Morgunblaðið - 02.03.1984, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 02.03.1984, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. MARS 1984 37 sem ég kynntist manni mínum. Hún sótti mig í hvelli í verksmiðj- una, og ók mér á síðustu stundu til skips, og stóð svo á bryggjunni og vinkaði mér, er skipið sigldi frá landi. Silla gladdist mikið með mér er ég festi ráð mitt og ekki minna þegar mér fæddist sonur árið eft- ir. Þann litla tók ég oft með mér á Bugðulæk og fylgdist Silla með þroska hans og velferð af innileg- um áhuga. Hún lét eins mikið með hann sem hann væri barnabarn hennar. Mikla umhyggju bar hún ætíð fyrir vinum sínum og fjölskyldu, og gladdist mikið yfir hamingju þeirra, en tók sér mjög nærri ef erfiðleikar voru. Þá var hún reiðu- búin að rétta hjálparhönd. Hún var mikill höfðingi heim að sækja enda oft gestkvæmt hjá henni. Trygglyndi, greiðvikni og hjálpsemi einkenndu hana, en hún átti bágt með að þiggja hjálp ann- arra. Vildi heldur gefa en þiggja. Það var sama hvað hún tók sér fyrir hendur, hannyrðir, bakstur, matreiðslu, veisluhöld og annað, öll verkin voru leyst af hendi með sama myndarskap og nákvæmni. Hún gerði miklar kröfur til sjálfr- ar sín. Sambandið milli Sillu og barna hennar og tengdabarna var mjög kært. Og mikið var hún stolt af barnabörnunum, sem hún hafði oft hjá sér á Bugðulæk. Missir þeirra er nú mikill og sár við frá- fall góðrar ömmu. Með þessum orðum vil ég kveðja Sillu. Hún reyndist mér og systr- um mínum tveim alveg einstak- lega vel alla tíð, og söknum við hennar sáran. Sama er að segja um móður okkar, sem hefur oft talað um hversu góð og trygg vin- kona Silla væri, hún ætti engan sinn líka. Aldrei kom hún svo til Reykjavíkur, að Silla væri ekki boðin og búin að gera allt fyrir hana sem í hennar valdi stóð. Silla gaf sér alltaf tíma fyrir vini sína. Ég og fjölskylda mín biðjum góðan guð að hugga og styrkja aldraða móður Sillu, börn, tengda- börn, barnabörn, bróður og systur. Megi birtan frá ævi hennar fylgja þeim og lýsa um ófarnar brautir. Fyrir kynni mín af Sillu og allt það sem hún lét mér og mínum í té er mér ljúft að þakka. Blessuð sé minning hennar. Svendborg í febrúar 1984, Gunnlaug H. Ragnarsdóttir. Ingibjörg Lára Oladóttir Fæddur 11. júní 1907 Dáinn 23. febrúar 1984 Við hjónin erum stödd í flug- höfninni í Keflavík á leið okkar til Kaupmannahafnar í snögga ferð, búin að kveðja vini og vandamenn og ekki síst tengdamóður mína sem lá í Landspítalanum, og átt- um ekki von á öðru en að sjá hana aftur þar er við kæmum til baka. Þá erum við kölluð í símann. Að mér læðist sá grunur er verður að fullvissu fáum augnablikum síðar. Tengdamóðir mín, Ingibjörg Lára Óladóttir, eins og hún hét fullu nafni, hafði látist fyrir rúmum hálftíma eftir langa sjúkdóms- legu. Mig langar að minnast hennar hér með þakklæti fyrir traust og góð kynni. Lára eins og hún var alitaf köll- uð, var fædd í Vestmannaeyjum og ólst þar upp til fullorðinsára. Foreldrar hennar voru Margrét Hróbjartsdóttir og óli Coghill. Ekki varð úr sambúð þeirra í mill- um og ólst Lára upp hjá móður sinni. Var einkar kært milli þeirra mæðgna alla tíð, og duldist það engum sem heyrðu hana minnast hennar. Margrét eignaðist aðra dóttur, Þórdísi, sem lést á ferm- ingaraldri. Þó að langt væri um liðið heyrði ég Láru oft tala um systur sína, og fann ég að minning hennar var henni kær. Lára giftist árið 1930 Lárusi Karli Lárussyni, deildarstjóra hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur, og áttu þau lengst af heimili að Grenimel 31. Lára og Karl eignuð- ust fjögur börn, Lárus. aðalbókara hjá Verzlunarbanka íslands, sem lést 1968. Þórir, rafverktaka hér í Reykjavík, Inga Guðmund, flug- mann, sem lést 1963 og Margréti sem er gift undirrituðum. Barna- börnin eru 9 og barnabarnabörnin 3 og voru þau henni alla tíð mikils virði. Mann sinn missti Lára árið 1971 eftir farsælt og gott hjóna- band. Af því sem hér hefur komið fram sést að lífið hjá henni var ekki alltaf dans á rósum. Sorgin knúði dyra, og hún varð fyrir þungum búsifjum þegar hún miss- ir 2 syni og eiginmann á tiltölu- lega fáum árum. En aldrei lét hún hugfallast og eflaust hefur hennar létta lund átt stóran þátt í því að henni tókst að yfirstíga þá miklu erfiðleika. Hennar lífsskoðun var að lifa lífinu lifandi og horfa fram á veginn, líta til komándi tíma. Ég minnist með hlýhug þess, er ég fyrir 20 árum kom í fyrsta sinn inn á heimili Láru og Karls. Mér var tekið opnum örmum og leyndi ■ Minning sér ekki ljúfmennskan sem hús- bændum var í blóð borin. Ekki var ég oft búinn að koma þar er mér fannst ég vera orðinn sem einn af fjölskyidunni, sem og seinna varð. Lára var að eðlisfari bjartsýn og glaðlynd kona með mikinn persónuleika. Aldrei var nein lognmolla þar sem hún fór. Þegar giatt var á hjalla var hún ætíð hrókur alls fagnaðar og gaman var að taka þátt í gleðistundum með henni því hressileiki hennar smitaði ósjálfrátt út frá sér. Hún hafði mikið yndi af tónlist og lék sjálf á hljóðfæri og var ávallt tilbúin til að taka lagið, ef svo bar undir. Gaman er að geta þess að á sínum yngri árum lék hún undir á píanó á sýningum þöglu myndanna í „bíóinu" í Vest- mannaeyjum. Alltaf var gott að leita ráða hjá Láru, ef með þurfti, því hún var ávallt réttsýn og raunsæ í ráðlegg- ingum sínum og oft sáust hlutirn- ir í nýju ljósi er hún hafði lagt sitt lóð á vogarskálina. í Canada átti Lára fjögur hálf- systkin og eru þrjú þeirra á lífi. Því miður tókust ekki kynni með þeim fyrr en á seinni árum, og höfðu þau oft á orði sín í millum, að ánægjulegt hefði verið að þau kynni hefðu tekist fyrr. Með þeim tókst hin besta vinátta og sótti Lára þau heim fyrir nokkrum ár- um og var sú ferð henni ógleym- anleg í alla staði. Kynntist hún þarna fjölda ættingja, fleirum en hana óraði fyrir. Var sú heimsókn síðan endurgoldin af systkinunum ári seinna og naut hún þess ríku- lega að taka á móti þeim. Á þessari stundu er mér efst í huga þakklæti til hennar fyrir samfylgdina og fyrir alla þá alúð og umhyggju sem hún ávallt sýndi mér og minni fjölskyldu. Ég er þess fullviss að vel hefur verið tek- ið á móti henni handan landa- mæranna. Blessuð sé minning Láru Óla- dóttur. Jóhannes Sverrisson Birting afmœlis- og minningargreina ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minn- ingargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í mið- vikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. í minn- ingargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess skal einnig getið, af marggefnu tilefni, að frumort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíð- um Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili. Leiðrétting í minningargrein um Sigur- veigu Óladóttur í blaðinu í gær hefur misritast fæðingarstaður hennar. Hún var fædd á Bakka í Kelduhverfi en ekki Brekku, eins og stendur í greininni. t Þökkum innilega auösýnda samúö viö fráfall SÓLVEIGAR JESDÓTTUR. Haraldur Eiríksson, synir, tengdadætur og barnabörn. t Utför fööur okkar, SIGURÐAR SIGURÐSSONAR, vélstjóra, fer fram frá Keflavikurkirkju laugardaginn 3. mars kl. 14.00. Lilja Sigurðardóttir, Marteinn Sigurósson, Guörún Siguröardóttir, Hafsteinn Sigurösson, Kjartan Sigurösson. t Eiginkona mín, móöir og tengdamóðir, amma og langamma, HREFNA GUNNLAUGSDÓTTIR, Háteig 6, Keflavík, sem andaöist sunnudaginn 26. febrúar, veröur jarðsungin frá Keflavíkurkirkju laugardaginn 3. mars kl. 16.00. Hilmar Th. Theodórsson, Áslaug Hilmarsdóttir, Trausti Björnsson, Björgvin Hilmarsson, Jóhanna Pálsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Móöir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, THEODÓRA STEFÁNSDÓTTIR, Álftamýri 14, sem lést þann 25. februar, veröur jarösungin frá Bústaöaki mánudaginn 5. mars kl. 13.30. Sveiney Þormóósdóttir, Stefán Þormóösson, Sveinn Þormóðsson, Hörður Þormóösson, Benedikt Þormóösson, barnabörn og barnabarnabörn. Hilmar Ludvigsson, Kristbjörg Jónsdóttir, Dagfríöur Pétursdóttir, Inger Þormóösson, Kristveig Sveinsdóttir, t Eiginmaöur minn, faðir okkar, tengdafaöir, afi og langafi, ERLENDURJÓNSSON frá Ólafshúsum, Brimhólabraut 36, Vestmannaeyjum, veröur jarösunginn frá Landakirkju laugardaginn 3. mars kl. 14.00. Ólafía Bjarnadóttir, Bjarney Erlendsdóttir, Gísli Grímsson, Victor Úraníusson, Hulda Jensdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Systir okkar og frænka, ANNA MATTHÍASDÓTTIR frá Grímsey, Kaplaskjólsvegi 65, verður jarösungin frá Dómkirkjunni þriöjudaginn 6. mars kl. 13.30. Fyrir okkar hönd og annarra vandamanna, Rannveig Matthíasdóttir, Agnes Matthíasdóttir, Hjördís Hreiðarsdóttir, Rannveig Ása Guömundsdóttir. t Þökkum innilega samúö og vináttu við andlát og útför systur okkar, GUÐRÚNAR STEINDÓRSDÓTTUR frá Ási, Týsgötu 5. Systkinin. t Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og jaröarför AGNARS KLEMENS JÓNSSONAR. Ólöf Bjarnadóttir, Anna Agnarsdóttir, Ragnar Árnason, Áslaug Agnarsdóttir, Óskar Árni Óskarsson, Bjarni A. Agnarsson, Sigríöur Jónsdóttir og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.