Morgunblaðið - 11.03.1984, Síða 29

Morgunblaðið - 11.03.1984, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. MARZ 1984 77 poppfréttir Fjórmenningarnir í 'A7 spóka sig mcð Austurvöll í baksýn. Hljómsveitin V27 frá Akureyri í Járnsíðuspjalli: Grunaoi aldrei ao vio ættum eftir að leika þessa tónlist ÞEGAR Akureyri og popptónlist ber á góma í sömu andránni kem- ur venjulega aðeins eitt upp í hug- ann: BARA-Flokkurinn. En enginn skyldi halda. aö á Akureyri þrifust ekki fleíri sveitir. Vi7 er ein nokk- urra sveita, sem berjast við BARA-Flokkinn og allar hinar um athyglina. Til þessa hefur baráttan gengiö bærilega því flestum ber saman um að 1A7 komi næst BARA-Flokknum af akureyrsku hljómsveitunum. V47 er skipuð fjórum frískum strákum og einni hurö. Er hurðin lík- ast til sú eina sinnar tegundar í tón- listar„bransanum“. Hún fylgir fjór- menningunum hvert sem þeir fara. Þeir láta vel af henni, segja hana þægilega í meöförum, auk þess sem henni bregöist aldrei bogalistin á tónleikum. Nánast sterkasti hlekk- urinn í sveitinni. Þaö besta er þó, aö hún mótmælir aldrei þvi sem viö hana er sagt. Fjórir frískir sveinar En þaö voru hinir holdi klæddu meðlimir Vi7, sem ætlunin var aö kynna. Jón Haukur Brynjólfsson heitir sá, sem mest ber á. Hann leik- ur á bassa og sér um söng. Þráinn Brjánsson lemur húðirnar, Jóhann Ó. Ingvarsson sér um hljómborös- leikinn og Kolbeinn Gíslason leikur á gítar. Járnsíðan hitti hljómsveitina aö máli á kaffihúsi í miðborginni einn laugardag fyrir nokkru og lagöi fyrst fyrir þá spurninguna hversu gömul sveit 'A7 væri. „Nafnið er oröiö nokkuö gamalt, en í núverandi mynd er hljómsveitin ekki ýkja gömul. Mannabreytingar hafa verið nokkuö tíðar, en þó hafa ekki nema 6 menn gist sveitina. Þaö hefur þó nægt til þess aö mynda fimm mismunandi útgáfur," sagöi Jón Haukur. Fjöldi möguleika er enn fyrir hendi, en ef marka má ummæli fjórmenninganna (Kolbeinn mætti þó ekki fyrr en rétt í lokin) hafa þeir áhuga á aö halda sveitinni í þessari mynd. „Kolbeinn var sá, sem kom síöastur inn í núverandi mynd sveit- arinnar. Var þó einn af stofnendum hennar," bætti hann viö. Vantar nýjan Bubba Er tónlistarlífið sæmilega fjörugt á Akureyri? „Það er ekki svo dauft,“ sögöu strákarnir, „en vandinn er bara sá að Akureyringar viröast ekki hafa mikinn áhuga á aö hlusta á hljóm- sveitirnar í bænum. Þaö viröist eitt- hvaö spennandi þurfa aö gerast til þess aö hrista upp í þessu á ný. Einhvern nýjan Bubba. Annars er samstarfiö á milli hljómsveitanna ekki nógu gott. Hálfgerður rígur ríkj- andi, en þó ekkert í líkingu við það. sem látiö var liggja aö í viötaii okkur í Degi fyrir nokkru. Þaö orðum aukiö. Þú mátt bæta að Pálmi í Bimbó hefur verið or mjög hjálplegur.” Fáið þið þá fá tækifæri til að spila? „Já, tækifærin eru ekki ýkja mörg, enda erum viö komnir alla leiö hingaö til Reykjavíkur til þess aö spila. Viö höfum efnt til tvennra tónleika á Akureyri að undanförnu, aörir gengu ágætlega, hinir voru ekki svo góöir.“ V47 er nú aö komast á fullt skriö eftir nokkuð langt hlé. Sjö mánuöir voru þaö víst, sem sveitin lá í dvala. Aö sögn strákanna má e.t.v. aö ein- hverju leyti rekja deyfðina þessa 7 mánuöi til þeirra sjálfra, áhuginn kannski ekki verið nógu brennandi og trúin á sjálfan sig ekki fyrir hendi. En nú á að hefja nýtt líf. Ég spuröi þá aö því hvort þetta langa hlé heföi skilað sér í breyttri tónlist. „Já, tónlistin hefur gerbreyst hjá okkur. Viö erum aö spila tónlist núna, sem okkur heföi aldrei grunað aö við ættum eftir aö spila þegar viö byrjuðum. Viö vorum orönir mjög þungir, bæöi tónlistarlega og and- lega, áöur en við tókum þetta um- rædda langa hlé. Þaö var ekki fyrr en viö settumst niöur og lögöum máliö niður fyrir okkur, aö ákveöin hugarfarsbreyting varð hjá okkur. Áöur fyrr var þetta hreint og klárt rokk hjá okkur. Kannski má segja aö tónlistin hjá okkur sé ennþá hreint og klárt rokk, en miklu fág- aðra en fyrst. Lögin spanna áhrif allt frá U2 yfir í Japan. Þá finnst okkur sem þróunin hjá okkur sé miklu ör- ari nú en áöur var.“ Vorum helv ... sárir Hvað var það eiginlega sem orsakaöi þessa hugarfarsbreyt- ingu? „Ja, viö getum nú þakkað hana aö talsveröu leyti „mixer“-mannin- um okkar, honum Sigurði Árna Sig- urðssyni. Hann kom á tvær æfingar hjá okkur og steinþagöi allan tim- ann. Viö héldum náttúrlega aö hann væri bergnuminn af hrifningu, en þaö var þá hiö gagnstæða. Hann rakkaöi tónlistina niöur hjá okkur og viö munum það vel að viö vorum helv... sárir út í hann fyrst. Fórum svo aö hugsa málið og uröum fljótt sammála honum." Hvað er framundan hjá ykkur? „Ekkert sérstakt, a.m.k. ekkert fastmótaö prógramm. Við veröum aö fara að reyna að fá að spila ann- ars staöar en á Akureyri, þaö geng- ur ekki lengur aö einskoröa sig viö heimaslóöir. Annars höfum viö leik- iö á Króknum (Sauðárkrók) viö ágætar undirtektir og á leiöinni hingaö suöur komum við viö á Bif- röst. Úr þvi stoppi uröu einhverjir þeir skemmtilegustu tónleikar, sem viö höfum staöið aö. Það var taum- laust fjör þótt margmennið væri ekki beint til trafala.“ Einhver lokaorð? „Er hún ógift sú?“ Bárujárnsunnendur saman undir einum hatti: Stofnfundur klúbbs í Safari á þriðjudag „Við ætlum okkur aö verða stærri en Albert," hrópaöi Eiríkur Hauksson, söngvari Drýsils, yfir gesti Safari á fimmtudag um leiö og hann vakti athygli manna á stofnfundi félags íslenskra báru- járnsunnenda, sem tilkynntur haföi verið hálfri klukkustundu áður. Já, loksins hefur veriö ákveöiö aö ráöast í stofnun þessa klúbbs, sem skýrt var frá á Járnsíöunni fyrir nokkrum vikum. Stofnfundur- inn fer fram í Safari á þriöjudag kl. 20.30 og er þar öllum heimill að- gangur, ungum sem öldnum, há- um sem lágum. Eins og skýrt hefur veriö frá er megintilgangur klúbbs þessa aö efla samstööu þárujárnsunnenda hér á landl. Þaö er þó ekki eini tilgangurinn þvt uppi eru hug- myndir um kynningu á nýjum plöt- um og myndböndum, útgáfu fréttabréfs og jafnvel ritraöar um helstu bárujárnsflokkana svo og undirbúning hópferöar á rokkhá- tíðina viö Castle Donington í sumar o.fl. o.ffl. Um leiö og allir þeir, sem áhuga hafa á að vera með í klúbbnum, eru hvattir til þess aö fjölmenna í Safari kl. 20.30 (ath! ekkert kostar inn) á þriöjudag er þeim, sem skrifaö hafa Járnsíðunni bréf vegna fyrirhugaörar stofnunar þessa klúbbs, bent á að sökum timaskorts var ekki unnt aö hafa samband við þá nú fyrir helgina. Búi menn á Reykjavíkursvæöinu er bara að drífa sig í Safari. Utan- bæjarmenn, sem veriö hafa í sam- bandi viö Járnsíöuna, fá fregnir af stofnfundinum bréfleiöis. Þá er rétt aö geta þess í lokin, aö Ófeigur Ofeigsson á Akureyri hefur tekiö aö sér að safna saman nöfnum þeirra, sem áhuga hafa á aö ganga í útibú klúbbsins þar i bæ. Hægt er að komast í sam- band viö Ófeig i síma 24331 eftir kl. 19 á Akureyri. VINSÆLDALISTARNIR Vinsældalisti Tónabæjar og Járnsíðunnar fyrirfannst hvergi þegar grípa átti til hans í síð- ustu viku. Skýringin var ofur einföld þegar að öllu var gáð — hann var einfaldlega ekki valinn þá vikuna. Herranótt MR lagði nefnilega húsið undir sig á þriðjudag í fyrri viku. Listinn er annars hér kominn: 1 BREAK MY STRIDE/Matthew Wilder 2 JUMP/Van Halen 3 LOVE TRAP/Astaire 4 RADIO GA GA/Queen 5 HERE COMES THE RAIN AGAIN/Eurythmics 6 SHAME/Astaire 7 RELAX/Frankie Goes to Hollywood 8 I AM WHAT I AM/Gloria Gaynor 9 BREAK DANCE/lrene Cara 10 RUNNING WITH THE NIGHT/Lionel Richie Bretland - litlar plötur 1 ( 1) 99 RED BALLOONS/Nena (4) 2 ( 3) JOANNA/Kool and the Gang (3) 3 ( 2) RELAX/Frankie Goes to Hollywood (9) 4 ( 4) WOULDN’T IT BE GOOD/Nik Kershaw (4) 5 (11) STREET DANCE/Break Machine (3) 6 ( 6) SOMEBODY’S WATCHING ME/Rockwell (4) 7 (10) RUN RUNAWAY/Slade (3) 8 ( 8) AN INNOCENT MAN/Billy Joel (3) 9 ( 5) DOCTOR DOCTOR/Thompson Twins(6) 10 (20) JUMP/Van Halen (2) 11 (—) BOLERO/Michael Reed Orchestra(l) 12 (14) HIDE AND SEEK/Howard Jones (3) 13 (19) I GAVE YOU MY HEART/Hot Chocolate (2) 14 (15) LET THE MUSIC PLAY/Shannon (4) 15 (17) GET OUT OF YOUR LAZY BED/Matt Bianco (2) 16 ( 7) RADIO GA GA/Queen (6) 17 ( 9) MY EVER CHANGING MOODS/Style Council (4) 18 (12) BREAK MY STRIDE/Matthew Wilder (7) 19 (—) BREAKIN' DOWN/Julia & Co (1) 20 (13) GIRLS JUST WANT TO HAVE FUN/Cyndi Lauper (7) Bretland - stórar plötur 1(1) INTO THE GAP/Thompson Twins 2 (—) THE WORKS/Queen 3 ( 3) AN INNOCENT MAN/Billy Joel 4 ( 5) THRILLER/Michael Jackson 5 ( 2) THE SMITHS/The Smiths 6 ( 4) TOUCH/Eurythmics 7 ( 6) KEEP MOVING/Madness 8 (10) CAN’T SLOW DOWN/Lionel Richie 9 ( 7) SPARKLE IN THE RAIN/Simple Minds 10 (—) HUMAN RACING/Nik Kershaw Bandaríkin - litlar plötur 1 ( 2) 99 LUFTBALLOONS/Nena 2 ( 3) GIRLS JUST WANT TO HAVE FUN/Cyndi Lauper 3 ( 1) JUMP/Van Halen 4 ( 5) THRILLER/Michael Jackson 5 ( 9) SOMEBODY’S WATCHING ME/Rockwell 6 ( 6) NOBQDY TOLD ME/John Lennon 7 ( 4) KARMA CHAMELEON/Culture Club 8 ( 8) LET THE MUSIC PLAY/Shannon 9 (10)1 WANT A NEW DRUG/Huey Lewis and the News 10 (15) HERE COMES THE RAIN/Eurythmics Af listafólki ★ Fremur rólegt er yfir breska listanum aö þessu sinni og Nena situr sem fastast i efsta sætinu meö stríðssönginn sinn 99 Red Balloons. + Joanna meö Kool and the Gang er komið í annaö sætiö og er þetta vinsælasta lag þeirra til þessa í Bretlandi. Svalur og gengi hans höföu áöur komist hæst í 3. sætiö meö laginu Get Down on It í janúar 1982. ★ I fimmta sætinu sitja þrír ungir blökkusveinar frá Queens-hverf- inu í New York. Auk þess aö syngja eru þessir strákar miklir snillingar í hinum svokallaöa breakdance enda kalla þeir sig Break Machine. ★ Hiö taktfasta tónverk franska tónskaldsins og pianóleikarans Ravel, Bolero, situr í 11. sætinu. Skautadanspariö Christopher Dean og Jayne Torvill slógu ein- mitt í gegn á vetrarólympíuleik- unum í Sarajevo meö dansi sín- um viö þetta lag. Vinsældir þeirra, ekki síöur en lagsins sjálfs, eru með ólíkindum í Bret landi þessa dagana. ★ Thompson Twins eiga enn mest seldu breiöskifuna, en Queen renndi sér rakleiöis inn í 3. sæti listans meö Works. Þetta er 13. breiðskífa fjórmenning- anna í Queen. * Nik Kershaw er ungur Breti sem skotiö hefur upp á stjörnu- himininn á síöustu vikum, fyrst meö laginu Wouldn’t It Be Good og nú meö breiðskífunni Human Racing. Hún situr í 10. sætinu eftir einnar viku sölu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.