Morgunblaðið - 11.03.1984, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. MARZ 1984
45
Lögbannsmálið gegn Steinum hf.:
Megas krefst 814 þús.
króna í skaðabætur
MÁLIÐ, sem Magnús l»ór Jónsson
(Megas) tónlistarmaður hefur höfð-
að til staðfestingar lögbanni á dreif-
ingu og sölu annarrar plötunnar úr
safninu „Tvær í takinu", verður
væntanlega þingfest í borgardómi
Reykjavíkur nk. þriðjudag, 13. mars.
Staðfestingarmálið þarf að
höfða til að dómstóllinn geti skor-
ið úr um réttmæti lögbannsins,
sem sett var í fógetarétti á dögun-
um. Réttarstefna í því var gefin út
sl. mánudag.
Af hálfu Magnúsar Þórs er auk
staðfestingar lögbannsins gerð
krafa um tæplega 814 þúsund
króna skaðabætur honum til
handa, og byggist sú upphæð á því
að seldar hafi verið 6.000 plötur.
Tölvustýrð
kúafóðrun
— á einum bæ
hérlendis
VÍÐA ERLENDIS hafa bændur tek-
ið tölvur í notkun við stýringu fóðr-
unar búfjár. Sérstaklega hefur
þróunin verið ör í alifuglaræktuninni
en nú eru kúabændur óðum að taka
þessa tækni í þjónustu sína. Á einum
bæ hér á landi hefur þegar verið
tekin upp tölvustýrð fóðrun kúa og
hcfur hún gefist það vel að fleiri
bændur hafa hug á að koma sér upp
slíku kerfí, segir m.a. í fréttabréfi
upplýsingaþjónustu landbúnaðarins.
Talsmaður Steina hf., útgefanda
plötunnar, telur þá tölu fráleita
enda hafi dreifing plötunnar ný-
lega verið hafin þegar lögbanns-
krafan kom fram. — Gert er ráð
fyrir, að málareksturinn taki
nokkra mánuði.
Fjölskylda
syngur á
hljómplötu
SAMHJÁLP hvítasunnumanna hef-
ur sent frá sér nýja hljómplötu, sem
er hin fjórða er út kemur á vegum
Samhjálpar. Nýja Samhjálparplatan
ber heitið „Heyr þú minn söng“, og
er sungin af sönghópnum „Fjöl-
skyldan fimm“, sem samanstendur
af fjórum systkinum og loður þeirra.
„Fjölskyldan fimm“ hefur sung-
ið saman í mörg ár, sem þátttak-
endur í kristilegu starfi á Sam-
hjálparsamkomum og fundum og
hefur þar mest borið á Gunn-
björgu, 20 ára nemanda í MH, en
hún syngur einsöng í flestum lag-
anna á plötunni. Bakraddir og
kóra syngja bræður hennar, Ág-
úst, 22 ára starfsmaður Samhjálp-
ar, Kristinn, 19 ára nemandi í MS,
Brynjólfur, 17 ára nemandi í MH,
og pabbinn, Óli Ágústsson, for-
stöðumaður Samhjálpar, en hann
hefur jafnframt samið alla texta á
plötunni.
Sigurður Rúnar Jónsson annast
Lögbannskrafa Megasar kom
fram vegna þess að hann telur
Steina hf. hafa brotið á sér höf-
undar- og sæmdarrétt með því að
gefa út lag hans „Fatlafól" án þess
að hafa leitað leyfis síns áður.
Steinar hf. hefur bent á, að lagið
hafi verið á plötunni „Fingraför“
með Bubba Morthens og að það
hafi verið Bubbi, sem ákvað að
lagið skyldi vera á þeirri plötu og
samið þar um við Magnús Þór.
Steinar hf. og Bubbi hafa með sér
samning, sem heimilar hljóm-
plötuútgáfunni að endurútgefa lög
af plötum hans í margvíslegu
formi.
Fjölskyldan fímm: Ágúst, faðirinn
Óli Ágústsson, Kristinn, Brynjólfur
og Gunnbjörg.
allar útsetningar á plötunni,
stjórn hljómsveitar og stjórn upp-
töku, sem fram fór í stúdíói
Stemmu, auk þess sem hann leik-
ur á fjölmörg hljóðfæri. Einnig
koma við sögu sautján aðrir
hljóðfæraleikarar. Allur ágóði af
plötunni rennur til Samhjálpar-
starfsins og verður hún aðeins til
sölu hjá dreifingaraðilum Sam-
hjálpar og á skrifstofunni að
Hverfisgötu 42. Platan verður
einnig send gegn póstkröfu um
land allt.
Samvinnubankinn á Húsavík
mun frá og meö þriðjudeginum 13. mars nk.
auka viö þjónustusvið sitt og sjá um sölu
á ferða- og námsmannagjaldeyri.
Þar verður einnig hægt að stofna innlenda
gjaldeyrisreikninga auk þess sem útibúið veitir
alla þjónustu varðandi VISA-greiðslukort.
ERLEND
VIÐS
vmnubankinn
Húsavík
Hraölestrar-
námskeiö
• Vissir þú, að þú getur margfald-
að lestrarhraða þinn á nám-
skeiði Hraðlestrarskólans?
• Vissir þú, að vegna lítils lestr-
arhraða ná margir nemendur í
framhaldsskólum aldrei tilætl-
uðum og verðskulduðum náms-
árangri?
• Vissir þú, að þeir sem vinna
hratt og skipulega ná mun betri
árangri í námi og vinnu en aðr-
ir?
• Vissir þú, að þú lærir ekki ein-
ungis að auka lestrarhraða þinn
á námskeiði Hraðlestrarskól-
ans heldur lærir þú einnig
námstækni?
• Taktu nú hlutina fóstum tökum
og skelltu þér á næsta hrað-
lestrarnámskeiö sem hefst 13.
mars nk.
• Skráning í kvöld og næstu
kvöld kl. 20.00—22.00 í síma
16258.
Leiðbeinandi Olafur H. Johnson,
viðskiptafræðingur.
Hraðlestrarskólinn.
FLUTNING AT ÆKNI
FLUTNINGASKIPULAG
(LOGISTICS)
MARKMIÐ
Efnisflæðikostnaður í fyrirtækjum (þ.e. kostn. við flutning, birgðahald og
meðhör.dlun vöru) er muu meiri en bókhaldið segir til um. I vissum iðn-
greinumfer90'/i vinnunnar i störf viðefnisflæði. -1 fjölmörgum tilfellum
hefur mistekist að lækka efnisflæðikostnaðinn. Ástæðurnar er oft að
leita í röngum aðferðum, skorti á samræmingu og úreltri tækni.
Á námskeiði þessu munu þátttakendur: -Kynnast hugtakinu logisticsog
þýðingu þess í nútímarekstri. -Öðlast þekkingu á nýjungum í flutninga-
tækni og flutningaskipulagi. - Læra að nota logistics-aðferðir við hag-
ræðingu og uppbyggingu á flutningum. birgðahaldi og vörumeðhöndlun
Almennt að ná tökum á heildarefnisflæðinu.
EFNI:
- Logistics: Uppruni, markmið, kerfi, aðferðir, tækni. - Flutningakeðjan:
Farið yfir alla hlekkina og notkunarmöguleika. - Flutningaskipulag:
Aðflutningar til íslands, hagrEeðingarmöguleikar, notkunarmöguleikar.
-Flutningakeðjan: Fariðyfiralla hlekkinaogbent áhagfræðingarmögu-
leika og aðferðir til kostnaðarlækkunar. - Raunverkefni.
ÞÁTTTAKENDUR:
Námskeiðið er ætlað öllum stjórnendum, sem áöyrgð bera á innkaupum,
birgðahaldi, vörudreifingu og vörumeðferð, og einnig þeim rekstrar- qg
hagfræðingarráðgjöfum, sem vilja tileinka sér þekkingu á logistics.
LEIÐBEINANDI:
Thomas Möller, hagverkfræð-
ingur, próf í hagverkfræði frá
tækniháskólanum í Vestur-
Berlín. Starfar nú sem deildar-
stjóri fiutningatæknideildar
hjá Eimskip.
TÍMI
1984. 19.-21. marskl. 13.30-17.30.
ATH: Starfsmenntunarsjóður Starfsmannafélags rikisstofnana styrkir
félaga sina á þetta námskeið og skal sækja um það til skrifstofu SFR.
TILKYNNIÐ ÞÁTTTÖKU
í SÍMA 82930
Astjórnunarféiag
Æ<\si
ISIANDS
SKXJMÚLA 23
SÍMI 82930