Morgunblaðið - 02.03.1984, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. MARS 1984
31
inu íslenskt málverk. Jón var í
hópi þeirra manna, sem mest
áhrif hafa haft á listasögu okkar
á vissu tímabili og hann á þar
sæti, sem er verðugt, og nafn
hans mun lifa svo lengi, sem
menn unna málverki í þessu
landi.
Það má gera ótrúlega góð
kaup á þessari sýningu og ég fær
ekki betur séð en verðlagi sé svo
stillt í hóf, að almenningi gefist
einstakt tækifæri til að eignast
þessi verk. Ég yrði ekki hissa,
þótt þessi verk seldust hvert og
eitt, svo vægt er verð þeirra, ef
tekið er með í reikninginn, að
Jón er látinn og mun ekki fram-
leiða meira af slíku.
Þessi sýning er afar litaglöð
og fjörug að mínum dómi og ég
hafði mikla ánægju af henni í
heild.
Safn-
sýning
í Nýlistasafninu við Vatnsstíg
stendur nú yfir sýning á verkum
í eigu safnsins, og er forvitnilegt
að líta þar inn fyrir dyr. Safnið
hefur starfað í 6 ár, og þar hefur
hver sýningin verið haldin eftir
aðra, uppákomur og gerningar
ásamt ýmissi starfsemi, sem
þeir aðstandendur flokka undir
listræna starfsemi. Um það
verður ekki deilt að safnið hefur
staðið undir vissri starfsemi sem
aðrar stofnanir hafa ekki fengist
við. Hlutverk þess hefur verið
frá byrjun að varðveita það, sem
komið hefur fram undir nafninu
list og sjá til þess, að þessir hlut-
ir færu ekki forgörðum. Það eru
um sjötíu manns, sem að þessu
safni standa, og er þeim til að
mynda skylt að láta vissan
fjölda verka sinna af hendi við
safnið árlega. Það gefur auga
leið, að þetta fyrirtæki hefur átt
við ýmiss konar örðugleika að
etja, og má þar benda fyrst og
fremst á húsnæði. Nú hefur önn-
ur hæð hússins, sem safnið er í,
verið gerð að sýningarstað, og er
það auðvitað mikil bót í máli. En
segja mætti mér, að enn sé
þröngt um þetta safn, því að
mikið virðist vera til í því og
margt fyrirferðamikið.
Það eru sjálfsagt mjög skiptar
skoðanir á því, hvað er list og
hvað er ekki list. En hvernig svo
sem viðhorfið er í slíkum málum,
er það algerlega á hreinu, að all-
ar tilraunir til endurnýjunar í
list eiga fullan rétt á sér. Mörg-
um vill sjást yfir svo einfaldan
hlut, og er ég þar engin undan-
tekning. Hitt er svo annað mál,
að tíminn líður og viðhorfin
breytast. Sumt verður merkilegt,
annað ómerkilegt, og svona hef-
ur þetta ætíð gengið til í listinni,
og seint mun þar verða breyting
á. En skoðanamunur er einmitt
lífskraftur listarinnar, og ef
menn ganga inn á þessa sjálf-
sögðu skoðun, verður heldur ekki
framhjá því gengið, að stofnun
sem Nýlistasafnið hefur merkan
tilgang, sem verður ef til vill
seint þakkaður sem skyldi.
Þegar ég leit inn á Nýlista-
safnið hér á dögunum, fannst
mér áberandi, hve vel verkunum
var fyrir komið. Persónulega
hafði ég afar mismunandi áhuga
og ánægju af því sem á sýning-
unni er, en það var viss kúltúr í
hlutunum (menning). Það var
rúmt í sölunum og hvert verk
fékk vel að njóta sín, og þarna
voru verk, sem maður hefur ekki
séð lengi og skemmtilegt var að
kynnast að nýju, eftir að ár og
dagur hafði bæði sett sitt mark á
sjálf verkin og einnig á áhorf-
endur. Það er því ekki út í bláinn
að segja, að slíkir endurfundir
hafi sitt að segja, og hver veit
nema sumir þeir, er komu í SÚM
hér í eina tíð, hitti þarna fyrir
gamla kunningja og geti endur-
nýjað samskiptin. Er þetta ekki
hlutverk safnsins?
Vatnsveita Vestmannaeyja:
Hluti stofnæðar í hættu
vegna flóðanna í Markarfljóti
Vestmannaeyjum, 24. rebrúar.
Á DÖGUNUM þegar Markarfljót fór hamfiirum og olli stórtjóni á lendum
bænda og verulegum vegaskemmdum, komst hluti stofnæðar Vatnsveitu
Vestmannaeyja í verulega hættu. Stofnæðin liggur frá upptökum í iandi
Syðstu-Merkur undir Eyjafjöllum niður að dæluhúsi á Landeyjasandi. Sem
betur fer skemmdist leiðslan ekkert og dæluhúsið komst aldrei í hættu.
Starfsmaður Vatnsveitu Vestmannaeyja uppi á landi fylgist reglulega með
öllum breytingum á fljótinu og framkvæmir mælingar fyrir veituna.
Ráðamenn í Vestmannaeyjum
hafa nokkrar áhyggjur af öryggi
Vatnsveitunnar, enda yrði það al-
varlegt áfall fyrir bæjarbúa og at-
vinnulífið hér í stærstu verstöð
landsins ef stofnæðin í landi
skemmdist og bærinn yrði vatns-
laus um lengri tíma. Þessi mál
voru mikið rædd á bæjarstjórn-
arfundi í gærkvöldi og samþykktu
allir 9 bæjarfulltrúarnir eftirfar-
andi tillögu:
„Bæjarstjórn Vestmannaeyja
skorar á þingmenn Suðurlands og
á Vegagerð ríkisins að verja
auknu fjármagni til frekari fyrir-
hleðslu og byggingar varnargarða
við Markarfljót til að forðast yfir-
vofandi hættu af ágangi Mark-
arfljóts, en auk skemmda á bú-
jörðum og mannvirkjum getur
framhlaup fljótsins stofnað húsi
vatnsveitunnar og stofnæð veit-
unnar í hættu, en stofnæðin liggur
frá Landeyjasandi upp að Syðstu-
Mörk.
Bæjarstjórn Vestmannaeyja
bendir á, að eftir síðustu atburði
við Markarfljót er nauðsynlegt að
huga betur að þeim málum sem að
ofan greinir. Verði dæluhús
vatnsveitunnar eða stofnæðin
fyrir alvarlegu tjóni, myndi það
leiða til alvarlegs áfalls fyrir íbúa
Vestmannaeyja og þjóðarbúsins í
heild. Viðgerð gæti tekið langan
tíma og þar af leiðandi myndi allt
atvinnulíf í Eyjum lamast að
verulegu leyti.
Bæjarstjórn Vestmannaeyja
leggur því áherslu á, að þingmenn
Suðurlands fylgi þessu máli vel
eftir, þannig að allt verði gert sem
hugsast getur til að koma í veg
fyrir tjón af völdum ágangs Mark-
arfljóts.”
Vestmanneyingar vona fastlega
að sem allra fyrst verði gerðar all-
ar nauðsynlegar ráðstafanir varð-
andi frekari byggingu og styrk-
ingu varnargarða við Markarfljót,
þannig að frekar verði forðast tjón
á vatnsleiðslunni til Eyja og það
neyðarástand sem óhjákvæmilega
myndi skapast í Eyjum, yrði slíkt
tjón að veruleika.
— hkj.
lillibnídarkulld:
Rjúpa, gæs, lundi,
/ önd og heiðalamb
á borðum í Blómasal
2. og 3. mars
Okkur hefur sem sagt tekist þaö, sem veiðimönnum tekst bara stundum,
aö fanga bráðina.
Á villibráðakvöldinu hlöðum við borðið með villtum réttum.
Módelsamtökin sýna glæsilegan fatnað frá Liljan tískuverslun,
Glæsibæ og Laugavegi 19.
Borðapantanir í síma 22321/22322
Matur framreiddur frá kl. 19.
w VERIÐ VELKOMIN
HOTEL LOFTLEIÐIR
FLUCLEIDA
HOTEL
Við flytjum um set
skrifstofuhusgögn
Kynnið ykkur verð og greiðsluskilmála.
Sendum um allt land.
Á. GUÐMUNDSSON
Húsgagnaverksmiðja, Skemmuvegi 4, Kópavogi, Sími 73100
á\V