Morgunblaðið - 02.03.1984, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 02.03.1984, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. MARS 1984 é>// NÓATÚNI 17 - SÍMAR 1-72-60 & 1-72-61 Nú er svínakjöt á góðu verði Aöeins 128 pr. kg. Árbæjarmarkaðurinn Símar 78200, 71200. 1/1 skrokkar tilbúnir í frystikistuna. MÆÐRAPLATTINN Eigum einnig jólaplattann ’83. BLÓMABÚÐIN BURKNI Linnetsstíg 3, Hafnarfirði, sími 50971. rwmk w AF ERLENDUM VETTVANGI eftir GUÐM. HALLDÓRSSON Stjórn Nimeiri á fallanda fæti STJORN Gaafar Nimeiris forseta í Súdan stendur höllum fæti. Árásir skæruliða í Suður-Súdan hafa harðnað, til óeirða hefur komið í höfuðborg- inni Khartum og landið rambar á barmi gjaldþrots. Sumir telja daga stjórn- arinnar talda. Astandið í Suður-Súdan er svo alvarlegt að flytja varð burtu útlendinga, sem unnu að því að veita vatni úr Níl og nýta það til áveituframkvæmda og við smíði olíuleiðslu til Rauðahafs. Þessu olli að skæruliðar rændu níu mönnum, sem unnu við áveituframkvæmdirnar, og tveim- ur, sem unnu við olíuleiðsluna. Þó tókst að bjarga gíslunum. Frakk- ar sáu um áveituframkvæmdirn- ar, en bandaríska Chevron-olíufé- lagið um olíuleiðsluna. Þessum miklu framkvæmdum hefur verið hætt. Skæruliðar sökktu gufuskipi á Níl nýlega og 600 fórust. Ef Níl- arleiðin lokast verður að senda vistir loftleiðis til setuliðsbæj- anna í suðri, því að vegir eru slæmir og víða eru jarðsprengjur. Nimeiri er einangraður í höll sinni, en varasamt er að afskrifa hann. Hann hefur oft bjargað sér úr slæmri klípu. Þrjár alvarlegar og sex minniháttar tilraunir hafa verið gerðar til að steypa honum. Kommúnistar steyptu honum 1971 og vörpuðu honum í fangelsi, en hann náði aftur völdunum og tók tugi óvina af lífi. Upphaflega náði hann völdunum í herbyltingu 1969 og kallaði sig arabiskan þjóðernissinna á borð við Nasser. Síðan átti hann vingott við Rússa, en bylting kommúnista batt skjótan enda á vináttu þeirra. Ár- ið 1977 lýsti hann einn fárra Ar- abaleiðtoga yfir stuðningi við friðarviðræður Sadats forseta við ísrael. Lengi vel fylgdi Nimeiri þeirri stefnu að koma á þjóðarsáttum og reyndi að sætta Múhameðstrú- armenn í norðri og sunnanmenn, sem eru blökkumenn og heiðnir eða kristnir. Nú er svo komið að margir óttast endurtekningu á borgarastyrjöldinni í Suður-Súd- an 1956—1972. Nimeiri batt enda á hana með samningi, sem tryggði sunnanmönnum sjálfstjórn. Nimeiri á fárra kosta völ. Ef hann gerir út fjölmennt herlið til að ráða niðurlögum skæruliða getur hann fengið fleiri íbúa suð- urhéraðanna upp á móti sér. Einnig væri vafasamt að slíkar aðgerðir tækjust. Það gæti hins vegar borið vott um veikleika og haft alvarlegar pólitískar afleið- ingar, ef hann settist að samn- ingaborði áður en skæruliðar setja fram pólitískar kröfur og sýna ótvírætt hvers þeir eru megnugir. Bardagarnir nú hófust fyrir al- vöru í ágúst, þótt fyrstu merki uppreisnarinnar gerðu vart við sig fyrir rúmu ári þegar skærulið- ar hreyfingarinnar Anyanya II hófu aðgerðir við Efri-Níl, nálægt landamærum Eþíópíu. Skömmu síðar gerði setulið tveggja bæja uppreisn og hermennirnir gengu í hreyfinguna. Síðan hafa nokkur þúsund stjórnarhermenn gengið í Anyanya II. Uppreisnin hófst vegna vaxandi óánægju með samninginn frá 1972 og efnahagslega vanþróun. Óánægjan hefur aukizt vegna skiptingar Suður-Súdan í þrjú héruð í júní í fyrra og setningar strangtrúarlaga (Sharia) í sept- ember. Það vakti einnig reiði sunnanmanna í fyrra að Nimeiri stöðvaði innflutning á mörgum vörutegundum til Suður-Súdans frá Kenya og Zaire og ákvað að leggja olíuleiðslu til Rauðahafs, þegar olía fannst í suðurhlutan- um, í stað þess að reisa olíu- hreinsunarstöð I Suður-Súdan. Dinka-ættflokkurinn, sem er fjölmennastur, taldi skiptingu Suður-Súdans brot á samningnum frá 1972. Dinkar búa I þeim hér- uðum, þar sem uppreisnin geisar, við Efri-Níl og í Bahr el-Ghazal í suðvestri. Ibúar héraðsins sem liggur að landamærum Kenya og Uganda fögnuðu hins vegar skipt- ingunni, þar sem þeir eygðu leið til að losna undan ofurvaldi Dinkamanna. íbúarnir voru þann- ig klofnir í afstöðu sinni, en nú hafa skoðanir margra þeirra breytzt. Setning strangtrúarlaganna vakti mikið uppnám sunnan- manna, sem töldu þau valdníðslu og árás á lífshætti sína. Yfirvöld i Suður-Súdan hafa enga tilraun gert til að framfylgja lögunum, en þau hafa stuðlað meira en nokkuð annað að því að sameina sunnan- menn og auka likur á samstilltum aðgerðum þeirra. Anyanya II er öflugastur þriggja skæruliðahópa. Leiðtogi Anyanya II er John G. Garang ofursti, doktor í hagfræði í Iowa 1982 og félagi í Anyanya II síðan í júní 1983. Hann hefur stjórnað nokkrum aðgerðum við Efri-Níl. Tveir leiðtogar úr fyrra borg- arastríði, Gai Tut og Akuoth At- em, ráða yfir talsvert stóru svæði lengra í suðri. f janúar umkringdi lið Tuts herstöð í Akobo hjá eþíópísku landamærunum. Hundruð hafa fallið i aðgerðum stigamanna, skæruliða og her- manna, Nimeiri hefur sakað Líbýu- menn, Eþíópíumenn, og Rússa um að hjálpa skæruliðum. Óbeit Khadafy Líbýuleiðtoga á Nimeiri er kunn og hann hefur stutt nokkrar tilraunir til að steypa honum. Þeir styðja hvor sinn að- ila í Chad. Mengistu Eþíópíuleiðtogi hefur átt í útistöðum við Nimeiri, sem hefur veitt skæruliðum frá Eþíópíu hæli. En hendur Meng- istu eru bundnar vegna uppreisn- anna í Erítreu og Tigre. Bandaríkjamenn hafa stutt Nimeiri, sem fór til Washington í desember til að tryggja aukna hernaðar- og efnahagsaðstoð. Engin þjóð í Afríku, að Egyptum undanskildum, fær eins mikla að- stoð frá Bandaríkjunum og Súd- anir og í fyrra nam hún 190 millj- ónum dollara. Súdanir hafa orðið að treysta á lán frá Alþjóða- gjaldeyrissjóðnum vegna efna- hagskreppu. Skuld þeirra við út- lönd nemur níu milljörðum dala og er jafnhá þjóðarárstekjum. Bandarískir hermenn tóku þátt í súdönskum heræfingum 1981 og 1983 og í nóvember fór bandarísk hermálanefnd til Súdans að at- huga hergagnaþörf Súdana. Nefndin kannaði líka möguleika á hernaðaraðstöðu og skoðaði mannvirki Chevron-félagsins, sem eru orðin skotmark skæru- liða. Reagan forseti og stjórn hans fullvissuðu Nimeiri um fullan stuðning. En Bandaríkjamenn óttast þann möguleika að Nimeiri hrökklist frá völdum áður en langt um líður. Fall hans og myndun róttækari stjórnar mundi raska valdahlutföllum í þessum heimshluta, sem hefur mikla þýðingu, því að hann liggur að Rauðahafi og þar eru upptök Nílar og vatnsins sem Egyptar geta ekki án verið. Áhrifanna mundi og gæta handan Rauða- hafs. Því hafa Bandaríkjamenn kannað möguleika á að trúarleið- toginn Sadiq el-Mahdi, fv. forsæt- isráðherra og afkomandi spá- mannsins sem Bretar börðust við fyrir einni öld, miðli málum. Sad- iq er leiðtogi Ansar-sértrúar- flokksins og hefur setið í fangelsi í hálft ár ásamt mörgum stuðn- ingsmönnum. Áður en hann var handtekinn sat hann kvöldverð- arboð í sendiráði Bandaríkjanna og Nimeiri sá um að nýr banda- rískur sendiherra var skipaður. Nú má spyrja hvert leið Sadiqs liggi úr fangelsinu. Hermenn grafa upp nokkur flugskeyti, sem Líbýumenn notuðu þegar þeir gerðu loftárásir á Kolbus og fleiri þorp í Vestur-Súdan fyrir rúmlega tveimur árum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.