Morgunblaðið - 02.03.1984, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 02.03.1984, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. MARS 1984 Verkalýðshreyfíngin á sam- leið með atvinnurekendum Ræða Ragnars Halldórssonar á aðal- fundi Verzlunarráðs íslands Ragnar Halldórsson flytur ræðu sína i aðalfundi Verzlunarráðs íslands. Hér fer á eftir meginhluti setn- ingarræðu Ragnars Halldórssonar, formanns Verzlunarráðs íslands á aðalfundi þess í fyrradag. Frá orðum til athafna Menn í atvinnulífinu verja eðli- lega mestum tíma sínum í innri málefni fyrirtækja sinna við að bæta reksturinn og sækja fram á sem flestum sviðum. En fyrir- tækjunum er ekki aðeins stjórnað innan frá. Ákvarðanir sem teknar eru á öðrum stöðum, á Alþingi, í ráðuneytum og opinberum stofn- unum, skipta oft sköpum um af- komu fyrirtækjanna. Þótt opinber afskipti af at- vinnulífinu séu of mikil, er ekkert við því að segja, að stjórnvöld taki ákvarðanir, sem varða heildar- skipulag efnahags- og atvinnu- mála. Hitt er gagnrýnisvert, þegar slíkar ákvarðanir eru teknar án skilnings á þörfum atvinnulífsins og án skilnings á gildi einka- rekstrar og frjáls framtaks fyrir þjóðarbúið. Á undanförnum árum hafa flestar ákvarðanir stjórn- valda verið með þessu marki brenndar, jafnt ákvarðanir sem snerta innri málefni fyrirtækja og ytri skilyrði. Þetta er harður dóm- ur, en því miður allt of sannur. Stjórnendur fyrirtækja hafa þvi ekki aðeins þurft að leggja sig alla fram við að sigla fyrirtækjum sín- um í gegnum boðaföll svokallaðs efnahagslífs með allt að 130% verðbólgu, heldur hafa þeir einnig þurft að fylkja sér saman til að mynda mótvægi gegn þeim sem með óheillavænlegum hætti hafa verið að stjórna fyrirtækjum þeirra utan frá á undanförnum ár- um. Verzlunarráð íslands hefur ver- ið vettvangur fyrirtækja í þessari baráttu, enda teljum við, að at- vinnulífið þurfi að láta til sín taka á sem flestum sviðum þjóðmál- anna. Það er því af brýnni nauð- syn sem Verzlunarráðið hefur lagt mikla vinnu í heildarstefnumótun í efnahags- og atvinnumálum. Þeirri vinnu var að mestu lokið er Viðskiptaþing Verzlunarráðsins 1981 samþykkti stefnu ráðsins í efnahags- og atvinnumálum. Sú stefna var gefin út í myndarlegum bæklingi og dreift viða. í framhaldi af þeirri útgáfu boðaði Verzlunarráðið til blaða- mannafundar í mars 1982. Þá sögðum við að yrðu tillögur okkar framkvæmdar mætti lækka verð- bólguna niður í 15—20% á einu ári. Okkur var ekki almennt trúað þá og ýmsir litu á þessar yfirlýs- ingar sem einhvers konar talna- leik, sem engin alvara byggi á bak við. En okkur var full alvara og við létum ekki staðar numið. Áfram var unnið að frekari útfærslu á tillögum ráðsins og á Viðskipta- þingi á síðasta ári var lögð fram efnahagsáætlun undir nafninu „Frá orðum til athafna". Áætlunin var síðan rædd ítarlega við vel- flest samtök atvinnulífsins og dreift til almennings sl. vor. í áætluninni voru sett fram skýr markmið með nákvæmlega sund- urliðuðum leiðum og tímasettum aðgerðum. Það er skemmst frá því að segja, að þessar tillögur urðu mjög umdeildar fyrir siðustu alþingiskosningar. Þetta voru um- búðalausar og djarfar .tillögur, sem stungu í stúf við orðagjálfur og gervilausnir, sem hafa ein- kennt þjóðmálaumræðu á Islandi í alltof langan tíma. En ég hef þá trú, að þessar tillögur okkar hafi brotið ísinn og opnað augu manna fyrir því, að nú yrði ekki lengur undan því vikist að stokka upp efnahagskerfi landsins, ef við ætl- uðum ekki að sökkva i skuldafen og verða efnahagslegri stöðnun að bráð. Ef farið hefði verið að tillögum Verzlunarráðsins fyrir tveimur árum hefði verið hægt að ná árangri í baráttunni við verðbólg- una án þess að skerða lífskjörin í landinu. En of seint var gripið til aðgerða. Sú bið hefur verið okkur dýrkeypt. Það eru því ekki aðgerð- ir þessarar ríkisstjórnar, sem hafa skert lífskjörin, heldur aðgerða- leysi fyrri ríkisstjórna. Árið 1983 var umskiptaár í efnahagssögu landsins. Með breyttri stjórnarstefnu tókst á skömmum tíma að koma verð- bólguhraðanum niður úr 130% í um 10—15% við síðustu áramót. Þá sannaðist það sem Verzlunar- ráðið hafði haldið fram, að unnt væri að ná verðbólgunni niður á skömmum tíma. Þetta var sem sagt mögulegt. Ymsir telja sig finna samlík- ingu með stefnu Verzlunarráðsins og núverandi stjórnarstefnu og má það til sanns vegar færa, svo langt sem það nær. Hins vegar hefur Verzlunarráðið engin tengsl við stjórnmálaflokka og stjórn- málastefnur. Við teljum að at- vinnulífið eigi að reka sjálfstæða og ábyrga stefnu í efnahags- og atvinnumálum og tala máli sínu sjálft gagnvart almenningi, stjórnmálamönnum og stjórnvöld- um á hverjum tíma. Við höfum markvisst unnið að því að kynna málstað okkar og afla honum fylg- is. Það er réttur okkar í frjálsu þjóðfélagi. Við lítum jafnframt á tillögur okkar sem framlag at- vinnulífsins til uppbyggingar og velsældar í þjóðfélaginu. Verzlunarráðið hefur haslað sér völl sem gagnrýnið afl í þjóðfélag- inu og hlutverk þess er að veita stjórnvöldum aðhald og vera þeim til ráðgjafar um málefni atvinnu- lífsins (þeim sem kunna góð ráð að þiggja). Verzlunarráðið mun áfram gegna þessu hlutverki sínu. Upphaf nýs tíma Hver dagur er í sjálfu sér upp- haf nýs tíma, skil fortíðar og nú- tíðar. Þannig er hver dagur tíma- mót í eðli sínu, en tímamót eru ekki öll jafnskýr eða afdrifarík. Stundum líða þau jafnvel hjá óséð, og það er ekki fyrr en síðar, að við greinum þáttaskilin. Þau þáttaskil, sem nú eru í efnahags- og atvinnumálum, ættu þó ekki að fara fram hjá okkur. Hefðbundnar atvinnugreinar okkar eru komnar á endimörk síns vaxtarskeiðs og okkur má ljóst vera, að nýjar greinar verða að taka við. Okkur hefur einnig tekist að ná jafnvægi í efnahagslífinu. Upplausnin, óðaverðbólgan og eyðlustefnan er að baki. Skulda- dagar og uppbygging fer í hönd. Þar skiptir miklu, að nú er unnið að því að innleiða frjálsa verð- myndun, frjálsræði í gjaldeyris- viðskiptum, endurskoða skipan lánamála, einfalda tollheimtu og tolleftirlit og lækka tolla, draga úr þátttöku ríkisins í atvinnulífinu, og breyta lögum um tekju- og eignarskatt til að treysta eigin- fjárstöðu fyrirtækja og örva al- menning til fjárfestinga í atvinnu- lífinu. Þessar breytingar, þegar þær verða að veruleika, marka skörp þáttaskil í atvinnulífinu. Þær sýna okkur breytt viðhorf til atvinnu- lífsins og færa einkarekstrinum ný tækifæri til að sýna þann kraft, sem hann býr yfir til að ryðja brautina, takast á við ný verkefni og skila árangri, sem þjóðin öll mun að sjálfsögðu á endanum uppskera í betri lífskjörum í víð- um skilningi þess orðs. Krafturinn býr í einkarekstrinum Stærsta orkulindin í þessu landi er ekki fallvötnin eða hitinn í iðr- um jarðar. Mesta orkan býr í okkur sjálfum, ef við fáum svig- rúm til athafna og framkvæmum ætlun okkar að ná árangri. Þetta hefur einkareksturinn sýnt hér sem erlendis, þótt hitt sé jafnsatt, að svo megi þrengja að einka- rekstrinum að hann njóti sín ekki nema að takmörkuðu leyti. Menn hafa oft velt því fyrir sér hvað knúi einkareksturinn áfram og fái hann til að standa sig betur en ríkisreksturinn. Er það sköpun- argleðin eða nautnin að ná árangri, aðhald og örvun sam- keppninnar eða hagnaðarvonin? Þá má einu gilda, árangurinn skiptir mestu máli og hans njótum við öll, enda er hagnaður ekki bara mælikvarði árangurs í atvinnulíf- inu, heldur líka forsenda batnandi lífskjara. Til þess að skila hagnaði þurfa fyrirtækin að skila árangri, og til þess þurfa þau að gera jafnvel og helst betur en keppinautarnir, innleiða nýjungar, og framleiða ódýrari og betri vörur. Hagnaður- inn leiðir því til hagkvæmni í rekstri fyrirtækja og gerir hann umfangsmeiri. Fyrirtæki sem vaxa þurfa fleira starfsfólk og verða því að borga betri laun. Hagnaðurinn er þannig undir- staða hagvaxtar og betri lífskjara, þannig að meira verður til skipt- anna, líka fyrir þá sem eru ekki lengur þátttakendur í atvinnulíf- inu.'"' Árangurinn skiptir mestu í atvinnulífinu hættir það fljótt að skipta máli, þegar menn sækja um störf, hvað þeir hafa lært. Meira máli skiptir, hvað þeir geta gert. Það er árangurinn sem gild- ir. Þeir, sem skila ekki árangri, eru dæmdir úr leik. Sjaldan verður maður þó eins var við hversu miklu árangurinn skiptir, eins og þegar ferðast er um sum lönd Asíu, svo sem Singa- pore, Hong Kong og Japan. Þar ríkir sterk sannfæring, sterkari en víða, að hægt sé að ná árangri og gera betur. Þar situr í fyrirrúmi að ná fyrst árangri, en deila síðan ávöxtum erfiðisins. Þar gefur vinnan lífinu fyllingu. Þeir segja: Framleiðni er spurning um hug- arfar. Framleiðni þjóðarbúsins er lykillinn að aukinni hagsæld. Þar er atvinnulífið að gera betur í dag en í gær og sannfært um, að það geti gert betur á morgun. Þetta er kjarninn í allri þeirra viðleitni. Okkur er tamt að hugsa stundum á annan veg. Nýjasta dæmið eru fréttir um ástand loðnustofnsins. Nú er okkur sagt að veiða megi 640 þús- und tonn af loðnu, sem er 265 þús- und tonnum meira en áður var. Strax þegar þessar fréttir berast taka opinberir starfsmenn upp reiknistokkana og tölvurnar. Hvert verður útflutningsverðmæt- ið, hver verður aukning þjóðar- tekna og hversu háar fjárhæðir skila sér á endanum í ríkissjóð? Það er sem sagt búið að skipta aflanum áður en hann veiðist, áð- ur en hann er unninn og áður en afurðirnar eru seldar. Enn hefur okkur ekki lærst að afla teknanna, áður en þeim er skipt eða eytt. Það er þó ef til vill alvarlegast, að þessar veiðifréttir fyrir okkur, stórauknir möguleikar á loðnu- veiði, hafa þegar skapað verðfall á afurðunum á heimsmarkaði. Ef til vill væri betra að ganga hægar um gleðinnar dyr. Einkareksturinn í öndvegi Einkareksturinn getur ekki leyft sér slíkan munað. Hann þarf að skila árangri til að lifa. Hann getur ekki einu sinni leyft sér að standa í stað. Það jafngildir aftur- för. Það er svo bágt að standa í stað. Mönnunum miðar annað- hvort afturábak ellegar nokkuð á leið. Á undanförnum árum höfum við íþyngt einkarekstrinum og tor- veldað honum að skila árangri. Við höfum aukið skattheimtuna, svo að hún nemur nálægt helmingi þjóðartekna. Nær þriðji hver starfsmaður er nú í opinberri þjónustu. Ríkisfyrirtækjum hefur fjölgað og starfsemi hins opinbera færist sífellt inn á ný og ný svið. Þótt rætt sé um að snúa þessari þróun við, bendir ekki margt til, að einkareksturinn taki við rekstri velflestra ríkisfyrirtækja eða ríkið selji í umtalsverðum mæli hluta- bréf sín í ýmsum fyrirtækjum. Jafnvel þegar litið er til framtíð- arinnar sjáum við ríkisvaldið ein- oka stærstu vaxtarmöguleikana. Ríkið ætlar sér enn að reisa og reka virkjanir sem selja ríkisverk- smiðjum orkuna — og á fjar- skipta- og fjölmiðlunarsviðinu rekur ríkið bæði Póst og síma og Útvarp, þ.e. hljóðvarp og sjónvarp. Á Viðskiptaþingi 1981 tók Verzlunarráðið framtíð einka- rekstrar til umræðu. Síðan hefur margt breytzt. Nú eru þau viðhorf almennari að minnka eigi hlut ríkisins í atvinnulífinu og skapa einkarekstrinum aukið svigrúm til athafna með því að nýta frjáls- ræðisskipulagið á ný, sem aflvaka framfara og velmegunar. Ef svo verður, bjóðast einkarekstrinum ný tækifæri og jafnframt stærri viðfangsefni. Einkareksturinn þarf því að aðlagast nýjum starfs- skilyrðum og nýjum tækifærum. í þeim efnum geta þær hugmyndir, sem VÍ hefur unnið og Guðmund- ur H. Garðarsson mun kynna hér síðar í dag, gegnt lykilhlutverki. Hér á ég við stofnun Framfara- sjóðs íslands, sem sameiningar-, samræmingar- og fjármögnunar- félag í þágu einkarekstrar. Atvinnurekendur, laun- þegar og stjórnmálin Hér á eftir verður einnig fjallað um annað efni og ekki síður áhugavert. Samskipti og hlutverk atvinnurekenda, verkalýðsfélaga og stjórnmálamanna. í stefnu Verzlunarráðsins eru sett fram skýr viðhorf til þess, hvert sé hlutverk þessara aðila. Við sem Verzlunarráð hljótum að skipta okkur af stjórnmálum að því marki sem þau snerta stjórn efnahagsmála og skilyrði atvinnu- lífsins til að skila árangri. Við viljum hvorki sækja til stjórn- málamanna vernd gegn sam- keppni né sérstaka fyrirgreiðslu, heldur almenn starfsskilyrði og frjálsræði til að ná árangri. Við viljum, að stjórnmálin marki leikreglurnar, en taki ekki þátt í leiknum. Stjórnmálamenn eiga ekki að vasast í atvinnurekstri. Það er okkar hlutverk. Stjórnmálamenn eiga heidur ekki að standa í kjarasamningum, veita forskriftir um gerð þeirra eða rifta þeim með lögum. Það er hlutverk atvinnurekenda að semja um kaup og kjör við verkalýðs- hreyfinguna og þeirra beggja er ábyrgðin, ef rangt er staðið að samningum. Verkalýðshreyfingin á þannig samleið með atvinnurekendum. Hennar hlutverk er að leita leiða til að auka framleiðni og afköst, og ná betri árangri, þannig að meira verði til skiptanna. Þegar verkalýðshreyfingin fær hins veg- ar meiri áhuga á stjórnmálun. en kjaramálum, heldur til streitu störfum og vinnutilhögun sem heyra fortíðinni til og beitir afli sínu til að þvinga fram óraunhæf- ar kaupkröfur og úrslit í stjórn- málum, leiðir hún launþega á hál- an ís. Og þegar sú skipan hefur kom- ist á, að stjórnmálamennirnir standa i atvinnurekstri og kjara- samningum gegn því að veita at- vinnurekendum og verkalýðs- hreyfingunni vernd, og sérstaka fyrirgreiðslu, er mikil hætta á ferðum. Þá stöðvast framfarir og

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.