Morgunblaðið - 17.03.1984, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. MARZ 1984
13
Biskup frá
Malaysíu
prédikar
í Dóm-
kirkjunni
BISKIIP frá Malaysíu mun prédika
við messuna kl. 11.00 í Dómkirkj-
unni á morgun, sunnudag 18. mars.
I>að er dr. Yap Kim Hao biskup og
aðalritari Kristniráðs Asíu (Christian
Conference of Asia).
Dr. Yap er hingað kominn til að
sitja hér ráðstefnu á vegum Lúth-
erska heimssambandsins og Al-
kirkjuráðsins, sem Hjálparstofn-
un kirkjunnar sér um. Á ráðstefn-
unni mun einkum fjallað um aukið
hjálparstarf til þeirra, sem eiga
um sárt að binda í Afríku vegna
náttúruhamfara eða styrjalda og
er þar af nógu að taka.
Það gerist ekki á hverjum degi,
að íslendingar fái heimsókn krist-
inna bræðra frá Asíu og fái að
heyra kristna rödd þaðan. Þess
vegna er dr. Yap boðinn hjartan-
lega velkominn í Dómkirkjuna á
morgun.
Dr. Yap biskup mun flytja pré-
dikun sína á ensku, en mál hans
verður túlkað á íslensku.
Hjalti Guðmundsson.
Sjálfsbjörg:
Mótmælir ný-
gerðum kjara-
samningum
FRAMKVÆMDASTJÓRN Sjálfs-
bjargar, landssambands fatlaðra, hef-
ur sent forsætisráðherra bréf, þar sem
hún lýsir yfir undrun sinni á því að
örorkulífeyrisþegar skuli hafa orðið
útundan í nýgerðum kjarasamningum
ASÍ og VSÍ.
I bréfinu segir að þrátt fyrir að í
samningunum sé viðurkennt að lág-
marks dagvinnutekjur skuli ekki
vera lægri en kr. 12.660 sé þessum
hópi ætlað að draga fram lífið af
7.018 sem er samanlagður örorku-
lífeyrir og tekjutrygging 29. febr.
1984.
Framkvæmdastjórn Sjálfsbjarg-
ar mótmælir í bréfinu skertum hlut
fatlaðra og skorar á ríkisstjórnina
að leiðrétta hlut örorkulífeyrisþega
þannig að hækkun nemi sömu fjár-
hæð og hækkun lágmarkslauna í
kjarasamningum ASl og VSl og
taki gildi frá sama tíma.
Einnig telur framkvæmdastjórn
Sjálfsbjargar hækkun vasapeninga
um kr. 500, sem talað er um í téðum
samningum, villandi, hér sé ekki
um eiginlega hækkun að ræða,
heldur margra mánaða drátt á
framkvæmd á reglugerð frá 14.
apríl 1983.
Framkvæmdastjórnin skorar því
á ríkisstjórnina að vasapeningar
verði a.m.k. þriðjungur saman-
lagðrar upphæðar örorkulífeyris og
tekjutryggingar.
HÓTEL BOR
Höfum endurvakið rómað
andrúmsloft liðinna ára
V
Vistlegur veitingastaður
við allra hæfi
Nýr
sérréttamatseðill
Gisting í stórum
og skemmtilegum
herbergjum s: 11440.
KOMIÐ — SJÁIÐ — SANNFÆRIST
iyi
é
V.
II
>1
K
VORSOLUSYNING
á notuðum MAZDA bílum
Laugardag frá kl. 10-4
Með hækkandi sól og batnandi veðri höldum við
sýningu á landsins besta úrvali af notuðum bílum.
Bílarnir eru allir gaumgæfilega yfirfarnir á verkstæði
okkar, þeir eru í 1. flokks ástandi og þeim fylgir 6
mánaða ábyrgð frá söludegi.
Komið á sýninguna í dag og tryggið ykkur 1. flokks
MAZDA bíl fyrir sumarið.
Hagstæð kjör.
Athugið: Okkur hefur loksins tekist aö fá til sölu örfáa
MAZDA 323
Sýnishorn úr söluskrá:
Gerö Árg. Ekinn
929 LTD 2 dyra HT '83 19.000
323 1500 4 dyra Saloon '82 13.000
626 2000 5 dyra vökvast. '83 36.000
929 LTD 4 dyra vökvast. '82 11.000
929 SDX 4 vökvast. '82 10.800
626 2000 4 dyra. '82 10.000
626 2000 4 dyra sj.sk. '82 26.000
626 1600 4 dyra '81 20.000
323 1500 Saloon sj.sk. '82 22.000
323 1300 5 dyra '81 38.000
626 1600 4 dyra '80 69.000
626 2000 4 dyra '80 60.000
929 Station '80 63.000
6 mánaða ábyrgð á notuðum bílum
Öryggi í stað áhættu
BILABORG HF.
Smiðshöfða 23 sími 812 99