Morgunblaðið - 11.03.1984, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 11.03.1984, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. MARZ 1984 Ragnar Tómas Árnason — Minning Fæddur 13. mars 1917. Dáinn 3. mars 1984. Elskulegur föðurbróðir minn, Ragnar Tómas Árnason, er látinn. Minningarnar sækja að allt frá bernskudögum. Ragnar eða Bonni frændi eins og við kölluðum hann alltaf, hafði óvenju fallega rödd. Reyndar þá fallegustu sem ég man eftir. Hann byrjaði að syngja lítili drengur, við undirleik móður sinn- ar, sem var góður píanóleikari. Hjá henni fékk hann sína fyrstu söngmenntun og innsýn til hinna stóru meistara tónlistarinnar. Mér er mjög minnisstætt er hann söng úr óperuaríum Mozarts svo ógleymanlegt var. Enda var hann söngmaður góður, söng með Kát- um félögum um árabil m.a. ein- söng. Hann hafði óvenju næmt skopskyn og lék talsvert í leikrit- um. Hann tók þátt í flestum upp- færslum á óperettum í Iðnó á ár- unum fyrir og eftir 1940. En lítil- látur eins og hann var, þá hló hann dátt þegar hann lýsti því. Ragnar Tómas fæddist í Reykjavík 13. mars 1917, sonur hjónanna Kristrúnar Tómasdótt- ur (Hallgrímssonar, læknis frá Hólmum í Reyðarfirði) og Árna Benediktssonar (Kristjánssonar, bónda í Selárdal í Arnarfirði), stórkaupmanns. Ragnar Tómas var næstyngstur fimm barna þeirra hjóna. Þau slitu samvistir, er Ragnar var þriggja ára að aldri, en þá fór faðir hans, Árni, til Bandaríkjanna og lést þar árið 1964. Eins og nærri má geta var þetta erfið reynsla fyrir lítinn dreng. Upp frá því bjó Ragnar með móður sinni. Árið 1943 kvæntist Ragnar Tómas Jónínu Vigdísi Schram, dóttur Kristjáns Schram, skip- stjóra og konu hans, Láru Jóns- dóttur. Var mjög kært með þeim hjónum, og get ég fullyrt að þau mátu hvort annað mikils. Þarna sté Ragnar mikið gæfuspor í sínu lífi, því Vigdís studdi hann með ráðum og dáð. Þau voru líka góðir félagar, sbr. það að þau áttu hesta í 25 ár, og fóru oft í lengri ferðir með kunningjum og voru þá hrók- ar alls fagnaðar. Einnig ferðaðist hann með börnum sínum á hestum og hafði það fyrir sið að fara í fyrsta langferðalag með þau á hestum þegar þau höfðu náð 7 ára aldri. Ragnari Tómasi og Vigdísi auðnaðist mikið barnalán. Þau eignuðust fimm mannvænleg börn, en þau eru: Kristján Tómas, endurhæfingarlæknir í New York, kvæntur Hrafnhildi Ágústsdóttur, hjúkrunarfræðingi, og eiga þau fjórar dætur; Lára Margrét, við- skiptafræðingur, gift Ólafi Guð- mundssyni, augnlækni, og eiga þau tvo syni og eina dóttur; Árni Tómas, yfirlæknir á elliheimilinu Grund, kvæntur Selmu Guð- mundsdóttur, píanóleikara, og eiga þau þrjá syni; Ásta Kristrún, námsráðgjafi við Háskóla íslands, gift Valgeiri Guðjónssyni, félags- ráðgjafa og tónlistarmanni, og eiga þau einn son, Árna Tómas. Yngsti sonurinn Hallgrímur Tóm- as, viðskiptafræðinemi, kvæntur Helgu Jónsdóttur, hjúkrunar- fræðinema. Ragnar Tómas var mjög barngóður og er hans sárt saknað hjá barnabörnum. Það er einkennilegt að á rúmu ári hafa þrjú barna Ragnars Tóm- asar komið heim eftir margra ára framhaldsnám erlendis. Þau voru lengi búin að hlakka til að koma heim. Stuttu seinna er Ragnar lát- inn. Hvers vegna? Hvers vegna? spyrjum við. En vegir guðs eru órannsakanlegir. En engu að síður er þetta erfitt fyrir Vigdísi, sem missir mann sinn, aðeins tíu dög- um eftir jarðarför föður hennar. Ragnar Tómas hóf þularstörf hjá Ríkisútvarpinu árið 1948 og starfaði hann þar í 20 ár. Fjölda- margir minnast hans þaðan vegna frábærrar raddar. Hef ég fyrir satt, að sjómenn sögðu, að rödd hans heyrðist mun lengra en ann- arra þula. Hann vann með þul- arstörfum í nokkur ár við verslun- arstörf ásamt því að vera þing- fréttamaður Alþingis á tímabili. Það var afar spaugilegt að heyra hann lýsa því hvernig hann flýtti sér til að koma ekki of seint í fréttalesturinn. Ekki spillti það fyrir í þularstarfinu, að hann var mikill máiamaður. Sjálf man ég eftir frásögnum hans frá ferðalög- um í Englandi, að hann talaði engu síður ensku en Bretar sjálfir. I kringum 1950 byggja þau hjónin einbýlishús rétt fyrir ofan Ártúnsbrekku, sem þau kölluðu Jörva. Þar voru þau með hesta og um tíma voru þau með rófurækt í stórum stíl. Lengi ég m.a. í rófu- upptöku og hafði gaman af. Mér er minnisstætt, að rétt við húsið út- bjó Ragnar grasskífu til að sitja í, og sagðist ekki kæra sig um skrautgarða. Hann vildi bara að fólki liði vel úti í náttúrunni. Minningarnar hrannast upp. Ég man Ragnar sem óvenju giæsi- legan ungan mann, heimsmann, stórhuga, tilfinningaríkan, fullan af græskulausri kímni. Hann hafði góða frásagnargáfu. Man ég sérstaklega eftir fagnaði á heimili þeirra hjóna 17. júní sl., en þá sagði Ragnar nokkrar sögur af ferðalagi um borð í Gullfossi. Bar þá svo við, að önnur stofan tæmd- ist og allir komu inn í hina stof- una, þar sem Ragnar var, og allir veltust um af hlátri. Það ánægju- lega við þetta var ekki sist það, að alltaf var gamanið græskulaust, og ekki ósjaldan, sem hann gerði óspart grín að sjálfum sér. Það hefði verið gaman ef Ragnari hefði auðnast að setja á blað ým- islegt er á daga hans dreif, og að minni hyggju, oft bitastæðara og smekklegra en margt sem fram hefur komið á vettvangi ævisagna. En því miður, úr því verður ekki bætt héðan af. Ragnar kveður þessa jarðvist fyrstur sinna systkina. Eftirlif- andi systkin hans eru: Unnur Sylvia, ekkja Hjartar Halldórs- sonar, Benedikt Egill, kvæntur Sigríði Pálsdóttur, Ásta Björns- son, ekkja Jóhannesar Björnsson- ar, Katrín Stephenson, ekkja, bú- sett í Bandaríkjunum, og tvö hálf- systkin, en þau eru Kurt, banka- starfsmaður í New York, og Elín Johansson, búsett í Svíþjóð. Hugurinn beinist til ekkju og barna. Elsku Nenna og þið frænd- systkin mín! Þið syrgið góðan mann, föður og afa. En minningin lifir um frænda minn, elskulegan, sem var af hjarta lítillátur og vildi öllum gott gera. Honum leiddist fólk án kímnigáfu, og það get ég svo sem skilið. Við eigum öll haf- sjó af minningum um góðar stund- ir í návist Ragnars Tómasar Árnasonar. Að lokum vil ég flytja innilegar samúðarkveðjur frá mér og systkinum mínum til þín, Nenna, og barnanna. Og ég kveð frænda minn með einu af hans uppáhaldskvæðum eftir Sigurð Sigurðssonar frá Arn- arholti: Sól stattu kyrr þó að kalli þig sær til hvílu — jeg elska þig heitar. Þú blindar mín augu’, en þú ert mjer svo kær, og eins hvort þú skín eða bæn minni , neitar. Jeg sæki þjer nær, þótt þú færir þig fjær — þótt þú fallir í djúpið, mitt hjarta til, geislanna leitar. Ásta Benediktsdóttir Látinn er í Reykjavík Ragnar Tómas Árnason, fyrrv. útvarps- þulur. Hann lést að heimili sínu laugardaginn 3. mars sl. tæplega 67 ára að aldri. Með Ragnari er genginn góður drengur og litríkur persónuleiki er setti svip á bæjarlíf Reykjavíkur um og eftir Alþingishátíðarárið 1930. Ragnar (Bonni eins og hann var ætíð nefndur á sínum unglingsár- um), fæddist í Reykjavík 13. mars 1917, sonur hjónanna Árna Bene- diktssonar, heildsala frá Selárdal, og Kristrúnar Benediktsson, fædd Hallgrímsson, en móðir hennar var Ásta Hallgrímsson, fædd Thorarensen, í Húsinu á Eyrar- bakka, en eins og kunnugt er var „Húsið" á Eyrarbakka höfuð- menningarmiðstöð Suðurlands um einnar aldar skeið eða meir, og var hljómlist þar mjög í hávegum höfð. Ásta Hallgrímsson, amma Ragnars, var læknisfrú í Suður- landslæknishéraði, gift Tómasi Hallgrímssyni, lækni, en eftir að hún missir manninn flutti hún til Reykjavíkur og setti á stofn mat- sölu og setti upp veislur fyrir betri borgara bæjarins. Matsölu Ástu Hallgrímsson sóttu aðallega námsmenn og fyrir- menn í bæjarlífinu. Hún þótti svo fín og maturinn það góður að aðrir höfðu ekki ráð á að borða þar en fínir menn. En Ásta menntaði líka börnin sín, m.a. setti hún Kristrúnu (Dúnu) til hljómlistarnáms, en hún gerðist síðar aðalpíanisti bæj- arins. Hún lék á slaghörpu sem var hennar aðalhljóðfæri, við öll möguleg tækifæri, lék undir með- an þöglu myndirnar voru við lýði og kenndi árum saman og þótti frábær kennari. Árni Benediktsson og Dúna bjuggu í Reykjavík. Þeim varð 5 barna auðið og var Ragnar Tómas næstyngstur þeirra. Árni og Dúna slitu samvistir þegar Ragnar var ungur drengur. Fer Árni af landi burt en Dúna elur upp börnin og kennir á píanó og nýtur að sjálfsögðu aðstoðar sinnar góðu móður. Að Iitlum tíma liðnum flytur Dúna til Bandaríkjanna með þrjú yngstu börnin og dvelur þar um eins árs skeið, en þar sest Ragnar á skólabekk og lærir enska tungu sem kom honum að notum síðar meir í lífinu. Næstu árin fara í nám og vinnu, því hann er stoð og stytta móður sinnar sem hún kann að meta, því hún er þegar búin að sjá hæfileika sonarins. Hann er farinn að taka þátt í tónlistarlífi móðurinnar. Hún fer að kenna honum að syngja. Hann er kominn með djúpa blæfagra bassarödd. Á þess- um árum fer hann smám saman að leika í Iðnó, og þegar fyrsta óperettan er færð upp, þ.e. Syst- urnar frá Pragh, var Ragnar ráð- inn aðalbassasöngvarinn á móti Pétri Jónssyni, aðaltenor. Þar með er listamannsbraut Ragnars ráðin. Þessi sýning og þær sem á eftir fóru þóttu takast með afbrigðum vel, og eftir þetta fer hann að læra söng hjá Pétri Jónssyni, óperusöngvara, og tókst með þeim órjúfandi vinátta til æviloka Péturs. Eftir þetta rak hver listavið- burðurinn annan, og varð þetta æði annasamt tímabil, því nú fer hann að sinna meira verslunar- störfum, m.a. leggur hann í það að geta flutt inn vörur sjálfur. Þá logaði heimsborgin í sprengju- regni frá Þjóðverjum. Þetta hafði engin áhrif á Ragnar. Kjarkurinn var óbilandi og nú kom sér vel enskukunnáttan góða frá Amer- íkuferðinni, og hann lauk sínum erindum, komst heim og flutti inn klassavörur og alltaf beið lista- mannsbrautin bein og greið. Ragnar átti marga valkosti. Hann er þarna ungur, glæsilegur listamaður, hann þekkir sína borg út og inn, hann þekkir sína lista- braut, hann þekkir raunar allar brautir í bænum, en ein er fegurst. Hún liggur frá sólarupprás til sól- arlags. Hann velur þessa braut en ekki Iistabrautina, þetta er Vest- urgatan í Reykjavík. Á Vesturgötu 46 bíður heima- sætan fallega. Hún er dóttir heið- urshjónanna Láru og Kristjáns Schram, skipstjóra, en hann og frú Lára eru kunnir persónuleikar úr borgarlífi Reykjavíkur sem óþarft er að kynna. Kristján Schram lést fyrir nokkrum árum. Blessuð sé minn- ing hans. 17. júní 1943 gekk unga parið, Jónína yigdís Schram og Ragnar Tómas Árnason, í heilagt hjóna- band og stofnuðu heimili á Vest- urgötu 46. Heimilin á Vesturgötunni voru sett upp af smekkvísi og hlýleik. Þar var ávallt samkomulag um hlutina. Fjölskyldurnar stóðu saman. Þar bar aldrei skugga á. Á Vesturgötunni eignuðust ungu hjónin flest sín börn, en þau eru þessi í aldursröð: Kristján Tómas, endurhæfingar- og yfir- læknir í New York. Kona hans er Hrafnhildur Ágústsdóttir, hjúkr- unarfræðingur; Lára Margrét, hagfræðingur, deildarstjóri hjá Ríkisspítulunum. Maður hennar er Ólafur Grétar Guðmundsson, augnlæknir; Árni Tómas, yfir- læknir, sérfræðingur í gigtar- lækningum. Kona hans er Selma Guðmundsdóttir, píanóleikari; Ásta Kristrún, námsráðgjafi Há- skóla íslands. Maður hennar er Valgeir Guðjónsson, félagsráð- gjafi og tónlistarmaður; Hall- grímur Tómas, verðandi við- skiptafræðingur í vor. Kona hans er Helga Matthildur Jónsdóttir, nemi við hjúkrunarbraut Háskóla íslands, en barnabörnin eru níu. Þetta er fallegur frændgarður, vel menntaður og gæfulegur, enda stórættaður, og leynir sér ekki ætterni og uppeldi sem er frábært. Nokkru eftir brúðkaupið hættir Ragnar að mestu í viðskiptalífinu og ræðst starfsmaður hjá Ríkis- útvarpinu, fyrst á tónlistardeild en síðar sem fréttaþulur, en að lokum vinnur hann sem dagskrár- þulur í mörg ár, eða þar til hann lætur af störfum hjá Ríkisútvarp- inu og fer í eigin rekstur. Það fer ekki milli mála að þul- arstarfið fórst honum vel úr hendi, enda bráðglöggur á íslensk mál svo og vel fær í erlendum málum, sérstaklega ensku. Um það leyti sem ungu hjónin stofnuðu heimili á Vesturgötunni, dvaldi móðir Ragnars oft lang- dvölum á heimilinu, var þá gjarn- an mússiserað á kvöldin. Dúna spilaði á píanóið en Ragnar söng, og þá gjarnan Mozart, sem var þeirra uppáhalds tónskáld. Annars voru þau bæði afar fjöl- hæf í músík, t.d. spilaði Dúna bæði klassík og einnig létta músík og Ragnar var frábær Gluntasöngv- ari. Á þessu tímabili voru ungu hjónin með hesta, sem þau áttu í tuttugu og fimm ár, eða frá 1940—1965. Að sjálfsögðu voru gamlir felldir og ungir keyptir í staðinn. Ég þekkti nokkuð vel flesta af þessum hestum, og fannst mér þetta yfirleitt góðir gripir, en einn var sá er af öllum bar, en það var Jarpur frá Varma- læk í Borgarfirði. Hann var eng- um líkur. Ég sá aðeins tvo menn sem gátu setið Jarp, en það var Ragnar og Kristján, sonur hans, sem nú er læknir í Bandaríkjun- um. Saga Jarps frá Varmalæk og viðskipti þeirra Ragnars væri í sjálfu sér verðugt verkefni til að skrifa um, en það verður ekki að þessu sinni, og þótt ég sé ekki fær um að lýsa þeim áhrifum sem ég varð fyrir, er ég sá samspil þeirra Ragnars og Jarps, þá gat Einar Benediktsson gert það, því þar fór sannarlega saman „skaparans meistaramynd". Annars var öll umönnun við hestana slík að betra verður ekki á kosið. Sem dæmi um það mætti nefna að fljótlega upp úr 1950 fóru hjón- in að huga að byggingu íbúðarhúss og hesthúss í nágrenni bæjarins. Þetta framkvæmdi svo fjölskyld- an sameiginlega, byggði einbýlis- hús, gjört af kjörviði, og hesthús fyrir 12 hesta. Þetta var stórátak, sem mikinn kjark þurfti til að fara út í, en allt fór vel. Það var lokið við bygging- una og fjölskyldan bjó í húsinu þar til borgarskipulag þrýsti svo að Jörva, en það var húsið skírt, að hjónin urðu að selja og flytja inn í borgina. Um þetta leyti ákvaðu hjónin að hætta við hestaeign, ef til vill vegna þessa atburða. Þau keyptu sér íbúð við Rauðalæk og undu glöð við sitt, því Nenna, eins og frúin er ævinlega kölluð meðal vina og vandamanna, hefur ávallt lag á að gera alla hluti að lista- verkum sem hún snertir, enda voru hjónin samhent í því að kaupa fagra hluti, ekta hluti, sem gera heimilið einkar aðlaðandi. Ef til vill hefur heimilið að Rauðalæk 29 verið þeirra mesti sælureitur. Börnin mennta sig hvert af öðru. Þau eignast öll indæla maka og börn, frúin fór að vinna úti og Ragnar vann við enskar bréfaskriftir meðan heils- an entist. Börnin dvöldu mikið er- lendis við nám og þá gafst tilefni til að heimsækja þau, og það gerðu þau oft, Ragnar og Nenna. Þótt börnin séu öll með eigin heimili er Rauðalækur 29 alltaf athvarf allrar fjölskyldunnar. Þar kemur hún saman á góðum stund- um, húsbóndinn er hrókur alls fagnaðar, segir brandara, fer með spakmæli á ensku, syngur aríur úr sígildum verkum þrátt fyrir sár- ustu veikindi sem hann ber aldrei á torg. Hann stendur þráðbeinn upp úr hverri raun, skapgerðin viðkvæm en sterk og varð aldrei beygð, en skaparinn sem öllu ræð- ur, ákveður stundina. Hann vísar veginn yfir móðuna miklu, fjöl- skyldan syrgir látinn ástvin. Hann verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni mánudaginn 12. mars kl. 13.30. Ég votta eiginkonu, börnunum og öðrum aðstandend- um, innilega samúð. Guð blessi minningu Ragnars Tómasar Árnasonar. Gísli Jónsson „En ef stýrimaðurinn kallar á þig, þá hverf þú frá öllu, hlauptu til skips og líttu aldrei um öxl. En ef þú gerist gamlaður, þá gakktu aldrei langt frá skipi, svo þú verð- ir ekki eftir þegar stýrimaðurinn kallar." (Epiktets.) Ragnar Tómas, tengdafaðir minn, hefur nú verið kallaður til skips til að halda áfram þeirri löngu ferð, sem enginn veit hvar hafin var, eða hvert heitið er. Þótt kallið hafi komið skyndilega og á stundu þegar minnst varði held ég að hann hafi verið vel undir lang- ferð búinn. Lengi framan af ævi sinni lifði hann lífinu lifandi um- fram flesta aðra og kunni manna best að kætast í glöðum vinahópi. Hugsjónir hans voru stórar í snið- um og ávallt reynt að láta þær rætast þó draumur yrði ekki alltaf að veruleika eins og gengur. Ragnar var að flestu leyti frá- bærlega vel gerður maður. Fríður sýnum, höfðinglegur og glæsilegur í allri framgöngu, hress í bragði, ómyrkur í máli og lét vel að leggja orð í belg þá er hin margvísleg- ustu mál voru rædd. Hann var lík- amlega hraustur vel og naut úti- vistar og ferðalaga á yngri árum en þó einkum hestamennsku, sem um langt skeið var hans helsta tómstundagaman. Hann var einn- ig liðtækur skíða- og sundmaður. Börn hans og barnabörn kynntust á skemmtilegan hátt, er hann var kominn vel yfir miðjan aldur, hve liðtækur íþróttamaður hann hefði getað orðið ef hugur hans hefði beinst í þá átt. í leikjum með fjöl- skyldu sinni sýndi hann oft undra- verða snerpu, úthald og kraft en einnig óvenjulegt næmi fyrir tæknilegum atriðum. Langskóla- menntunar naut Ragnar ekki og tel ég víst að hann hafi lengst af saknað þess þó hann ræddi það ekki. Hins vegar var hann strax á

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.