Morgunblaðið - 02.03.1984, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. MARS 1984
Peninga-
markadurinn
GENGIS-
SKRÁNING
NR. 43—1. MARZ
1984
Kr. Kr. Toll-
Ein. Kl. 09.15 Kaup Sala gengi
1 Dollar 28,920 29,000 28,950
1 SLpund 42381 43,000 43,012
I Kan. dollar 23,146 23,210 23,122
1 Dönsk kr. 3,0159 3,0242 3,0299
1 Norsk kr. 3,8408 3,8514 3,8554
1 S3tn.sk kr. 3,7086 3,7189 3,7134
1 Fi. mark 5,1249 5,1391 5,1435
1 Fr. franki 3,5914 3,6014 3,6064
1 Belg. franki 0,5405 0,5420 0,5432
1 Sv. franki 13,2935 13,3303 13,3718
1 Holl. gyllini 9,7918 9,8189 9,8548
1 V-þ. mark 11,0622 11,0928 11,1201
1 ÍL Ifra 0,01779 0,01784 0,01788
1 Austurr. sch. 1,56% 1,5739 1,5764
1 Port escudo 0,2203 0,2210 0,2206
1 Sp. peseti 0,1928 0,1933 0,1927
1 Jap. yen 0,12387 0,12422 0,12423
1 Irskt pund 34,014 34,108 34,175
SDR. (Sérst.
dráttarr.) 30,6060 30,6908
Vextir: (ársvextir)
Frá og með 21. janúar 1984
INNLÁNSVEXTIR:
1. Sparisjóðsbækur................ 15,0%
2. Sparisjóðsreikningar, 3 mán.1). 17,0%
3. Sparisjóðsreikningar, 12. mán.1)... 19,0%
4. Verðtryggðir 3 mán. reikningar. 0,0%
5. Verðtryggðir 6 mán. reikningar. 1,5%
6. Ávísana- og hlaupareikningar.... 5,0%
7. Innlendir gjaldeyrisreikningar:
a. innstæður í dollurum......... 7,0%
b. innstæður f sterlingspundum. 7,0%
c. innstæður i v-þýzkum mörkum... 4,0%
d. innstæður i dönskum krónum.... 7,0%
1) Vextir færðir tvisvar á ári.
ÚTLÁNSVEXTIR:
HÁMARKSVEXTIR
(Verðbótaþáttur í sviga)
1. Víxlar, forvextir..... (12,0%) 18,5%
2. Hlaupareikningar ..... (12,0%) 18,0%
3. Afuröalán, endurseljanleg (12,0%) 18,0%
4. Skuldabréf ........... (12,0%) 21,0%
5. Visitölubundin skuldabréf:
a. Lánstími minnst Vh ár 2,5%
b. Lánstími minnst 2% ár 3,5%
c. Lánstími minnst 5 ár 4,0%
6. Vanskilavextir á mán...........2,5%
Lífeyrissjóðslán:
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins:
Lánsupphæð er nú 260 þúsund krónur
og er lániö visitölubundiö með láns-
kjaravísitölu, en ársvextir eru 2%.
Lánstími er allt aö 25 ár, en getur veriö
skemmri, óski lántakandi þess, og eins
ef eign sú. sem veö er í er lítilfjörleg, þá
getur sjóöurinn stytt lánstímann.
Lífeyrissjóöur verzlunarmanna:
Lánsupphæö er nú eftir 3ja ára aöild aö
lífeyrissjóönum 120.000 krónur, en fyrir
hvern ársfjóröung umfram 3 ár bætast
viö lániö 10.000 krónur, unz sjóösfélagi
hefur náö 5 ára aöild að sjóönum. Á
tímabilinu frá 5 til 10 ára sjóösaöild
bætast viö höfuöstól leyfilegrar láns-
upphæöar 5.000 krónur á hverjum árs-
fjóröungi, en eftir 10 ára sjóðsaöild er
lánsupphæöin orðin 300.000 krónur.
Eftir 10 ára aöild bætast viö 2.500 krón-
ur fyrir hvern ársfjóröung sem líöur. Því
er í raun ekkert hámarkslán í sjóönum.
Höfuðstóll lánsins er tryggður meö
byggingavísitölu, en lánsupphæöin ber
2% ársvexti. Lánstíminn er 10 til 32 ár
aö vali lántakanda.
Lánskjaravísitala fyrir janúar 1984 er
846 stig og fyrir febrúar 850 stig, er þá
miðaö við vísitöluna 100 1. júní 1979.
Hækkunin milli mánaöa er 0,5%.
Byggingavísitala fyrir október-des-
ember, sem gildir frá 1. janúar, er 149
stig og er þá miöaö viö 100 í desember
1982.
Handhafaskuldabréf í fasteigna-
viðskiptum. Algengustu ársvextir eru nú
18-20%.
Sterkurog
hagkvæmur
auglýsingamiöiU!
3RtirjjrtnhInMt>
Sjónvarp kl. 20.55:
Trylltur
„break“-dans
I'rjátíu mínútna löng mynd um
„trylltan dans“ veröur á dagskrá
sjónvarpsins í kvöld kl. 20.55.
Rakin er saga hins svonefnda
„break“-dans, sem margir
kannast við, meðal annars úr
Skonrokk-þáttum sjónvarpsins.
Dans þessi á rætur sínar að
rekja til fátækrahverfa New
York, og svertingjar hafa náð
sérstaklega góðum tökum á
honum.
í fátækrahverfunum tóku
piltarnir upp á því að halda
danskeppni og kepptu um hver
gæti dansað best, í stað þess að
berjast og slást hver við annan.
Hópur 15 ára gamalla stráka
frá Harlem þykir hafa náð
feikilega góðum árangri í þess-
ari list og sýnir hann meðal
annars nokkra dansa í þessum
þætti.
ISjónvarp kl. 21.25:
Kastljós
Kvótaskipting og
styrjöld milli írana og
Iraka meðal efnis
í Kastljósi í kvöld veróur fjallað
um riskveiðikvótaskiptinguna sem
nú upp á síðkastið hefur verið mikið
til umfjöllunar, styrjöldina milli fr-
ana og íraka og orkumál í Noregi.
„Ég ræði við aðila í Þorláks-
höfn um kvótaskiptinguna og
áhrif hennar," sagði Sigurveig
Jónsdóttir sem sér um innlend
málefni í þættinum. „Þorlákshöfn
er eitt þeirra sjávarplássa sem
byggir atvinnulíf sitt nær ein-
göngu á sjávarútvegi, allt at-
vinnulíf þar snýst um sjóinn og
fiskinn.
Ég ræði meðal annars við Erl-
ing Sævarr Jónsson skipstjóra á
litlum bát sem hann á sjálfur, Pál
Jónsson framkvæmdastjóra
Msitilsins, sem er eina frystihús-
ið í Þorlákshöfn og er einnig með
útgerð. Þá ræði ég við Sigríði
Stefánsdóttur sem vinnur í
frystihúsinu og Stefán Garðars-
son sveitarstjóra.
Ef tími leyfir verður rætt við
fleiri aðila og jafnvel eitthvert
annað umfjöllunarefni tekið
fyrir."
f erlenda hlutanum, sem Bogi
Ágústsson sér um, verður fjallað
um styrjöldina á milli fraka og
írana og einnig verður pistill frá
Atla Rúnari Halldórssyni frétta-
ritara sjónvarpsins í Osló, þar
sem fjallað er um orkumál.
Meðal þess sem kemur fram í
pistlinum frá Osló eru viðtöl við
mann sem starfar við orkumál í
norska utanríkisráðuneytinu,
stjórnarformann Rúrgas, sem er
fyrirtæki sem kaupir gas frá Nor-
egi, olíumálaráðherra Noregs og
fleiri.
Reynt verður að gera sér grein
fyrir framtíðinni í orkumála-
stefnu Noregs og meðal annars
kemur jarðgas á norsku land-
grunni við sögu.
Útvarp kl. 21.40:
Fóstur-
landsins
freyja
Fósturlandsins Freyja, þáttur
Höskuldar Skagfjörð, verður á
dagskrá útvarpsins í kvöld kl.
21.40.
„I þetta sinn fjalla ég um
Steinunni Frímannsdóttur
skólameistarafrú, en hún er
kennd við Möðruvelli í Hauka-
dal,“ sagði Höskuldur er hann
var inntur eftir efni þáttarins að
þessu sinni.
„Steinunn er elsta konan sem
ég fjalla um í þessum þáttum,
sem eru átta talsins. Hún fædd-
ist árið 1863 og var gift Stefáni
Stefánssyni skólameistara. Með-
al barna þeirra eru Valtýr Stef-
ánsson og Hulda Stefánsdóttir
og ég hef einnig stutt spjall við
hana. Hulda er ákaflega
skemmtileg kona og það var sér-
staklega ánægjulegt að geta haft
viðtal við hana í þessum þætti.
Hún kann að segja frá mörgu
skemmtilegu sem á daga hennar
hefur drifið og ofurlítill hluti af
því kemur fram í þessu viðtali,"
sagði Höskuldur að lokum.
Útvarp kl. 23.10:
Kvöldgestir
Kvöldgestir Jónasar Jónasson-
ar í kvöld verða þau María Val-
garðsdóttir húsfreyja í Hátúni á
Akureyri og Helgi Hallgrímsson
forstöðumaður Náttúrugripa-
safnsins á Akureyri.
Þáttur þessi kemur frá Ríkis-
útvarpinu á Akureyri, þar sem
Jónas er búsettur, en hann kem-
ur oft til Reykjavíkur gagngert
til að taka á móti kvöidgestum
sínum í útvarpssalnum við
Skúlagötu.
Þau María, Helgi og Jónas
hefja samtal sitt kl. 23.20.
Útvarp Reykjavík
FÖSTUDKGUR
2. mars
MORGUNNINN
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn.
Á virkum degi. 7.25 Leikfími.
7.55 Daglegt mál. Endurt. þátt-
ur Erlings Sigurðarsonar frá
kvöldinu áður.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veð-
urfregnir. Morgunorð: — Snorri
Jónsson talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Leikur í laufi“ eftir Kenneth
Grahame. Björg Árnadóttir les
þýðingu sína (23).
9.20 Leikfími. 9.30 Tilkynningar.
Tónleikar. 9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
Forustugr. dagbl. (útdr.).
10.45 „Það er svo margt að minn-
ast á“. Torfi Jónsson sér um
þáttinn.
11.15 Dægradvöl. Þáttur um frí-
stundir og tómstundastörf í um-
sjá Anders Hansen.
11.45 Tónleikar.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
SÍÐDEGIÐ
14.00 „Klettarnir hjá Brighton"
eftir Graham Greene. Haukur
Sigurðsson les þýðingu sína
(13).
14.30 Nýtt undir nálinni. Hildur
Eiríksdóttir kynnir nýútkomnar
hljómplötur.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veð-
urfregnir.
16.20 Síðdegistónleikar.
17.10 Síðdegisvakan.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
KVÖLDIÐ
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.50 Við stokkinn. Stjórnandi:
Heiðdís Norðfjörð (RÚVAK).
20.00 Lög unga fólksins. Þóra
Björg Thoroddsen kynnir.
20.40 Kvöldvaka.
a. Dalamannarabb. Ragnar Ingi
Aðalsteinsson ræðir við Einar
Kristjánsson fyrrum skólastjóra
að Laugum, um æskuár hans,
skólagöngu og skólastjórn.
b. Úr þáttum Sögu-Gvendar.
Rósa Gísladóttir frá Krossgerði
les úr Þjóðsagnasafni Sigfúsar
Sigfússonar; fyrri hluti. Umsjón:
Helga Ágústsdóttir.
21.10 Frá tónlistarhátíðinni í
Schwetzingen í fyrrasumar.
21.40 Fósturlandsins Freyja. Um-
sjón: Höskuldur Skagfjörð. Les-
ari með honum: Guðrún Þór.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins. Lest-
ur Passíusálma (11).
22.40 Djassþáttur. Umsjónarmað-
ur: Gerard Chinotti. Kynnir:
Jórunn Tómasdóttir.
23.20 Kvöldgestir — þáttur Jónas-
ar Jónassonar.
00.50 Fréttir. Dagskrárlok.
Næturútvarp frá RAS 2 hefst
með veðurfregnum kl. 01.00 og
lýkur kl. 03.00.
FÖSTUDAGUR
2. mars
10.00—12.00 Morgunþáttur
Stjórnendur: Páll Þorsteinsson,
Ásgeir Tómasson og Jón Ólafs-
son.
14.00—16.00 Pósthólfið
Stjórnendur: Valdís Gunnars-
dóttir og Hróbjartur Jónatans-
son.
16.00—18.00 Helgin framundan
Stjórnandi: Jóhanna Harðardóttir.
23.15—03.00 Næturvakt á rás 2
Stjórnandi: Ólafur Þórðarson.
Rásir 1 og 2 samtengdar með
veðurfréttum kl. 01.00 og heyr-
ist þá í rás 2 um allt land.
FÖSTUDAGUR
2. mars
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Á döfínni
Umsjónarmaður Karl Sig-
tryggsson. Kynnir Birna
Hrólfsdóttir.
20.55 Trylltur dans
Bresk mynd um nýtt dansæði,
sem breiðist nú út um heiminn,
en á upptök sín á götum fá-
tækrahverfa í New York. Þetta
er „break“-dansinn svonefndi,
sem minnir helst á fimleika.
Rakin er saga þess íyrirbæris,
Rock-Steady-flokkurinn sýnir,
en hann er skipaður fyrrum
götustrákum, auk þess er kynnt
nýbylgjupopp, sem dansinum er
skylt. Þýðandi Jóhanna Þrá-
insdóttir.
21.25 Kastljós
Þáttur um innlend og erlend
málefni. Umsjónarmenn: Bogi
Ágústsson og Sigurveig Jóns-
dóttir.
22.25 John og Mary
Bandarísk bíómynd frá 1%9.
Leikstjóri: Peter Yates. Aðal-
hiutverk: Dustin Hoffman og
Mia Farrow. John og Mary hitt-
ast á skemmtistað í New York
og eyða nótt saman áður en
raunveruleg kynni þeirra hefj-
ast. Þýðandi: Kristrún Þórðar-
dóttir.
23.50 Fréttir í dagskrárlok