Morgunblaðið - 11.03.1984, Blaðsíða 2
2_________
Útvarpsráð:
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. MARZ 1984
Málræktaráðunautur
ráðinn til útvarpsins
ÚTVARPSRÁÐ samþykkti á
fundi sínum á föstudaRmorguninn
að beina þeim tilmælum til út-
varpsstjóra aö ráðinn verði mál-
ræktarráðunautur að útvarpinu í
fullt starf til reynslu í eitt ár til að
byrja með. Starfssvið hans sé að
vera til leiðbeiningar hvað málfar
snertir við ráðningu fólks til ríkis-
útvarpsins og leiðbeina starfsfólki
um málfar og framsetningu.
Skoðanakönnun DV:
56,8% styðja
ríkisstjórnina
26% tóku ekki afstöðu til hennar
AF l>KIM sem tóku afstöóu í skoð-
anakönnun Dagblaðsins/Vísis
styðja 76,8% ríkisstjórnina, en 23,2%
eru andvíg henni. DV birti í gær
þessar niðurstöður úr skoðanakönn-
un, sem gerð var um síðustu helgi.
Að sögn blaðsins voru 600 manns
spurðir, helmingur þeirra á Kcykja-
víkursvseðinu, hinir úti á landi.
Ilelmingur þeirra sem spurðir voru
eru konur.
Af úrtakinu sögðust 56,8%
styðja ríkisstjórnina, 17,2% kváð-
ust andvíg henni, 21,5% voru
óákveðin og 4,5% vildu ekki svara
spurningu blaðsins. Samkvæmt
þessu hefur fylgi ríkistjórnarinn-
ar aukist frá því DV gerði
skoðanakönnun í október síðast-
liðnum. Þá kváðust 48,8% styðja
stjórnina, 27,7% voru andvíg
henni, 20,7% óákveðin og 3,5%
vildu ekki svara spurningu DV um
afstöðu sína til ríkisstjórnarinnar.
Helga Tómassyni veitt
Bjartsýnisverðlaunin
HELGA Tómassyni balletdansara
hafa verið veitt svonefnd bjartsýn-
isverðlaun, sem verzlunin P.
Bröste í Kaupmannahöfn veitir.
Verðlaunin, sem nema 25.000 d.
kr., verða afhent við hátíðlega at-
höfn í Kaupmannahöfn 6. júní nk.
Verðlaun þessi eru veitt einu sinni
á ári.
Þetta er í fjórða sinn, sem
þessi verðlaun eru veitt, en í út-
hlutunarnefnd þeirra eru Gunn-
ar J. Friðriksson, formaður,
Árni Kristjánsson og Gylfi Þ.
Gíslason.
i
m-
z
-0
1899- 1900- 1903- 1904- 1906-
1926 19/4 1931 1932
1906- 1907- 1907- 1900- 1907- 1910- 1916- 1917- 1919-
1942 1977 1933 1938 1941
1891- 1897-
1967 1937
1932
IM2
Arfgeng heilablæðing
l>ctta er mynd af ættartré einnar ættar af átta, úr sýslum við Breiðafjörð,
sem segir frá í frétt á baksíðu, en í þessum ættum er arfgengur heilaæða-
sjúkdómur ættarfylgja og leggur að velli ungt fólk. Ferhyrningar tákna
karlmenn en hringirnir konur.
Aldökkir fletir tákna þá sem höfðu sjúkdóminn, hálfdökkir líklega arf-
bera, strik í gegnum ferning eða hring táknar þá sem eru lausir við
sjúkdóminn, alhvítir fletir táknar þá cinstaklinga sem ekki hafa verið
rannsakaðir.
Þverlína táknar hjúskap en lóðrétt afkomendur.
Ljósm. Mbl. RAX.
Hjálparsveit skáta, flytur „fótbrotna" konu til björgunarbifreiðar.
Víðtækar björgunaræfíngar
í Hvalfirði um helgina
Á MIÐNÆTTI á föstudag var sett
að Hlöðum í Hvalfirði björgunar-
æfing 10 hjálparsveita skáta; frá
Reykjavík, Njarðvík, Garðabæ,
Norðfirði, Hafnarfirði, Akranesi,
Vestmannaeyjum, Blönduósi, Ak-
ureyri og Kópavogi, auk Flugbjörg-
unarsveitarinnar Reykjavík og
björgunarsveitarinnar Stakks.
Fyrir æfingunni stendur Hjálpar-
sveit skáta í Kópavogi, en sveitin á
15 ára afmæli í ár.
Æfingar hófust svo klukkan
fimm í fyrrinótt. Æfð var leit og
björgun slasaðra og sjúkra.
Göngu-, klifur- og svifflugmenn
tóku þátt í þessum aðgerðum.
Björn Ríkharðsson úr Hjálpar-
sveit skáta í Kópavogi, sem
stjórnar aðgerðum, tjáði blm.
Mbl. laust fyrir hádegi í gær að
æfingar hefðu gengið mjög vel,
en hlákan og snjóleysið hefðu
sett strik í reikninginn fyrir
skíða- og snjósleðaæfingar.
{ dag verður sviðsett stórslys
af völdum sprengingar.
350 millj. kr. áætluð fjárvöntun Tryggingastofnunar:
Hlutir sem ég hef ekki
komist til botns í
— segir Eggert G. Þorsteinsson, forstjóri Tryggingastofnunar
EGGERT G. Þorsteinsson, forstjóri,
Tryggingastofnunar ríkisins, sagði í
viðtali við blm. Mbl. í gær, að hon-
um væri ekki kunnugt um hvar sá
„misskilningur" iægi, sem orsakað
hefði að fjárþörf til tryggingamála
væri nú talin 350 millj. kr. hærri en
rciknað hefði verið með við frágang
fjárlaga á Alþingi. Hann kvað þó
Ijóst að við endurskoðun hefði þetta
komið í Ijós, en vísaði á yfirmann
endurskoðunardeildar Trygginga-
stofnunar, sem telur að sögn Egg-
erts, að „mistök'* þessi liggi hjá
Fjárlaga- og hagsýslustofnun, en
Fjárlaga- og hagsýslustofnun teldi
aftur á móti að þau lægju hjá fjár-
veitinganefnd. Kristján Sturlaugs-
son, yfirmaður endurskoðunardeild-
ar, segir af og frá, að umrædd 350
millj. kr. fjárvöntun sé samkvæmt
útreikningum hans eftir áramótin.
Hann segist ekki hafa fengið neinar
óskir eða fyrirspurnir um endurmat
eftir áramótin og kveðst helst telja,
að Fjárlaga- og hagsýslustofnun eða
Þjóðhagsstofnun hefðu nú fundið út
þessa staðreynd.
Eggert G. Þorsteinsson sagðist
ekki vilja tjá sig um málið, er
hann var spurður hvernig á því
gæti staðið að umrædd fjárvöntun
hefði ekki legið fyrir við afgreiðslu
fjárlaga, og vísaði á yfirmann
þann sem annast alla útreikninga
stofnunarinnar. Hann sagði með-
ferð þessa máls margþætta og
færi i gegnum „fjögur sigti“, eins
og hann orðaði það. Frá Trygg-
ingastofnun til heilbrigðis- og
tryggingaráðuneytis, þaðan til
Fjárlaga- og hagsýslustofnunar og
þaðan til fjárveitinganefndar Al-
þingis. „Og að þetta geti farið
svona í meðförunum eru hlutir
sem ég hef ekki komist til botns í.“
Hann sagði það viðamikið mál að
finna út tölulega skiptingu á þess-
um 350 millj. kr. milli verkþátta,
en stór hluti þessa væri vegna
sjúkrahúsvista. Einnig væri hluti
dæmisins vegna uppsafnaðs vanda
frá fyrri árum.
Þá vísað Eggert til frekari upp-
lýsinga hjá Kristjáni Sturlaugs-
syni, deildarsstjóra endurskoðun-
ardeildar stofnunarinnar. Hann
bætti því við, að Kristján teldi
persónulega að mistök þessi lægju
hjá Fjárlaga- og hagsýslustofnun,
sem aftur á móti teldi mistökin
fjárveitinganefndar. Eggert sagði
síðan: „Þannig að Einbjörn vísar á
Tvíbjörn og svo framvegis, en
þetta hefur komið í ljós við endur-
skoðun".
Kristján sagði aðspurður, að
Eskifjörður:
Skíðavika
Eskifjörður, 9. mars.
ÞAD hefur verið mjög golt vedur á
Kskifirrti undanfarna daga, sólskin
og blírta, sannkallað vorvertur. Við
eigum von á góðu ef gamli spádóm-
urinn um að öskudagurinn eigi sér
átján brærtur stenst, því veðrið var
óvenju gott á öskudaginn, yfir tíu
stiga hiti og logn.
hann hefði enga beiðni sent frá sér
um endurmat fjárveitinga, eða
verið beðinn um að endurreikna,
né verið látinn vita af slíkum
endurútreikningum. Hins vegar
fyndist sér afskaplega sennilegt
að þessa upphæð skorti, en sagðist
helst telja að þessi nýja tala kæmi
frá Fjárlaga- og hagsýslustofnun
eða Þjóðhagsstofnun. „Það er ein-
hver misskilningur að við höfum
endurreiknað eitthvað. Þetta hlýt-
ur að vera frá hagsýslunni, þeir
geta reiknað áætlunina mína frá í
fyrra og þeir hafa verðbreyt-
ingarnar," sagði hann. Hann var
spurður, hvort Tryggingastofnun
hefði fengið þær fjárveitingar við
afgreiðslu fjárlaga sem þeir hefðu
farið fram á. Hann kvaðst ekki
muna það svo gjörla, en sagðist
halda að svo hefði ekki verið og
það væri reyndar ekkert nýtt. „Við
höfum aldrei fengið allt sem við
vildum", sagði hann.
í vorveðri
Hér stendur nú yfir skíðavika
og var gefið frí í grunnskólanum
af því tilefni. Það má segja að
krakkarnir hafi verið heppnir með
veður þessa viku, logn og blíða, en
þó nógur snjór í skíðalandinu í
Oddskarði.
KrétUrilari