Morgunblaðið - 02.03.1984, Page 40
FÖSTUDAGUR 2. MARS 1984
VERÐ í LAUSASÖLU 20 KR.
ísafjörður:
Hótelið í miklum
fjárhagskröggum
— vanskilaskuldir á fjórða tug milljóna, bedið eftir
úttekt og tillögum ráðherraskipaðrar nefndar
FJÁBHAGSSTAÐA Hótels Isafjarðar cr svo alvarleg, að bæjarsjóður, sem á
60—70% í fyrirtækinu, treystir sér ekki til að taka á sig frekari greiðslur skulda
en orðið er. Heildarskuldir Hótels ísafjarðar nema nú yfir 36 milljónum króna,
þar af eru skuldir við Fcrðamálasjóð um 26 milljónir, skv. upplýsingum, sem
Morgunblaðið hefur aflaö sér.
Samgönguráðherra skipaði ný-
lega nefnd, sem er um það bil að
Ijúka úttekt á fjárhagsstöðu fyrir-
tækisins. Er gert ráð fyrir að hún
skiii áliti í næstu viku og þá jafn-
framt tillögum um leiðir út úr fjár-
hagsvandanum. Talið er líklegast,
að óskað verði eftir því við Ferða-
málasjóð, að hann leggi fram aukið
hlutafé og er bent á, að slíkt hafi
áður gerst er hótel á landsbyggð-
inni hafi átt í erfiðleikum, t.d. hót-
elið í Stykkishólmi. Málið hefur ít-
rekað verið rætt í bæjarstjórn Isa-
fjarðar, síðast á lokuðum fundi sl.
mánudag.
„Það á eftir að ganga endanlega
frá reikningum síðasta árs, en
okkur sýnist að rekstrartapið gæti
verið nærri einni milljón króna,“
sagði Ólafur B. Halldórsson, stjórn-
arformaður Hótels ísafjarðar, í
samtali við blaðamann Mbl. í
gærkvöldi.
Hann sagði að bókfærðar skuldir,
sem nú væru að miklu leyti gjald-
falinar vegna vanskila, hefðu verið
19,2 milljónir króna í árslok 1982.
Um hvort þær hefðu aukist um
10—12 milljónir á síðasta ári sagði
Ólafur: „Það er nærri lagi, enda
væri það ekki óeðlilegt í 70—80%
verðbólgu. Megnið af þessum vanda
hótelsins stafar af gengisþróun og
verðbólgu, langtímalán eru ýmist
tryggð í japönskum yenum og/eða
með lánskjaravísitölu. Þá voru tek-
in ný lán á síðasta ári til að ljúka
framkvæmdum við hótelið og þau
hafa vitanlega hækkað verulega í
verðbólgunni. Það er ekki mikið
frábrugðið því, sem gengur og ger-
ist.“
Eigendur hlutafélagsins, sem á
og rekur Hótel Isafjörð, eru því
frábitnir að félagið verði tekið til
gjaldþrotaskipta og telja enga
ástæðu til þess. Nefndin, sem sam-
gönguráðherra skipaði, mun skila
áliti sínu til ráðherra á næstunni og
verða ákvarðanir um framhaldið
teknar eftir það. Formaður nefnd-
arinnar er Ólafur Steinar Valdi-
marsson, skrifstofustjóri í sam-
gönguráðuneytinu. Aðrir nefnd-
armenn eru Jóhann T. Bjarnason,
framkvæmdastjóri Fjórðungssam-
bands Vestfjarða, Haraldur L. Har-
aldsson, bæjarstjóri á Isafirði, Lúð-
vík Hjálmtýsson, ferðamálastjóri,
Pétur Pétursson frá Framkvæmda-
stofnun ríkisins og Þorvaldur Garð-
ar Kristjánsson, alþingismaður.
Samkomulag í mjólkurdeilunni
SAMKOMULAG tókst seint í gærkveldi í kjaradcilu
milli Mjólkursamsölunnar í Reykjavík og starfsfólks
fyrirtækisins, en það lagði í gær niður vinnu. Afleið-
ingar þess urðu, að víða varð mjólkurlaust í Reykjavfk
í gær og seldist t.d. upp öll mjólk í Hagkaup. Á
myndinni er einn viðskiptavina Hagkaups, María Að-
alsteinsdóttir, sem keypti tvo síðustu mjólkurpottana í
verzluninni í gær. Samningaviðræður starfsmanna og
vinnuveitenda sigldu í strand um kvöldmatarleytið í
gær, en seint í gærkveldi náðist samkomulag með því
að Guðlaugur Björgvinsson, forstjóri Mjólkursamsöl-
unnar, gaf út einhliða yfirlýsingu, þar sem hann lýsti
því yfir að fyrirtækið myndi hvorki fara fram á sektir
né krefjast skaðabóta í trausti þess að starfsfólkið
hæfi vinnu strax í dag og að engar tafir yrðu á fram-
leiðslunni af þess vöidum. Samþykkti starfsfólkið
þessi skilyrði. Því munu mjólk og mjólkurvörur fást í
verzlunum í dag. sjá nánar á miðsíðu.
Olíufélögin íhuga verð-
lækkun til útgerðarinnar
.... ...... . ... ö
eðlilegt að stórir kaupendur fái
magnafslátt, segir stjórnarmaður í OLÍS
MÉR finnst eðlilegt að stórir kaupend-
ur fái magnafslátt á olíukaupum sín-
um. Það þekkist hvergi annars staðar
en hér, að magnafsláttur sé ekki veitt-
ur," sagði Vilhjálmur Ingvarsson, einn
af stjornarmönnum Olíuverzlunar ís-
lands, er Morgunblaðið bar undir hann
ummæli Kristjáns Ragnarssonar, for-
manns LÍÚ, á Akureyri í gær, en þar
sagði Kristján, að olíufélögin væru nú
að íhuga verðlækkun á olíu til fiski-
skipa.
Nýtt búvöruverð í dag:
Hækkanir 5—9%
— Tveir fulltrúar neytenda greiddu at-
kvæði gegn 5% hækkun launa bænda
SEXMANNANEFND ákvað í gær nýtt búvöruverð og tekur það gildi í dag.
Smásöluverð kindakjöts hækkar um 5—6%, nautgripakjöts um 6—7% og
mjólkurvara um 7—9%, samkvæmt upplýsingum sem Mbl. fékk hjá Guð-
mundi Sigþórssyni ritara nefndarinnar í gærkvöldi. Að verðlagningunni
stóðu þrír fulltrúar bænda og einn fulltrúi neytenda á móti tveimur fulltrúum
neytenda.
í stuttan tíma.
grundvellinum
og greiddu tveir
Að þessu sinni verðlagði nefnd-
in kinda- og nautgripakjöt aðeins í
heilum og hálfum skrokkum og er
álagning stykkjaðs kjöts því frjáls
í heildsölu og smásölu, að full-
nægðum ákveðnum skilyrðum, svo
sem því að neytendur eigi alltaf
kost á að kaupa það kjöt sem sex-
mannanefnd verðleggur jafnhliða
öðru kjöti. Kílóið af dilkakjöti í
heilum eða hálfum skrokkum
sundurteknum að ósk kaupanda
kostar eftir hækkun 123,05 kr., en
kostaði 116,45 kr. fyrir hækkun og
hækkaði því um 5,67%. Ekki var
búið að reikna út verð mjólkur-
vara er Mbl. fór í prentun í gær-
kvöldi en búist var við að þær
hækkuðu um 7—9% eins og áður
segir.
Verðlagsgrundvöilur landbún-
aðarvara, þ.e. verð til bænda,
hækkaði um 6,04%. Guðmundur
sagði að stærsti hluti hækkunar-
innar fælist í hækkun á kjarnfóðri
auk þess sem 2,92% hækkun sem
verða átti 1. október sl. kæmi nú
inn í verðlagið, en henni var á sín-
um tíma frestað með niður-
greiðslu áburðar
Laun bænda í
hækka um 5%
neytendafulltrúanna atkvæði gegn
þeirri hækkun. Töldu þeir ekki
tímabært að taka þessa launa-
hækkun inn í verðið þar sem ekki
væri almennt búið að semja á
vinnumarkaðinum. Smásöluverð
búvaranna hækkaði síðan heldur
meira en verð til bænda, en það er
að sögn Guðmundar Sigþórssonar
aðallega vegna þess að niður-
greiðslur eru óbreyttar að krónu-
tölu.
„Þarna á ég við þann mun, sem er
á heildsöluverði og smásöluverði til
kaupenda, en ef af því yrði gæti það
leitt til hækkunar á smásöluverði.
Með því að öll olíufélögin veiti slíkan
magnafslátt til stórra neytenda, svo
sem útgerðar og skipafélaga, eins og
nú er til umræðu, geta þau lagt sitt
af mörkum til þess, að arðbær rekst-
ur geti gengið og þar með hjálpað
þjóðfélaginu að komast út úr núver-
andi efiðleikum. I því sambandi
finnst okkur einkennilegt, að enn
taki ríkisvaldið, svo dæmi sé nefnt,
söluskatt af smurolíu til atvinnu-
rekstrar. Að þessu máli er nú unnið,
vona ég, af öllum olíufélögunum og
ég óska þess að, þetta verði að
raunveruleika," sagði Vilhjálmur
Ingvarsson.
Kristján Ragnarsson, formaður
LÍÚ, sagði á fundi með útvegs-
mönnum á Akureyri í gær, að hann
teldi það „óeðlilega viðskiptahætti"
að greitt sé sama verð fyrir olíu til
skips og t.d. skurðgröfu, að því er
segir í fréttaskeyti frá Gunnari
Berg, fréttaritara Mbl. á Akureyri.
„Stjórnir allra olíufélaganna ræða
nú hvort hægt sé að lækka verð á
olíu til fiskiskipa," sagði Kristján á
fundinum.
„Innan stjórna allra útgerðarfé-
laganna eru útgerðarmenn og við
væntum þess, að þessir félagar
okkar geri sitt besta til að ná þessu
mikla hagsmunamáli fram. Við telj-
um okkur ekki vera að fara fram á
óeðlilega fyrirgreiðslu í þessu sam-
bandi, þar sem dreifing til skipanna
hlýtur að vera mun kostnaðarminni
en til flestra annarra viðskiptavina
olíufélaganna," sagði Kristján.
„Við teljum það ekki eðlilega
viðskiptahætti að skip, sem tekur
olíu fyrir tugþúsundir við hverja
áfyllingu, þurfi að greiða sama verð
fyrir hvern lítra og til dæmis skurð-
grafa hér frammi í Eyjafirði, sem
tekur olíu einu sinni á dag og ef til
vill þarf að aka olíu til daglega."
Syfnakjöt hefur lækkað um 23 prósent frá áramótum:
Svipað verð og á dilkakjöti
ÁKVEÐIÐ hefur verið að selja um-
frambirgðir af svínakjöti með fimmt-
án prósent afslætt meðan birgðir
endast. Kostar nú kílóið 110 krónur
í heildsölu.
Áður hafði verið gefinn fimm
prósent afsláttur af svínakjöti
fyrir tæpum mánuði, þannig að
frá áramótum hefur svínakjöt
lækkað um tuttugu og þrjú pró-
sent. Dilkakjöt hækkaði um átta
prósent þegar nýtt búvöruverð tók
gildi. Eftir þá hækkun er dilkakjöt
og svínakjöt selt á svipuðu verði í
fyrsta sinn frá því að framleiðsla
svínakjöts hófst að einhverju
marki á Islandi. Fyrir um tveimur
árum var svínakjöt u.þ.b. sjötíu
prósent dýrara en dilkakjöt.
Svín eru holdmiklar en beina-
smáar skepnur og þess vegna er
svínakjöt drjúgt til neyslu.
Svínakjötsframleiðsla jókst
verulega á síðastliðnu ári, bæði
vegna stækkunar á búum og þess
að fleiri bændur leggja nú stund á
svínarækt.
Verðlagning á svínakjöti er
frjáls í smásölu en verðlækkunin
nær til allra útsölustaða á land-
Rostungur heim-
sækir Bíldudal:
„Urraði og
sýndi tennur
þegar ég
snerti hann“
„Rostungur kom inn í höfnina á
Bíldudal upp úr sex og fór síðan
upp í grjótgarðinn vestan við höfn-
ina. Hann urraði og sýndi tennurn-
ar þegar ég nálgaðist. Mig langaði
að snerta dýrið og gerði það — þá
gaf það mér illt auga, urraði og
sýndi tennurnar. Fannst greinilega
of langt gengið, en lét þar við
sitja,“ sagði Benedikt Benedikts-
son á Bíldudal í samtali við blm.
Mbl. í gærkvöldi, en rostungur
synti inn í höfnina undir kvöld í
gær.
„Ég hef verið hér síðan 1947 og
man ekki eftir að hafa séð rost-
ung. Þetta var fremur lítið dýr.
Ég giska á að tennur þess séu
eitthvað um tíu sentimetrar. Það
er ekki á hverjum degi sem mað-
ur getur stillt linsuna á rostungs-
tennur," sagði Benedikt Bene-
diktsson.