Morgunblaðið - 02.03.1984, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. MARS 1984
7
Öllum þeim sem urðu til að auka gleði mína á afmœlis-
daginn sendi ég bláu geislana mína.
Ási í Bæ.
SIEMENS
*
SIEMENS — hrærivélin MK 4500:
Fyrirferöarlítil og fjölhæf og
allir aukahlutir fylgja meö!
Verd
• þeytir, hrærir, hnoðar,
aðeins
kr. 6.500
• rífur, sker, saxar, hakkar og blandar
bæöi fljótt og vel.
Siemens — stendur ætíð fyrir sínu.
Siemens — einkaumboð:
SMITH & NORLAND HF.,
Nóatúni 4, 105 Reykjavík.
Sími28300.
HV
ILJI
Bláskógar
Armúla 8, sími 86080.
Menningar-
bylting í
aðsigi?
Nýjar stjörnur
Eftir aö Fylkingin gekk í Alþýöubandalagiö hefur atburöarásin verið hröö
innan flokksins og í Dagsbrún og nú eru komnar nýjar stjörnur á fundum
Alþýðubandalagsins: Bjarnfríöur Leósdóttir og Pétur Tyrfingsson, fulltrúar
óróadeildarinnar í verkalýöshreyfingunni. í Þjóðviljanum bera menn ann-
aöhvort blak af Svavari Gestssyni eöa sauma aö honum undir rós á meöan
Guömundur J. íhugar menningarbyltingu á einum Dagsbrúnarfundi.
Athyglisvert er aö bera
saman sigurgleðina á síð-
um Þjóðviljans fyrstu dag-
ana eftir art kjarasamn-
ingarnir voru felldir í
Dagsbrún og þá vörn sem
nú einkennir skrif blaðs-
ins. Þeir hafa vitnað á síð-
um Þjóðviljans nafnarnir
Guðmundur J. Guð-
mundsson og Guðmundur
Hallvarðsson, Fylkingarfé-
lagi.
Hinn síðarnefndi sá sig
knúinn til að lýsa í löngu
máli hvað því færi víðs-
fjarri að um einhvern sér-
stakan sigur Fylkingarinn-
ar hefði verið að ræða á
Dagbsrúnarfundinum. Var
engu líkara en Svavar
Gestsson hefði skrifað
þessa grein undir nafni
Guðmundar Hallvarðsson-
ar, hún var öll í þeim dúr
að alls ekki mætti líta á
atkvæðagreiðsluna í
Dagsbrún sem gagnrýni á
Svavar og forystusveit Al-
þýðubandalagsins. Eins og
lesendur Staksteina vita er
Fylkingin nú gengin í Al-
þýðubandalagið og ætlar
sér jafnstóran hlut þar og í
Dagsbrún. Fylkingunni
tókst hægt og sígandi að
loka Guðmund J. Guð-
mundsson inni og náði svo
af honum völdunum á
fjöldafundi, hið sama ætla
Fylkingarfélagar að reyna í
Alþýðubandalaginu og
finnst ástæðulaust að gefa
flokksforystunni og Svav-
ari tilefni til gagnaðgerða á
þessu stigi.
Guðmundur J. Guð-
mundsson segir í lok l'jóð-
viljaviðtals í gær: „Hvað
nú tekur við hjá Dags-
brún? — okkar hernaðar-
áætlun liggur ekki fyrir, en
við munum láta þúsund
blóm spretta, eins og Maó
formaður sagði. I>að er
hugur f Dagsbrúnar-
mönnum um þessar mund-
ir, og við munum ekki hika
við að boða til nýs félags-
fundar til þess að ræða
okkar mál.“ Allt er þetta
tal laust í reipunum hjá
hinum baráttuglaða for-
manni. I>að dugar honum
lítið að vitna í Maó sér til
halds og traust i átökunum
við trotskyistana í Fylking-
unni. /Etlar Guðmundur J.
að efna til sfðbúinnar
menningarbyltingar f
Dagsbrún með aðstoð
trotskyista? Er ekki að efa
að sú tilraun kæmist á
sögublöð heimskommún-
ismans. Hið eina sem Ijóst
er hjá formanni Dagsbrún-
ar eftir að hann situr uppi
með samningslaust félag
er að hann hikar ekki við
að boða félagsfund! Miðað
við doðann í Dagsbrún hin
síðari ár jafnast það líklega
á við menningarbyltingu
eða að láta þúsund blóm
spretta að hika ekki við aö
halda fund í félaginu.
Ráðist á
Þorstein
Til að dreifa athygli les-
enda Þjóðviljans enn frek-
ar frá hinum hatrömmu
átökum sem eiga sér stað í
Alþýðubandalaginu og eru
að kljúfa flokkinn ofan í
verkalýðsrótina hafa rit-
stjórar blaðsins ákveðið að
ræða þau mál öll alls ekk-
ert f greinum sínum en
hefja þess í stað persónu-
lega ófrægingarherferð
gegn Þorsteini Pálssyni,
formanni Sjálfstæðis-
flokksins. Hefur hún nú
verið stunduð tvo daga í
röð og þykjast kommúnist-
ar geta notað Albert Guð-
mundsson í þessari nýjustu
tilraun til aö slá ryki í aug-
un á fólki.
Staðreynd er að alþýðu-
bandalagsmenn urðu
næsta miður sín eftir
kappræðufund þeirra Svav-
ars Gestssonar og Þor-
steins Pálssonar í Hafnar-
firði á dögunum, þegar í
Ijós kom að málatilbúnaö-
ur Svavars hrundi eins og
spilaborg, ekki síst allt tal
hans um mannúðina og Al-
þýðubandalagið. Síðan
hafa greinar til varnar
Svavari bæði birst í Dag-
blaðinu-Vísi og Þjóðviljan-
um. Og hvert er helsta
árásarefni Þjóöviljans á
Þorstein Pálsson: að hann
komi vel fyrir í fjölmiölum
og á fundum. Enn er blaðiö
sem sé að bera í bætiiláka
fyrir Svavar sinn Gestsson
á kappræðufundinum —
eða hvað?
Fram til þessa hafa
áhugamenn um stjórnmál
taliö það Alþýðubandalag-
inu helst til framdráttar að
Svavar Gestsson er fremur
vel máli farinn, hann tekur
sig bærilega vel út í sjón-
varpi og þykir hafa lag á
því að koma því sæmilega
vel til skila sem hann vill
koma á framfæri við al-
menning. Allt þetta telur
Þjóðviljinn Ijóð á ráöi
Þorsteins Pálssonar. Hvað
segja menn til dæmis um
þessa smekklegu lýsingu á
Þorsteini í leiðara Þjoðvilj-
ans í fyrradag: „Nýi for-
maöurinn þótti snoppufríð-
ur og varð um tíma ámóta
vinsælt myndefni dagblaða
og Sófía Lóren. Aö hinu
leytinu þótti það há honum
nokkuð hversu grátklökk
röddin er og talandinn til-
breytingarlaus, reyndar
hvort tveggja einum of líkt
stfl Geirs Hallgrímssonar.
Það er alltaf erfitt fyrir
menn, sem tala eins og
þeir trúi ekki sjálfír því
sem þeir segja, að fá annað
fólk til að fallast á mál
sitt.“
Eins og allir vita telja
„gáfumennirnir" í Alþýðu-
bandalaginu sér það helst
til ágætis að þeir ræði mál
jal'nan á „háu plani“,
ofangreind skrif eru geðs-
laginu til staðfestingar. En
þá er á hitt að líta aö Þjóð-
viljann verða menn að lesa
núna í Ijósi vandræða
Svavars Gestssonar. Það
skyldi þó ekki vera að
árásin á Þorstein Pálsson
hafí í raun verið sneið
Ólafs R. Grímssonar til
Svavars Gestssonar í erfið-
leikum hans? — Lokasetn-
ingin hittir Svavar beint í
hjartastað.
HAGNYT ..
FERMINGARGJOF
Mikið úrval HAPPY barna og unglingahúsgagna
á ótrúlegu verði. Dæmi:
Svefnbekkur frá 4.700 Kommóða frá 2.450 Stereóbekkur frá 1.680 Bókahillur frá 1.750
\
Þessi húsgögn eru til bæði úr eik og furu.
HUSGAGNAVERSUUN
REYKJAVÍKURVEGI64 S. 54499
GAREV\STR€Tl 17 S.15044