Morgunblaðið - 17.03.1984, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. MARZ 1984
15
Sinfóníutónleikar
Tónlist
Jón Ásgeirsson
Efnisskrá:
Schubert/Forleikur ad óperunni
„Fjögurra ára varðstaða"
Mozart/Konsert fyrir klarinett.
John Spight/Konsert fyrir klarinett
(frumflutningur)
R. Strauss/Tónaljóðiö Don Juan.
Einleikari: Einar Jóhannesson.
Stjórnandi: Jean-Pierre Jacquillat.
Óperan „Fjögurra ára varð-
staða" er eina óperan sem varð-
veitt er í heild af þeim er Schubert
samdi árið 1815. Svo virðist sem
Schubert hafi ætlað sér að leggja
stund á óperugerð. Ein af þessum
óperum er við texta eftirGoethe,
Claudine von Villa Bella. Af þessu
verki er aðeins til fyrsti þátturinn,
því þjónn Josefs nokkurs Hútt-
enbrenners, er átti handritið, mun
hafa rifið aftan af handritinu
smám saman til að auðvelda sér
að kveikja upp. Efnið í Fjögurra
ára varðstöðunni er um franskan
hermann, Duval að nafni, sem
skilinn er eftir á vakt og gleymist
er herdeildin yfirgefur Þýskaland.
Hann sest að í þorpinu, kvongast
dóttur dómarans og hamingjan
ræður ríkjum. Fjórum árum síðar
brýst út annað stríð og sama her-
deildin kemur aftur og er úr vöndu
að ráða, annars verði Duval skot-
inn, sem liðhlaupi. Hann tekur
það ráð að klæðast gamla herbún-
ingnum og taka sér varðstöðu á
sama stað og fyrir fjórum árum.
Mál hans er ekki hægt að taka upp
fyrr en hann hefur verið leystur
„af vakt“ og þar með er það viður-
kennt, að Duval hafi ekki vikið af
verðinum, heldur staðið sína vakt
með sóma í fjögur ár og óperan
endar með miklum fögnuði. Ekki
verður sagt að forleikurinn sé til-
takanlega mikil tónsmíð, enda var
Schubert aðeins 18 ára gamall og
á þessum árum stundaði hann
kennslu, sem átti fremur illa við
hann.
Næsta verkefnið var svo klarin-
ettukonsert eftir Mozart, sem er
eitt af fallegustu verkum snill-
ingsins. Einar Jóhannesson lék
konsertinn mjög vel, sérstaklega
fyrsta þátt. Hægi þátturinn hefði
mátt vera ívið hægari og síðasti
leikléttari. Þarna er um hraðaval
og samspil við hljómsveitarstjóra
og hljómsveit að ræða en léttur
leikur Einars hefði notið sín enn
betur, ef síðasti þátturinn hefði
verið ögn léttari í hraða. Því hefur
verið haldið fram, að flytjendur
þurfi að varast margbreytilega
tónlist og að þjálfun í tónmótun,
túikun og reyndar allri framsetn-
ingu tónhugmynda, sé sama eðlið
og atferlisþjálfun. Sé þetta rétt er
trúlega erfitt að halda jafnvægi
milli jafn ólíkra tónhugmynda og
Athugasemd
MORGUNBLAÐINU hefur borist eft-
irfarandi athugasemd frá Sigríði Stef-
ánsdóttur réttarfélagsfræðingi vegna
viðtals við prófessor Ullu Bondeson
þann 22. febrúar si.
„Því miður barst mér ekki Morg-
unblaðið frá 22. febrúar fyrr en það
var orðið hálfsmánaðargamalt, en
vil þó gera athugasemd á þessum
vettvangi til að réttlætinu sé full-
nægt.
Það er ánægjulegt að lesa viðtalið
við Ullu Bondeson og umfjöllunina
um þau verkefni, sem sakfræðingar
eru að fást við. Á Réttarfélags-
fræðistofnuninni við Lundarhá-
skóla erum við hins vegar ekki
alveg sátt við lýsinguna á starfs-
vettvangi prófessorsins. Vissulega
er stutt á milli Lundar og Kaup-
mannahafnar og e.t.v. dæmi þess,
að menn gegni prófessorsembætt-
um á báðum stöðum, en Ulla Bonde-
son hefur verið í leyfi frá stöðu
sinni í Lundi frá því í febrúar 1980.
Settur prófessor er Hans Klette. Á
námstíma mínum hér hef ég aldrei
séð Ullu Bondeson og svo er um
marga af eldri nemendum stofnun-
arinnar, enda gegnir hún engum
störfum við haná.“
tíðkast í „klassískri" tónlist og
þeirri sem nýtískulegust er. Víst
er að marka má mikinn metnað og
óvenjulega vandvirkni hjá Einari
Jóhannessyni í flutningi Klarin-
ettukonsertsins eftir John
Speight. Einar lék konsertinn
„utan að“ og svo vel, að trúlega
verður ekki betur gert nema ef
Einar sjálfur tæki verkið upp
seinna. Einar er snilldarleikari og
skóp verki Speight mjög fallega
gerð, með frábærum flutningi.
Konsertinn er góð tónsmíð, þar
skiptast á leikur með „effekta“ og
oft á tíðum fallegar tónhendingar.
Hljóðeffektar eru á undanhaldi
sem afmörkuð viðfangsefni og
mjög áberandi að blæbrigði hljóð-
anna tengjast æ meir lagferlis-
hugmyndum. í þessu verki jafnar
Speight metin milli þessara and-
stæðna og gerir það á sannfær-
andi hátt. Verkið er ekta einleiks-
verk og hljómsveitarþátturinn
einfaldur og skýr.
Tónleikunum lauk með Don
Juan eftir Richard Strauss. Það er
sjálfsagt að hljómsveitin takist á
við Strauss en heldur vantar á
strengjasveitina til þess að vel
fari. Það ætti að vera tii athugun-
ar hjá stjórn sveitarinnar að hafa
sérstaka tónleika, þar sem stærri
hljómsveitarverk væru eingöngu
flutt og þá fá til liðs við hljóm-
sveitina fullskipaða strengjasveit,
eða 24 fyrstu fiðlur, 20 aðrar fiðl-
ur, 18 lágfiðlur, tíu selló og annað
eins af kontrabössum. Þá væri
hægt að setja upp tónleika með
stórkostlegum höfundum eins og
Strauss, Mahler, Bruchner, Strav-
insky og Ives svo nokkrir séu
nefndir. Don Juan er „prógramm-
verk“ og hefði þurft að rekja sögu
verksins í efnisskrá. Óstjórnleg
kvennalyst Don Juans, þrá hans
eftir hinni fullkomnu konu, ótti
við útskúfunina vegna syndsemi
sinnar, fegurð og ástarhlýja sem
birtist í fallegum fiðlu- og óbóein-
leik (Donna Anna og Donna Elv-
ira), hið tignarlega hornstef er
táknar Don Juan sjálfan, óm-
streituþátturinn er táknar ótta
hans, svall, fordæmingu og dauða
eru viðfangsefni Strauss í þessu
Einar Jóhannesson
magnaða og glæsilega tónverki.
Öll þessi atriði merkjast af
ákveðnum tónhugmyndum og
bæði hljómsveit og áheyrendur
þurfa að þekkja söguna og tónhug-
myndirnar til að lifa verkið eins
og Strauss hugsaði það. Það var
töluverð ástríða í flutningi verks-
ins og margt vel gert, eins og t.d.
óbósólóin, er Kristján Stephensen
lék mjög vel. Valdhornaflokkurinn
lék Don Juan-stefið vel og sömu-
leiðis lék konsertmeistarinn fiðlu-
sólóina ágætlega. í heild var flutn-
John Speight
ingurinn hressilegur en á köflum
nokkuð órólegur, einkum þar sem
vel hefði mátt gefa ögn eftir í
takti. Verkið er í heild þrískipt og
skiptast á blæbrigði er tákna ást-
ina, óttann og ástríður og er
niðurlag verksins ekki aðeins
niðurlag á tónverki, heldur og
táknandi fyrir það niðurlag sem
nefnist Dauðinn. Skáldskapur
verksins hefði mátt koma skýrar í
ljós en í heild var flutningurinn
merkilega góður.
. J. Ásg.
Þekkir f>ú vandaða innihurð,
pegar pú sérðhana?
í áratugi hafa hurðirnar frá Sigurði Elíassyni
notið álits sökum vandaðrar smíði og fallegs
útlits. Margar nýjungar i framleiðslu og frá-
gangi mnihurða á íslandi hafa átt upphaf sitt
á verkstæði okkar
Nú kynnum við enn eina nýjung í smiði SELKO
innihurða. Með nýrri gerð innleggs hefurokkur
tekist að hafa hurðirnar léttar, en þær eru
efnismeiri og þykkari en áður. Að 1/3 massífar,
traustar, þola mikið álag og, síðast en ekki síst,
veita mun melrl hljóðelnangrun.
Þekkir þú næst vandaða innihurð, þegar þú
sérð hana?
SELKO W
AUÐBREKKU1-3
\ 1SIGURÐUR
ELÍASSON HF.
200 KÓPAVOGI SÍMI: 4 13 80