eða til viðkomandi lands. Fyrir móttöku greiðist fyrir sím- nefni kr. 260,- á ári, áskriftargjald fyrir hvern ársfjórðung kr. 350,- og afgreiðslugjald fyrir hvert tel- ex kr. 80,-. Söluskattur er ekki innifalinn í ofangreindum gjöldum, en hann er 23,5%. um slíkar rannsóknir 1949. Það var án efa upphafið á ferðinni til Brasilíu, þegar ég samþykkti að takast á við þetta rannsóknasvið, sem þú ruddir braut fyrstur lækna hér á landi. Það var í þessari ferð, sem við ræddum góða stund um landsins gagn og nauðsynjar á sviði læknis- fræði og fleira á góðum veitinga- stað með ágætum starfsbróður. í stuttri kvöldgöngu á heimleið eftir Shaftesbury-stræti hlógum við dátt, man ég. Allt í einu uppgötv- aði okkar ágæti starfsbróðir, að hann hafði verið rændur veskinu, sem í voru mikilsverðir hlutir. Við félagar vitum síðan að var- ast ber að hlæja ógætilega í Shaft- esbury-stræti. Það kom því ekkert fyrir þegar við gengum saman þessa götu 11 árum síðar og áttum næturdvöl í London á leið okkar til Brasilíu. En hvað getur ekki skeð um hábjartan daginn í Ríó. Þú hefur aldrei sagt mér, hvernig ég varð á svip, þegar róleg ganga okkar um hádegisbil eftir Kopaka- bana-stræti var allt í einu stöðvuð og ég fékk högg á brjóstið og á sama augnabliki hugboð um, að ég myndi deyja. Á næsta andartaki horfðum við á innihaldið úr eggi leka niður sparifötin mín. Lýsing á að verða fyrir byssu- kúlu var mér löngu kunn úr bók- um, og kom hún alveg heim við reynslu mína þarna á gangstétt- inni. Þá var mér meira létt en nokkru sinni á ævinni, held ég. Þeir sem köstuðu egginu úr bíl hafa sennilega álitið, að við vær- um ríkir Bandaríkjamenn. Víst er að ekki gátu aumingjarnir vitað, að við værum komnir alla leið frá íslandi til að fræða heiminn um krabbameinsleit þar. Tveir alnafnar, þú og afi minn í Gesthúsum, eruð meðal þeirra sem hvað oftast hafa komið fram á sálarskjái mínum af ýmsum til- efnum á umliðunum æviárum. Nafnið Ólafur Bjarnason er mér því meiriháttar nafn, sem skipar veglegan sess í vitund minni. Það nafn bergmálar margar kærar minningar um hjálpsemi og gæfu- ríkt samstarf, sem dagsins önn gefur mér of sjaldan tækifæri til að hugleiða vandlega eins og ég hef þó oft löngun til. Við Erla óskum þér, Margréti og alli fjölskyldunni til hamingju á sjötugsafmæli þínu. Ólafur Jensson. ITIMAÞRONG GETA NU ANDAÐ LETTAR Við vitum sem er að flestir húsbyggjendur eiga það sameiginlegt að vera í tímaþröng og það er bæði tíma- frekt og lýjandi að þurfa að þeytast um borgina þvera og endilanga. Hvíldu bæði þigogbílinn! í nýrri ogglæsilegri byggingavöruverslun að Súðarvogi 3-5 leggjum við okkur fram um að hafa allt sem prýða á góða byggingavöruverslun: Skrúfur, nagla, lamir, tré- verkfæri, rafmagnsverkfæri, málningarvörur, fúavarnar- efni, þéttiefni, ýmsar gerðir inni-og útiklæðninga,allar gerðir einangrunar- og hilluefna, límtrésplötur og bita, parket, kork, hreinlætistæki, flísar, blöndunar tæki o.fl. Við minnum á opnunartíma okkar, semerkl. 8-6virka daga og kl. 9-12 á laugardögum. Munið okkar landsfrægu landsbyggðarþjónustu. HUSA SMIÐJAIVI Góð greiðslukjör. Þinn hagur, okkar stolt. SÚÐARVOGI3-5, 104REYKJAVIK TELEX: 2341 HUSA NNR. 4451-5741 P.O.BOX4200 S 687700

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.