Morgunblaðið - 11.03.1984, Side 36
84
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. MARZ 1984
-v V-
„'ycqcx ej \Jaf á p\num aldri, gat 'eg hlaupib
1OO metrana. á. 17. m’inútum."
ást er...
... aðeins upphafið
TM Rag U S. Pat OfT-aN rights resatved
•1984 Los Angetes Times Syndtcate
Með
morgunkaffinu
m>Kf
Flýtid vkkur, ég skal segja ykkur
hvernig myndin endar!
I’ú veist að það er saumaklúbbur í
kvöld ...
HÖGNI HREKKVISI
„ EG PÆ.TI ALUAf Olp 5A1Á5T1EINSEL JUúReiN."
Fjárskortur ríkissjóðs
— ábendingar og fyrirspurnir til fjármálaráðherra
Jón Þorláksson skrifar:
„Mikla athygli hefur vakið hinn
gífurlegi halli á ríkissjóði, sem
talinn er nema 1700—1800 millj-
ónum króna árið 1984. Hvað er til
ráða?
Hér skal bent á þrjú mál, sem
öll gætu stuðlað að lausn þessa
mikla vanda, án þess að fela í sér
aukna skattheimtu á almenning.
1) Ríkið selji þegar í stað, eða
svo fljótt sem verða má, rás 2 hjá
ríkisútvarpinu. Það ber ekki vott
um féleysi, þegar ríkið eða ríkis-
stofnanir leggja tugi milljóna
króna í nýtt dótturfyrirtæki, né
heldur er það í samræmi við yfir-
lýsta stefnu ríkisstjórnar um að
draga úr ríkisumsvifum og sýna
aðhald í ríkisrekstrinum.
Þessi lausn hefði auk þess þann
stóra kost, að með því væri hægt
að skapa samkeppni á útvarps-
markaðinum. Er fjármálaráð-
herra sammála því, að rétt sé að
aflétta einokun stjórnmálamanna
á útvarpsrekstri?
2) Ríkið hætti þegar í stað öll-
um fjáraustri í steinullarævintýr-
ið. Það ber hvorki vott um trú-
Police á Listahátíð ’84
Til Velvakanda.
„Mikið er skrifað um hvaða
hljómsveit eigi að fá á Listahátíð
og ber þar hæst nöfnin Duran
Duran og Culture Club. En mér
finnst furðulegt að engin Police-
aðdáandi skuli hafa látið í sér
heyra, því Police á fjölmarga að-
dáendur hér á landi. Þeir félagar
hafa sjaldan verið eins góðir og
einmitt nú. Það sannar nýjasta
plata þeirra Synchronicity sem
alls staðar hefur slegið í gegn.
Police er frábær á tónleikum. Því
er ég viss um að þeir þremenn-
ingar myndu troðfylla höllina.
Vonandi láta Police-aðdáendur nú
frá sér heyra.
Police-aðdáandi.“
Hljómsveitin Police
Athugasemdir við bréf ísólfs:
„AUt í lagi þó rokkarar
landsins sameinist“
Til Velvakanda.
Flosi skrifar:
„Ég þakka kærlega gott boð ís-
ólfs er hann býður mér í félags-
skap rokkara og læra allt um
rokk. Þú hélst greinilega að ekki
væri vanþörf á, en það er ekki rétt.
Þegar ég hringdi í Velvakanda var
ég að tala um þungarokk (Heavy
metal) sem hljómsveitir á borð við
AC/DC, Iron Maiden og Scorpions
flytja. Á ég að trúa því að þetta sé
„original" rokk í þínum eyrum?
Mér finnst allt í lagi þó rokkar-
ar landsins sameinist (ef þeir eru
það ekki þegar) bara ef þeir láta
okkur hin í friði, og svo vil ég
gjarnan gera þér það ljóst, ísólf,
að mér þykir Led Zeppelin góð
hljómsveit og eina „Heavy met-
al“-sveitin sem varið er í, þótt til
séu góð lög með Deep Purple,
Krakus o.fl.
Aftur á móti finnst mér Iron
Maiden, AC/DC, Scorpions,
Blackfoot og þessar hljómsveitir
hrútleiðinlegar og aðeins slöpp af-
sprengi Led Zeppelin og Deep
Purple. Ég er sammála því sem þú
segir um útvarpið og plötusnúða
borgarinnar, en þó finnst mér
skjóta skökku við þegar þú talar
um „Nýbylgjuléttdiskaða Rolíng-
stónsa“? Ef þú heldur því fram að
lög eins og t.d. „Satisfaction" séu
ekki rokk, þá ættir þú að halda þig
heimafyrir. Það er alveg rétt að
Ceritaur spilar „original“-rokk
(hvað annað?) — en þungarokk —
nei, það er af og frá. Að lokum vil
ég biðja þig að hlusta á hljóm-
sveitir frá suðurríkjum Banda-
ríkjanna eins og Molly Hatchet,
Lynyrd Skynyrd. Og menn eins og
Gregg Allman, Charlie Daniels,
því þá veistu hvað ég á við þegar
ég tala um suðurríkjarokk."
Skrifið eða hringið
til Velvakanda
Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvaðeina, sem
hugur þeirra stendur til — eða hringja milli kl. 11 og 12, mánudaga til
föstudaga, ef þeir koma þv( ekki við að skrifa. Meðal efnis, sem vel er
þegið, eru ábendingar og orðaskipti, fyrirspurnir og frásagnir, auk pistla
og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn, nafnnúmer
og heimilisföng verða að fylgja öllu efni til þáttarins, þó að höfundar
óski nafnleyndar.
Sérstaklega þykir ástæða til að beina því til lesenda blaðsins utan
höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja bér I
dálkunum.
Nokkur
heilræði
Gestur sendi eftirfarandi
heilræði tl Velvakanda undir
yfirskriftinni: Það sem þú get-
ur gert til þess að verða ekki
þræll vinnu þinnar.
Sýndu henni alla virðingu.
Reyndu að hafa ánægju af henni.
Lát ekki sem þú sért of góður til
hennar.
Legðu alla andlega krafta þína í
hana.
Sjáðu fegurð í henni.
Starfa þú með ákveðið takmark
fyrir augum.
Beittu við hana öllum gáfum þín-
um.
Gerðu allt svo vel sem unnt er.
Gerðu aðeins eitt í einu.
Vertu meiri en vinna þín.
Búðu þig vandlega undir hana.
Notaðu hana til þess að þroska
mannveru þína.
Vinn með gleði, og það þó að
vinnan sé leiðinleg.
Vinn sem listamaður, en ekki að-
eins sem handverksmaður.
Notaðu hana sem ráð til þess að
hafa þig áfram.
Reyndu að gera allt betur en það
hefur áður verið gerL
Gerðu þig aldrei ánægðan með
minna en það sem er fullkomið.
verðugheit né ábyrgðartilfinningu
að ausa fé í fyrirtæki, sem fram-
leiðir 6000 tonn af vöru fyrir
markað, sem er aðeins 600 tonn,
né heldur er steinull æskilegur
iðnkostur sökum heilsuspillandi
áhrifa. Alþýðublaðið upplýsti
fyrir skömmu, að aðeins í Dan-
mörku einni hefðu 11 steinullar-
verkamenn látist af völdum stein-
ullar á einu ári. Vill fjármálaráð-
herra að þessari vöru sé haldið að
almenningi? Sæmir slíkt ríkis-
stjórn, sem vill fara vel með fé?
3) Ríkið selji öll hlutabréf sín í
einkafyrirtækjum, svo og þau
fyrirtæki og stofnanir, sem það
hefur ekkert með að gera. Þannig
mætti fá talsvert fé, það er að
segja ef fólki yrði ekki jafnframt
refsað fyrir að eiga eða eignast
hlutabréf, heldur nyti það sömu
skilyrða skattalaga og þeir, sem
lána ríkinu sparifé sitt með kaup-
um á rikisskuldabréfum.
En hversvegna gengur svo hægt
að selja hlutabréf ríkisins? Það er
bæði tafsamt og þunglamalegt, ef
Alþingi þarf að leggja blessun
sína yfir sérhverja sölu á hluta-
bréfum ríkisins. í því sambandi
vaknar sú spurning, hvort aflað
hafi verið samþykkis Alþingis
fyrirfram, þegar hlutabréfin voru
keypt? Eru hlutabréf ekki lausafé
á sama hátt og margt annað, t.d.
bifreiðir? Er aflað samþykkis Al-
þingis, þegar ríkið selur bifreiðir
sínar? Það er hlægilegt, ef ríkið
getur t.d. ekki selt 10 þús. kr.
hlutabréf einum einstaklingi
nema eftir samþykki Alþingis, en
hafi hinsvegar ekkert með það að
gera, ef öðrum einstaklingi er seld
ríkisbifreið á 400 þús. kr. Sjá allir
að þetta er hin mesta fásinna.
Eg vona, að hæstvirtur fjár-
málaráðherra geti svarað ofan-
greindum spurningum og ofan-
greindar hugleiðingar megi verða
að liði í því efni að afla ríkissjóði
fjármagns. Þegar einstaklingur
hefur ekki tekjur til að borga méð
útgjöld sín og eyðslu, þá tekur
hann til þess ráðs að láta eitthvað
af eignum sínum, þ.e. ef hann ætl-
ar sér að vera skilamaður. Alveg
það sama gæti ríkið gert.“
Jón Þorláksson