Morgunblaðið - 02.03.1984, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 02.03.1984, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. MARS 1984 3 Tilkoma Sultartangastfflu: Isrennsli verulega minna en áður var - segir Halldór Jónatansson, forstjóri Lands- virkjunar „REYNSLAN af Sultartangastífl- unni, þaö sem af er vetri, sýnir aö ísrennsliö er verulega minna í frostum en áður var. Einnig dreg- ur Sultartangalón mjög úr sand- buröi inn í inntakslón Búrfells- virkjunar," sagði Halldór Jónat- ansson, forstjóri Landsvirkjunar, í samtali viö Morgunblaðið. Sultartangastífla er jarðstífla rétt ofan við ármótin, þar sem Tungná rennur í Þjórsá. Hún liggur frá Sandafelli í austur yf- ir farveg Þjórsár og yfir Sult- artanga og Tungnáa. I Sanda- felli við enda stíflunnar er loku- virki með tveimur geiralokum og nálægt austurenda hennar er yfirfall úr steinsteypu. Lengd stíflunnar er um 6 kíló- metrar, og er meðalhæð hennar um 10 metrar, en mesta hæð um 20 metrar. Grafa þurfti burtu um 485 þúsund rúmmetra úr stíflustæðinu og fyrir botnrás og leggja 2.200 þúsund rúm- metra af jarðefnum í stífluna. Steinsteypan í lokuvirki og yfir- falli er um 8 þúsund rúmmetrar. Undirstöður stíflunnar voru styrktar og þéttar með steypu- dælingu í bergið. Heildarkostnaður við verkið nam hinn 31. desember sl. um 850 milljónum króna á þágild- andi verðlagi. Bygging stíflunn- ar hófst í aprílmánuði 1982 og var að mestu lokið við stíflu- gerðina sl. haust. Hinn 8. nóv- ember sl. var byrjað að fylla lónið. Fyllingin var látin ganga hægt eins og venja er um slíkar aðgerðir en einnig var haft í huga að ekki þurfti að hleypa ónauðsynlega úr Þórisvatni. Þú svalar lestrarþörf dagsins ' sjöum Moggans! Varð lónið því ekki fullt fyrr en í hlákunni sem gerði á Þjórs- ársvæðinu um helgina 25.-26. febrúar sl. Lónið, sem stíflan myndar, er um 19 ferkílómetrar að flatar- máli og hefur um 70 milljón rúmmetra nýtanlega miðlunar- getu. Þetta svarar til um eins meters hæðar í Þórisvatni að vatnsmagni til. Lónið dregur verulega úr ísrennsli að Búr- fellsstöð þar sem ísinn, sem myndast ofan við stíflu, stöðvast í lóniu. Áætlað er að orku- vinnslugeta landskerfisins auk- ist um 130 GWh á ári við til- komu stíflunnar. Næsta haust verður hægt að byrja með fullt lón og fæst þá öruggara mat á þvi hvaða áhrif stíflan hefur á reksturinn. Stíflan mun verða hluti af Sultartangavirkjun, þegar hún verður byggð. Norræn yfirlýsing um súra loftmengun Beint til brezku ríkisstjórnarinnar Stokkhólmi, 1. mars frá blaðamanni Morgunblaósins, Magnúsi Siguróssyni. ALEXANDER Stefánsson undirrit- aöi í morgun fyrir íslands hönd yfir- lýsingu frá norrænu umhverfis- málaráöherrunum um súra loft- mengun, sem beint var til um- hverfismálaráðherra bresku ríkis- stjórnarinnar. í þessari yfirlýsingu segir m.a., að þaö vísinda- og rann- sóknarstarf, sem unnið hefur veriö bæöi í hverju Noröurlandanna fyrir sig og á alþjóölegum vettvangi, hafi veitt okkur víðtækar upplýsingar um orsakir og áhrif súrrar loft- mengunar. Súr loftmengun veldur nú stórfelldum breytingum á nátt- úruumhverfi okkar og margar af þessum breytingum geta verið endanlegar. Það verður því að berj- ast gegn súrri loftmengun af öllu afli. Tilefni þessarar yfirlýsingar er skýrsla, sem nú liggur hjá bresku ríkisstjórninni, en þar er m.a. gert ráð fyrir því, að skotið verði á frest að draga úr loftmengun í Bretlandi, á meðan beðið er eftir ítarlegri rannsókn. í yfirlýsingu norrænu umhverfismálaráð- herranna segir, að yrði sú tillaga samþykkt, sem í þessari skýrslu felst, hefði það í för með sér mik- ið áfall fyrir hið alþjóðlega um- hverfismálastarf. Norrænu ráð- herrarnir myndu álíta slíka ákvörðun verulegt skref aftur á bak, ef miðað er við þann árang- ur, sem náðist á Stokkhólms- ráðstefnunni 1982 varðandi súra loftmengun, og þá ákvörðun, sem tekin var á fyrsta fundi með framkvæmdanefnd EBE-samn- ingsins um loftmengun milli ríkja. Því skora norrænu ráðherr- arnir á bresku ríkisstjórnina að fylgja tillögu þeirra um að minnka brennisteinsloftmeng- unina um 30% fyrir árið 1993 eins og Norðurlöndin hafa lagt til. Talsverðar umræður hafa orðið hér á þingi Norðurlandaráðs um súra loftmengun, en hún er orðin að miklu vandamáli sums staðar á Norðurlöndum og þá einkum hér í Svíþjóð. í ræðu þeirri, sem Olof Palme, forsætisráðherra Svíþjóðar, flutti, gagnrýndi hann einkum bresku ríkisstjórnina fyrir aðgerðarleysi í mengunar- málum. Hækkandi fiskverð í Þýskalandi j TVÖ skip seldu afla sinn erlendis í | gær og fyrradag. Þau seldu bæði í ' Þýzkalandi og fengu gotl verð fyrir i aflann, sem var mest megnis karfi. j Á þriðjudag seldi Ögri RE 165,1 lest í Bremerhaven. Heildarverð : var 5.142.200 krónur, meðalverð ' 31,14. í gær seldi Karlsefni RE - \ 151,6 lestir í Cuxhaven. Heildar- verð var 4.452.100 krónur, meðal- verð 29,37. Eiríkur Guöna- son forstöðu- maður hagdeild- ar Seðlabanka Bankastjórn Seðlabankans hefur ráðið Eirík Guðnason, viðskiptafræð- ing, í starf forstöðumanns hagfræði- deildar (hagfræðings) Seðlabankans frá 1. mars 1984. Tekur hann við því starfi af Bjarna Braga Jónssyni, hag- fra-ðingi, sem nýlega var ráöinn að- stoðarbankastjóri við bankann, segir í freftatilkynningu frá Seðlabankanum. Eiríkur Guðnason er fæddur 3. apríl 1945. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Laugarvatni 1965 og viðskiptafræðiprófi frá Há- skóla íslands 1970. Eiríkur hefur síðan starfað við hagfræðideild Seðlabankans einkum að peninga- málum og haft með höndum for- stöðu á því sviði frá 1977. Eiríkur er kvæntur Þorgerði Guðfinnsdóttur og eiga þau fjögur börn. Eiríkur Guðnason Pað er ekki nóg með að Citroén BX sé búinn sófasetti eins og besta stofa. Hann er með 92 hestafla, 1580 cm3, vatnskældri, 4ra strokka vél; 5 gira kassa, framdrifi, diskabremsum á öllum hjólum og vökvafjöðrun. Eyðslan er aðeins 7,2 I á hundraðið. Citroén BX er 5 manna og 5 dyra og með þvi að fella niður aftursætið fæst 1500 I flutningsrými. Meðal „standard" fylgihluta eru speglar á báðum framhurðum, rafdrifnar rúður og læsingar, snúningshraða- og smurolíumælir, quartsklukka, hátalarar og loftnet. Citroén BX 16 TRS kostar aðeins 424.650 krónur. Citroén BX Diesel kostar um 370.000 krónur til leigubílstjóra. Bílasalan er opin á laugardögum frá kl. 2-5. G/obusr LÁGMÚLI5, SÍMI81555 CITROÉN *

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.